Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2012, Síða 58

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2012, Síða 58
58 Viðtal 4.–10. apríl 2012 Páskablað E ngilbert Guðmundsson segist snemma hafa fengið áhuga á þróunarmálum og fátækum löndum. „Námsárin mín í Kaupmannahöfn skiptu miklu máli en þar lærði ég meðal annars þróunarhagfræði ásamt alþjóðahag- fræði en það beindi mér töluvert inn á þessa braut. Ég var mjög spennt- ur fyrir vangaveltum innan hagfræð- innar um það sem fær þjóðfélög til að breytast í tímans rás.“ Engilbert lauk meistaraprófi í hagfræði frá viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn árið 1976 auk þess sem hann stundaði framhaldsnám í þróunarfræðum við University of East Anglia. Hann flutti ásamt fjölskyldu sinni til Tansaníu árið 1985 þar sem þau bjuggu í fimm ár, og Ingunn Anna Jónasdóttir, einkona Engilberts kenndi börnunum heima fyrstu tvö árin. Yngsta dóttirin var tveggja ára þeg- ar þau fluttu. „Við töluðum auðvitað íslensku við hana en hún talaði sva- hílí þegar henni var mikið niðri fyrir.“ Um þriðjungur smitaður Engilbert starfaði í Tansaníu hjá dönsku þróunarsamvinnustofnun- inni DANIDA frá 1985–1990. Um var að ræða samnorrænt verkefni sem fólst í að styðja samvinnufélög í land- inu og þá einkum samvinnufélög bænda. „Ég fór til starfa í litlum, afskekkt- um bæ við Viktoríuvatn, Bukoba, og vann þar í stóru samvinnufélagi sem hægri hönd framkvæmdastjórans og voru um 900 manns þar í vinnu. Stór hluti af minni vinnu var fólginn í að hjálpa þeim að koma skipulagi á verkefnið og síðan að finna nýja kyn- slóð af stjórnendum – koma þeim í stjórnendaþjálfun og byggja upp fyrir framtíðina. Þetta var mjög áhugavert og spennandi verkefni. Ég held ég hafi öðlast þarna mjög nytsamlegan skilning á því hvað er að gerast í gras- rótinni í Afríku hvað varðar samfélag bænda. Þetta voru árin sem Aids-hörm- ungarnar byrjuðu að skella á. Bukoba var á þessum tíma kallaður „Aids capital of the world“ enda nálægt upprunasvæði sjúkdómsins sem er líklega einhvers staðar í regnskógum Mið-Afríku. Þá er mikið um flutn- inga á svæðinu en sumir langferða- bílstjórar leituðu til vændiskvenna en það tók menn tíma að átta sig á þeirri smitleið. Um það leyti sem ég flutti til Bukoba var gerð í fyrsta sinn könnun á meðal starfsmanna í fyrirtækjum í bænum og það kom í ljós að í kaup- félaginu var um þriðjungur starfs- manna smitaður. Þetta hafði nátt- úrulega gífurleg áhrif í samfélaginu því þetta var löngu áður en einhverjir möguleikar voru á hjálp til að halda einkennum í skefjum. Þetta var ein- faldlega hægfara dauðadómur yfir þeim sem smituðust. Því fylgdi af- neitun og þöggun. Þetta hafði bein áhrif inn í okkar rekstur því á þessu svæði var að finna best menntaða fólkið í öllu landinu; þarna var göm- ul menntunarhefð og var fólk meðal annars sent í framhaldsnám til Evr- ópu til að verða framtíðarstjórnendur en svo kom það heim og sjúkdóm- urinn dró það til dauða. Áður en yfir lauk misstum við liðlega helminginn af því fólki sem við höfðum fundið og sent til að þjálfa.