Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2012, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2012, Blaðsíða 36
Húsleit Hjá Kosti vegna CoCoa Puffs 36 Fréttir 4.–10. apríl 2012 Páskablað M eint ólöglegt Cocoa Puffs-morgunkorn hef- ur verið selt í versluninni Kosti að undanförnu. Morgunkornið hefur þó ekki fengist í versluninni síðustu daga þar sem það er uppselt. Mik- ill bragðmunur er sagður vera á morgunkorninu sem fékkst í Kosti og því sem fæst í öðrum verslunum. Ástæða þess að morgunkornið er talið ólöglegt er þráavarnarefni sem finnst í morgunkorninu sem er flutt sérstaklega til landsins frá Banda- ríkjunum. Aðrir pakkar af Cocoa Puffs-morgunkorni eru framleiddir í Evrópu og í samstarfi við umboðs- aðila morgunkornsins hér á landi, Nathan & Olsen. Munu gera aðra tilraun Heilbrigðiseftirlitið hefur gert athugun á Kosti og hefur verið gerð tilraun til að heimsækja verslunina í þeim tilgangi að stöðva sölu á morgunkorninu. Fulltrúar eftirlitsins voru með því að bregðast við ábendingu frá Nathan & Olsen um að verslunin seldi þetta ólöglega morgunkorn. Húsleit verður framkvæmd í verslun Kosts á næstunni, samkvæmt upplýsingum frá Heilbrigðiseftirlitinu. „Síðast þegar við gáðum var þetta ekki til sölu,“ segir Guðmund- ur Einarsson, starfsmaður Heil- brigðiseftirlits Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis, sem staðfestir að Nathan & Olsen hafi tilkynnt um að Kostur hefði gamla uppskrift morg- unkornsins til sölu. „Þetta er stöðug vinna,“ segir hann aðspurður hvort eftirlitið myndi fylgjast áfram með hvort Kostur hefði morgunkornið til sölu. Ástæðan fyrir því að ekkert fannst síðast þegar starfsmenn Heilbrigðiseftirlitsins fóru í húsleit hjá Kosti var sú að morgunkorn- ið eftirsótta var uppselt í verslun- inni. Á mánudag sagði Jón Gerald Sullenberger, stofnandi og eigandi Kosts, að hann væri ennþá með það til skoðunar hvort hann ætlaði að flytja inn meira af þessu banda- ríska morgunkorni sem hann kall- aði „vont Cocoa Puffs“. Þráavarnarefnið leyft víða Efnið sem finnst í bandarísku útgáf- unni af Cocoa Puffs-morgunkorn- inu er „Butylated Hydroxytoluene“, eða BHT. „Þetta er þráavarnarefni og er notað í matvæli til að koma í veg fyrir að fita eða olía þráni,“ seg- ir Grímur Ólafsson, sérfræðingur hjá Heilbrigðiseftirlitinu, í svari við fyrirspurn DV. Efnið er notað í ýmis matvæli og samkvæmt evrópsk- um reglum má nota það í dýrafitu, jurtafitu til steikingar, tyggigúmmí og í fæðubótarefni. Efnið er hins vegar ekki leyft í matvæli á borð við morgunkorn hér á landi. Ekki eru sömu aukaefnareglur í Bandaríkjunum og Evrópu og út- skýrir það af hverju Kostur getur keypt Cocoa Puffs frá Bandaríkjun- um sem inniheldur þetta ólöglega þráavarnarefni. „Í Bandaríkjunum er efnið leyft í mun fleiri tegundir matvæla þar á meðal morgunkorn,“ segir Grímur. Breytingar í gegnum tíðina Breytingar hafa verið gerðar á bæði reglum um matvæli og hvað þau mega innihalda á síðustu árum sem og uppskriftinni að Co- coa Puffs. Ekki er það þó megin- ástæðan fyrir síðustu breytingum á morgunkorninu að sögn vöru- merkjastjóra Cocoa Puffs hjá Nat- han & Olsen en hann segir fyrir- tækið vera að bregðast við vilja og ábendingum neytenda. Meðal breytinga sem voru gerðar á morg- unkorninu, sem líklega hafa þau bragðbreytingaráhrif sem margir neytendur hafa kvartað yfir á ver- aldarvefnum, er stórminnkað syk- urmagn og heilkornanotkun við gerð morgunkornsins. Minnst tví- vegis síðan Cocoa Puffs var fyrst sett á markað hefur sykurmagn í morgunkorninu verið minnkað talsvert. Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is n Umboðsaðili morgunkorns hefur kært verslunina Reyndi að verja félaga sinn n Áttaði sig á að málið fór að bitna á honum sjálfum og breytti framburði T veir karlmenn voru dæmdir í Héraðsdómi Reykjaness á þriðjudag fyrir þjófnað og fíkniefna- og umferðarlagabrot. Annar hinna ákærðu, sem neitaði alfarið sök í málinu, rauf skilorð með brotunum og var dæmdur í tveggja ára og þriggja mánaða fangelsi. Hinn játaði sök í málinu en þóttist þó ekki hafa verið með fíkniefni í vörslu sinni í sölu- og dreifingarskyni. Hlaut hann þriggja mánaða skilorðsbundinn dóm fyrir sinn þátt í málinu. Mönnunum var gefið að sök að hafa