Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2012, Síða 82

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2012, Síða 82
82 Sport 4.–10. apríl 2012 Páskablað Markahæstir Leikmaður Lið Mörk 1. Robin van Persie Arsenal 26 2. Wayne Rooney Man. United 21 3. Sergio Agüero Man. City 17 4. Demba Ba Newcastle 16 5. Yakubu Blackburn 14 6–8. Edin Dzeko Man. City 13 6–8. Clint Dempsey Fulham 13 6–8. E. Adebayor Tottenham 13 9. Grant Holt Norwich 12 10. Mario Balotelli Man. City 11 Flestar stoðsendingar Leikmaður Lið Sendingar 1. David Silva Man. City 12 2.–3. E. Adebayor Tottenham 11 2.–3. A. Valencia Man. United 11 4. Juan Mata Chelsea 10 5. Robin van Persie Arsenal 9 6.–10. Ryan Giggs Man. United 8 6.–10. Alex Song Arsenal 8 6.–10. Theo Walcott Arsenal 8 6.–10. Nani Man. United 8 6.–10. Gareth Bale Tottenham 8 Meðalfjöldi vallargesta 1. Man. United 75,379 2. Arsenal 59,976 3. Newcastle 49,497 4. Man. City 46,990 5. Liverpool 44,800 6. Chelsea 41,564 7. Sunderland 38,585 8. Tottenham 36,020 9. Aston Villa 34,177 10. Everton 32,980 Leikirnir um páskana Föstudagur 6. apríl 15.30 Swansea - Newcastle Laugardagur 7. apríl 11.45 Sunderland - Tottenham 14.00 Bolton - Fulham 14.00 Chelsea - Wigan 14.00 Liverpool - Aston Villa 14.00 Norwich - Everton 14.00 WBA - Blackburn 16.30 Stoke - Úlfarnir Sunnudagur 8. apríl 12.30 Man. United - QPR 15.00 Arsenal - Man. City Mánudagur 9. apríl 14.00 Everton - Sunderland 14.00 Newcastle - Bolton 14.00 Tottenham - Norwich 16.30 Aston Villa - Stoke 19.00 Fulham - Chelsea Þriðjudagur 10. apríl 19.00 Blackburn - Liverpool Miðvikudagur 11. apríl 18.45 Man. City - WBA 18.45 Wigan - Man. United 18.45 Úlfarnir - Arsenal 19.00 QPR - Swansea K nattspyrnuþjálfarinn Rafael Benitez hefur verið án vinnu í 15 mánuði – síðan hann var rekinn frá Inter á Ítalíu. Það er hreint ótrúlega langur tími fyrir mann sem hefur á sínum ferli tvívegis unnið spænsku deildina með öðru liði en Barcelona eða Real Madrid auk þess að gera Liverpool að Evrópumeisturum. Vissulega hafa honum borist ýmiss konar tilboð, eins og að stýra Chelsea út tímabilið en Spánverjinn bíður eftir alvöru liði sem hann getur stjórnað sjálfur. Hann reynir nú hvað hann getur til að halda sér í umræðunni og hélt hann langa tölu á SoccerEx- ráðstefnunni í Manchester á dögunum. Þar sýndi hann sín helstu vopn þegar kemur að tölvubúnaði og tölfræði en Benitez er mjög tæknivæddur. Svo tæknivæddur í raun að hann hefur verið ásakaður um að vera slakur þjálfari maður á mann. Fullyrðing sem hann hafnar staðfastlega og bendir á hvað hann gerði með Fernando Torres sem dæmi. Bjó til forrit í Sinclair Spectrum „Þegar ég var ungur að árum að þjálfa unglingaliðin hjá Real Madrid notaði ég gamlar tölvur eins og Commodore 64 og Sinclair Spectrum til að geyma tölfræðina,“ sagði Benitez á ráðstefnunni. „Ég lagði allt upp á tölvu og bjó meira að segja til mín eigin forrit. Ég var að gera tæknileg próf á leikmönnum mínum og undir lok leiktíðar voru allir búnir að bæta sig um 30 prósent. Við skoruðum 114 mörk og fengum á okkur 14. Styrkleiki minn liggur á vellinum en með tölvunni gat ég haldið utan um allar upplýsingar,“ segir Benitez. Spánverjinn er núna búinn að búa til smáforrit fyrir iPad- spjaldtölvu