Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2012, Blaðsíða 19
Fréttir 19
Heilsulindir í Reykjavík
PÁSKASUND
Lykill
að góðri
heilsu
www.itr.is ı sími 411 5000
Afgreiðslutími um páska
Annar í Páskum
9. apríl
Páskadagur
8. apríl
Laugardagur
7. apríl
Föstud. langi
6. apríl
Skírdagur
5. apríl
ÁRBÆJARLAUG
BREIÐHOLTSLAUG
GRAFARVOGSLAUG
KLÉBERGSLAUG
LAUGARDALSLAUG
SUNDHÖLLIN
VESTURBÆJARLAUG
kl. 11-19 kl. 10-18 kl. 9-17 kl. 10-18 kl. 11-19
kl. 10-18 Lokað kl. 9-17 Lokað kl. 10-18
kl. 10-18 Lokað kl. 10-18 Lokað kl. 10-18
kl. 11-15 Lokað kl. 11-15 Lokað kl. 11-15
kl. 8-22 kl. 10-18 kl. 8-22 kl. 10-18 kl. 8-22
kl. 10-18 Lokað kl. 8-16 Lokað kl. 10-18
kl. 11-19 Lokað kl. 9-17 Lokað kl. 11-19
„Förum með sorg í hjarta“
Páskablað 4.–10. apríl 2012
n Meirihluti safnaðarráðs Fríkirkjunnar gekk af fundi í byrjun mars n Flæmd úr kirkjunni sinni
ist,“ segir Sólrún og það sama á við
um Steindór. „Þetta er okkar kirkja
en ekki Hjartar Magna í sjálfu sér.
Hann á ekki þessa kirkju. Það er það
sem mér finnst svo mikilvægt, að
hann er þjónn þessarar kirkju. Það er
söfnuðurinn sem á kirkjuna,“ heldur
Sólrún áfram.
„Hann er ekki tilbúinn að sættast.
Það er ekkert gaman að vinna við
svona þegar maður er að vinna af
hug og hjarta og vill engin laun fyr-
ir, ef maður fær bara vanþakklæti. Þá
er alveg eins gott að fara frá,“ segir
Steindór.
Ósátt við bónusgreiðslurnar
Hjörtur Magni fær, samkvæmt ráðn-
ingarsamningi, árangurstengdar
bónusgreiðslur fyrir hvern nýjan
meðlim sem skráir sig í fríkirkjusöfn-
uðinn. Öll eru þau sammála um
að það sé tímaskekkja, enda sé um
gamlan samning að ræða sem hann
fékk í upphafi þegar söfnuðurinn var
mjög fámennur. Steindór segir þó
að Hjörtur Magni megi eiga það að
hann hafi staðið sig vel í fjölga í söfn-
uðinum.
„Ég hef persónulega verið mjög
ósátt við þetta fyrirkomulag. Ég vissi
ekkert af þessu lengi vel en frá því ég
frétti af þessu þá hef ég barist fyrir því
að þessu yrði breytt. Við erum búin að
vinna að því og fela gjaldkeranum að
búa til drög að nýjum starfssamningi
en það hefur dregist,“ segir Sólrún.
„Ég gæti ekki verið í
messu hjá honum“
Aðspurð hvort þau sæki ennþá
messu hjá Hirti Magna, svarar Stein-
dór því neitandi. „Ég gæti ekki verið
í messu hjá honum.“ Sólrún og Ing-
unn hafa báðar farið í messu síðan
þær sögðu sig úr ráðinu, en þeim leið
ekki vel í þeim aðstæðum. Í ferming-
armessu á dögunum notaði Hjörtur
Magni svo tækifærið og talaði um
„slúðurkellingarnar“ sem hefðu far-
ið með málið í blöðin. Var hann þar
væntanlega að vísa til fyrrverandi
starfsfólks og sjálfboðaliða við kirkj-
una sem hafa tjáð sig við DV.
„Ég er mjög ósátt við að vera hálf-
flæmd frá kirkjunni,“ segir Sólrún
og bendir á að Steindór hafi unnið
ómetanlegt starf fyrir kirkjuna í ýmsu
viðhaldi. Það sé því mjög sorglegt að
málin standi þannig nú að hann geti
ekki einu sinni sótt messu.
„Manni detta í hug svo margar
biblíulegar tilvitnanir gagnvart hon-
um, eins og að sjá flísina í auga ná-
ungans en ekki bjálkann í sínu. Það
finnst mér lýsa þessu svo vel,“ seg-
ir Sólrún sem á síðasta orðið fyr-
ir hönd meirihluta safnaðarráðsins
sem yfirgaf kirkjuna sína með mikl-
um trega.