Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2012, Side 16
H
ægt væri að þétta byggð á
höfuðborgarsvæðinu svo um
munar. Það myndi spara um-
talsverða fjármuni fyrir bæði
sveitarfélögin á svæðinu og
íbúana. Höfuðborgarsvæðið er gífur-
lega strjálbýlt samanborið við aðrar
borgir í kringum okkur. Ekki þyrfti að
byggja borgina hátt til að hægt væri að
koma öllum íbúum á höfuðborgar-
svæðinu fyrir í aðeins nokkrum póst-
númerum. Sparnaðurinn sem felst
í þéttari byggð birtist meðal annars í
ódýrari samgöngum, betri almenn-
ingssamgöngum og talsvert minni
tíma sem færi í ferðalög.
Nóg pláss í borginni
Íbúar á höfuðborgarsvæðinu eru
rúmlega 200 þúsund talsins og dreif-
ast á svæði sem nemur rúmlega eitt
þúsund ferkílómetrum. Það þýðir
að þéttleiki byggðar á höfuðborgar-
svæðinu nemur um 187 íbúum á
hvern ferkílómetra. Þéttust er byggð
á Seltjarnarnesi en strjálbýlast er í
Mosfellsbæ og Kjósarhreppi. Ef allir
á höfuðborgarsvæðinu myndu búa
jafnþétt og íbúarnir á Seltjarnar-
nesi gera myndu allir komast fyrir á
svæði sem nemur hluta af Hafnar-
firði. Það er umtalsvert minna svæði
en höfuð borgarsvæðið er í dag en
Hafnarfjörður er aðeins 13,5 prósent
af höfuð borgarsvæðinu, sé Kjósar-
hreppur tekinn með í reikninginn.
Ef íbúar höfuðborgarsvæðisins
myndu hins vegar búa jafnþétt og
gengur og gerist í evrópskum borg-
um væri vel hægt að koma öllum fyr-
ir á landsvæði sem nemur 9,6 ferkíló-
metrum. Þeir útreikningar miðast við
þéttleikann eins og hann er í París,
höfuðborg Frakklands. Það svæði er
um það bil eitt prósent af landsvæð-
inu sem höfuðborgar svæðið teygir
anga sína yfir í dag.
Þyrfti ekki að byggja upp
Eins og útreikningarnir hér að ofan
sýna er ljóst að ekki þyrfti að byggja
höfuðborgarsvæðið mjög hátt til að
ná að þétta byggðina umtalsvert.
París er talsvert hærri en höfuð-
borgarsvæðið en Seltjarnarnes, þar
sem þéttasta byggð á höfuðborgar-
svæðinu er, er ekki í námunda jafn-
hátt byggt og París. Þéttustu byggð-
ir á höfuðborgarsvæðinu eru gömul
hverfi þar sem hús eru byggð með
tveimur hæðum, kjallara og risi sem
búið er í. Það myndi hins vegar þýða
minni lóðir í kringum íbúðarhús-
næði og líklega færri bílastæði svo
eitthvað sé nefnt.
Skekkja er í tölum um þéttleika
byggðar að því leyti að ekki er gert ráð
fyrir óbyggðum svæðum. Því er ekki úr
vegi að gera ráð fyrir því að þéttleikinn
sé talsvert meiri en tölur gera ráð fyrir.
Við einfalda og óvísindalega mælingu
blaðamanns kom í ljóst að um það bil
95 ferkílómetra svæði er byggt á höf-
uðborgarsvæðinu. Það þýðir að þétt-
leikinn er um það bil 2.114 íbúar á
hvern ferkílómetra. Það er engu að síð-
ur ennþá mjög langt frá því sem þekk-
ist í borgum í kringum okkur.
Dæmdir fyrir hraðbankasvindl
n Rúmenskir bræður í tólf mánaða fangelsi hér á landi
T
veir rúmenskir bræður á fer-
tugsaldri voru í Héraðsdómi
Reykjavíkur á mánudag dæmd-
ir í 12 mánaða fangelsi fyr-
ir að hafa komið fyrir afritunarbún-
aði, segul randalesara og myndavél í
tveimur hraðbönkum í miðbæ Reykja-
víkur í síðasta mánuði. Mönnunum,
Daniel Vasile Paul og Ciprian Du-
mitru Paul, tókst að afrita upplýsing-
ar af fjölda greiðslukorta sem þeir ým-
ist komu eða hugðust koma í hendur
óþekkts þriðja aðila gegn greiðslu.
Bræðurnir komu búnaði sín-
um fyrir á hraðbanka Arion banka á
Laugavegi 120 og hraðbanka Lands-
bankans í Austurstræti 14. Borgun
og Valitor lokuðu fjölda greiðslukorta
vegna málsins.
Daniel var handtekinn að kvöldi
1. mars þar sem hann var að eiga við
hraðbanka. Í fórum mannsins fannst
ómerktur hótellykill og farsími með
skilaboðum frá Hótel Frón. Þar fengu
lögreglumenn upplýsingar um að her-
bergið væri skráð á Ciprian og fékkst
heimild til að leita í herberginu. Var
í kjölfarið send tilkynning á landa-
mæradeild lögreglunnar á Suður-
nesjum og var Ciprian handtekinn í
Leifsstöð þegar hann reyndi að flýja
land að morgni 2. mars síðastliðins.
Fyrir dómi játaði Daniel að hafa kom-
ið búnaðinum fyrir en neitaði þeim
hluta ákærunnar er kvað á um að hon-
um hefði tekist að afrita upplýsingar.
