Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2012, Síða 20
B
ashar al-Assad, forseti Sýr-
lands, hafnar öllum kröfum
um að hann segi af sér
til þess að koma á friði í
landinu. Hann segir Sýrland
nú eiga í stríði og að stjórnarherinn
verði að berja niður uppreisnina.
„Við erum komin í stríð og öll okkar
orka verður að fara í að vinna þetta
stríð,“ sagði forsetinn í sjónvarps-
ávarpi á þriðjudaginn. Rúmlega 15
mánuðir eru síðan uppreisnin gegn
stjórn hans hófst.
Assad hefur verið forseti frá ár-
inu 2000 þegar hann tók við valda-
taumunum af föður sínum Hafez al-
Assad sem fór með öll völd í landinu
frá árinu 1971 þegar hann komst
til valda eftir vopnaða byltingu.
Feðgarnir hafa því stjórnað Sýrlandi
samanlagt í 41 ár.
Stöðugt meira ofbeldi
Ofbeldisverkum í Sýrlandi fjölgar stöð-
ugt. Samkvæmt ríkissjónvarpsstöð
landsins, Al-Ikhbaria, réðust vopn-
aðir menn inn í höfuðstöðvar hennar
og sprengdu sprengju sem grandaði
þremur starfsmönnum stöðvarinnar.
Assad sakar erlenda fjölmiðla um
að birta brenglaða mynd af stöðunni í
Sýrlandi, sem henti hagsmunum vest-
urveldanna vel. Frelsisherinn sem
berst gegn Assad hefur hins vegar sagt
að Al-Ikhbaria segi aðeins fréttir sem
eru hliðhollar málstað stjórnarhersins.
Þannig hafi aldrei nokkru sinni verið
sagðar fréttir af grófum ofbeldisverk-
um stjórnarhersins á óbreyttum borg-
urum.
Að minnsta kosti 113 manns
féllu í bardögum í Sýrlandi á þriðju-
daginn. Víglínur hafa ekki breyst mik-
ið í borginni Damaskus undanfarið og
segja að bandarísk yfirvöld ómögu-
legt að segja hvor fylkingin sé að vinna
stríðið. Talsmaður Bandaríkjastjórn-
ar segist þó fullviss um að Bashir al-
Assad muni verða steypt af forsetastóli
innan tíðar.
Talið er að frelsisherinn, sem telur
um 10 til 15 þúsund hermenn, sé betur
skipulagður en áður. Þannig hafa fleiri
árásir verið gerðar á stjórnarbyggingar
og aðra staði sem eru ríkisstjórn Assad
mikilvægir.
Stjórnarherinn hefur svarað þess-
um árásum af fullum þunga og hafa
fregnir borist af sýrslenskum herþyrl-
um á flugi yfir íbúðahverfi sem láta vél-
byssukúlum rigna yfir fólk úti á götum.
Burt með Assad
Stjórn Assad á enga vini á Vestur-
löndum lengur, aðeins Rússar hafa
haldið yfir þeim eins konar hlífi-
skildi í viðræðum leiðtoga stærstu
ríkja heims um ástandið í landinu.
„Vandamál okkar snúa alltaf að
Vestur löndum,“ sagði Assad á fundi
með ríkisstjórn sinni í vikunni.
Utanríkisráðherra Frakkalands
segir að Frakkar séu tilbúnir til þess
að „stöðva harmleikinn í Sýrlandi.“
Hann segir að Frakkar og bandalags-
þjóðir þeirra í Evrópu verði að beita
stjórnina harðari þvingunum.
Hillary Clinton, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, er á leið til
fundar um ástandið í Sýrlandi sem
Arababandalagið og Kofi Annan
efndu til. Vilji hennar er skýr í mál-
efnum Sýrlands: Forsetinn verður að
fara frá völdum strax.
