Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2012, Blaðsíða 80

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2012, Blaðsíða 80
80 Lífsstíll 4.–10. apríl 2012 Páskablað Tískugleði í Reykjavík Reykjavík Fashion Festival fór fram í Hörpu um síðustu helgi. Þar sýndu 11 íslenskir hönnuðir hönnun sína. DV fékk nokkra tískuvitra gesti hátíðarinnar til þess að segja sína skoðun á því helsta á RFF 2012. Álitsgjafar R – Ragnheiður Bogadóttir lögfræðingur, fyrirsæta og tískumógúll E – Erna Hrund Hermannsdóttir förðunarfræðingur og tískubloggari á reykjavikfashionjournal.com Á – Ásgeir Hjartarson hárgreiðslumaður á Senter og þáttarstjórn­ andi á mbl.is V – Valgerður Árnadóttir innkaupastjóri og faglegur ráðgjafi hönnuða í öllu sem snýr að viðskiptum og markaðs­ setningu HilduR YEoman Ævintýraveröld Hildar „Skemmtilegasta sýningin og hún sýndi það svo sannarlega að hún kann að hanna skemmtilegar og einstakar flíkur. Bleiki glimmerjakkinn sló öll met.“ ­E „Augna­ og eyrnakonfekt pakkað inn í Macintosh­pappír. Skemmtilegt ævintýri þar sem glimmer, mikil litadýrð skemmtileg efni og snið svifu í kringum skúlptúrsveppi undir undurfögrum söng Daníels Ágústs.“ ­ R „Sýningin var flott en tók aðeins athyglina frá fötunum. Fötin voru ekki alveg nógu seljanleg en þetta var skemmtilegt „show“.“ ­Á „Langskemmtilegasta og íburðarmesta sýningin, gleði, glys og diskó. Hildur er listamaður með frumleg „showpieces“ og fylgihluti, mér fannst nærfötin falleg en hefði viljað sjá fleiri flíkur sem hægt er að klæðast og kaupa í haust.“ ­V BiRna Loðhúfur og litir „Loðhúfurnar fannst mér geggjaðar og mér fannst sum fötin flott, önnur ekki. Sumar samsetningar ekki alveg að ganga upp en flottir litir.“ ­Á „Ekki fyrir mig, ég skildi ekki stíliseringuna á fyrirsætunum, ég hefði viljað hafa hana einfaldari og förðunina látlausari.“ ­E „Mér fannst ég ekki beint vera að sjá neitt nýtt, eins og gullbuxurnar sem dæmi. Svo voru þarna flíkur sem mér hefur fundist vera kannski hennar leið að fara aftur í næntísreif­fílinginn en það er bara búið að taka hann svo mikið. Skemmtileg litasam­ setning.“ ­R „Mér tókst að sjá fallegan prjónakjól og samfesting með hettu sem ég fílaði en það var svo mikið annað í gangi í einu, ég vissi ekki hvert augun og hugurinn ætluðu.“ ­V KoRmÁKuR & SKJÖlduR Karlmannlegir slátrarar „Þeir eru Savile Row Íslands. Guðmundur Jörundsson hönnuður nær á frábæran hátt að nota efnivið breskra séntilmanna og hanna úr því föt sem maður ímyndar sér að fínustu hreppsstjórar Íslands hafi klæðst í gamla daga (Þeir hafa þó sennilega ekki verið svona smekklegir?).“ ­V „Slógu í gegn. Guðmundur Jörundsson kann sitt fag.“ 4 og hálf stjarna. ­E „Geggjuð sýning. Vestin og jakkarnir geðveik. Leðurreimarnar sem þeir notuðu um hendurnar líka og magabeltin úr leðri ógeðslega svöl. Algjör klassi.“ ­Á „Gaman þegar verið er að sækja í þessi gömlu herrasnið, rúllukraginn alveg upp, ekki nýtt snið en ný nálgun og litadýrðin meiri. Falleg litasamsetning og förðunin flott.“ ­R milla SnoRRaSon Krúttlegt og sveitalegt „Ein af mínum uppáhaldssýningum, fötin minntu á stíl Alexu Chung og ég myndi vilja eignast hverja einustu flík sem kom fram á pallinn.“ ­E „Ekki alveg minn tebolli og tónlistin á sýningunni þeirra var hræðileg. Ég tengdi ekki við sýninguna, þessi „hillbilly“ áhrif. Vel saumað og flott en stíllinn algjörlega ekki minn en það er bara mín persónulega skoðun.“ ­Á „Fallegir litir og skemmtilegt að blanda pastellitum saman við dökku litina. Þetta var kannski sú lína sem höfðaði síst til mín en ég sá samt nokkrar flíkur sem ég myndi vilja eiga.“ ­R „Sæt fyrsta sýning hönnuðar, frumleg snið og mynstur. Fatnaður sem höfðar til yngri kvenna sem þora að vera öðruvísi. Ekki minn tebolli en ég gef henni kredit fyrir frumleika og vandvirkni.“ ­V REY Töffaralegt og klæðilegt „REY tekst á frábæran hátt að taka hefðbundnar flíkur og bæta sérstöðu við þær sem gefa þeim óhefðbundnara útlit, en henta engu að síður hvort sem er á Wallstreet eða í tískupartíi í East Village.“ ­V „Ein af mínum uppáhalds. Æðislegt. Með smáatriðin á hreinu og geggjað að hún skuli nota lífræna bómull fötin sín.