Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2012, Qupperneq 76

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2012, Qupperneq 76
76 Lífsstíll 4.–10. apríl 2012 Páskablað Þessi matur hjálpar þér að sofna n Fimm matvæli sem hafa róandi og svæfandi áhrif S értu í vafa um hvort þú eigir að fá þér bita á kvöldin fyrir svefn- inn þá eru hér fimm matvæli sem gætu hjálpað. Kirsuber eru náttúruleg upp- spretta hormónsins melatóníns sem stýrir lífklukku okkar og þar með svefni. Vísindamenn hafa rannsakað berin og komist að því að þau inni- halda mikið magn af melatóníni. Borðir þú þau um það bil klukku- stund fyrir svefn munt þú eiga auð- veldara með að sofna. Bananar innihalda kalíum og magnesíum en bæði efnin hafa vöðvaslakandi áhrif. Í þeim má einnig finna L-tryptophan amínó- sýrur sem breytast í melatónin og serótónín sem er róandi taugaboð- efni. Flóuð mjólk hefur sömu áhrif og bananar. Margir taka melatónín við svefn- leysi en hafrar eru ríkir af efninu og það gæti því hjálpað að fá sér skál af hafragraut fyrir svefninn. Hafrarnir eru einnig kolvetnaríkur matur en slík matvæli auka insúlínframleiðslu og þar með svefnörvandi efnin tryptó fan og serótónín í heila. Þau hjálpa þér að slaka á og senda þig þar með auðveldar inn í draumaheima. Það sama á við um ristað brauð. Fjallað er um þetta á síð- unni caring.com en sam- kvæmt þessu má því segja að kvöldsnarl gæti verið af hinu góða þegar kemur að því að sofna. Auk þess sem það get- ur verið erfiðara að festa svefn ef maginn er tómur. P áskarnir eru krúttleg há- tíð og mér finnst að við ætt- um að leyfa okkur að vera minna hátíðleg en hugsa því meira um vorið og vera glöð. Maturinn sem ég valdi er þann- ig – pínu fínn en samt sumarlegur,“ segir fréttakonan Karen Kjartans- dóttir sem féllst á að deila uppskrift með lesendum DV. Páskalæri varð fyrir valinu en Karen, sem setti á sig blúndusvuntu af þessu tilefni, heldur mikið upp á lambakjöt. „Lambið er hægt að matreiða á svo margvís- legan hátt og er alltaf jafn gott,“ seg- ir Karen og bætir við að þau hjónin hafi gaman af því að bjóða fólki í mat. „ Okkur þykir ofsalega gaman að elda og verðum örugglega með matarboð um páskana. Þá grillar maðurinn minn gjarnan en ég bý til eitthvað meðlæti inni í eldhúsi. Við erum þó sjaldan voðalega hátíðleg enda erum við með þrjú lítil börn og bjóðum helst fólki með börn til okkar.“ Karen hefur síðustu mánuði verið í fæðingarorlofi en hún mun mæta aftur til vinnu á fréttastofu Stöðvar 2 á mánudaginn. Meðfram því að njóta lífsins heima með litla barninu hef- ur hún notað fæðingarorlofið til að koma sér í gott form. Aðspurð segist hún þó ekki aðhyllast neinar öfgar í mataræðinu. „Ef maður er duglegur að hreyfa sig getur maður notið þess að borða án þess að fá samviskubit. Sjálf nota ég lítið af sósum en mann- inum mínum finnst ómissandi að hafa alvöru béarnaise með lærinu,“ segir hún og bætir við að hún kíki gjarnan á síðurnar lambakjot.is og is- lenskt.is til að fá hugmyndir að girni- legum réttum. „Mér tekst afskaplega illa að fara alveg eftir uppskriftum og nota yfir- leitt um það bil þrisvar til fjórum sinnum meira af hvítlauk en þær segja til um. Uppskriftin að lamba- lærinu er úr smiðju Úlfars Finn- björnssonar en meðlætið er frá Nönnu Rögnvaldardóttur en mér þykja þau alveg svakalega fær matar- gúrú.