“ Skelfilega sorglegt Engilbert segir að það hafi verið skelfilega sorglegt að horfa upp á al- næmissjúka. „Dauðinn er alltaf ná- lægur í Afríku og maður venst hon- um á vissan hátt. Afrísk samfélög bregðast við honum með þeim hætti að þau gera mikið úr honum í stutt- an tíma; sorgin er þá tjáð með mjög öflugum hætti en síðan fara hlutirnir í sitt venjulega horf. Þá er barnadauði mikill og fólk lifir mun skemur en til dæmis Vesturlandabúar að meðaltali. Lítil börn í Afríku kynnast því að sjá fólk deyja í kringum sig og hefur það vafalaust áhrif á margt í samfélaginu.“ Engilbert vann þrjú síðustu árin í Tansaníu sem ráðgjafi auk þess að hafa yfirumsjón með stjórnunarþjálf- un fyrir samvinnufélögin í landinu. Hann ferðaðist því mikið um landið og hjálpaði mönnum að skipuleggja námskeið og þjálfun á starfsfólki. „Það var kannski ekki alveg eins gef- andi og hitt þar sem maður var innsti koppur í búri en mjög áhugavert.“ Þrjú lönd í viku Eftir fimm ár í Tansaníu ákváðu hjón- in að flytja til Íslands. Nokkrum mán- uðum eftir heimkomuna flutti Engil- bert til Finnlands þar sem hann fór að vinna hjá Norræna þróunarsjóðn- um þar sem hann vann í um átta ár. Fyrstu árin var hann tæknilegur verk- efnastjóri yfir verkefnum í Afríku og Suður-Ameríku en megnið af tíman- um var hann aðstoðarforstjóri stofn- unarinnar og hafði einkum og sér í lagi verkstjórn á verkefnavinnu – undirbúningi verkefna, samningavið- ræðna við ríkisstjórnir og eftirfylgni. Norræni þróunarsjóðurinn var með verkefni í um 30 löndum og seg- ir Engilbert að því hafi fylgt óheyrileg ferðalög. „Ég held að eitt árið þegar mest gekk á hafi ég verið á ferðalög- um í um 160 daga, enda ákváðum við hjónin fljótlega að fjölskyldan myndi búa áfram á Íslandi. Við hittumst að minnsta kosti mánaðarlega og þau voru hjá mér í Helsinki í öllum frí- um. Ég eyddi svo öllum mínum fríum heima á Akranesi.“ Þótt hann hafi ferðast víða var oft lítill tími til að skoða nýja staði. „Dæmigerð vika gat verið fólgin í því að ég heimsótti þrjú lönd og oftast sat ég inni á skrifstofum að semja við fólk. Ég kynntist mörgu spennandi og skemmtilegu fólki og heimsótti lönd þar sem höfðu orðið framfarir; auð- vitað fannst mér skemmtilegra að fylgjast með löndum þar sem ástand- ið hafði farið batnandi. Mér fannst til dæmis gaman að fylgjast með Úganda og Simbabve á þeim tíma. Ég komst stundum í kynni við ým- islegt sem tengdist menningu. Það var til dæmis gaman að heimsækja sam- vinnufélag kvenna sem fékk lán sem við höfðum haft frumkvæði að. Þar sá ég saumastofur sem var verið að byggja upp í litlum þorpum þar sem þær saumuðu fatnað sem var seldur á mörkuðum; ég á góðan, senegalskan fatnað sem þær gáfu mér.“ Í vinnu hjá Alþjóðabankanum Árin liðu; þau urðu sjö. Engilbert hafði hjá Norræna þróunarsjóðnum unnið mikið með Alþjóðabankanum; hann segir að eitt af áhugaverðari verkefn- unum hafi verið að fella niður skuldir fátækra ríkja sem hófst árið 1995. Það varð úr að Engilbert fékk starf hjá Al- þjóðabankanum í Washington árið 1998. „Það var mikil vinna í gangi við að samræma vinnuaðferðir þróunar- bankanna sem ég hafði verkstjórn með og samhliða því vann ég með yfirmönnum bankans í alls konar stefnumörkunarvinnu; þar á meðal verkefnum sem tengdust því hvernig þróunarsamvinna eigi að fara fram. Það urðu miklar breytingar frá um 1995 og þar til fyrir fáeinum árum á því hvernig stofnanir vinna; það var allt í einu lögð meiri áhersla á að löndin sem verið er að vinna með ættu að ráða ferðinni – það ætti að byggja aðstoð á áætlunum þeirra.