Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2012, Qupperneq 63

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2012, Qupperneq 63
KonungsríKi Kela Viðtal 63Páskablað 4.–10. apríl 2012 eru önnum kafin við að kynna bók- ina um Gullna hattinn sem á að færa almenningi vitundarvakningu um einhverfu. Þá ætla þau að taka virkan þátt í alþjóðlegum baráttu- degi einhverfra þann 2. apríl. „Keli er ofsalega spenntur því Sameinuðu þjóðirnar hafa boðið að halda bar- áttudaginn hátíðlegan með Gullna hattinum í höfuðstöðvum þeirra. Og þangað mætum við Keli að árita bók- ina. Keli skrifar auðvitað ekki svo ég sagði við Kela: Hvernig ætlar þú að árita bókina? Þú getur ekki skrifað. Þá skrifaði hann á stafaborðið: Gerðu bara stimpil fyrir mig. Þannig að hann verður með stimpilinn sem er auðvitað hin allra skemmtilegasta lausn, ég er viss um að aðrir sem þurfa að árita lon og don sáröfunda hann,“ segir Margrét kímin. Þó er ekki víst að Keli end- ist mikið í slíku margmenni og það er einmitt vegna þess að „dyravörð- inn“ vantar. „Hann á því auðvitað erfitt með að vera í margmenni en er allur af vilja gerður. Við erum alltaf með plan b og ef álagið er of mikið þá finnst okkur ekkert að því að fara bara. Bræður hans Kela geta þá tekið við árituninni sem ég er viss um að þeir gera með mikilli ánægju,“ segir Margrét. Náin vinátta við Kate Vináttan og samstarfið við Kate Winslet hefur verið mikið ævin- týri að sögn Margrétar. „Kate hefur unnið allt sitt starf í sjálfboðavinnu. Frá því að hún talaði inn á myndina hefur hún helgað sig þessu verkefni og mikinn kostnað við stofnun góð- gerðasamtakanna hefur hún greitt með sjálfboðavinnu sinni og með því að fá aðra til þess að vinna með sér. Ég hef oft reynt að þakka henni kær- lega fyrir þetta framlag sitt en hún snýr nú venjulega á mig og þakkar mér þess í stað. Þannig er hún gerð. Hún sendi mér bréf og sagði mér að muna eftir því að ef það væri ekki fyrir hugrekki mitt og einbeitni í því að breyta heiminum þá hefði ekk- ert af þessu gerst. Ég er nú ekki viss um það en ég er viss um að Kate er einstök manneskja og er óendanlega þakklát Dorrit Moussaieff sem leiddi okkur öll í raun saman.“ Margrét og Kate urðu góðar vin- konur. Kate sagði reyndar í viðtali ný- verið að hún hefði vitað frá því hún hitti Margréti fyrst að þær yrði nánar vinkonur. „Já, það fann ég líka og það er ekki síst vegna þess hversu einstök hún er. Hún skilur okkur svo vel og það er svo ofsalega góð tilfinning.“ Hún gefur dæmi sem sýnir gott inn- ræti hennar. „Kate hringir oft og einu sinni heyrir hún í Kela í bakgrunnin- um. Hún spyr: Er þetta Keli, er þetta Keli? Og hún vill endilega fá að tala við hann. Ég vissi eiginlega ekki hvað ég átti að segja. Í fyrsta lagi af því Keli talar ekki. Og í öðru lagi, þá hefur enginn beðið mig um að fá að tala við Kela í símann. Kate sagðist auðvitað vita það. „En hann hlustar,“ sagði hún þá og fékk loks að tala við hann. „Þetta er einmitt það sem við berj- umst fyrir. Að fólk viti að einhverf- ir hlusta. Þeir heyra og skilja og það er svo mikilvægt að við berum virð- ingu fyrir því. Þótt að einhverfir virð- ist vera fjarri þá eru þeir það ekki. Við þurfum bara að nálgast þá öðruvísi.“ Bað Kate að knúsa sig ekki Bók Kate hefur þegar fengið afar góða dóma og vakið mikla athygli. Margrét og Kate hafa fylgt henni eft- ir. „Kate var í stóru viðtali við Ladies Home Journal. Ég var síðan í fram- haldinu með framsögu um ein- hverfu. Það er ef til vill lýsandi fyrir samvinnuna. Nú erum við að vinna að stórri markaðsherferð fyrir bók- ina og góðgerðasamtökin í samráði við Hvíta húsið á Íslandi og Davíð og Golíat. Ég bað sérstaklega um að við ynnum með íslenskum fyrirtækjum eins mikið og hægt væri vegna efna- hagsástandsins og henni fannst það lítið mál.“ Á kápu bókarinnar er mynd af Kela og Kate. „Forsíðumyndin er tekin af Mario Testino, hann tók til dæmis brúðkaupsmyndirnar af Kate Middleton og Vilhjálmi prinsi. Keli hafði haft áhyggjur af myndatökunni og skrifaði sérstaklega til Kate. Kate er nefnilega ofboðslega hlý manneskja og gælin. Hún knúsar og kelar og á það til að grípa þéttingsfast um fólk. Líka Kela,“ segir Margrét og hlær. „Það var einmitt það sem Keli hafði áhyggjur af því hann er snerti- fælinn. Hann bað hana vinsamlegast ekki að faðma hann svona mikið því þá yrði hann hræddur og fyndi fyrir verkjum. Svona voru skilaboðin til Kate: „Kate is my friend. Keli loves Kate. Keli is not much for hugs. It does feel bad being touched. I feel pain and fear.