Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.2011, Blaðsíða 2
2 | Fréttir 12.–14. ágúst 2011 Helgarblað
www.xena.is
Mikið af
fínum skóm í
leikfimina
no3 - st. 36-41 verð kr. 2500.-
Opið virka daga 11-18
laugardag 11-16
Grensásvegur 8 og Nýbýlavegur 12 - Sími 517 2040
SKÓMARKAÐUR
no2 - st. 41-46 verð kr. 6795.-
no1 - st. 28-35 verð kr. 3995.-
TILBOÐ
Buguð eftir 16 ár
í vændi
„En flestir
sem ég hitti
eru bara eldri
menn sem fá það
strax. Sumir eiga
veika konu. Aðrir
eiga konu sem er
hætt að vilja sofa
hjá þeim. Enn aðrir fíla það bara að
kaupa vændi. Þetta er svona alls kon-
ar.“ Þetta sagði vændiskona í samtali
við DV á mánudag. Konan, sem er
fimm barna móðir, segist vera buguð
og sér enga leið út. „Síðustu tíu árin
hef ég gert þetta af einskærri neyð.
En lengi vel gerði ég þetta fyrir mann-
inn minn og börnin mín. Ég gaf þeim
allt sem þau eiga. Ég gaf elstu dóttur
minn heilt innbú og annarri bíl. Þetta
var allt fyrir peninga sem ég fékk með
þessum hætti.“
Hallbjörn bugaður
„Ég er al-
veg hættur
að syngja. Ég
vil helst gleyma
öllu, lífinu, til-
verunni og öllu.
Ég er bara leiður
á þessu, bara
orðinn leiður á
lífinu,“ sagði kú-
reki norðursins, Hallbjörn Hjartar-
son, í samtali við DV á miðvikudag.
Um helgina fara fram Kántrýdagar í
heimabæ hans, Skagaströnd, en Hall-
björn kemur ekki nálægt hátíðinni
að þessu sinni. „Kántrýhátíðin sem
slík stóð í níu ár og hún var mín hug-
mynd upphaflega og mitt framtak.
Síðan var hún lögð niður í einhver ár
vegna einhverrar meinsemdar og öf-
undar í minn garð. Síðan fóru þeir að
sjá eftir þessu og fengu leyfi hjá mér
til að kalla þetta Kántrýdaga.“
Losnaði við skuldir
og byggir reiðhöll
Katrín Pét-
ursdóttir,
forstjóri Lýsis,
stendur í miklum
framkvæmdum á
landareign sinni
í Fljótshlíðinni
þessa dagana.
Katrín hyggst
reisa reiðhöll á
landareigninni Velli 1, en þar hafa
iðnaðarmenn haft í nógu að snúast
að undanförnu. DV hefur greint frá
því að Katrínu hafi tekist að semja
um afskriftir á skuldum sínum við
Glitni. Samkvæmt heimildum DV var
hún í persónulegum ábyrgðum fyrir
um milljarði króna vegna lána sem
eignarhaldsfélag hennar, Hnotskurn,
fékk hjá Glitni árið fyrir hrun. Félagið
skuldaði 2,8 milljarða króna í lok árs
2007.
Fréttir vikunnar í DV
1
2
3
Hrunið
snertir
okkur lítið
w
w
w
.d
v
.i
s
F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð 8.–9. ág
úst 2011 mánudagur/þriðjudagur
8
9
. t
b
l
.
10
1.
á
r
g
.
l
e
ið
b
. v
e
r
ð
4
2
9
k
r
.
n „Gerði þetta fyrir manninn minn“ n „Ég get þetta ekki
lengur“ n Sér enga leið út n Misnotuð í æsku og beitt
harðræði n Kúnnarnir flestir kvæntir, eldri menn 10–12
BUGUÐ
EFTIR
16 ÁR
Í VÆNDI
Geggjað stuð
Í gleðigöngu
Bankamenn
í braski
í Berlín
Fyrrverandi starfsmenn
Glitnis fjárfestu í 72 þúsund
fermetra svæði. Þýskir
fjárfestar vilja rannsókn
M
Y
N
D
G
U
N
N
A
R
G
U
N
N
A
R
SS
O
N
Ísland af-
tengt frá
erlendum
mörkuðum
Einar Bjarnason
greip í tómt 8
Óþekkt
kona
stal líf-
eyrinum
Popparar
sem elska
fyrirsætur
Ólíkir heimar sameinast
í ástinni 22–23
Þorvaldur Gylfason tilbúinn í
slaginn 4
Stofna
flokk ef
þingið
hlýðir ekki
FImm BaRNa móÐIR Í NEyÐ
Einkaviðtal
2–3
26
6
4 | Fréttir 10. ágúst 2011 Mi
ðvikudagur
Afarkostir
Þráins
Þráinn Bertelsson, þingmaður
Vinstri grænna, segist ekki styðja
fjárlög nema fundin verði sanngjörn
lausn á málefnum Kvikmyndaskóla
Íslands. Þetta sagði Þráinn í samtali
við Vísi á þriðjudagskvöld. Málefni
Kvikmyndaskólans hafa verið tals-
vert í umræðunni upp á síðkastið og
vill Þráinn að fjármögnun skólans
verði tryggð. Ríkisstjórnin er með
minnsta mögulega meirihluta á
þinginu og því gæti stuðningur Þrá-
ins skipt sköpum þegar upp verður
staðið. Hann segist hins vegar bjart-
sýnn á lausn málsins, Svandís Svav-
arsdóttir, starfandi menntamála-
ráðherra, hafi unnið mikið í málinu.
