Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2012, Qupperneq 16
Æ
gir Geirdal, listamaður
og fyrrverandi fram
bjóðandi til stjórnlaga
ráðs, mætti í Héraðs dóm
Reykjaness á fimmtu dag
til að taka afstöðu til þeirra sakarefna
sem á hann eru borin. Ægir er ákærð
ur fyrir blygðunarsemisbrot eða brot
gegn 209. gr. almennra hegningarlaga
sem kveð ur á um að „hver sem með
lostugu athæfi særir blygðunar semi
manna eða er til opinbers hneykslis
skal sæta fangelsi allt að 4 árum, en
varðhaldi eða sektum ef brot er smá
vægilegt.“
Þar sem ákæruefnið felst undir
kynferðisbrot, fást ekki nánari upplýs
ingar um eðli brotsins hjá saksóknara.
Nágrannar kvarta undan áreiti
Þann 23. september síðastliðinn
greindi vefmiðillinn Pressan frá því
að Ægir hefði verið kærður til lög
reglu fyrir að bera sig fyrir framan
nágranna sína í Vogunum og leiða
má líkur að því að það sé málið sem
nú er tekið fyrir.
Þá átti nágranni Ægis, sem á
að hafa átt í erjum við Ægi, að hafa
sak að hann um að hafa farið út fyr
ir dyr á húsi sínu í skyrtu einni fata
og hrist kynfæri sín í átt að hon
um. Það athæfi var talið tengjast
nágranna erjum sem Ægir á að hafa
átt í en nágrannar hans vildu meina
að þeir yrðu fyrir stöðugu áreiti frá
Ægi og brugðu á það ráð að taka upp
á myndband einkennilega hegðun
hans gagnvart þeim að því er Pressan
greindi frá.
Tapaði meiðyrðamáli
Talið er að upphaf erjanna megi
rekja til ásakana tveggja systra um
að Ægir hafi misnotað þær í æsku.
Systurnar opinberuðu sögu sína um
það leyti sem Ægir bauð sig fram til
stjórnlagaráðs. Eiga nágrannar Ægis
að hafa tekið afstöðu með systrun
um gegn Ægi.
Ægir neitaði ávallt sök og sagði
konurnar vera á höttum eftir pen
ingum og hótaði að kæra þær fyrir
rógburð. Ekkert virðist þó hafa orðið
úr þeirri málsókn.
Þá kærði Ægir einn nágranna
sinn fyrir að hafa lagt á sig hendur
en málið var látið niður falla.
Ægir fór í meiðyrðamál í október
á síðasta ári við Steingrím Sævars
son, þáverandi ritstjóra Pressunn
ar, og krafðist þess að sex ummæli
sem rituð voru í frétt um meint kyn
ferðisbrot yrðu dæmd ómerk. Ægir
krafði Steingrím Sævar um eina
milljón króna í miskabætur og 200
þúsund krónur að auki til að kosta
birtingu dómsins. Héraðsdómur
Reykja víkur sýknaði Steingrím í
málinu og dæmdi Ægi til að greiða
Stein grími 180 þúsund krónur í
málskostnað.
Ekki náðist í Ægi við vinnslu
fréttar innar.
deilur nágranna
leiða til dómsmáls
n Ægir Geirdal ákærður fyrir blygðunarsemisbrot n Sagður hafa hrist kynfæri sín í átt að nágrönnum
Hátíð um helgina að BORG Í GRÍMSNESI
UPPSELT
„… sakað hann um
að hafa farið út
fyrir dyr á húsi sínu í skyrtu
einni fata og hrist kynfæri
sín í átt að honum.
Hanna Ólafsdóttir
blaðamaður skrifar hanna@dv.is
Ákærður Ægir Geirdal, listamaður og fyrrverandi frambjóðandi til stjórnlagaráðs, er
ákærður fyrir blygðunarsemisbrot.
16 Fréttir 29. júní–1. júlí 2012 Helgarblað