Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2012, Blaðsíða 54
54 Viðtal 4.–10. apríl 2012 Páskablað
Þ
að er fermingarveisla
í gangi á heimili Þóru
og Svavars á Hjalla
brautinni í Hafnar
firði þegar blaða
maður sækir þau heim. Þóra
býður til sætis í eldhúsinu.
Hún er komin með myndar
lega kúlu. Enda er von á átt
unda fjölskyldumeðlimnum í
byrjun maímánaðar. Þau Þóra
og Svavar eiga miklu barna
láni að fagna en þau eiga sam
an tvö börn, Halldór Narfa sex
ára og Nínu Sólveigu sem er að
verða fjögurra ára. Þá á Svavar
þrjár dætur frá fyrra sambandi
sem eru að verða 13, 14 og 15
ára. Það er sú næstelsta sem
var að fermast og það er fjör á
heimilinu þennan laugardag
enda allir fjölskyldumeðlimir
samankomnir til að samfagna
og gæða sér á kaffi, kökum og
fiskisúpu.
Út um eldhúsgluggann sjást
Dóri, Oddur frændi hans og
Nína, upptekin við að drullu
malla. Á eldhúsbekknum er
kokkagalli Svavars. „Hann
fer stundum í kokkagallann
þegar hann er að elda, hon
um finnst það skemmtilegra,“
segir Þóra með bros á vör.
„Ég lagaði nefnilega stórkost
lega fiskisúpu í morgun,“ segir
Svavar sem kemur aðvífandi
inn í eldhús að laga meira kaffi
fyrir gestina. „Mér finnst allt
bragðast betur sem ég elda
þegar ég er í kokkagallanum,“
útskýrir hann. Þóra horfir út
um gluggann þar sem börnin
eru að leik. „Hún Nína klæddi
sig í stígvélin áðan og tilkynnti
mér að hún væri sko farin út að
drullumalla með strákunum.
Ég held að hún verði harðjaxl,
því hún er alltaf að berjast fyrir
því að fá að vera með.“
Bjó við hvatningu bræðra
sinna
Sjálf er Þóra yngst í systkina
röðinni og segir það sjálfsagt
hafa mótað sig heilmikið. Hún
er alin upp í vesturbæ Kópa
vogs við mikið öryggi og gott
atlæti foreldra sinna, Nínu
Sveinsdóttur framhaldsskóla
kennara og Arnórs Hannibals
sonar heimspekiprófessors.
Síðast en ekki síst bjó hún við
hvatningu kappsfullra bræðra
sinna.
„Ég á fjóra eldri bræður og
af því að ég er yngst, örverpið,
þá var fjölskyldan búin að gera
allt þegar ég fæddist. Foreldr
ar mínir voru fertugir þegar ég
kom í heiminn og fjölskyldan
búin að búa á 12–13 stöðum í
þremur löndum. Svo keyptu
þau fokhelda hæð í Kópavog
inum og settust þar að. Bræður
mínir eru allir metnaðarfullir
á sínu sviði og ég fékk oft að
heyra það í uppvextinum: „Já,
ertu systir þeirra – þeir fá allt
af tíu.“ Ég ákvað því að fara í
Menntaskólann við Hamrahlíð
í stað þess að fara í Mennta
skólann í Kópavogi þar sem
þeir höfðu verið, til þess að
þurfa ekki að máta mig statt og
stöðugt við þá,“ segir Þóra sem
gaf þeim þó aldrei eftir í námi.
,,Svo gátu þeir heldur aldrei
neitt í íþróttum, svo ég hef séð
um þá hlið mála í fjölskyld
unni, móður minni, íþrótta
konunni, til mikillar gleði.”