“ indiana@dv.is Páskarnir eru krúttleg hátíð n Fréttakonan Karen Kjartansdóttir borðar án þess að fá samviskubit Páskalamb Hráefni n 1,5 kg kartöflur, skrældar og skornar í þunnar sneiðar n 2 laukar, skrældir og skornir í sneiðar n ½ l vatn n 50 gr smjör n salt og nýmalaður pipar n 1–1½ msk. lambakraftur n 1 lambalæri, n 4–6 hvítlauksgeirar, skornir í báta n 2–3 rósmaríngreinar n 1 msk. rifinn sítrónubörkur Leiðbeiningar Setjið kartöflur og lauk í stórt eldfast mót, nógu stórt til að lambalærið passi ofan í það. Setjið vatn í pott ásamt smjöri og lamba- krafti og hleypið suðunni upp. Hellið soðinu yfir kartöflurnar og kryddið yfir með salti og pipar. Blandið vel saman. Stingið 8–10 göt í lambalæri með góðum hníf og troðið hvítlauksbátum, rósmaríni og sítrónuberki í götin. Kryddið lærið með salti og pipar. Leggið lærið ofan á kartöflurnar og bakið við 180°C í 1 klst. Takið þá lærið úr ofninum og haldið heitu. Hækkið hitann í 220°C og bakið kartöflurnar í 10 mínútur í viðbót. Það þarf enga sósu með þessum rétti því að kartöflurnar eru svo bragðmiklar og safaríkar. Ég ætla samt sem áður að útbúa einfalda béarnaise-sósu með því maðurinn minn heldur svo mikið upp á svoleiðis gúmmelaði. Béarnaise-sósa Hráefni n 4 eggjarauður n 400 gr bráðið smjör n 1–2 msk. béarnaise-essens n 1 msk. fáfnisgras (estragon) salt og pipar Leiðbeiningar Ég skelli nú bara eggjarauðunum í hræri- vélarskálina og þeyti í nokkrar mínútur og bæti svo bráðnu smjörinu út í með matskeið með hrærivélina í gangi á meðan. Síðast bæti ég essensinum og kryddinu út í og smakka til. Gljáðar gulrætur með rauðlauk og engifer Ofninn hitaður í 200°C. Gulræturnar skafnar eða flysjaðar og toppurinn skorinn af. Rauðlaukurinn flysjaður og skorinn í geira. Olíu, sírópi, engifer, pipar og salti blandað saman í eldföstu móti og gulrótunum og lauknum velt upp úr leginum. Sett í ofninn, engiferöli hellt í mótið og bakað í 30–40 mínútur, eða þar til gulræturnar eru meyrar. Bætið við meira engiferöli eða vatni eftir þörfum, svo að gulræturnar brenni ekki. n 500 gr gulrætur n 1–2 rauðlaukar n 2 msk. olía n 2 tsk. hlynsíróp eða sykur n 1 tsk. engifer, fínsaxað eða rifið n nýmalaður pipar n salt n 200 ml lífrænt engiferöl til dæmis frá Sólveigu Eiríks (í upphaflegu uppskriftinni er samt lagt til að notað sé appelsínulím- onaði) n nokkrar greinar af fersku timjani (má sleppa) Páskalambið Lambakjöt er í upp- áhaldi hjá Karen en hún og eiginmaður hennar hafa gaman af því að bjóða fólki í mat.Mynd/Eyþór Árnason róandi matvæli Kvöldsnarl getur verið af hinu góða. Finndu þann rétta – á netinu Að kynnast öðru fólki á netinu með náin kynni í huga á að vera skemmtilegt. Farðu að þessum ráðum og auktu lík- urnar á að finna þann rétta eða þá einu réttu. stuttur prófíll Ekki gera prófílinn á stefnumótasíðunni að ævisögu þinni. Gefðu aðeins upp grunnupplýsingar og skildu annað eftir fyrir ímyndunaraflið. Heiðarleiki Gerðu öllum greiða og ekki ljúga til um aldur. Bætti ártalinu við myndina sem þú velur af þér. Ekki gleyma að velja mynd af þér brosandi – þannig virkarðu mun aðgengilegri. svaraðu strax Gleymdu gömlum ráðum um að bíða í þrjá daga eftir því að hringja til baka. Á tímum Facebook ganga hlutirnir hraðar. Ef áhugaverð manneskja hefur samband við þig skaltu svara um hæl. Daður á netinu er leikur fjöldans – það eru allar líkur á að fleiri en þú hafir fengið bréf frá viðkomandi. spjallið í síma Skipulegðu símastefnumót áður en þið hittist. Ef símtalið er vandræðalegt geturðu rétt ímyndað þér hvernig stefnumótið væri. Ef aðilinn neitar að spjalla við þig í síma og vill heldur senda sms skaltu snúa þér að næsta. 1 2 3 4 Náttúrulegur litur á eggin Það er skemmtilegur páskasiður að blása úr eggjum og mála til að hafa sem skraut. Það verður þó enn skemmtilegra þegar maður býr til málninguna sjálfur úr náttúrulegum efnum. Til dæmis færðu fallegan bleikan lit úr rauðrófum og trönuberjum, spínat gefur grænan lit, rauðkál bláan blæ og notir þú kryddið gullinrót færðu gulan lit. Þegar þú býrð til málninguna þarftu fjóra bolla af niðurskornum ávöxtum eða grænmeti eða eina teskeið af kryddinu. Það er sett í pott með fjórum bollum af vatni. Út í það fara svo tvær matskeiðar af ediki og lok sett á pottinn. Þetta skal sjóða og láta malla í 15 mínútur. Látið kólna og setjið svo eitt egg í einu út í litinn. Takið upp úr þegar tilætluðum lit er náð og þurrkið.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.