Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2012, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2012, Síða 26
26 Forsetakosningar 29. júní–1. júlí 2012 Helgarblað Að baki grímunni Hver er fyrsta minning þín úr æsku? „Að leika mér í hvítum skóm og fjólubláum galla á Þórsgötunni þar sem við bjuggum um skeið – ég var mjög lítil, líklega á þriðja ári og leikfélagarnir voru tveir þýskir strákar sem bjuggu í sama húsi. Mamma þeirra var svo snyrtileg að hún setti svuntur á þá þegar þeir voru að drullumalla.“ Hvað varst þú að gera síðasta laugardagskvöld? „Ég var að svara spurningum svipuðum þessum – þær eru endalausar í þessari baráttu.“ Hver var þín fyrsta hugsun í morgun? „Hvort búið væri að senda út fréttatilkynn- ingu þar sem við svörum þeirri vitleysu að krafan um opið bókhald frambjóðenda fyrir kjördag skipti ekki máli fyrir kjósendur.“ Hvað er það villtasta sem þú hefur gert? „Við skulum ekki fara út í þá sálma …“ Við hvað ertu hrædd? „Hræddust um að eitthvað komi fyrir börnin mín.“ Hefur þú reykt kannabis? „Nei.“ Hefur þú verið nakin í óbyggðum? „Nei, því miður. Á það vonandi eftir.“ Hefur þú fengið innheimtubréf eða höfnun á greiðslukorti? „Það hefur hent mig.“ Hefur þú upplifað óendurgoldna ást? „Já. Í fyrsta sinn þegar ég var í barna- skóla og skrifaði bekkjarbróður bréf – hann hafði misst mömmu sína og hjarta mitt var barmafullt af væntumþykju. Honum fannst lítið til bréfsins koma. Við höfum verið 9 ára.“ Hefur þú lent í klóm ræningja? „Já, þar sem ég stóð eitt sinn fyrir framan málverkið af Monu Lisu í Louvre-safninu í París – það var sunnudagur og safnið öllum opið. Lipur vasaþjófur náði veskinu mínu upp úr hliðar- töskunni minni.“ Hefur þú verið tekin af lögreglunni? „Lögreglan stoppaði mig á Sæbrautinni í maí 2011 og sagði að ég hefði ekki gefið stefnuljós þegar ég fór út úr hringtorgi rétt hjá Krónunni og Bónus úti á Granda. Ég fékk sekt.“ Ef þú þyrftir að velja annað land til búsetu, hvaða land yrði það? „Hvar eru góðar útisundlaugar með heitu vatni allan ársins hring? Hvar eru bjartar sumarnætur og stórfjölskyldan í nágrenninu? Hvar yfirgefur maður aldrei heimili sitt án þess að rekast á ein- hvern sem maður þekkir og getur spjallað við? Ef ég ætti þess ekki kost að búa hér, þá Ítalía.“ Hvað er það sem þú myndir helst vilja prófa? „Hestaferð um hálendið.“ Hvenær og hvern kysstir þú síðast? „Ég kyssti og faðmaði Maríu Elísabetu, 19 ára dóttur mína, síðast.“ Hefur þú gleymt afmælisdegi einhvers sem skiptir þig máli? „Nei, minnist þess ekki.“ Hver er uppáhaldssápuóperan þín? „Þær eru allar jafn áhugaverðar – eða þannig!“ Hver er einmanalegasta stundin sem þú hefur upplifað? „Engin ein sem stendur upp úr. Þegar ég var ein í námi erlendis, rúmlega tvítug upplifði ég oft mjög einmanalegar stundir. Núorðið þekki ég ekki þessa tilfinningu.“ Hver er albesta máltíð sem þú hefur fengið? „Allar máltíðir eru góðar ef félags- skapurinn er góður. Minnist þess þó einu sinni þegar bróðir spænskrar vinkonu minnar sem var kokkur á fínum veitingastað í New York eldaði handa okkur.“ Hver er sú versta? „Soðnar rófur þegar ég var lítil. Gat ekki borðað þær.“ Hefur þú svikið einhvern? „Svik eru stórt orð. Ekki vísvitandi.“ Biðst þú afsökunar á mistökum þínum? Ef já, hvernig? „Já, alltaf þegar mér verða þau ljós. Tala við viðkomandi og biðst afsökunar.“ Hvað er það fyndnasta sem þú hefur séð eða heyrt? „Það eru svör frambjóð- enda sem neita að opna bókhald framboðs síns fyrir kjördag svo að kjósendur sjái hverjir eru fjárhagslegir bakhjarlar þeirra en ætla síðan að vera voða góðir nái þeir kosningu og setja embættinu siðareglur!