Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2012, Page 24
24 Fréttir 4.–10. apríl 2012 Páskablað
Transfólk mætir
miklum fordómum
É
g er í sjokki yfir þessu,“ segir
Elísa Björg Örlygsdóttir Husby,
formaður félagsins Trans Ís-
lands, um árás á transmann á
veitingastað í miðborg Reykja-
víkur. Á sunnudag vitnaði DV.is í
bloggfærslu Hafþórs Loka Theodórs-
sonar sem sagði frá vini sínum sem
varð fyrir líkamsárás á skemmti-
staðnum Faktorý aðfaranótt sunnu-
dags.
„Í morgun hringdi góður vin-
ur minn sem einnig er trans í mig.
Klukkan var 6 og hann var alveg í
henglum. Ég flýtti mér til hans og sat
með honum heillengi á meðan hann
sagði mér frá 3 mönnum sem hann
rakst á á skemmtistaðnum Faktorý.
Þeir ákváðu að þeir væru ósáttir við
að hann skyldi „voga sér“ að fylgja
sannfæringu sinni og fara á karlakló-
settið.“ Þá lýsir hann atburðarás vin-
ar síns á Faktorý svona: „Þeir börðu
hann niður þangað til honum tókst
að flýja. Hann fór í leigubíl og út-
skýrði hvað hefði gerst og var þá til-
kynnt af þessum bílstjóraskratta að
það væri geðveiki að vera trans og að
hann vissi það sko af því að mamma
hans er víst „sérfræðingur“ í Svíþjóð,“
skrifar Hafþór.
Miklir fordómar
Elísa segir mikla fordóma vera gagn-
vart transfólki á Íslandi. „Sérstak-
lega á skemmtistöðum,“ segir Elísa.
„Mér finnst þetta ekki vera einangr-
að tilvik. Ég hef heyrt um mikla for-
dóma í garð transfólks á Íslandi.“
segir hún.„Fyrir nokkrum árum var
hótað að myrða transkonu, þannig
að þetta er ekkert einsdæmi,“ seg-
ir Elísa sem segir einnig mikla for-
dóma gagnvart transfólki erlendis.
„Þar hefur transfólk verið myrt
vegna fordóma,“ segir Elísa. „Ég varð
náttúrulega virkilega hræddur og
bara mjög óttasleginn og er ennþá
í hálfgerðu sjokki. Ég hefði aldrei
trúað því að eitthvað svona myndi
gerast á Íslandi og hvað þá á árinu
2012,“ sagði vinur Hafþórs í samtali
við DV.is á sunnudag.
Umhugsunarvert
Maðurinn sagðist vonast til þess að
svona atburður veki fólk til umhugs-
unar um stöðu transfólks í samfé-
laginu. Aðspurður um það hvort
hann hafi einhver sérstök skila-
boð sem hann vilji koma á fram-
færi í tengslum við málefni trans-
fólks segir fórnarlamb árásarinnar:
„Veistu ég er ennþá bara í miklu
sjokki og á erfitt með að hugsa.“
Hann segist þó vera að fara af stað
með fræðslu í slagtogi með öðrum
og hann vonar að hún muni skila
sér í aukinni vitund. „Við höfum
farið inn í grunnskólana og erum
tilbúin að fara hvert sem er. Fólk er
að vakna og það vill fá fræðslu af því
að margir vita ekkert hvað er að vera
trans eða hvað felst í orðinu. Þann-
ig að þetta er bara barátta sem við
verðum að halda á lofti.“
„Fyrir
nokkrum
árum var hótað að
myrða transkonu
Birgir Olgeirsson
blaðamaður skrifar birgir@dv.is
Fordómar Formaður Trans Íslands segist
finna fyrir miklum fordómum í garð trans-
fólks á Íslandi. Mynd Photos.coM
n Transmaður laminn á skemmtistað í Reykjavík
Faktorý Hafþóri Loka var mjög brugðið vegna árásarinnar aðfaranótt sunnudags.
Mynd sigtryggUr ari
Spítalinn
eins og fjórar
Smáralindir
Gísli Marteinn Baldursson, borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, gagn-
rýnir harðlega nýtt deiliskipulag
Landspítalans við Hringbraut, sem
meirihlutinn í Reykjavík hefur lagt
fram. Gísli segir deiliskipulagið
vont; bílastæðamál séu illa leyst,
mikilvæg götuhorn illa hönnuð
og nýtt, og jafnframt ásýndin að
gamla spítalanum hverfi á bak
við risabyggingar. Í pistli á heima-
síðu sinni segir Gísli að furðuleg-
ast sé byggingarmagnið sjálft, sem
er samtals 290 þúsund fermetrar,
en til samanburðar er núverandi
Landspítali 60–70 þúsund fermetr-
ar og Borgarspítalinn 30 þúsund
fermetrar. „Ástæða nýju byggingar-
innar er sameining þessara tveggja
spítala, og í því ljósi er mjög sér-
stakt að sameinaður muni spítalinn
verða þrisvar sinnum stærri en þeir
tveir hlutar sem eru að sameinast,“
segir hann og bætir við að bygg-
ingarmagnið nemi tæplega fjórum
Smáralindum.
„Skrýtið að
Alþingi skuli
styrkja svona
lagað“
„Ég vil vita hverja Björn talaði
við. Mér finnst það skipta máli,“
segir bloggarinn Teitur Atlason
á bloggi sínu á DV.is en þar vill
hann fá að vita við hverja Björn
Bjarnson ræddi við skýrslugerð
fyrir Evrópuvaktina sem styrkt
var um 4,5 milljónir króna af
Alþingi.
Teitur segir Björn aðeins
nafngreina eina manneskju en
það er Hans-Olaf Henkel sem
Teitur segir vera búinn að mála
sig út úr þýskri samfélagsum-
ræðu vegna öfgakenndra skoð-
ana sinna. „Mér finnst skrýtið
að Alþingi skuli styrkja svona
lagað. Ég þekki ágætlega til rit-
hefða og ólíkra tegunda af rit-
smiðum, en hef aldrei séð neitt
í líkingu við rit-klastur Björns
Bjarnasonar,“ segir Teitur en
hefur þó séð eina og er það
greinin The Kentucky Derby
is Decadent and Depraved
eftir rithöfundinn margfræga
Hunter S. Thompson.