Heimspekileg í hugsun
„Ég hef alltaf átt auðvelt með
nám og fundist gaman að því
og foreldrar mínir eiga eflaust
þátt í því,“ útskýrir Þóra. Hún
ákvað að leggja stund á heim
speki í grunnnámi í háskóla en
faðir hennar er þekktur fyrir
kennsluhætti sína í heimspeki
deild og það að taka fræðin al
varlega. ,,Ég held að hann hafi
ekki verið hrifinn af því hversu
vinsæl heimspekin varð um
tíma, hann er það mikill fræði
maður. Hann hefur lítið um
burðarlyndi gagnvart leitandi
ungmennum og finnst að þeir
sem ætla sér að læra heimspeki
eigi að sökkva sér í fræðin. Þeir
sem ekki sýndu brennandi
áhuga voru settir út af sakra
mentinu, en þeir fáu sem stóð
ust þessar miklu kröfur, þeir
fengu jafnvel yfir átta í ein
kunn,“ segir hún og hlær. „Hjá
móður minni var það hins veg
ar fastur liður að taka á móti
blómum og konfekti frá nem
endum sínum á vorin. Hún
kenndi viðskiptagreinar og
stærðfræði og var mjög vinsæll
kennari en er nú komin á eftir
laun. Hún er líklega duglegasta
manneskja sem ég þekki. Hún
er fædd árið 1935, var önnur
konan til að útskrifast úr við
skiptafræði frá Háskóla Íslands
og sá um sjö manna heimili frá
a til ö, alltaf með fullri vinnu
og stundum rúmlega það. For
eldrar hennar hófu sinn bú
skap í tjaldi á Ölfusárbökkum,
en öll börnin þeirra fjögur luku
háskólaprófi. Það er allt hægt
ef fólk stendur saman og vilj
inn er fyrir hendi.“
Þóra lauk B.A.prófi í heim
speki frá Háskóla Íslands. Er
hún heimspekileg í hugsun?
„Já, ætli megi ekki segja það.
Það er hægt að auka lífsgæð
in mjög með því að hafa já
kvæða afstöðu til lífsins. Rök
fræði og stjórnmálaheimspeki
voru mínar uppáhaldsgreinar
í heimspekinni og mér finnst
gott að hugsa afstætt. Það er
góð leið til þess að taka ákvarð
anir.“
Bjuggu 7 saman í 3
herbergja íbúð
Í þeim töluðu orðum gengur
einn bræðra hennar inn í eld
hús og athugar hvort kaffivél
in framleiði nóg kaffi. Hann er
forvitinn um hvað systir hans
er að ræða en Þóra bandar
honum góðlátlega út úr eld
húsinu. Þóra og Svavar hafa
komið undir sig fótunum á fal
legu heimili sínu í Hafnarfirð
inum. Þau voru á leigumarkaði
þar til í febrúar að þau keyptu
húsið sem þau hafa leigt und
anfarin ár. ,,Fyrstu fjögur árin
okkar saman leigðum við
þriggja herbergja kjallaraíbúð
í Breiðholtinu hjá yndislegu
fólki, svo undir það síðasta
voru fjögur börn í öðru her
berginu þegar stelpurnar voru
hjá okkur og við þrjú í hinu.
Ég lifði ekki glæstu sjónvarps
stjörnulífi skal ég segja þér,“
segir hún og skellir upp úr.
„Dæmigerðri útsendingu lauk
þannig að ég fór úr fína hönn
unarkjólnum sem ég fékk lán
aðan. Braut hann saman og
setti í plastpoka. Þreif af mér
sminkið. Flýtti mér svo út til
að ná strætó upp í Breiðholt.
En það var ekkert að þessu,
við hugsum til þessa tíma með
mikilli hlýju. Pabba fannst
þetta reyndar ágætt fyrirkomu
lag hjá okkur og rifjaði upp
sögur af þremur fjölskyldum í
einni íbúð á Ísafirði. Hann sér
ekki hvers vegna börn þurfa
sérherbergi.“
Fékk bréfsendingar og
símhringingar
Þóra hefur unnið við fjölmiðla
í tæp 15 ár og var rétt rúm
lega tvítug þegar hún hóf störf
í Dægurmálaútvarpinu á Rás
2. ,,Þar var ég með góða læri
meistara eins og Leif Hauks
son, Ævar Örn Jósepsson og
Lísu Pálsdóttur sem ég nýtti
mér óspart.“
Hún hélt svo til framhalds
náms við John Hopkinshá
skólann í Washington og
Bologna og þegar hún kom
heim á sumrin fékk hún vinnu
á fréttastofu Sjónvarpsins. Það
an lauk hún meistaraprófi í al
þjóðastjórnmálum og þróun
arhagfræði. Við heimkomuna
hóf hún störf sem fréttamaður
af fullum þunga á fréttastofu
Ríkissjónvarpsins svo eftir var
tekið og hefur margoft verið
kosin besti sjónvarpsmaður
landsins.
En hvernig kom það til að
hún hugleiddi framboð til
embættis forseta Íslands? „Það
var í byrjun árs að ég fór að fá
bréfsendingar og hvatningu
til þess að bjóða mig fram.