„...ég held að lausnin sé í sjónmáli.
Hitt er annað mál ef að menn gefast
upp á að finna lausn á þessu þá sé ég
enga ástæðu til að styðja fjárlögin,“
sagði Þráinn við Vísi.
Sjö króna lækkun
á einni viku
Íslensk olíufélög hafa lækkað verð
á eldnseytislítranum um 7 krónur á
einni viku en samkvæmt úttekt DV
fyrir nákvæmlega viku síðan kostaði
lítrinn af 95 oktana bensíni um 242
krónur. Eftir lækkanir mánudags og
þriðjudags er lítraverðið nú komið
niður í rúmlega 235 krónur.
Í kjölfar óvissu á alþjóðafjár-
málamörkuðum hefur heimsmark-
aðsverð á olíu hrapað. Íslensku
olíufélögin brugðust við þessu á
mánudag og þriðjudag með því að
lækka verð eftir nær linnulausar
hækkanir undanfarin ár. Þrátt fyrir
að íslenskir neytendur fagni hverri
krónulækkun má geta þess að lítrinn
kostaði 113 krónur árið 2007.
Á þriðjudag var verð á 95 oktana
bensíni lægst hjá Orkunni á höfuð-
borgarsvæðinu þar sem lítrinn kost-
aði 235,40 krónur. Hjá Atlantsolíu og
ÓB kostaði hann 235,60.
Viðskiptavinir N1 greiða 235,70
krónur fyrir lítrann og Olís 235,80
Steingrímur J. Sigfússon hafnar því
algjörlega að til standi að hækka
virðisaukaskatt á matvöru. Fram
kom í Fréttablaðinu á þriðjudag
að ríkisstjórnarflokkarnir hefðu til
skoðunar tillögur sendifulltrúa Al-
þjóðagjaldeyrissjóðsins um að sam-
ræma virðisaukaskattsþrepin þannig
að í framtíðinni yrði 20% flatur virð-
isaukaskattur. Ríkisstjórnin leitar nú
leiða til aukinnar tekjuöflunar og
var þingmannanefnd falið að skoða
þennan möguleika. Þeir þingmenn
sem DV hefur rætt við telja að ríkis-
stjórnin muni frekar reyna að leggja
frekari skatta á bankastofnanir en
að fara þessa leið. Sigmundur Dav-
íð Gunnlaugsson, formaður Fram-
sóknarflokksins, stendur hins vegar
fast á því að hækkanir á virðisauka-
skatti á matvælum hafi komið til
greina.
Yrði af slíkum skattahækunum
myndi það ekki aðeins hækka mat-
vöruverð verulega í landinu held-
ur einnig skila sér beint í vísitöluna
og hækka þannig verðtryggð lán.
Raunar hafa skattahækkanir nú-
verandi ríkisstjórnar valdið því að
skuldir heimilanna í landinu hafa
hækkað um 18,3 milljarða króna.
