Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2012, Blaðsíða 17
Fréttir 17Páskablað 4.–10. apríl 2012
Jón Steinar skilar séráliti:
Segir skilyrði
laga ekki
uppfyllt
Jón Steinar Gunnlaugsson hæsta
réttardómari skilaði sératkvæði í
kynferðisbrotamáli þar sem faðir
var dæmdur í fjögurra ára fangelsi
fyrir kynferðisbrot gegn 11 ára
dóttur sinni þann 28. mars síðast
liðinn. Sératkvæði Jóns Steinars var
birt á vef Hæstaréttar á mánudag
þrátt fyrir dómur hefði fallið í mál
inu nokkrum dögum fyrr.
Sératkvæði Jóns Steinars, snýst
um gæsluvarðhaldsúrskurði yfir
manninum en að mati Jóns Steinars
voru skilyrði laga fyrir gæsluvarð
haldi ekki uppfyllt og taldi hann að
fella ætti hann úr gildi. „Hvorki væri
til staðar sterkur grunur um sök
varnaraðila né væri gæsluvarðhald
yfir honum nauðsynlegt með tilliti
til almannahagsmuna.“
Þrisvar sinnum var maðurinn
úrskurðaður til að sæta gæsluvarð
haldi og áframhaldandi gæsluvarð
haldi og skilaði Jón Steinar
sér atkvæði í öllum gæsluvarðhalds
úrskurðunum.
Í síðasta sératkvæði Jóns Stein
ars rökstyður hann afstöðu sína
og segir að þrátt fyrir að maður
inn hafi þegar verið fundinn sekur
fyrir kynferðisbrot sé dómnum skylt
að leggja sjálfstætt mat á hvort að
skilyrði fyrir framlengingu gæslu
varðhalds hafi verið uppfyllt. Ekki sé
heimilt að vísa til þess eins að mað
urinn hafi verið fundinn sekur.
Hann tekur meðal annars fram
að sakfelling mannsins í héraðs
dómi sé byggð á framburði stúlk
unnar við yfirheyrslu í Barnahúsi.
Þar hafi stúlkan lýst kynferðisleg
um athöfnum sem dómurinn taldi
„fráleitt“ að hún gæti lýst án þess að
vera lýsa upplifun sinni. Jón Steinar
segir allan rökstuðning vanta fyrir
þeirri fullyrðinu og að engin leið sé
fyrir dóminn að vita hvaðan stúlkan
hafi fengið slíka vitneskju.
Aðkoma Jóns Steinars Gunn
laugssonar hæstaréttardómara að
úrskurðum réttarins í kynferðis
brotamálum hefur vakið nokkra
athygli frá því hann varð hæstarétt
ardómari fyrir átta árum. Ástæðan
er sú Jón Steinar virðist oftast vera
á annarri skoðun en meðdómarar
sínir. Jón Steinar hefur oft og tíðum
skilað sératkvæði í þessum málum
þar sem hann fer fram á refsilækk
un yfir meintum brotamönnum eða
jafnvel sýknu.
Meirihlutinn
ók of hratt
Lögreglan myndaði brot 32 öku
manna á Álfaskeiði í Hafnarfirði
á þriðjudag en þá fylgdist hún
með ökutækjum sem ekið var í
norðurátt, nærri Mávahrauni. Á
einni klukkustund fyrir hádegi
fóru 65 ökutæki þessa leið og
var það því um helmingur öku
mannanna sem ók of hratt eða
yfir afskiptahraða. Meðalhraði
hinna brotlegu var 43 kílómetr
ar á klukkustund en á Álfaskeiði
er hámarkshraði 30 kílómetr
ar. Fjórir ökumannanna óku á
50 kílómetra hraða eða hraðar
en sá sem hraðast ók mældist
á 56 kílómetra hraða. Við fyrri
hraðamælingar lögreglunnar á
þessum stað hefur brotahlut
fallið verið 45–59 prósent. Þetta
kemur fram í tilkynningu frá
lögreglunni.
H
éraðsdómur Reykjaness hafn
aði á mánudag beiðni verjanda
eins sakborningsins í Straums
víkurmálinu svokallaða um
að lykilvitni sem statt er í Hollandi
verði kallað til landsins í skýrslutöku.
Í febrúar óskaði verjandi eins mann
anna eftir afriti af skýrslu sem hol
lenska lögreglan tók af vitninu, sem er
íslenskur ríkisborgari sem býr í Hol
landi og er talinn tengjast málinu.
Straumsvíkurmálið var umfangs
mesta fíkniefnamál sem kom upp hér
á landi í fyrra. Sex eru ákærðir í mál
inu fyrir ýmis brot, sem tengjast með
einum eða öðrum hætti. Tveir þeirra
eru ákærðir fyrir að hafa smyglað inn
miklu magni af vímuefnum og sterum
til landsins með gámi innan um krydd
og aðrar vörur í október. Annar þeirra
er grunaður um að hafa skipulagt
smyglið.
Verjandi hans krafðist þess í lok
mars að vitnið í Hollandi kæmi fyrir
dóm á Íslandi þar sem það væri lykil
vitni. Sækjandi sagði aftur á móti að
vitnið neitaði að koma til landsins og
að það væri lögfræðilega ómögulegt að
krefjast framsals. Héraðsdómur féllst
á þetta og vísaði frá kröfu verjanda.
Maðurinn mun því gefa skýrslu í gegn
um síma þann 30. apríl.
Mennirnir eru grunaðir um að hafa
flutt inn tæp 10 kíló af amfetamíni,
rúmlega átta þúsund töflur af MDMA,
200 grömm af kókaíni og 8.800 stykki
af steralyfinu metenolon, auk ýmissa
annarra steralyfja.
Einn hinna ákærðu situr þegar í
fangelsi fyrir annað fíkniefnamál. Að
almeðferð í málinu hófst þann 28.
febrúar.
Mun bera vitni í gegnum símann
n Réttarhöld í Straumsvíkurmálinu halda áfram
Sex eru ákærðir í málinu Mennirnir
eru grunaðir um að hafa flutt inn gríðar-
legt magn af sterum og vímuefnum.