Mér þóttu bréfin bæði falleg
og skemmtileg og ákvað að
geyma þau til að sýna krökk
unum þegar þau stækka. Á
þessum tíma hvarflaði ekki að
mér að hugleiða framboð í al
vöru, enda barn á leiðinni, við
í framkvæmdum hér heima við
og fjölskyldan með allt aðrar
áætlanir,“ segir Þóra.
En bréfsendingum til henn
ar fjölgaði eftir því sem leið að
vori. „Eftir því sem tölvupóst
um, bréfum og símhringingum
fjölgaði, þá fann ég fyrir alvör
unni. Það voru ekki bara ætt
ingjar, vinir og kunningjar sem
hringdu og sendu bréf. Það var
kennarinn á Héraði, áhöfn
in fyrir vestan, verkstjórinn úr
Rangárþingi og svo framvegis.
Fólk sem ég þekki ekki. En
það er ekki nóg að finna fyrir
hvatningu frá öðru fólki. Það
er alltof auðvelt að láta berast
á einhverri bylgju og uppgötva
svo að það gleymdist að svara
grundvallarspurningunni:
Langar mig til þess að gegna
þessu embætti – og hef ég það
sem þarf til að gegna því með
sóma? Til þess að geta svar
að henni, þarf ég að skilgreina
embættið í huga mér, fyrir
hvað það stendur og hvernig
ég vil móta það.
Þegar kjarninn er skilinn frá
hisminu þá er það þetta sem
skiptir máli. Ekki hvernig mál
hafa skipast í fortíðinni, heldur
hvernig við sjáum framtíðina.“
Forsetinn er öryggisventill
Þóra hefur ákveðna sýn á for
setasembættið. Hún vill stuðla
að sátt og hvetja til góðra verka.
„Forsetinn er eini embættis
maðurinn sem þjóðin öll fer
og kýs persónukjöri. Það þýð
ir líka í mínum huga að hann
eigi að vera forseti allrar þjóð
arinnar. Auðvitað má segja að
kosningar séu alltaf pólitískar
á einhvern hátt, en forsetakjör
hefur ekkert með flokkapóli
tík að gera. Forsetinn er ekki
á vegum flokka, hann er ekki
á vegum hagsmunahópa og
hann tekur ekki afstöðu í póli
tík, blandar sér í ekki í pólitísk
ar deilur. Fólk lætur ekki segja
sér hvern það eigi að kjósa eftir
einhverjum pólitískum línum.
Um leið og forsetinn bland
ar sér í pólitík er hann farinn
að skipa sér bak við víglínu og
nóg er af þeim í þessu samfé
lagi. Ég sé fyrir mér manneskju
sem ýtir undir sátt. Í grunn
inn erum við friðsæl þjóð þótt
ýmislegt hafi gengið á og um
ræðan eins og hún hefur verið
síðustu árin ekki beinlínis ýtt
undir það góða í þjóðarsálinni.
Það er miklu fleira sem sam
einar okkur en sundrar og for
setinn á að hvetja fólk til góðra
verka, hann á að stappa í það
stálinu þegar þess þarf og út
Kristjana
Guðbrandsdóttir
kristjana@dv.is
Viðtal
Þóra Arnórsdóttir er á lokametrunum. Ákvörðun um hvort hún
bjóði sig fram til forseta þarf að liggja fyrir mjög bráðlega, en kosið
verður þann 30. júní. Ef hún lætur slag standa segist hún ætla
að vakna að morgni 1. júlí og hugsa: Mikið var þetta skemmtileg
reynsla, hvernig sem fer. Kristjana Guðbrandsdóttir heimsótti
Þóru á heimili hennar í Hafnarfirði um helgina og ræddi um hennar
sýn á forsetaembættið en Þóra á von á barni þann 8. maí. Hvað er
eðlilegra en að eignast barn? spyr hún. „Það er óeðlilegt að útiloka
konur á barneignaraldri frá ábyrgðarstöðum í samfélaginu.“
Barnshafandi í baráttu
Forseti allrar þjóðarinnar „Forsetinn er eini embættis-
maðurinn sem þjóðin öll fer og kýs persónukjöri. Það þýðir líka
í mínum huga að hann eigi að vera forseti allrar þjóðarinnar.
Auðvitað má segja að kosningar séu alltaf pólitískar á einhvern
hátt, en forsetakjör hefur ekkert með flokkapólitík að gera.