Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2012, Síða 28
Sitjandi forSeti í
koSningabaráttu
28 Forsetakosningar 29. júní–1. júlí 2012 Helgarblað
Þ
að setur þessar kosningar í
sérflokk að sitjandi forseti er
í framboði og samt fær hann
svona mörg mótframboð,“
segir Stefanía Óskarsdóttir
stjórnmálafræðingur um baráttu
forsetaframbjóðenda. Stefanía segir
kosningarnar nú vera lið í uppgjöri
hrunsins. „Það er allavega þannig í
hugum margra. Það hefur sett svip
sinn á kosningabaráttuna. Sumir eru
að gera upp hrunið og aðrir virðast
vera að gera upp Icesave-ákvörðun
forsetans.“ Stefanía segir baráttuna
þó ekki mikið harðari en áður. Fólk
sé fljótt að gleyma. „Það hefur alltaf
fylgt forsetakosningum að hart er
tekist á. Það sem er í gangi núna er
ekkert sérstaklega svæsið í sögu-
legu samhengi. Það fylgir svona bar-
áttu þar sem er verið að kjósa fólk að
dregið er fram í dagsljósið ýmislegt
sem einhverjir telja að varpi ljósi á
persónu frambjóðanda.“
Leikhússtjórinn og
stjórnmálamaðurinn
Ólafur Ragnar Grímsson kom eins og
stormsveipur inn í kosningabarátt-
una til embættis forseta Íslands árið
1996. Stjórnmálaferillinn var heldur
á undanhaldi. Árið áður hafði Sjálf-
stæðisflokkurinn myndað ríkisstjórn
með Framsóknarflokknum og því
ljóst að Ólafs biði ekki frekari frami
í stjórnmálum að sinni. Hann hafði
setið á Alþingi síðan 1978 og verið
fjármálaráðherra 1988–1991. Síðustu
misserin fyrir forsetakosningarnar
beindist athyglin helst að Ólafi fyrir
reiðikast sem hann tók í ræðustól Al-
þingis, þegar hann talaði um skítlegt
eðli Davíðs Oddssonar, þáverandi
forsætisráðherra.
Vigdís Finnbogadóttir tilkynnti
um framboð sitt í janúar árið 1980.
„Óttastu ekki að sú staðreynd að þú
ert kona geti háð þér í forsetaemb-
ætti?“ var fyrsta spurningin í viðtali
Dagblaðsins við hana í tilefni af til-
kynningunni um framboð hennar.
Um mitt ár 1979 kvisaðist að Kristján
Eldjárn þáverandi forseti ætlaði sér
ekki áframhaldandi setu í forseta-
stól. Vigdís sigraði í kosningunum
með naumum meirihluta atkvæða
en 1.906 atkvæði skildu á milli henn-
ar og Guðlaugs Þorvaldssonar ríkis-
sáttasemjara.
Mótvægi við ríkisstjórnina
„Sögulega séð þá leggst stuðningur
almennings með aðila sem litið er á
sem mótvægi við ríkisstjórnina eða
ráðandi öfl. Þess vegna er hættulegt
fyrir Þóru að vera tengd við Samfylk-
inguna í þessum kosningum,“ segir
Stefanía um tilhneigingu til að leitast
eftir því að tengja forsetaframbjóð-
endur flokkum. „Þóra hefur kallað
þetta elsta bragðið í bókinni. Þegar
Ólafur var kosinn þá var hann bara
nýhættur sem formaður Alþýðu-
bandalagsins og það mældist ekk-
ert sérstaklega hátt. Samt er hann
kosinn með 40 prósent. Gegnum
tíðina hafa kjósendur heldur lagst í
andstöðu við ríkjandi stjórn. Þegar
Ólafur var kosinn þá var Davíð búinn
að vera forsætisráðherra í fimm ár.“
Stefanía bendir þó á að kjör Vig-
dísar hafi ef til vill orðið fyrir annars
konar áhrifum. „Vigdís er kjörin með
ofboðslega tæpum meirihluta þegar
mjög óvenjuleg ríkisstjórn er við
völd. Vigdís var líka studd að ein-
hverju leyti af kvennahreyfingunni,“
segir Stefanía og bætir við að fleira
hafi komið til og ýtt undir stuðning
með Vigdísi til að mynda kvennafrí-
dagurinn og sú hreyfing sem honum
hafi fylgt.