Árni Páll Árnason, efnahags- og við-
skiptaráðherra, sagði í svari við fyrir-
spurn Margrétar Tryggvadóttur á Al-
þingi síðasta vetur, að á tveggja ára
tímabili hefðu skuldir heimilanna í
landinu hækkað samanlagt um 18,3
milljarða króna vegna áhrifa skatta-
hækkana. Margrét spurði: „Hve
mikið hafa verðtryggð lán íslenskra
heimila hækkað á tímabilinu frá
1. febrúar 2009 til 1. febrúar 2011, í
krónum annars vegar og prósentum
hins vegar, vegna skattahækkana og
annarra aukinna álaga af hálfu ríkis-
ins sem hafa áhrif á vísitölu neyslu-
verðs?“
Árni Páll svaraði: „Áhrif skatta-
hækkana á vísitölu neysluverðs eru
um 1,50% frá 1. febrúar 2009 til 1.
febrúar 2011 samkvæmt mælingum
Hagstofu Íslands. Það þýðir að verð-
tryggð lán íslenskra heimila hækk-
uðu sem því nemur að nafnvirði. Í
febrúar voru verðtryggð lán heimil-
anna um 1.220 milljarðar kr. og því
nemur hækkunin að nafnvirði um
18,3 milljörðum kr. á tímabilinu. Al-
menn vörugjöld eru ekki með tal-
in þar sem Hagstofan greinir áhrif
þeirra ekki með beinum hætti í vísi-
tölunni.“
Fjármálaráðherra þvertekur fyrir að til standi að hækka virðisaukaskatt:
Skattar hækka skuldir um 18 milljarða
Steingrímur J. Sigfússon Þingmenn
telja að frekari skattahækkanir í landinu
einskorðist við banka og fjármálastofnanir
en ekki virðisaukaskattshækkun.
K
atrín Pétursdóttir, forstjóri
Lýsis, stendur í miklum
framkvæmdum á landareign
sinni í Fljótshlíðinni þessa
dagana. Katrín hyggst reisa
reiðhöll á landareigninni Velli 1, en
þar hafa iðnaðarmenn haft í nógu
að snúast að undanförnu. Þegar ljós-
myndara og blaðamann bar að garði
voru framkvæmdir við grunn reið-
hallarinnar í fullum gangi. Óljóst er
hvenær reiðhöll Katrínar verður til-
búin en ekki náðist í hana við vinnslu
fréttarinnar. DV hefur greint frá því
að Katrínu hafi tekist að semja um
um afskrifitir á skuldum sínum við
Glitni. Samkvæmt heimildum DV
var hún í persónulegum ábyrgðum
fyrir um milljarði króna vegna lána
sem eignarhaldsfélag hennar, Hnot-
skurn, fékk hjá Glitni árið fyrir hrun.
Félagið skuldaði 2,8 milljarða króna í
lok árs 2007.
Reiðhöll rís á Velli
Ljóst er að þrátt fyrir mikla skulda-
söfnun og persónulegar ábyrgðir er
Katrín ekki illa stödd fjárhagslega,
að minnsta kosti ef marka má þær
miklu framkvæmdir sem eiga sér
stað á landareign hennar þessa dag-
ana. Völlur 1 er landareign í henn-
ar eigu en þar er nú þegar rekið
hrossaræktarbú. Á landinu er þegar
eitt hesthús, lítil reiðhöll og íbúðar-
hús ásamt litlum skúr. Heimildir DV
herma að Katrín og fjölskylda hygg-
ist nota reiðhöllina til einkanota og
til að sinna sínu helsta áhugamáli
– hestamennskunni. Katrín á aðra
landareign í nágrenninu, Þórunúp.
Katrín hefur setið í stjórnum
fjölda fyrirtækja og situr ennþá í
mörgum þeirra. Hún var meðal
annars meðstjórnandi í stjórn í FL
Group, í stjórn Glitnis allt til ársins
2008, og í Bakkavör Group til ársins
2011. Hún á og rekur einkahlutafyrir-
tæki eins og Þórunúp, Hex og Bol.
Óljóst er hvort og þá hvaða fyrirtæki
í hennar eigu kemur að framkvæmd-
unum við reiðhöllina.
Þurfti að víkja úr stjórn
Í janúar síðastliðinn greindi DV frá
því að eignarhaldsfélagið Hnotskurn
væri á lokasprettinum við að semja
um skuldir félagsins sem nema 2,8
milljörðum króna. Eignir félagsins
námu þá ekki nema 244 milljónum
í fasteignum og lóðum. Félagið fékk
lán til hlutabréfakaupa í Trygginga-
miðstöðinni. Það eignaðist síðan
hlutabréf í FL Group þegar það fé-
lag keypti Tryggingamiðstöðina. Auk
þess að vera í eigu Katrínar, var fé-
lagið einnig í eigu Gunnlaugs Sævars
Gunnlaugssonar, fjárhaldsmanns
Guðbjargar Matthíasdóttur í Vest-
mannaeyjum til margra ára.
