Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2012, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2012, Blaðsíða 18
V ið förum svo sannarlega með sorg í hjarta,“ segir Sólrún Ó. Siguroddsdóttir, fyrrverandi meðstjórnandi í safnaðarráði Fríkirkjunnar. Hún er einn fjögurra einstaklinga af sjö sem sögðu sig úr ráðinu í byrjun mars vegna „óásættanlegrar fram­ göngu“ Hjartar Magna Jóhannssonar fríkirkjuprests. „Við viljum ekkert persónulegt skítkast. Við viljum aðallega segja frá því að við gáfumst upp á þessu sam­ starfi. Það er enginn sáttavilji fyrir hendi hjá prestinum. Við erum bara búin að gefast upp eftir öll þessi ár. Við erum ekki rekin heldur förum við frá og við förum ekki frá með góðu. Það er sárt fyrir okkur að fara,“ segir Steindór I. Ólafsson, fyrrverandi for­ maður. Blaðamaður settist niður með þremur af þeim fjórum fulltrúum sem sögðu sig úr ráðinu, en eftir að málið komst í fjölmiðla sáu þau sér ekki annað fært en að stíga fram og segja sína hlið. DV hefur fjallað um deilurnar síðastliðinn mánuð og talað við fjölda fólks sem hefur svip­ aða sögu að segja af samskiptum sín­ um við fríkirkjuprestinn. Hann er sagður haga sér eins og „kóngur í ríki sínu“, treysti engum, sé valdasjúkur og njóti þess að baða sig í athygli. Yfir tugur einstaklinga hefur hrakist úr störfum fyrir kirkjuna á síðustu árum vegna framkomu hans. Vill vera einráður Fyrrverandi meðlimir safnaðarráðsins staðfesta allt sem fram hefur komið í umfjöllun DV um framkomu Hjartar Magna í garð starfsfólks kirkjunnar. „Það sem hefur verið að koma fram það er satt. Það eru búnir að vera ótrúlegir samstarfsörðugleikar. Við erum búin að reyna að vera fólk sátta og erum búin að reyna að rétta fram sáttarhönd á milli aðila. Við erum allt saman fólk sem hefur verið að vinna í sjálfboðavinnu og höfum gefið okk­ ur að þessu,“ segir Ingunn Valdís Þor­ láksdóttir, fyrrverandi varaformaður. Þau þrjú; Ingunn, Steindór og Sól­ rún, höfðu ásamt Rögnu Sæmunds­ dóttur, fyrrverandi ritara, öll starfað í safnaðar ráðinu í sjö til átta ár. „Það er ótrúlega hröð starfs­ mannavelta á svona litlum vinnustað þar sem maður hefði einmitt haldið að virkilega væri hlúð að náungan­ um og kærleikurinn ætti að ríkja. Það kemur okkur svo mikið á óvart afstaða hans – að hann vilji vera svona mikill einráður,“ bætir Ingunn við. Þau hafa heyrt marga tala um að þeir vildu að þeir hefðu ekki kynnst þessari hlið á Hirti Magna, enda sé hann frábær prestur þrátt fyrir að hann eigi erfitt með samstarf við ann­ að fólk. Vill losna við prest úr kirkjunni Ingunn, Steindór og Sólrún eru öll sammála um að safnaðarráðið gegni mjög mikilvægu hlutverki inn­ an kirkjunnar. Það sé í raun eins og framkvæmdastjórn sem beri ábyrgð á öllu viðhaldi á húsnæði, sjái til þess að messur geti farið fram, haldi utan um starfsmannamál kirkjunnar og fleira. „Okkar starf hefur líka falist í því að halda utan um fjármuni kirkjunn­ ar og það sem þarf að gera. Ársreikn­ ingar og fleira er á ábyrgð safnaðar­ ráðsins og við höfum verið að setja ofan í við hann með marga hluti. Það mislíkar svona einræðisherra algjör­ lega. Hann vill ekki svona aðhald,“ útskýrir Ingunn. „En samt finnst honum voða gott þegar aðrir vilja vinna vinnuna,“ bætir Sólrún við. Þau benda á að Hjörtur Magni velji í raun allt starfsfólk kirkjunn­ ar. Sjálf hafi þau öll komið inn í safnaðar ráðið fyrir tilstilli hans. Þess vegna finnst þeim hegðun hans í garð starfsfólks og sjálfboðaliða enn óforskammaðri en ella. Kornið sem fyllti mælinn á dög­ unum í samstarfi meirihluta ráðsins við Hjört Magna var að hann vildi losna við Bryndísi Valbjarnardóttur, sem einnig starfar sem prestur í Frí­ kirkjunni. Lýsti yfir vantrausti á stjórnina „Það var náttúrulega aðalatriðið hjá okkur að ná sáttum við prest­ inn og það var bara ekki til umræðu. Hjörtur Magni lýsti því yfir að