Fjölmiðlar gagnrýndir
Gagnrýni á fjölmiðla er meiri í kosn-
ingabaráttunni núna að mati Stef-
aníu en í kosningum 1996 og 1980.
„Ég myndi segja að það væri partur
af uppgjörinu við hrunið. Það hefur
dregið úr trausti stofnana samfélags-
ins. Þáttur fjölmiðla fyrir hrun hefur
verið gagnrýndur og hefur sú um-
ræða átt sér stað í nokkur ár. Þetta er
eðlilegur partur af uppgjöri og áskor-
un til fjölmiðla og álitsgjafa um að
passa sig og vera málefnalegir. Það
er ef til vill ákveðið heilbrigðismerki
í þessari umræðu enda er enginn
óskeikull,“ segir Stefanía. n
OREO
BANANA
SÚKKULAÐIKAKA
Sími: 561 1433
Innihald: Súkkulaðibotnar, súkkulaðimousse, bláberja
sulta
, ba
nan
ar
og
O
re
ok
ex
.
Opnunartími:
mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30
laugar- og sunnudaga 8.00 -16.00
P
R
E
N
T
U
N
.IS
n Ólafur fyrsti forsetinn sem verst n Kosningabaráttan ekki svæsnari en áður
33,8%
32,3%
19,8%
14,1%
41,4%
29,5%
26,4%
2,7%
1 Vigdís Finnbogadóttir
2 Guðlaugur Þorvaldsson
3 Albert Guðmundsson
4 Pétur J. Thorsteinsson
1 Ólafur Ragnar Grímsson
2 Pétur Kr. Hafstein
3 Guðrún Agnarsdóttir
4 Ástþór Magnússon
Fyrri forsetakosningar
1980 1996
Hvorki gjalda né njóta „Hún skal hvorki
njóta þess eða gjalda að vera kona.“ – Sigur-
björn Einarsson biskup við setningu Vigdísar
1. ágúst 1980.
Stakk af Ólafur Ragnar Grímsson, fyrr-
verandi formaður Alþýðubandalagsins, var
kjörinn með rúmlega 40 prósent atkvæða
árið 1996 þótt ekki hafi flokkurinn höfðað til
jafn margra.
Atli Þór Fanndal
blaðamaður skrifar atli@dv.is
Ekki svæsnari en áður Stefanía
Óskarsdóttir stjórnmálafræðingur segir
kosningaslaginn núna ekkert sérstaklega
svæsinn í sögulegu samhengi.
Sögulegur slagur Í fyrsta sinn er sitjandi forseta ógnað af mótframbjóðanda.
„Það er langbest að hafa Ólaf áfram
sem forseta. Hann veit alveg hvað er
að ske. Það þýðir ekkert að vera ræða
um þetta hrun og hans hlutverk í því;
við þurfum stöðugleika. Ólafur veitir
stöðugleika.“
Óskar Ellert Karlsson
„Ég hugsa að ég kjósi ekki. Ég hef bara
ekki áhuga á þessu og ég er ekkert
spennt fyrir þessum frambjóðendum.
Síðan er það líka þannig að sá fram-
bjóðandi sem ég er hvað spenntust fyrir
á lítinn möguleika þannig að ég held ég
sleppi þessu bara. Forsetaembættið er
líka úrelt.“
Björk Guðnadóttir
„Þóru. Það er kominn tími á breytingar.
Ég vil henda einhverjum ferskum inn á
Bessastaði.“
Sunna Wiium
„Ég er búin að kjósa; kaus Ólaf. Hann er
yndisleg persóna með mikla reynslu. Síð-
an var bara ein kona sem á séns í hann en
Ólafur er miklu frambærilegri en hún.“
Sólveig María Svavarsdóttir
Hvern ætlar
þú að kjósa?