Samkvæmt heimildum DV varð
Katrín að víkja úr stjórn Glitnis í lok
febrúar 2008 þar sem Hnotskurn var
komið í vanskil með lán sín við bank-
ann. Enda hafði hlutur Hnotskurnar
í FL Group rýrnað mjög mikið. Mark-
aðsverðmæti hlutarins sem Hnot-
skurn átti í FL Group nam um 1.195
milljónum króna í september 2007.
Í lok desember sama ár var hlut-
ur félagsins metinn á 993 milljónir
króna en þá hafði það verið þvingað
til að selja um 20 prósent af bréfum
sínum í FL Group.
Persónulegar ábyrgðir
Gunnlaugur Sævar og Katrín voru
í persónulegum ábyrgðum vegna
skulda sinna við Glitni, samkvæmt
heimildum DV. Ekkert bendir til að
ábyrgðirnar hafi verið greiddar. Þau
fengu lánafyrirgreiðslu til að kaupa
hlutabréf í FL Group. Vera má að
uppgjör þeirra á skuldinni við Ís-
landsbanka tengist sölu þeirra á Lýsi
til Guðbjargar Matthíasdóttur með
einum eða öðrum hætti.
Eftir því sem DV kemst næst gátu
eða vildu þau Gunnlaugur og Katrín
ekki greiða skuldina sem þau voru
í persónulegum ábyrgðum fyrir og
leituðu því til starfsmanna Íslands-
banka eftir skuldaafskrift á meiri-
hluta skuldarinnar gegn því að þau
myndu greiða hluta hennar. Ekki er
vitað hvernig málið endaði hjá Ís-
landsbanka en ljóst er að Gunnlaug-
ur og Katrín ætluðu sér ekki eða gátu
ekki greitt skuldina til fulls. Reikna
má með að þau hafi fengið sínu
framgengt.
Lendingin í málinu hjá Gunn-
laugi og Katrínu hefur því hugsan-
lega verið svipuð og í afskriftamáli
Bjarna Ármannssonar við skilanefnd
Glitnis í fyrra, sem greint hefur verið
frá í DV, en hann fékk um 800 millj-
ónir króna afskrifaðar gegn því að
greiða bankanum nokkra tugi millj-
óna króna.
Reisir reiðhöll í
skugga afskrifta
n Fékk milljarða afskrifaða en reisir nú reiðhöll n Var í persónuleg-
um ábyrgðum n Reiðhöllin til einkanota, samkvæmt heimildum
Jón Bjarki Magnússon
blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is
Afskriftir Katrín Pétursdóttir fékk afskrif-
aðar milljarðaskuldir við Glitni en hún var í
persónulegri ábyrgð fyrir hluta þeirra.
Framkvæmdir Þegar ljósmyndara bar að
garði voru iðnaðarmenn á fullu við að leggja
grunn að nýrri reiðhöll Katrínar. Mynd EyÞóR ÁRnASon
„Heimildir DV
herma að Katrín
og fjölskylda hyggist nota
reiðhöllina til einkanota
og til að sinna sínu helsta
áhugamáli – hesta-
mennskunni.
w
w
w
. d
v
. i
s
F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð
10.–11. ágúst 2011 miðvikudagur/fimmtudagur
9
0
. t
b
l
.
10
1.
á
r
g
.
l
e
ið
b
. v
e
r
ð
4
2
9
k
r
.
„KúreKi norðursins“ ósáttur
n Gaf allt líf sitt í Kántrýdaga, sem síðan
voru lagðir af og endurvaktir án hans
„Ég hef alltaf verið
álitinn hálfviti hér
á Skagaströnd.
Hallbjörn
miður sín
ENGEYINGAR
Í VELLYSTINGUM
Sátt þrátt
fyrir 17 tíma
seinkun
Katrín í Lýsi
Losnaði
við skuldir
og byggir
reiðhöll
KoNAN
MÍN
SELdI SIG
öðRUM
Fjölskyldufaðir opnar sig
„Ég skammaðist mín“
Blind og heyrnar-
laus á öðru eyra
GÆTI
VERIð
VERRA
Veldu rétta
hreyfingu
n Á meðan borgar almenningur fyrir Sjóvá
n Bjarni Ben sagði að ríkið myndi engu tapa 2–3
8
12–13
4
22–23
14–15
REITT
UNGT
FÓLK
Farþegi fékk sárabót
26–27 17
Skákmaraþon vegna Sómalíu:
Börnin heiðruð
Rauði kross Íslands heiðraði á
fimmtudagsmorgun ungmennin
sem stóðu fyrir skákhátíðinni „Við
erum ein fjölskylda“ um síðustu
helgi. Alls söfnuðu þau einni milljón
króna í tveggja daga skákmaraþoni
til styrktar hjálparstarfi í Sómal-
íu, auk þess sem símasöfnun Rauða
krossins tók mikinn kipp á sama
tíma og þar bættist við um ein millj-
ón króna.