“ Hvað er það síðasta sem þú gerir á kvöldin áður en þú ferð að sofa? „Slekk ljósið.“ Hvað er það versta sem þér hefur tekist að fyrirgefa? „Það sem hefur sært mig mest – en það er fyrirgefið.“ Hver er þinn æðsti draumur? „Að börn- in okkar taki við betri heimi og haldi áfram að reyna að hafa áhrif til góðs.“ Lipur vasaþjófur rændi veskinu Herdís Þorgeirsdóttir „Lögreglan stoppaði mig á Sæbrautinni í maí 2011 Hver er fyrsta minning þín úr æsku? „Að gömul amma mín var að gefa mér sykurmola.“ Hvað varst þú að gera síðasta laugardagskvöld? „Vinna við fram- boðið.“ Hver var þín fyrsta hugsun í morgun? „Búinn að sofa of lengi – kom- inn með hausverk …“ Hvað er það villtasta sem þú hefur gert? „Spurði konuna mína hvort hún vildi giftast mér …“ Við hvað ertu hræddur? „Er myrk- fælinn.“ Hefur þú reykt kannabis? „Nei.“ Hefur þú verið nakinn í óbyggðum? „Já.“ Hefur þú fengið innheimtubréf eða höfnun á greiðslukorti? „Já.“ Hefur þú upplifað óendurgoldna ást? „Alveg örugglega einhvern tímann.“ Hefur þú lent í klóm ræningja? „Nei.“ Hefur þú verið tekinn af lög- reglunni? „Já, fyrir of hraðan akstur.“ Ef þú þyrftir að velja annað land til búsetu, hvaða land yrði það? „Ísland er alltaf í fyrsta sæti. Annars væri gaman að prófa Ítalíu. Erum annars með heimili í Noregi.“ Hvað er það sem þú myndir helst vilja prófa? Sjá? Gera? „Vildi helst prófa að vera forseti. Vildi sjá meira af Ítalíu. Vil ganga á Mælifellshnjúk í Skaga- firði (í sumar).“ Hvenær og hvern kysstir þú síðast? „Kyssti konuna mína í morgun.“ Hefur þú gleymt afmælisdegi ein- hvers sem skiptir þig máli? „Ef svo er þá man ég ekki eftir honum ennþá …“ Hver er uppáhaldssápuóperan þín? „Engin í uppáhaldi …“ Hver er einmanalegasta stundin sem þú hefur upplifað? „Það að vera staddur í fjölmenni og samt finna fyrir einsemd er oft undarlegt.“ Hver er albesta máltíð sem þú hefur fengið? „Köld svið.“ Hver er sú versta? „Salöt með agúrku og tómat.“ Hefur þú svikið einhvern? „Sjálfsagt hef valdið einhverjum vonbrigðum á lífsleiðinni, vonandi þó engu alvarlegu.“ Biðst þú afsökunar á mistökum þínum? Ef já, hvernig? „Reyni það já – þegar ég átta mig á því að ég hef gert mistök. Best er þá að koma hreint og beint fram og tala um hlutina.“ Hvað er það fyndnasta sem þú hefur séð eða heyrt? „Laddi er stórkostlegur leikari. Öll hans gervi hafa kætt mig.“ Hvað er það síðasta sem þú gerir á kvöldin áður en þú ferð að sofa? „Kyssi konuna góða nótt.“ Hvað er það versta sem þér hefur tekist að fyrirgefa? „Á ekki erfitt með að fyrirgefa. Mikil viska liggur í bæninni „Faðir vor“ en þar stendur „fyrirgef oss vorar skuldir sem og vér fyrirgefum vorum skuldunautum“. Þannig að ef ég get ekki fyrirgefið – hvern- ig á fólk þá að geta fyrirgefið mér?“ Hver er þinn æðsti draumur? „Geta búið á Bjarnastöðum í Blönduhlíð í Skagafirði, með fáeinar kindur og hross, einhvern tímann áður en ég verð gamal- menni.“ Hannes Bjarnason Er myrkfælinn DV fékk forsetaframbjóðendur til að setjast niður og svara persónulegum og að mörgu leyti erfiðum spurningum um líf sitt. Spurningarnar kunna að hljóma léttvægar en margar þeirra leyna á sér og svipta jafnvel hulunni af því hvaða mann þessir einstaklingar sem sækjast eftir Bessastöðum hafa raunverulega að geyma. Ólafur Ragnar Grímsson, Þóra Arnórsdóttir og Ari Trausti Guðmundsson sáu sér ekki fært að svara spurningunum. „Það að vera staddur í fjölmenni og samt finna fyrir einsemd er oft undarlegt

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.