“ Engilbert vann til dæmis við nýjar vinnureglur sem enduðu í Parísar- yfirlýsingunni árið 2005 en þá voru ákveðnar nýjar vinnureglur sem nán- ast allar þróunarstofnanir í heimi skrifuðu upp á og mörg þróunarlönd. En verkefnin sneru ekki eingöngu að fátækustu löndunum. Hvað með Washington? Hvernig upplifði Engilbert þá borg? „Wash- ington er yndisleg. Hún er falleg, græn og veðrið er afskaplega notalegt megnið af árinu. Borgin er töluvert al- þjóðleg en þarna eru stórar alþjóða- stofnanir eins og Alþjóðabankinn og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn. Okkur leið vel í Washington og konan mín fékk skemmtilega vinnu í þjálfunar- miðstöð bandarísku utanríkisþjón- ustunnar við að kenna því fólki, sem vinna átti í sendiráði Bandaríkjanna á Íslandi, íslensku og ýmislegt um íslenska menningu, stjórnmál og félagsmál.“ Ráðgjafi ríkisstjórnar í Síerra Leóne Eftir átta ár í Washington var Engil- bert reiðubúinn til þess að takast á við eitthvað nýtt. „Ég taldi að ég hefði bæði reynslu og skapsmuni til að vinna í landi þar sem aðstæður væru erfiðar.“ Hjónin fluttu til Síerra Leóne árið 2006 þar sem Engilbert var umdæm- isstjóri Alþjóðabankans. „Þar var ég ráðgjafi ríkisstjórnar- innar um fjölmarga hluti og hafði mikið og náið samstarf við fjármála- ráðherra landsins. Það var fróðlegt að komast í góð samskipti við ríkisstjórn og forset- ann. Hann var óvenjulegur að því leyti að það var auðvelt að ná tali af honum. Þetta var góður tími en auð- vitað margt erfitt. Landið á sér sögu mikillar spillingar og er verið að taka mikilvæg skref í baráttunni gegn henni.“ Settist ekki í helgan stein Starfsmenn bankans fara á eftirlaun þegar þeir ná 62 ára aldri. Engilbert var ekki tilbúinn til að setjast í helgan stein. „Við vorum búin að ræða ýmsa hluti; eitt var að ég myndi fara að vinna sem sjálfstæður ráðgjafi hjá Al- þjóðabankanum en það gera marg- ir sem hafa hætt þar störfum. En þá var auglýst starf framkvæmdastjóra Þróunarsamvinnustofnunar Íslands. Eftir dálitla umhugsun og smá hvatn- ingu sótti ég um.“ Engilbert hóf störf hjá stofnuninni fyrir rúmu ári. Gera tilraunir Þróunarsamvinnustofnun Íslands hefur verið að breytast. Í upphafi var lögð áhersla á að styðja við ákveðin fiskveiðiverkefni en áherslurnar eru aðrar í dag, meðal annars á sviði heil- brigðis- og menntamála og að styðja valddreifingu í viðkomandi löndum. „Menn hafa áttað sig á að það er væn- leg aðferð til að koma grunnþjónustu til fólks að flytja ákvarðanatökuna nær því og það er nú meginnálgun hjá stofnuninni. Auðvitað vinnum við með ríkisstjórnum og þurfum að eiga í samstarfi við þær en við ætlum fyrst og fremst að vinna með sveitar- félögum og sveitarstjórnum, velja ákveðin héruð í löndunum en það passar betur við Þróunarstofnunina sem er lítil stofnun. Við ætlum meðal annars að styrkja sveitarfélögin hvað varðar menntun, heilbrigðisþjónustu og