Talið er að meira en 10.000 manns
hafi fallið í átökum frá því uppreisn-
in í Sýrlandi hófst í tengslum við
arabíska vorið í mars 2011. Tals-
menn frelsishersins segja hins vegar
að meira en 15.000 manns hafi fallið
og að flestir þeirra hafi verið óbreyttir
borgarar.
Shabiha-hermennirnir
n Sýrlenski stjórnarherinn er sagður
notast mikið við svokallaða Shabiha-her-
menn, en það eru undirheimatuddar sem
svífast einskins. Shabiha eru hrottalegir
ofbeldismenn í borgaralegum klæðum
sem styðja her Assad og eru sagðir notaðir
þegar sýrlenski stjórnarherinn þarf að
bæla niður andstöðu í ýmsum hverfum.
Þeim hefur verið lýst sem „óvæntu her-
mönnunum“, því þeir birtast skyndilega
þungvopnaðir inni í íbúðahverfum. Það
eru ekki formleg tengsl á milli þeirra og
stjórnarhersins, en þeir eru yfirleitt klædd-
ir í stuttermaboli og í buxur í hermannalit-
um. Flestir þeirra eru útblásin vöðvatröll,
aka um á hvítum pallbílum og eru alltaf
þungvopnaðir. Þeir eru sakaðir um að
myrða börn og konur með köldu blóði og
eru sagðir fá um 25 þúsund krónur í laun
á dag.
n Fyrir utan hrottaleg ofbeldisverk þá
njósna þeir fyrir stjórnina og eru stórtæk-
ir í vopnakaupum á svarta markaðnum í
Sýrlandi og í nágrannalöndunum, en það
er einkum gert til þess að koma í veg fyrir
að frelsishermenn geti keypt vopnin.
Það kemur sér vel fyrir stjórnina að hafa
þetta fyrirkomulag því ef átök brjótast
út þá getur hún alltaf haldið því fram að
engir hermenn hafi komið að málum.
Shabiha Leiguhrottar á vegum Sýr-
landsstjórnar eru sakaðir um hrottaleg
fjöldamorð.
Fiskmeti frá Fukushima
n Kolkrabbar og sniglar seldust upp á fyrsta degi
S
jávarfang sem veitt var undan
ströndum japönsku borg-
arinnar Fukushima selst nú
eins og heitar lummur eftir
að hafa ekki sést á markaði frá því
í mars í fyrra. Eftir slysið í Fukus-
hima-kjarnorkuverinu í kjölfar
öflugs jarðskjálfta í landinu, hef-
ur ekkert sjávarfang frá borginni
verið sett á markað vegna meng-
unar, fyrr en nú. Enn sem komið
er er aðeins hægt að fá kolkrabba
og snigla frá Fuku shima, vegna
þess að aðrar tegundir eru taldar
of mengaðar til manneldis. Meng-
un frá kjarnorkuverinu eyðilagði
fiskimið norðaustur af borginni og
hafði það í för með sér mikið fjár-
hagstjón og atvinnumissi á svæð-
inu.
Viðtökur við sjávarfanginu hafa
verið miklu betri en nokkur þorði
að vona. Hirofumi Konnu fisksali
segir að margir hafi keypt vörurnar
til þess að sýna sjávarútvegnum
í borginni stuðning og samhug,
en sjávarútvegurinn hefur verið
lamaður frá kjarnorkuslysinu. „Ég
var vongóður en ég vissi ekki við
hverju ég átti að búast í dag, en ég
var svo ánægður þegar ég komst
að því að allt hefði klárast í kjör-
búðinni minni fyrir klukkan þrjú
á fyrsta degi,“ segir hann við AP-
fréttastofuna.
Ítarlegar rannsóknir hafa ver-
ið gerðar á lífríkinu í sjónum við
Fukushima og fundust engar leifar
af geislavirkni í kolkröbbunum og
sniglunum sem nú eru komnir á
markað. Vonir standa til að fljót-
lega verði hægt að byrja að veiða
og selja krabba, þar sem geisla-
virkni mælist heldur ekki í þeim.
