Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2012, Page 2
Ógeðfelld fluga
í bómullarskífu
2 Fréttir 4.–10. apríl 2012 Páskablað
Hlýir páskar fram undan
n Regnhlífar meðferðis til öryggis
Þ
etta eru hlýir páskar sem eru
framundan,“ segir veðurfræð
ingurinn Sigurður Þ. Ragnars
son um páskaveðrið þetta árið.
Hann segir hlýtt loft vera að brjótast
yfir landið með suðvestanáttinni og
von sé á hlýindum fram á páskadag
og jafnvel lengur.
„Þeir sem ætla að vera í björtu
veðri um páskana eiga að vera á
Kirkjubæjarklaustri eða í Skaftafelli.
Þar verður sextán stiga hiti þegar
best lætur, svona framan af þessari
dymbilviku og páskum. Hinir mega
eiga von á rólegu veðri en það getur
breyst aðeins hárgreiðslan og gætu
leynst dropar í þessu. Það verður
ekki mígandi rigning yfir páskana en
það geta komið gusur,“ segir Sigurð
ur sem segir Suðausturlandið fara í
stjörnuflokk þegar kemur að veðr
inu um páskana, en þeir sem verða
á öðrum landshlutum ættu að vera
vopnaðir regnhlífum yfir páskana.
„Það er bara rómantískt að sitja
undir regnhlíf með einhverjum sem
manni þykir vænt um. Það er örugg
ara að vera með hana meðferð
is, setja öryggið á oddinn og passa
upp á greiðsluna,“ segir Sigurður
sem á von á mildu veðri um land
allt yfir páska. Nánar má lesa um
páskaveðrið á síðu 90 í blaðinu.
Mildir páskar Búast má við mildu veðri um land allt yfir páska.
É
g var bara að fara þvo af mér
málninguna og var búin bleyta
í bómullinni og tók ekki eftir
neinu fyrr en þetta var nánast
komið að öðru auganu á mér,“
segir Inga Hrönn sem varð fyrir frekar
ógeðfelldri reynslu á dögunum. Hún
var að fara að hreinsa á sér andlitið að
kvöldi dags með bómullarskífu líkt og
hún gerir á hverju kvöldi. Í þetta skipt
ið rak hún hins vegar augun í eitthvað
einkennilegt í bómullarskífunni sem
var frá Euro Shopper.
Fluga með lappir
„Þá sé ég eitthvað skrýtið og þá var
þetta eins og geitungur. Þetta var al
veg á kantinum á skífunni og með
lappir og allt, frekar ógeðslegt,“ segir
Inga. Hún segist ekki vera viss um
hvers konar flugu var að ræða en hún
leit ekki út eins og íslensku geitung
arnir. „Hún var mjög útlensk í útliti,“
segir hún.
Inga var þó ekki mikið að stressa
sig yfir uppákomunni og hló að
henni þó að vissulega hafi henni þótt
þetta ógeðfellt. „Þetta er náttúru
lega bara bómull, sem er lífræn vara.
Þetta hefur bara lent í framleiðslunni
eða eitthvað þannig að ég var ekkert
að kippa mér upp við þetta.“
Hún ákvað henda bara skífunni
og lét ekki umboðsaðila bómullar
skífanna vita af atvikinu en er ekki
viss um að hún muni kaupa þessa
tegund bómullarskífa aftur.
Aldrei heyrt um slíkt
Baldvin Valgarðsson, gæðastjóri
hjá Aðföngum sem flytur inn Euro
Shoppervörurnar, segist aldrei hafa
heyrt af slíku tilviki áður. „Nei, þetta er
ekki algengt. Allavega ekki þannig að
við fréttum af því. Allavega ekki þessi
fjögur ár sem ég hef starfað hérna hef
ég aldrei heyrt um slíkt og allt svona er
skráð niður hjá okkur. Þessi aðili hafði
heldur ekki samband við okkur.“
Baldvin segist ekki vita hvernig
flugan ætti að hafa komist í bómull
arskífuna. „Ég get ekki tjáð mig um
það því í rauninni er það framleið
andinn sem þarf að svara fyrir um
það. En bómull er náttúruleg og er
tínd af trjám eða runnum og svo er
hún hreinsuð. Þarna erum við að tala
um bómullarskífur sem eru kannski
svona mest unnar. Það er hugsan
lega hægt að sjá einhver óhreinindi í
bómull en ef þetta er eitthvað óeðli
lega stórt þá verður það að teljast
óeðlilegt,“ segir Baldvin en á mynd
inni er augljóst að flugan er í geit
ungastærð.