þar sem hann auglýsir sig og aðferðir sínar. Yfir þessu öllu býr atvinnulausi maðurinn á meðan Harry Redknapp, stjóri Tottenham, sem kann ekki að senda tölvupóst, er líklegastur til að taka við landsliðsþjálfarastarfi Englands. Tölvur og tækni eru ekki allt þegar kemur að fótbolta en þó er vert að benda aftur á að Benitez hefur tvívegis unnið La Liga með Valencia og á að baki bikarmeistaratitil með Liverpool og hann vann Meistaradeildina með liðinu. Vill bera ábyrgð á öllu Á Englandi er notast við þessa knattspyrnustjórastöðu þar sem menn koma að mun meiru en bara þjálfun liðsins. Það er eitthvað sem Benitez vill því hann vill bera ábyrgð á öllu sem kemur að liðinu sem hann stýrir. „Stjóri liðsins verður að vita allt um rekstur- inn, bæði fjárhagshliðina og um leikmennina,“ segir hann og bendir á sitt eigið ágæti þegar kemur að fjárhagslegu hliðinni. „Á síðasta tímabili Liverpool undir stjórn Gerards Houllier græddi liðið 91 millj- ón punda en á síðasta tíma- bili mínu voru tekjurnar 184,1 milljón pund. Þetta þýðir stöð- ugleika sem hægt er að byggja á til framtíðar.“ Tölur eru eitthvað sem Benitez horfir til og hann vill að tölurnar séu stöðugar. Æf- ing er allt frá 60 mínútum upp í 90 mínútur þar af er notast við bolta í 80 prósent af tímanum. Sjötíu prósent æfingarinnar er fyrirfram ákveðin en restin fer eftir því hver mótherji næstu viku sé. Benitez notar svo grafík til að sjá hvað hver leikmaður hleypur langt í hverjum leik. Hann var mikið gagnrýndur fyrir að breyta liðinu alltaf eitt- hvað fyrir hvern einasta leik. Aftur á móti bendir Benitez á að leikmenn Liverpool voru að hlaupa að meðaltali rúman 11 og hálfan kílómeter í hverj- um leik á árunum 2005–2010. Svoleiðis vinna krefjist þess að menn hvílist reglulega. Þeg- ar menn eru komnir á „rauða svæðið“ þá verður að hvíla. Góður maður á mann Tölur eru svo sannarlega ekki allt í fótbolta og var Benitez oft sakaður um að vera kaldur og ná ekki til leikmanna sinna. Hann harðneitar því og bendir á Fernando Torres sem sitt besta dæmi. „Torres með sjálfstraust er heimsklassa leikmaður,“ segir Benitez en undir stjórn landa síns var Torres nær óstöðvandi hjá Liverpool. Langt frá þeim manni sem hálf enska þjóðin er farin að vorkenna í dag. „Án sjálfstrausts vantar einfaldlega eitthvað í Torres,“ bætir Benitez við en hann vísaði einnig þeirri fullyrðingu til föðurhúsanna að það hafi verið heimskulegt hjá honum að nýta Gerrard úti hægra megin eins og hann var margoft gagnrýndur fyrir. „Þegar ég kom til Liverpool var Gerrard að spila á miðjunni og skoraði tíu mörk á tímabili. Þegar hann spilar hægra megin við framherjann eða fyrir aftan hann skorar Gerrard 20 mörk á tímabili.“ Sama hvað Benitez ger- ir þessa dagana virðist hann ekki vera á teikniborðum margra liða í Evrópu eftir síð- asta tímabilið með Liverpool og hörmungina sem hann lenti í með Inter. Tölfræðin ein landar honum ekki starfi en það verður þó að segjast ótrú- legt að maður með ferilskrá Benitez sé án starfs í 15 mán- uði. Fær ekki annan séns Það gengur ekkert hjá Benitez að fá nýtt starf. Tæknilegur úTlagi n Benitez bíður eftir alvöru liði n Hrósar sér fyrir tímann hjá Liverpool
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.