Óljóst er hins vegar hvenær hægt
er að byrja að selja ýmsar tegund-
ir af fiski, þar sem hann er enn
mengaður samkvæmt mælingum.
Það gætu liðið nokkur ár þar til
óhætt er að borða hann.
20 Erlent 29. júní–1. júlí 2012 Helgarblað
Óhugnanlegar
árásir í Nepal
Afhöfðað lík 23 ára konu frá Belgíu
sem hugðist fara í sex daga göngu-
ferð í Himalaja-fjöllunum við
landamæri Kína og Nepal, fannst
í Nepal á dögunum. Konan, sem
hét Debbie Maveau, hafði verið
myrt á hrottafenginn hátt og skilin
eftir úti í náttúrunni. Ekki er vit-
að um ástæðu árásarinnar, henni
hafði ekki verið nauðgað og hún
var með seðlaveski á sér þannig
að ólíklegt er talið að um rán-
morð eða morð af kynferðislegum
toga hafi verið að ræða. Enginn er
grunaður um morðið, en það sem
vekur mikinn óhug er að hún er
alls ekki fyrsta konan sem ætlar að
ganga um Himalaja-fjöll sem ráð-
ist er á.
Lena Sessions, 23 ára kona frá
Bandaríkjunum, var ein í göngu
í Langtang í Nepal í desem-
ber þegar maður vopnaður hnífi
réðst á hana og reyndi að nauðga
henni. Hún komst undan. Viku
áður hafði suðurkóresk kona orðið
fórnarlamb sams konar árás-
ar. Fyrir tveimur árum hvarf ung
stúlka frá Bandaríkjunum, Aubrey
Caroline Sacco, á sama svæði.
Hún hefur aldrei fundist.
Keyptu lúxus-
villu til að
láta rífa hana
Hjón í San Francisco festu kaup
á lúxusvillu fyrir 530 milljón-
ir króna, til þess eins að láta rífa
hana þar sem hún hindraði út-
sýni þeirra. Hjónin, sem greini-
lega eiga fyrir salti í grautinn, búa
sjálf í lúxusvillu sem metin er á
2,4 milljarða króna skammt frá.
Það hafði pirrað þau að geta ekki
horft á skýjakljúfa borgarinnar
og hina frægu Golden Gate-brú
út um stofugluggann. Um leið og
kaupin voru frágenginn, fengu
bankamaðurinn Clark Winslow
og kona hans leyfi til þess að láta
rífa villuna. Þegar húsið var farið
létu þau planta runnum, trjám og
öðrum gróðri á lóðina og tengdu
við garðinn sinn. Belvedere, bær-
inn sem hjónin búa í, er griða-
staður milljarðamæringa, en laun
á hvern íbúa þar eru hærri en í
nokkrum öðrum bæ í Bandaríkj-
unum.
Fukushima Þó ekki séu liðin tvö ár frá slysinu í Fukushima er sjávarfang frá borginni nú
komið aftur á markað.
Valgeir Örn Ragnarsson
blaðamaður skrifar valgeir@dv.is
„Vanda-
mál okkar
snúa alltaf að
Vesturlöndum
„Við erum
komin í
stríð“
n Bashar al-Assad segir að herinn verði að berja niður uppreisnina
Stríð! Forseti Sýrlands
segir að leggja verði höfuð-
áherslu á að vinna stríðið
gegn frelsishernum.
Enginn bónus
Breski bankinn Barclays hef-
ur verið sektaður um samtals
57 milljarða króna fyrir að hafa
haft óeðlileg áhrif á vaxtakjör.
Brot bankans þykir hafa verið
bæði skipulegt og mjög alvar-
legt. Í kjölfar þess hefur einn
hæst launaði bankamaður
heims, Bob Diamond forstjóri
bankans, ákveðið að hann ætli
ekki að þiggja neinar bónus-
greiðslur fyrir árið 2012. Hann
hefur jafnframt heitið því að
bankinn sýni meiri samfélags-
lega ábyrgð í framtíðinni.