“ ­Á „Of einfalt fyrir minn smekk, því miður, hefði viljað sjá liti, en hlakka til að fylgjast meira með Rebekku því ég kunni vel að meta haust 2011 „collection­ið“ hennar.“ ­E „Skemmtilegt að sjá hvernig hún blandar saman. Flestar flíkurnar svartar en svo koma inn á milli gegnsæjar. Klassísk hönnun en kannski ekkert mjög ögrandi lína. Falleg snið. Nothæft og klæðilegt.“ ­R ÝR Stríðsárarómantík „Sniðin, smáatriðin og heildarútkoman myndaði fullkomna heild og línu sem myndi sóma sér vel á stórum sýningum í París, New York og London.“ ­V „Kom mér mikið á óvart. Ég átti von á svipuðum flíkum og þeim sem hún hafði gert áður. Sýningin var skemmtileg blanda af tískusýningu og „show­ room­i“.“ ­E „Flott hönnun, flott snið og mjög klæðilegt. Hefur greinilega þróað stílinn sinn mikið frá síðasta ári og er orðin mun faglegri.“ ­Á „Sem hönnuður hefur hún þroskast mikið og þessi lína var einstaklega falleg – bæði hvað varðar efnisval og litasamsetningu.“ ­R mundi Frumlegt og fallegt „Mjög nothæf lína og ég persónulega myndi vilja eiga flestallar prjóna­ flíkurnar. Það hefðu mátt vera meiri nýjungar frá því í fyrra.“ ­V „Munstrin á flíkunum og litasam­ setningin var heillandi svart og hvítt, blandað saman við pastelgrænan og jarðliti. Áreynslulaust og eins og módelin hafi gripið fötin og sett saman sjálf.“ ­R „Einn af mínum uppáhaldshönnuðum. Mundi dró áhorfendur með sér inn í undarlegan draumaheim, í bílakjallara Hörpu, sem mig langaði ekki að fara úr.“ ­ E „Mjög frumleg hönnun hjá Munda en á sama tíma mjög skrýtin. Hann er svona „arty“ hönnuðurinn okkar. Mundi er greinilega undir mjög sterkum áhrifum frá Bernhard Willhelm.“ ­ Á Kalda Töffaralegur einfaldleiki „Einfalt og fágað er stíllinn sem mér finnst systurnar hafa skapað í gegnum tíðina og þetta „collection“ var engin undantekning. ­E „Mynstur sem minntu á urð og grjót og íslenska jökla. Mikið um beinar línur og nothæfar flíkur. Ég hefði viljað sjá frumleika og sérstöðu.“ ­V „Mér fannst þetta svolítið bera nafn með rentu, kalt og yfirþyrmandi. Mér finnst hattarnir mjög kúl. Kannski ekki beint minn stíll.“ ­Á KRon BY KRonKRon Mynstur á mynstur ofan „Stórkostlegar mynstraðar flíkur, með litríkum og mynstruðum sokkabuxum og skóm, allt stíliserað á þann hátt að manni fannst það samt ekki „of mikið“ af hinu góða!“ ­V „Mikið um litadýrð og litasamsetning ögrandi en virkaði vel. Hefði mátt vera hlutlausara „make up“ og hárskraut – „less is more“, því sjálfar flíkurnar voru listaverk út af fyrir sig.“ ­R „Mjög litríkt og ég fann fyrir Afríku­ áhrifum. Fötin geggjuð en sýningin sjálf kannski engin flugeldasýning.“ ­Á „Flott munstur og fannst gaman að sjá breytingu úr léttum siffonefnum í aðeins þyngri efni. Förðunin og hárið fannst mér ekki passa og mér fannst það gera minna úr fötunum.“ ­E ZiSKa Rokkaraleg mystík „Æðisleg, fannst sérstaklega fallegt hvernig hún blandaði ólíkum efnum saman í flíkurnar. Allt passaði svo vel saman og úr varð ein flottasta sýningin á RFF í ár.“ ­E „Draumkenndur og myrkur stíll með sérstöku handbragði sem maður þekkir Hörpu Einarsdóttur fyrir. Fatnaður sem hentar jafnvel persónu úr Eve Online og manneskju í raunveruleikanum.“ ­V „Ziska var mjög flott. Mesta töffarahönnunin og heildarlúkkið mjög flott. Þetta er flott lína hjá henni. Krummi var líka flottur á sviðinu ásamt nautshöfðinu.“ ­Á „Það sem er heillandi við hennar hönnun að hún er óhrædd við að blanda saman silki, leðri, flaueli og prjón. Þá eru mynstrin á flíkunum táknræn og sveipuð dulúð sem gera flíkurnar líkt og af öðrum heimi sem ég væri til í að heimsækja.“ ­ R Ella Fágður kvenleiki „Mjög flott hönnun og fagmannlega gerð. Þetta var svona gamaldags og klassískt í anda Audrey Hepburn og fimmta áratugarins.“ ­ Á „Smekklegar og kvenlegar flíkur með vísun til fimmta áratugarins, gæðalegar og nothæfar og munu eflaust prýða íslenskar framakonur á næstunni.“ ­V „Fannst það vera mjög fallegt og klassískt. Fallegir litir, „make­up“­ið og heildarlúkkið á módelunum mjög fallegt og fágað.“ ­R „Fallegt „collection“ sem minnti á stíl Audrey Hepburn.“ ­E
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.