sunnudaginn 2. janúar árið 2011 farið í heimildarleysi inn í bifreiðakjallara að Norðurbakka í Hafnarfirði, stolið þaðan verkfærum að verðmæti 600 þúsunda króna. Þá fundust á heimili þeirra meðal annars fíkniefni og peningar í íþróttatösku í frystihólfi. Í töskunni voru jafnframt skilríki mannsins sem hlaut þyngri dóminn. Sá var einnig ákærður fyrir að aka bifreið út úr bílakjallaranum undir áhrifum fíkniefna. Maðurinn fór út um víðan völl í vitnisburði sínum sem var engan veginn í samræmi við það sem kom fram í lögregluskýrslum. Vildi hann meina að hann hefði í fyrstu ætlað að vernda félaga sinn, meðákærða, með því að taka á sig sök í málinu. Þegar hann áttaði sig hins vegar á því að málið væri farið að bitna á honum sjálfum þá breytti hann framburðinum og sagði sinn þátt í málunum engan. Hann kvað félaga sinn hafa átt fíkniefnin á heimili hans þrátt fyrir að hann gisti þar bara stöku sinnum. Hvað þau voru að gera í frystihólfinu í íþróttatösku með skilríkjum hans, gat hann þó ekki skýrt. Þá vildi hann meina að hann hefði ekki keyrt bílinn út úr bílakjallaranum heldur hefði hann setið í farþegasætinu í kyrrstæðum bílnum en reynt að komast út bílstjóramegin þegar lögreglu bar að garði. Hurðin farþega megin stóð á sér, að hans sögn. Ekki var gefið mikið fyrir þær skýringar hans. Var hann einnig sviptur ökuréttindum til tveggja ára. Hættulegt? Fyrirtækið Nathan & Olsen heldur því fram að ólöglegt þráavarnarefni sé að finna í Cocoa Puffs-morgunkorni sem verslunin Kostur hefur haft til sölu. Húsleit Heilbrigðiseftirlitið hefur gert eins konar húsleit hjá Kosti vegna Cocoa Puffs. Rauf skilorð Annar mannanna hlaut tveggja ára og þriggja mánaða dóm fyrir brotin. Össur í Þjóðmenningarhúsinu: Þróun makrílmáls vonbrigði Össur Skarphéðinsson utan- ríkisráðherra ávarpaði á þriðju- dag fjórða fund sameiginlegrar þingmannanefndar Alþingis Íslendinga og Evrópuþingsins sem haldinn var í Þjóðmenn- ingarhúsinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðu- neytinu. Í máli sínu lýsti Össur ánægju sinni með gang samningavið- ræðnanna um aðild Íslands að ESB en fjórir kaflar voru opn- aðir síðasta föstudag og tveimur lokað samdægurs. Össur sagði að vissulega hefðu vonir staðið til þess að hefja fyrr viðræður um hina stærri og efnismeiri samningskafla eins og sjávarút- veg, landbúnað og byggðamál en fagnaði jafnframt yfirlýsingu Stefans Fule, stækkunarstjóra ESB, um að Evrópusambandið stefndi ótrautt að því að hefja viðræður um alla samningskafla fyrir lok þess árs. Össur sagði vonbrigði hvern- ig mál hefðu þróast í viðræðum um makrílveiðar en vonaðist jafnframt eftir sátt allra samn- ingsaðila sem allra fyrst. Varaði utanríkisráðherra eindregið við öllum einhliða viðskipta- ðgerðum og sagði hugmyndir sem lægju fyrir þar að lútandi brjóta gegn alþjóðlegum skuld- bindingum, þar með talið EES- samningnum. Össur sagði Ís- lendinga fylgjast náið með þeim mikilvægu aðgerðum sem gripið hefði verið til á evrusvæðinu í kjölfar efnahagsþrenginganna í Evrópu og gerði grein fyrir bata- merkjum í íslensku efnahagslífi. Søren Haslund, sendi- herra Dana á Íslandi og fulltrúi dönsku formennskunnar, og Timo Summa, sendiherra ESB á Íslandi, ávörpuðu einnig fund- inn. Þá tók Mercedes Bresso, forseti svæðanefndar ESB (Committee of the Regions) þátt í honum ásamt Halldóri Hall- dórssyni, formanni Sambands íslenskra sveitarfélaga, og fleiri íslenskum og evrópskum sveit- arstjórnarmönnum en samstarf Íslands og Evrópusambandsins í byggðamálum var sérstaklega til umfjöllunar að þessu sinni. Þá fékk nefndin kynningu á sjávar- útvegsmálum, efnahagsmálum og grænni orku en Steingrímur J. Sigfússon, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, ávarpaði fundinn. Sameiginlega þingmanna- nefndin var stofnuð eftir að Ís- land sótti um aðild að Evrópu- sambandinu og hélt sinn fyrsta fund í október 2010. Formenn nefndarinnar eru Árni Þór Sigurðsson og Pat the Cope Gallagher frá Írlandi. Nefndina skipa níu íslensk- ir þingmenn og níu evrópskir en þar að auki situr sérstakur fulltrúi utanríkismálanefndar Evrópuþingsins, Dan Preda, sem einnig er skýrslugjafi Evrópu- þingsins um málefni Íslands, fundi nefndarinnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.