Reyndi hann að taka sökina alfarið á
sig og sagðist ekki hafa komið bún-
aðinum fyrir í félagi við Ciprian sem
neitaði alfarið sök. Dómnum þótti
hins vegar sannað að Ciprian hefði
framið brotin í félagi við bróður sinn.
Í niðurstöðu dómsins segir að
sannað þyki að Daniel hafi tekist að
afrita upplýsingar af fjölda greiðslu-
korta sem hafi komist í hendur þriðja
aðila. Hann viðurkenndi að auki að
aðili í Bretlandi hefði greitt honum
fyrir að fara til Íslands og koma bún-
aðinum fyrir.
Þá segir að brot af þessu tagi séu
vel þekkt og tengist jafnan skipu-
lagðri alþjóðlegri brotastarfsemi. Brot-
in séu mjög alvarleg, þaulskipulögð
og leiddu til umtalsverðs tjóns og var
frekari tjónahætta mikil. Það var að-
eins fyrir tilstilli athuguls viðskipta-
vinar sem upp komst um háttsemi
bræðranna. Með hliðsjón af alvarleika
brotsins þótti dómara hæfileg refsing
12 mánaða fangelsisdómur, óskilorð-
sbundinn, en brotin gátu varðað allt
að 6 ára fangelsi. mikael@dv.is
16 Fréttir 4.–10. apríl 2012 Páskablað
Stálu kortaupplýsingum Bræðurnir komu
fyrir afritunarbúnaði á hraðbanka í miðbæ
Reykjavíkur. Fengu 12 mánaða dóm fyrir.
Þarf ekki
mikið pláss
Ef íbúar á höfuðborgarsvæðinu
byggju jafnþétt og Parísarbúar gætu
allir höfuðborgarbúar, sem eru um
það bil tveir þriðju hlutar lands-
manna, búið á svæðinu vestur af
Kringlumýrarbraut í Reykjavík. Þetta
myndi hafa bæði jákvæð og neikvæð
áhrif á lífið í borginni en helst ber að
nefna umtalsvert minni ferðakostn-
að og ferðatíma en nú þekkist.
Komumst fyrir vestan
Kringlumýrarbrautar
n Þétta má byggð á höfuðborgarsvæðinu án þess að byggja hátt
Mikið pláss Nóg pláss er fyrir alla höfuðborgarbúa á tiltölulega litlu svæði í Reykjavík sé
tekið mið af því hvernig aðrar þjóðir búa í sínum borgum. MyNd SigtRygguR ARi
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
Einstæð móðir í kröggum:
„Miklu
bjartara
yfir okkur“
„Það er miklu bjartara yfir okkur
og það er margt gott fólk þarna
úti,“ segir Aníta, ung einstæð móð-
ir sem DV sagði frá fyrir stuttu.
Aníta sagði upp atvinnu sinni þar
sem hún sá fram á að geta ekki séð
sér og dóttur sinni farboða á þeim
launum sem henni buðust. Hún
taldi sér betur komið innan félags-
lega kerfisins en þar mætti hún
engum skilningi, enda fólk ekki
hvatt til þess að segja upp atvinnu
sinni. En fjölmargir sýndu Anítu
skilning og vildu aðstoða hana.
Sá stuðningur hefur þýtt að þær
mæðgur geta komist af næstu tvo
mánuðina þangað til mál þeirra
skýrast.
„Þetta hjálpaði okkur mjög
mikið, allur sá stuðningur sem við
fengum. Það er að koma okkur í
gegnum þessa tvo mánuði,“ segir
Aníta. „Ég er svo þakklát fyrir alla
þá hjálp sem við fengum.“
„Það er til dæmis ein kona að
ganga frá samningi fyrir okkur svo
að við getum fengið íbúð sem er
mun ódýrari. Við getum feng-
ið hana í byrjun júní. Það mun
breyta lífi okkar,“ segir Aníta, en
lausafjárstaða hennar eftir að hún
hefur borgað leigu mun breytast
til muna og þýðir að þær mæðgur
geta haft í sig og á.
Hún er nú að skoða þau at-
vinnutilboð sem hún hefur fengið
og stekkur á það sem gengur upp
varðandi ferðakostnað og pössun
á dóttur hennar. „Það vinna allir í
kringum mig vaktavinnu svo það
getur verið erfitt að stóla á pössun,
en ég skoða allt og vona að ég finni
eitthvað sem gengur sem fyrst. Ég
er á fullu að leita og sæki um allt
sem ég held að geti gengið.“
Aníta segir að hún hafi verið
hikandi við að opinbera sig svo
mikið, en að það hafi á endanum
verið rétt ákvörðun.
„Já, það var gott að opinbera
sig svona. Ég er líka svo fegin því
hvað þetta fékk mikla athygli. Það
var markmiðið í upphafi að benda
á hversu rangt þetta væri,“ segir
hún. „En þetta breytir öllu, algjör-
lega öllu,“ segir hún. En það hefur
ekkert breyst hjá þeim mæðgum
innan félagslega kerfisins og þær
bíða nú úrlausnar sinna mála,
sem verður ekki fyrr en í júní.
astasigrun@dv.is
Málverk
í óskilum
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
hefur í fórum sínum tvö mál-
verk sem eru í óskilum. Eigendur
þeirra geta vitjað málverkanna
hjá lögreglu. Í tilkynningu frá lög-
reglunni kemur fram að krafist
verði staðfestingar á eignarhaldi
áður en myndirnar verða afhentar.
Þeir sem telja sig eiga málverkin
geta haft samband við lögregluna
í gegnum síma 444-1000 en einnig
má senda fyrirspurnir í tölvupósti
á netfangið abending@lrh.is.