hann bæri ekki traust til Bryndísar og að hann vildi að hún færi. Okkur var jafnframt tilkynnt að hann gæti ekki unnið með okkur sem vorum inni í stjórninni,“ segir Steindór. Þau fjög­ ur sem í kjölfarið sögðu sig úr safn­ aðarráðinu vildu ekki segja Bryndísi upp störfum, en það er ráðsins að sjá um starfsmannaráðningar. Bryndís starfar því enn sem prestur við kirkj­ una enda er safnaðarráðið ekki full­ mannað. Það er í raun óstarfhæft og ófært um að taka stærri ákvarðanir þangað til eftir að aðalfundur hef­ ur farið fram. Hjörtur Magni hefur sjálfur einn og sér ekki heimild til að láta hana fara. Hrakti annan prest úr starfi Bryndís er ekki fyrsti presturinn sem Hjörtur Magni hefur viljað burt úr kirkjunni, en Ása Björk Ólafsdóttir, sem nú gegnir starfi sóknarprests á Írlandi, hraktist úr starfi sínu við Fríkirkjuna árið 2008. Hún lýsti því í viðtali í DV í mars að hún hefði verið niðurbrotin eftir samskipti sín við Hjört Magna. Hún sagðist hafa orð­ ið fyrir slæmu einelti af hans hálfu og hann hefði sýnt henni mikið van­ traust sem hefði ágerst með tíman­ um. Sem dæmi um það hvernig henni leið á vinnustaðnum undir lokin sagðist hún hafa fundið fyrir kvíða þegar hún sá að bíll Hjartar Magna var í bílskýlinu þegar hún kom til vinnu á morgnana. „Ég var hrædd við að vera ein á skrifstofunni með honum. Það komu alltaf einhver um­ mæli og ofboðslega óviðeigandi at­ hugasemdir. Ef hann var ekki kom­ inn þá leið mér betur,“ sagði Ása í viðtalinu. Tóku málstað Hjartar í fyrstu Fyrrverandi meðlimir safnaðar­ ráðins eru sammála um það þegar þau horfa til baka að það hafi í raun verið fyrst í kjölfar brotthvarfs Ásu sem þau fóru að átta sig á að ekki væri allt með felldu í samskiptum Hjartar Magna við starfsfólk kirkj­ unnar. Þau stóðu þó með honum í fyrstu. „Við trúðum því ekki að það væri eins og það var. Við stóðum með honum því ef hann sagði að það væri ekki hægt að vinna með þessari konu þá hafði hann rétt fyr­ ir sér,“ segir Steindór. „Eftir á var maður náttúrulega miður sín að hafa virkilega tekið þessa afstöðu með honum vegna þess að þegar frá leið þá sá maður hvað hún var að meina. Þá skynjaði maður nákvæm­ lega allt það sem hún sagði. Maður bara skammaðist sín fyrir að hafa ekki hlustað og trúað því að hann gæti verið svona því hann er svo mikill leikari,“ segir Ingunn. Ljóst er að þau sjá öll eftir að hafa tek­ ið málstað Hjartar Magna á sínum tíma, en Ása tók einmitt fram í við­ talinu að fólk hefði ekki trúað henni og það hefði verið enn þungbærara fyrir hana. Á þessu hefur þó orðið viðsnúningur og hún hefur gott bak­ land í dag. Þriðji ættliður í kirkjunni Þau segjast hafa rætt málin ræki­ lega sín á milli fyrir um um ári og spurt sig af hverju þau stæðu ennþá í þessu harki eftir allan þennan tíma og sívaxandi samstarfsörðugleika við Hjört Magna. Þau telja svarið við því líklega að innst inni hafi þau trúað því að hægt væri að leysa málin og ná sáttum. „Við höfum alltaf verið að hugsa að þetta kæmi ekki niður á okkar söfnuði. Við erum þriðji ætt­ liður í kirkjunni, foreldrar, ömmur og afar,“ segir Steindór. „Ég er búin að vera í Fríkirkjunni frá því áður en Hjörtur Magni fædd­ „Förum með sorg í hjarta“ 18 Fréttir 4.–10. apríl 2012 Páskablað n Meirihluti safnaðarráðs Fríkirkjunnar gekk af fundi í byrjun mars n Flæmd úr kirkjunni sinni Sólrún Lilja Ragnarsdóttir blaðamaður skrifar solrun@dv.is „Þetta er okkar kirkja en ekki Hjartar Magna í sjálfu sér. Hann á ekki þessa kirkju. Það er það sem mér finnst svo mikilvægt, að hann er þjónn þessarar kirkju. Fjallað um málefni Fríkirkjunnar Umfjallanir 12., 14. og 16. mars. Fara með trega Sólrún, Steindór og Ingunn sögðu sig úr safnaðarráði Fríkirkjunnar í byrjun mars, ásamt Rögnu Sæmundsdóttur. Þau reyndu lengi að ná sáttum við Hjört Magna, án árangurs.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.