Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2011, Page 94
94 | Fólk 20.–26. apríl 2011 Páskablað
Sveinn Andri hjúkrar ástinni sinni:
F yrirsætan Kristrún Ösp Barkar-dóttir og stjörnulögfræðingur-inn Sveinn Andri Sveinsson hafa
bæði sett mynd af sér saman á forsíður
Face book-síðna sinna. Athygli hefur þá
einnig vakið að Sveinn Andri hefur lok-
að fyrir ummæli á vegg sínum á síðunni
en hann hefur verið vettvangur skoð-
anaskipta.
Sveini Andra var hótað nýver-
ið af skjólstæðingi sínum en ekki er
vitað hvort hann hafi lokað veggnum í
tengslum við þá hótun. Skjólstæðingur-
inn sem um ræðir er annar tveggja grun-
aðra manna í barnamisnotkunarmáli
sem kom upp nýverið. Sveinn Andri
sagði sig frá málinu og tilkynnti hót-
unina til lögreglunnar sem hefur hana
til rannsóknar, samkvæmt upplýsingum
DV.
Síðast þegar fréttist af Kristrúnu Ösp
var hún að láta sig dreyma um að eign-
ast húsið sem Jóhannes í Bónus bjó í í
Eyjafirðinum. Þær hugsanir hefur hún
þó kannski látið á ís en hún hefur verið
veik undanfarið.
„Láttu þér batna annars kemur SAS
[Sveinn Andri Sveinsson] hjúkrunar-
fræðingur með kokteil af sólhatti, mixt-
úru, brjóstdropum, hvítlauk, C-vítamíni,
saltvatni og engifer og gefur þér,“ skrifaði
Sveinn Andri á vegg sinnar heittelskuðu.
Vinkonum Kristrúnar Aspar lýst á nýja
manninn en ein þeirra sá hvernig Sveinn
Andri ætlaði að hjúkra elskunni sinni og
sagði: „Djöfull áttu nú frábæran mann!“
„Djöfull áttu nú frábæran mann!“
Hugsar um ástina Sveinn Andri Sveinsson
lætur sig veikindi kærustu sinnar varða.
Mynd Rakel Ósk siguRðaRdÓttiR
Veik heima Kristrún Ösp er veik heima.
Mynd sigtRygguR aRi JÓHannsson
frændi middleton
kennari á akureyri
n Richard Middleton og kate Middleton verðandi prinsessa eru þremenningar n
Faðir
Richards fékk boð í brúðkaupið n 1.800 manns boðið í eitt stærsta brúðkaup ára
tugarins
R ichard Middleton, frændi Kate Middleton, er búsettur á Íslandi og kennir ensku við Mennta-
skólann á Akureyri. Faðir hans, Da-
vid Middleton, er meðal þeirra sem
boðnir eru í brúðkaupið Kate og Vil-
hjálms prins og mun hann mæta.
Kate og Richard eru þremenningar en
hann segir að spurningar hafa vaknað
upp hjá nemendum sínum hver tengsl
hans væru við þessa verðandi prins-
essu þar sem þau deila sama eftirnafni.
„Tengsl mín við Kate hafa vakið forvitni
margra nemenda minna í MA,“ segir
Middelton.
Faðir hans David er elsti núlifandi
meðlimur Middleton-fjölskyldunnar
og barst honum boðskort í brúðkaupið
í pósti. David þáði að sjálfsögðu boðið
en hann er einn 1.800 einstaklinga sem
fengu boðskort. Eins og sjá má á með-
fylgjandi mynd af boðskortinu er það
skreytt með gulli og þykir það einstak-
lega fallegt. „Hann hefur hitt bæði Kate
og Vilhjálm í fjölskylduboðum. Hann
segir að þau séu heillandi par. Þau eru
viðfelldin og bæði eru þau þroskuð
miðað við aldur, segir faðir minn,“ út-
skýrir Middelton.
Brúðkaup Kate og Vilhjálms prins
fer fram 29. apríl næstkomandi en um
er að ræða eitt stærsta brúðkaup ára-
tugarins en konungleg brúðkaup eru
fátíð. Mörg fyrirmenni verða viðstödd
brúðkaupið en forseti Íslands, Ólafur
Ragnar Grímsson, og eiginkona hans,
Dorrit Moussaieff, sem er breskur rík-
isborgari, fengu ekki boð í brúðkaupið.
Það mun vera vegna þess að þar sem
Vilhjálmur er ekki næstur í röðinni að
hásæti ríkisins hafa hann og Kate leyfi
til að takmarka gestafjöldann meira en
ella.
„Faðir minn hlakkar til brúðkaups-
ins þann 29. apríl – bróðir minn og
mágkona munu keyra hann til London.
Hann hefur verið að dusta rykið af kjól-
fatajakkanum sínum, kaupa sér skyrtu,
og þannig hluti. Ég hef ekki spurt hann
hvort hann ætli að gefa þeim einhverja
gjöf. Ég kemst að því þegar þar að kem-
ur,“ segir Middleton.
Brúðkaupið hefur strax vakið
heimsathygli en Kate og Vilhjálm-
ur prins tilkynntu um trúlofunina í
október í fyrra. Þau hafa verið saman
í nokkurn tíma og gengið í gegnum
ýmis legt saman, en þau slitu sambandi
sínu tímabundið árið 2007 á meðan
þau voru á ferðalagi í Sviss. Áður en
samband þeirra hófst var Vilhjálm-
ur óumdeilanlega eftirsóttasti pipar-
sveinn Bretlandseyja.
Richard Middleton, frændi tilvonandi prinsessu:
Boðskortið Faðir Richards Middleton, David,
fékk boðskort í konunglega brúðkaupið.
Mynd RicHaRd Middleton
Stefán Máni
kross-
Festur?
Rithöfundurinn Stefán Máni Sigþórs-
son gerir það gott þessa dagana en
kvikmynd sem byggð er á skáldsögu hans
Svartur á leik er í bígerð. Sjálfur segist hann
vera bjargvættur Íslands vegna myndar-
innar. „Atvinnulausir frá aukahlutverk í
Svartur á leik. Ég er bjargvættur Íslands,
breyti dimmu í dagsljós og verð trúlega
krossfestur á föstudaginn,“ skrifaði rit-
höfundurinn hressi á Facebook-síðuna
sína á fimmtudag. Hann fer ekki leynt með
skoðun sína á sjálfum sér og líkir sér við
sjálfan Jesús Krist.
Leggjum
Vælubílnum
Leikkonan Unnur Ösp Stefánsdóttir er
nýkomin heim frá Pétursborg þar sem
hún var ásamt leikhópnum Vesturporti
en hópurinn tók við Evrópsku leiklistar-
verðlaununum í borginni um síðustu
helgi. „Faust gekk vel og ég sá fallegar
byggingar og áhugaverðar leiksýningar
en það sem við erum heppin að búa hér
á Íslandi með hreint loft, hreint vatn
og endalausa náttúrufegurð...“ skrifar
leikkonan í Facebook-stöðuuppfærslu
„Leggjum nú vælubílnum fyrir fullt og
allt og förum að njóta lífsins!“
M
y
n
d
: Þ
Ó
R
H
a
ll
u
R
/P
ed
R
o
M
y
n
d
iR