“ Þetta getur Keli nú tjáð sig um sem hann gat ekki áður. Tjáningin skiptir svo gríðarlega miklu máli. Þú getur sagt hvað þú vilt og hvað þú vilt ekki og hverjir eru þínir draumar og hvað langar þig að gera í framtíð- inni.“ Margrét segir Kate hafa átt erfitt með að standast það að knúsa hann en hún varð við tilmælum Kela. Í myndatökunni bað Mario Kate að færa sig nær og knúsa Kela en hún neitaði. „Hún svaraði alltaf í vinaleg- um tón: Nei, ég má það ekki.“ Það sem gerðist síðan í mynda- tökunni var afskaplega fallegt. Kate lagði hönd sína ofurlétt á öxl Kela og Keli tók frumkvæðið og tók í höndina á henni. Það gladdi hana svo mikið að hún fékk tár í augun. Heimur takmarkana Fjölskyldulífið er allt annað en venjulegt að sögn Margrétar. „Heim- ur einhverfra barna er heimur tak- markana,“ segir hún og það að eiga einhverft barn stór áskorun. „Auðvitað er það stór áskorun að eiga einhverft barn, en hann Keli okkar er yndislegur drengur og hefur kallað fram það fallegasta í okkur sem manneskjum. Það hefur svo margt breyst í okkar lífi og ótrúlegt að hugsa til þeirrar stundar sem ég horfði á Kela heima á Íslandi og gafst upp. Enginn má gefast upp. Það eru mín skilaboð til foreldra einhverfra barna. Vonin er eldsneytið, eða neist- inn sem heldur foreldrum einhverfra barna gangandi. Ef maður hefur ekki von þá gefst maður bara upp. Heim- ur venjulegra barna er heimur tæki- færa og áður en ég eignaðist Kela þá vissi ég ekki hvað ég hafði það gott. Heimur einhverfra barna er heimur takmarkana og einangrunar. Þess- ir heimar lúta ólíkum lögmálum og stangast á.“ Vegabréfið er skilningur og umburðarlyndi Það er engin leið að ráðgera nokkuð um framtíðina að mati Margrétar. Fjölskyldunni finnst bæði heillavæn- legast og í anda ævintýranna að taka einn dag í einu. „Ég geri mitt allra besta hvern ein- asta dag. Þessi góðgerðasamtök eru hins vegar stofnuð með framtíð hans í huga og það er óskandi að með Kate í stafni að þau blómstri. Það er hægt að búa betur að einhverfum víðast hvar um heiminn. Ég hélt til dæmis alltaf að ástandið hér heima væri afar gott þangað til ég kynnt- ist því sem er að gerast í Bandaríkj- unum. Hér er miklu meira umburð- arlyndi. Í Bandaríkjunum er horft framan í Kela og talað við hann. Heima á Íslandi er það sjaldnar. Skortur á tjáningu einhverfra verð- ur oft til þess að þeir eru afgreiddir sem greindarskertir og þá er talað við þá sem slíka. En það eru þau oftast ekki. Langoftast er um mjög greinda einstaklinga að ræða. Þau eru einfaldlega í öðru ríki og vega- bréfið þangað inn er skilningur og umburðarlyndi.“ kristjana@dv.is Mæðgin Í dag er Keli orðinn 14 ára og býr með fjölskyldu sinni í Austin í Texas. Hann á merkilega vinkonu, sjálfa óskarsverðlaunaleikkonuna Kate Winslet sem hefur gefið út ljós- myndabókina The Golden Hat honum til heiðurs. Kate stofnaði líka góðgerðasamtökin The Golden Hat Foundation í félagi við móður Kela. Kate, Keli og Margrét Kate Winslet er góð vinkona fjölskyldunnar og heilluð af Kela. Hugrekki og einurð n Dorrit Moussaieff að- stoðaði við að tengja Margréti og Kate og á því mikið í þessu góða ævintýri sem kynni þeirra hafa leitt af sér. n „Ég hafði lengi dáðst að hugrekki og einurð Margrétar og fylgst með baráttu hennar, Kela og fjölskyldunnar og einnig með gerð myndarinnar. Þegar Margrét kom svo til mín með þá hugmynd að fá heimsþekkta kvikmyndaleikkonu með enskan framburð sem ætti sjálf börn, til að tala inn á myndina, þá datt mér Kate Winslet í hug. Ég ræddi við nokkra vini mína sem þekktu Kate vel og svo leiddi eitt af öðru. Nú hefur myndin skilað miklum árangri og Kate og Margrét vinna saman að því að efla nýja stofnun í þágu einhverfra barna. Það gleður mig mjög því það mun hjálpa einhverfum börnum bæði á Íslandi og um allan heim.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.