Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2012, Side 6
Á spítala en fær
ekki heimsóknir
06 Fréttir
E
lla Dís sem dvalið hefur á
barnaspítalanum við Great
Ormond Street í London frá
því í janúar á þessu ári hefur
nú verið flutt á annan spítala í
London, samkvæmt heimildum DV.
Á nýja staðnum hefur hún ekki mátt
fá heimsóknir frá foreldrum sínum
því starfsfólk spítalans hefur ekki
heimild til að sitja yfir þeim meðan á
heimsóknum stendur. Foreldrar Ellu
Dísar, Ragna Erlendsdóttir og Mark
Laurens, misstu forræðið yfir henni
að hluta fyrr á þessu ári og hafa sam-
kvæmt dómsúrskurði eingöngu mátt
hitta hana undir eftirliti síðan þá.
Yrði komið fyrir á heimili
Ragna fór með Ellu Dís og tvær aðrar
dætur sínar og Marks til Bretlands
skömmu fyrir síðustu jól. Þá var hún
að missa húsnæði sitt hér á landi og
var komin með nóg. Hún taldi sig
ekki eiga annarra kosta völ en að fara
með Ellu Dís til London þar sem hún
fengi þá læknishjálp sem hún þyrfti.
Fjölskyldunni gekk þó illa að finna
húsnæði þær ytra og hafði Ragna lít-
ið fé á milli handanna. Það varð til
þess að félagsmálayfirvöld í London
skárust í leikinn og hófu afskipti af
málum þeirra.
Dómsmál stendur nú yfir í
London og snýst um hvort Ragna
og barnsfaðir hennar muni missa
forræðið alfarið eða hvort forræðis-
sviptingin gangi til baka og Ella Dís
fái að koma aftur heim til Íslands.
Úrskurður á að falla í málinu í síð-
asta lagi 18. apríl næstkomandi.
Heimildirnar herma að ef komi til
varanlegrar forræðissviptingar muni
henni verða komið fyrir á heimili
fyrir fatlaða fyrir utan London.
Barnaverndaryfirvöld aðstoða
Ragna hefur verið á Íslandi með hin-
um dætrum sínum tveimur síðustu
vikurnar en Mark hefur sinnt Ellu
Dís í London á meðan. Samkvæmt
heimildum hélt Ragna þó aftur til
London á sunnudaginn.
Hún mun hafa haft miklar
áhyggjur af dóttur sinni sem hefur
ekki séð kunnuglegt andlit í meira
en viku. Hún sé ein á nýjum stað þar
sem enginn skilur hana. Dómarinn í
málinu mun hafa krafið yfirvöld um
útskýringar á því af hverju það er
nauðsynlegt að halda foreldrum Ellu
Dísar frá henni. Heimildirnar herma
að ástæðan fyrir því sé sú að talið
sé að þau ætli sér að flýja með hana
til Íslands áður en úrskurðað hefur
verið í málinu.
Ragna mun hafa farið út til að
krefjast þess að fá að hitta Ellu Dís
og reyna að fá dómsuppkvaðningu
málsins flýtt.
Hún mun vera sannfærð um að
hún fái aftur fullt forræði yfir dóttur
sinni og hún fái að koma til Íslands
innan tíðar. Þá munu barnaverndar-
yfirvöld á Íslandi vera í sambandi við
yfirvöld þar ytra og beita sér í málinu
af fullum krafti.
Greind með genagalla
DV greindi frá því fyrr í mars, sam-
kvæmt heimildum, að breskir
læknar hefðu greint Ellu Dís með
með afar sjaldgæfan genagalla sem
gæti hafa orsakað veikindi hennar.
Gallinn veldur því að líkami hennar
getur illa unnið úr vítamínum. Hún
er nú farin að fá B2-vítamín beint í
magann og vonast læknar til að hún
komi til með að jafna sig að ein-
hverju leyti. Erfitt er þó að segja til
um batann vegna þess hve langt
sjúkdómurinn er genginn án með-
ferðar.
Ragna er í fjölmiðlabanni og má
sjálf því ekki tjá sig opinberlega um
Ellu Dís fyrr en eftir að dómur fellur
í máli hennar.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
blaðamaður skrifar solrun@dv.is
„Hún mun hafa
haft miklar
áhyggjur af dóttur sinni
sem hefur ekki séð
kunnulegt andlit í meira
en viku.
n Talin ætla að flýja til Íslands n Trúir að hún endurheimti forræðið
4.–10. apríl 2012 Páskablað
Fær ekki heimsóknir Ella Dís er komin á nýjan spítala í London og foreldrunum er haldið
frá henni.