Mjög strangar gæðakröfur
„Svo er spurning hvað er þetta gömul
vara, er búið að geyma hana lengi í
skúffu? Það er ekki beint geitungat
íð núna þannig þetta kemur dálítið á
óvart,“ segir Baldvin.
Hann segir að Euro Shopper
fyrirtækið sé með mjög strangt gæða
eftirlit en vörurnar eru framleiddar í
verksmiðjum víða um heim. „Euro
Shoppervörur eru framleiddar hjá
þeim birgjum sem bjóða best hverju
sinni og eru hæfir til framleiðslunnar.
Þó að Euro Shopper sé lágvöruverðs
merki þá eru gerðar mjög strangar
kröfur til þeirra sem fá samningana.
Ekki bara hvað verðin varðar heldur
líka að þeir standist kröfur. Þeir fram
leiða gríðarlega mikið magn í senn.
Þetta fer til þeirra verslanakeðja sem
eru með samninga við Euro Shopper.
Vörurnar fara víða og eru ekki bara
sendar til Íslands,“ segir Baldvin og
nefnir Finnland, Svíþjóð, Írland og
Spán sem dæmi um lönd sem kaupa
vörur frá Euro Shopper.
Berast ýmsar ábendingar
Baldvin segir þá stundum fá ábend
ingar um vörur sem ekki standast
kröfur. „Það berast ábendingar um
ýmislegt í sjálfu sér. Í matvælum get
ur ýmislegt gerst í framleiðslu og við
geymslu en eins og í vöru sem þess
ari, hreinlætisvöru, er það afskap
lega sjaldgæft. Við erum náttúrulega
að handleika vöru sem kemur pökk
uð til okkar þannig að hjá okkur þá
er í fyrsta lagi að kanna hvort um
búðirnar hafi sitt eðlilega útlit. Síðan
ef varan er með dagsetningarskyldu
þá skráum við móttöku vörunnar og
svo er hart eftirlit á því. Við erum að
handleika pakkaða vöru þannig að
það er takmarkað hvað við getum
gert.“
„Hún var mjög út-
lensk í útliti.
n Gæðastjóri Aðfanga segist aldrei hafa heyrt af slíku áður
Viktoría Hermannsdóttir
blaðamaður skrifar viktoria@dv.is
Flugan Eins og sjá má er
flugan, sem líkist geitungi,
pressuð ofan í bómullina.
Bómullarskífurnar Hér má sjá bómullarskífurnar frá Euro Shopper.
Þingmaður
vill kosninga-
bandalög
Birgitta Jónsdóttir, þingmaður
Hreyfingarinnar, leggur til að
mynduð verði kosningabanda
lög og stjórnmálaflokkar gangi
bundnir til kosninga. „Mér
finnst mikilvægt að búa til kosn
ingabandalag fyrir næstu kosn
ingar af svipuðu tagi og er gert
í nágrannaríkjum okkar. Það er
skynsamlegt að útbúa stjórnar
sáttmála fyrir kosningar þannig
að kjósendur viti nákvæmlega
hvað það er sem þeir eru að
kjósa ef tilteknir flokkar/hreyf
ingar ná meirihluta saman,“ seg
ir hún á bloggsíðu sinni á DV.is.
Birgitta segir að kosningabanda
lög yrðu til þess fallin að skapa
betri farveg fyrir þingmenn að
virða þau drengskapaheit sem
þeir kvitta undir þegar þeir taka
til starfa á þingi. „Væri þetta
ekki eitthvað til að skapa traust,
ekki bara fyrir kosningar heldur
líka á meðan viðkomandi stjórn
myndi vera í umboði kjósenda
sinna?“ spyr hún og bætir við að
ganga megi enn lengra og kynna
tilvonandi ráðherrasamsetningu
fyrir kosningar.
Útgáfa DV
um páska
DV kemur næst út miðvikudag
inn 11. apríl. Ekkert blað kemur
út á föstudaginn langa né annan í
páskum. Fréttaþjónusta verður á
vefnum okkar, DV.is, alla páska
dagana. Ritstjórn DV óskar les
endum gleðilegra páska.