Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2012, Side 53

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2012, Side 53
Viðtal 53Páskablað 4.–10. apríl 2012 „Virðing fyrir mannréttindum felur einnig í sér virðingu fyrir landi og náttúru; áherslu á nægjusemi og lífshætti sem eru umhverfisvænir þar sem oft eru andvökunætur út af rekstrinum, erfitt að láta enda ná saman og ekki sjálfgefið að fá eigin laun greidd.“ Doktorsgráða frá lagadeild Lundarháskóla Herdís hélt árið 1996 ásamt þáver- andi eiginmanni sínum og fjórum börnum á aldrinum fimm mánaða til 10 ára til Lundar þar sem hún stundaði framhaldsnám. „Ég hafði fengið stöðu til að vinna að doktorsritgerð við lagadeildina í Lundi. Umfjöllunarefnið var tján- ingarfrelsi fjölmiðla og ritstjórnar- legt sjálfstæði þeirra. Á þessu tíma- bili var mér einnig boðið að koma sem gestafræðimaður til Oxford þar sem ég hélt opinberan fyrirlestur um niðurstöður mínar um að stjórn- völdum bæri samkvæmt Mannrétt- indasáttmála Evrópu að tryggja það að fjölmiðlar geti sinnt þeirri skyldu að vera varðhundur almennings óháð þrýstingi frá viðskiptavaldi og stjórnmálaöflum. Ég kom heim með börnin til Íslands árið 2000 en þá höfðum við hjónin ákveða að skilja.“ Herdís varði síðan doktorsrit- gerðina í Lundi árið 2003 og hún var ráðin prófessor á Bifröst eftir að hafa farið í gegnum hefðbundið akadem- ískt mat árið 2004. Hún var og er einstæð móðir og til að börnin kæmu ekki að tómu húsi þegar hún var í Borgarfirðinum réði hún konu sem tók á móti þeim nokkrum sinnum í viku og hafði þann starfa í sex vetur. Það var fyrr minnst á meðbyr og mótbyr; flestir ef ekki allir hafa skoðun á forseta- frambjóðendum hvort sem þeir þekkja þá eða ekki. Fyrrgreind kona sagði eftirfarandi við blaðamann: „Í mínum huga er hún hlý og góð manneskja, býr yfir hugrekki og gáf- um og þeim eiginleika, sem ekki er algengur, að hún er höfðingi í lund. Þetta er nákvæmlega það sem mér finnst um Herdísi Þorgeirsdóttur og hefur alltaf fundist.“ Fræðastörf „Í ársbyrjun 2005 var nýr deildarfor- seti ráðinn við lagadeildina á Bifröst án auglýsingar. Ég og ýmsir fleiri vorum undrandi á þessari ráðningu enda kom þessi einstaklingur af Al- þingi en ekki úr akademísku um- hverfi. Árið 2006 var staða rektors auglýst og gerð krafa um doktors- próf. Ég sótti um en dr. Ágúst Ein- arsson var ráðinn en hann hefur djúpar rætur úr sama pólitíska um- hverfi og deildarforsetinn. Skömmu síðar gerðum við samkomulag um að ég færi í stöðu rannsóknarpró- fessors og um mitt ár 2009 fór ég þess á leit við hann að fá launalaust leyfi sem stendur enn. Ég hélt áfram að halda tengslanetsráðstefnurnar sem ég hafði byrjað með og skipulagt allt frá 2004 og voru mjög fjölsóttar. Ég fékk fræga erlenda gestafyrirlesara en ekki síður öflugar íslenskar konur af öllum sviðum sam- félagsins til að tala. Þetta voru sann- kallaðir hópeflisvið- burðir sem ég tel að hafi haft mikil áhrif á jafnréttisbaráttuna og lagasetningu henni tengda. Ég var önnur íslenskra kvenna til að verja doktorsritgerð í lög- um og vakti það vissa fordóma þar sem ég var ekki með íslenskt laga- próf í grunninn. Því afréð ég að taka grunnnám í lögfræði og afla mér í kjölfarið lögmannsréttinda sem ég fékk 2011. Þetta gerði ég samhliða umfangsmiklum störfum á sviði mannréttinda fyrir Evrópuráðið og störfum fyrir Framkvæmdastjórn Evrópusambands á sviði jafnréttis- mála vegna aðildar Íslands að EES- samningnum og ásamt störfum mínum sem Forseti Evrópusamtaka kvenlögfræðinga.“ Það má kannski segja að litla myndin á veggnum á skrifstofu Her- dísar sé táknmynd fyrir mannrétt- indin sem hún hefur lagt áherslu á. Ef hún nær kjöri sem næsti forseti lýðveldisins hefur hún áhuga á að vinna enn meira að þeim málum. Og þá í þágu Íslendinga. Það hefur minnkað í tekrúsunum. Herdís kveður jafn hlýlega og hún heilsaði fyrir utan grámálaða húsið, Skýjahöllina. Þótt það sé sunnudag- ur þá er nóg að gera. Fundur síðar um daginn með stuðningsmönn- um. Jú, vorið er komið. Það er farið að bruma svolítið hér og þar. Sólin farin að hækka á lofti. Svava Jónsdóttir „Embætti forseta Íslands gerir kröfu um að það skipi hæfur einstaklingur Forsetaembættið „Forsetinn er fulltrúi vinn- andi fólks og þeirra sem eru áhyggjum og þunga hlaðnir,“ segir Herdís. mynD sigtryggur ari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.