„Lélegt lið á þingi“
n Davíð talar um sitjandi ríkisstjórn í Verslunarskólablaðinu
Í
nýjasta tölublaði Verslunarskóla-
blaðsins er viðtal við Davíð Odds-
son, ritstjóra Morgunblaðsins og
fyrrverandi seðlabankastjóra. Að-
spurður hvort hann hafi enn áhuga
á að fylgjast með stjórnmálum eftir
langan feril segist hann pæla mikið
í stjórnmálum sem ritstjóri Morgun-
blaðsins. „Sérstaklega hérlendis og
því sem er í kringum okkur. Þegar
maður skrifar á hverjum degi verður
maður að fylgjast vel með. Það er
mikið verið að skipta um þingmenn
og það tala allir um það en að með-
altali hverfa 30% af þingmönnum í
hverjum kosningum. Það er rosaleg
breyting,“ segir hann.
Í viðtalinu dylur Davíð ekki skoð-
anir sínar á sitjandi ríkisstjórn. „Það
er mjög mikið, að mér finnst, af lélegu
liði á þingi núna. Það er óvenjulélegt
núna. Allir tala um stjórnmálamenn-
ina sem annaðhvort glæpamenn,
bjána eða asna. Þetta er svo mikið í
umræðunni núna að ég held að al-
mennilegt fólk sé ekkert spennt að
fara á þing.“
Í svörum Davíðs kemur fram að
hann telji ríkisstjórnina hanga á blá-
þræði. „Ég held að þessi stjórn sé
löngu búin. Hún hangir bara. Það á
enginn von á neinu frá þeim. Þetta
er búið spil. Það þarf bara að fara
að kjósa, það eru allir komnir með
upp í kok af þessu,“ segir Davíð sem
hefði væntanlega lítið á móti því að
sjá Sjálfstæðisflokkinn komast aftur
til valda.
Mætir fyrir landsdóm „Ég
held að þessi stjórn sé löngu búin.“
Árás eftir kynni
á Facebook
Klukkan þrjú aðfaranótt þriðju-
dags kom blóðug kona af er-
lendum uppruna til lögreglunn-
ar á höfuðborgarsvæðinu og
tilkynnti að hún hefði orðið fyrir
árás á heimili sínu í Vesturborg-
inni. Konan sagðist hafa kynnst
árásarmanninum á samskipta-
síðunni Facebook og hann hafi
svo komið heim til hennar. Eftir
stuttar samræður hafi maður-
inn svo ráðist á hana og gengið
í skrokk á henni. Þetta kemur
fram í tilkynningu frá lögregl-
unni en þar segir einnig að
maðurinn hafi stolið farsíma
konunnar.
Fíkniefni
í Norrænu
Lögreglan á Seyðisfirði fann lítil-
ræði af fíkniefnum á tveimur far-
þegum sem komu með bílferjunni
Norrænu til Seyðisfjarðar á þriðju-
dagsmorgun. Í tilkynningu frá lög-
reglunni kemur fram að málið er
að talið að fullu upplýst og verður
því lokið með sektargerðum. Efnin
fundust með aðstoð fíkniefnaleit-
arhunda tollgæslu og lögreglu.
Í slysi á
stolnum bíl
Um sjö leytið að morgni þriðjudags
var lögreglu tilkynnt um harðan
árekstur á mótum Breiðholtsbraut-
ar og Skógarsels þar sem bifreið var
ekið á umferðarljós. Ökumaður bif-
reiðarinnar var sagður hafa hlaupið
af vettvangi slyssins. Í ljós kom að
bifreiðin, sem hann hafði ekið, hafði
verið tilkynnt stolin á mánudag.
Nokkru síðar, eða um klukkan hálf
níu, var svo tilkynnt um mann sem
var að reyna að komast inn í bif-
reiðar í Seljahverfi og kíkja inn um
glugga á húsum. Lögreglan hafði
hendur í hári mannsins skömmu
síðar og kom þá í ljós að þetta var
sami maður og hafði lent í umferð-
aróhappi fyrr um morguninn. Mað-
urinn er grunaður um að hafa verið
undir áhrifum vímugjafa og var
færður á lögreglustöð þar sem hann
var vistaður í fangageymslu uns mál
hans var tekið fyrir. Þetta kemur
fram í tilkynningu frá lögreglunni.