vatnsöflun. Þróunarsamvinnustofnun Íslands vinnur líka að því að styðja við gæða- mál í fiskveiðum á eyjum í Viktoríu- vatni og og öðrum vötnum í Úganda með því að bæta löndunaraðstöðu og kenna fólki hvernig það fer betur með aflann. Í Malaví er til dæmis stutt við vatnsborun í ákveðnu hér- aði og það er verið að byggja sjúkra- hús og heilsugæslustöðvar. Þá sér stofnunin um þjálfun hjúkrunarfólks, byggingu skóla og fullorðinsfræðslu. Ég legg mikla áherslu á að Þróun- arsamvinnustofnun sé stofnun sem læri. Við gerum tilraunir og lærum af reynslunni. Ég gagnrýndi það oft hjá Alþjóðabankanum hvað menn voru íhaldssamir en ég hvet fólk mikið til að gera nýja hluti en gera það með þeim hætti að það sé hægt að læra af því á skipulegan hátt. Og þótt við leggjum áherslu á þátttöku í baráttunni við hungur og vannæringu, einkum meðal barna og kvenna, þá höfum við ekki misst sjónar á þeim sviðum þar sem Ís- lendingar hafa sérþekkingu. Við styðjum til dæmis samstarf ríkja í austan- og sunnanverðri Afríku með- fram svokallaðri Afríkusigdæld sem er jarðhitasvæði en um er að ræða samvinnu um jarðhitarannsóknir og undirbúning virkjana. Þar erum við að hefja metnaðarfullt samstarf við bæði Alþjóðabankann og Norræna þróunarsjóðinn um mun umfangs- meiri rannsóknir og undirbúning en fyrr hefur verið gert.“ Gefandi og spennandi Engilbert Guðmundsson hefur heim- sótt um 100 lönd starfs síns vegna. Hann segir að fólk sé alls staðar eins. „Þjóðir geta verið afskaplega ólíkar á yfirborðinu en undir niðri er þetta allt eins. Það er gefandi og spennandi að sækja út fyrir landsteinana og ég held að það sé mikilvægt fyrir okkur sem litla þjóð að menn fari til útlanda til að læra og vinna og komi svo heim með reynsluna úr hinum stóra heimi. Auðvitað er Ísland mitt heimaland en ég hef lært að líta á Ísland sem hluta af stærri heild. Mannkyns sagan er öll þróun í átt til stærri eininga frá litla þorpinu upp í borgríkið, upp í þjóðríkið og upp í ríkjasambandið. Öll stóru vandamálin sem við stönd- um frammi fyrir eru af því tagi að þjóðríkið er gjörsamlega ófært um að leysa þau. Við verðum í vaxandi mæli að leysa vandamálin á heimsvísu. Það er bara framtíðin og við eigum að vera þátttakendur í því. Saga Íslands allt frá landnámi fram til okkar daga segir okkur að okkar bestu ár eru oft- ast þau ár þegar við erum best tengd við heimsbyggðina. Og þannig eigum við að gera það.“ Svava Jónsdóttir Dauðinn alltaf nálægur Engilbert Guðmundsson, framkvæmdastjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands, bjó liðlega aldar- fjórðung í útlöndum - í Tansaníu, Finnlandi, Banda- ríkjunum og Síerra Leóne. Bærinn sem hann bjó í í Tansaníu var á þeim tíma kallaður „Aids capital of the world“ og þegar hann vann hjá Norræna þróunar- sjóðnum í Finnlandi var hann á ferðalögum erlendis allt upp í 160 daga á ári . Hann var umdæmisstjóri Al- þjóðbankans í Síerra Leóne, einu fátækasta ríki heims. „Dauðinn er alltaf nálægur í Afríku og maður venst honum á vissan hátt. Sorglegt Sorgin er tjáð með mjög öflugum hætti , segir Engilbert um það hvernig afrísk samfélög bregðast við sínálægum dauðanum.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.