„Um 20 börn tóku þátt í mara-
þoninu og stóðu sig með miklum
sóma. Rauði krossinn er þeim ákaf-
lega þakklátur fyrir framtakið og af
því tilefni litu fulltrúar hans inn á
æfingu hjá Skákakademíunni þar
sem hinir öflugu skákkrakkar tóku á
móti viðurkenningarskjölum. Rauði
krossinn vill einnig þakka þeim sem
tefldu við ungmennin og styrktu
þannig málefnið með framlagi sínu.
Peningarnir verða notaðir til hjálp-
arstarfs Rauða krossins í Sómalíu
þar sem börn svelta heilu hungri,“
segir í tilkynningu sem Rauði kross-
inn sendi frá sér á fimmtudag.
Í tilkynningunni kemur fram að
upphæðin sem safnaðist dugi til að
kaupa bætiefnaríkt hnetusmjör til
að hjúkra um 1.300 alvarlega van-
nærðum börnum til heilbrigðis. Það
voru Skákakademía Reykjavíkur og
Skáksamband Íslands sem stóðu fyr-
ir maraþonskákhátíðinni í Ráðhúsi
Reykjavíkur. Þar tefldu mörg efnileg-
ustu börn og unglingar landsins við
gesti og gangandi. Mótherjar krakk-
anna borguðu upphæð að eigin vali.
Áfram verður tekið á móti fram-
lögum í síma Rauða krossins, 904-
1500, og þá bætast við 1.500 kr. við
næsta símareikning. Einnig er hægt
að styrkja neyðaraðstoð Rauða
krossins í Sómalíu með því að greiða
inn á reikning hjálparsjóðs í banka
0342, hb. 26, reikn. 12, kt. 530269-
2649. Þá munu öll áheit fyrir Rauða
krossinn í Reykjavíkurmaraþoninu
þann 20. ágúst renna í Sómalíusöfn-
unina.
H
ún gat ekki nærst leng-
ur og drapst að lokum
úr hor,“ segir Sigurbjörn
Hjaltason, bóndi að Kiða-
felli og fyrrverandi oddviti
Kjósarhrepps. Hann tók eftir því síð-
asta vetur að óeðlilega mikið af kind-
um drógust upp og áttu erfitt með að
nærast. Við nánari skoðun kom í ljós
að þær voru margar hverjar með mikil
þykkildi og bólgur í kjálkabeinunum.
Að lokum fór svo að ein þeirra drapst
úr hungri en hann geymir hauskúpu
hennar sem hann vonast til að fari í
óháða rannsókn í haust.
Sigurbjörn telur líkur á því að
flúor mengun frá álverinu á Grundar-
tanga hafi valdið veikindum kind-
anna. Hann bendir meðal annars á
að kindin sem drapst hafi verið fædd
árið 2006, en sama ár varð mengunar-
slys í álverinu með þeim afleiðingum
að mikið magn flúors slapp út í um-
hverfið. Samkvæmt upplýsingum frá
Umhverfisstofnun tvöfaldaðist magn
flúors í sauðfé og öðrum langlífum
dýrum í kjölfar slyssins. Sigurbjörn
býst allt eins við því að sömu örlög
bíði fleiri kinda sem nú eru uppi á
fjöllum.
Ærin grindhoruð
Þegar Sigurbirni varð ljóst að ekki
væri allt með felldu hafði hann sam-
band við Matvælastofnun sem sendi
dýralækni á svæðið. Eftir nána skoð-
un komst dýralæknirinn að þeirri
niðurstöðu að ekki væri hægt að stað-
festa að flúormengun hefði valdið
dauða dýrsins þrátt fyrir að möguleiki
væri á því. Til þess að skera úr um
slíkt væri nauðsynlegt að senda bein
og tennur í frekari rannsókn. Sigur-
björn vonast til þess að slíkt verði gert
nú í haust.
„Ærin var grindhoruð en lambið
virtist þrífast vel. Það vottar fyrir
ójöfnum utan á kjálkum beggja meg-
in. Ekki sáust neinar skemmdir í gler-
ungi á framtönnum. Þegar kjafturinn
var glenntur upp og strokið eftir slit-
fleti jaxlanna var greinilegt að tennur
voru misslitnar þannig að jaxl hvor-
um megin var hærri en hinar tenn-
urnar og á móti var lægð í slitfleti
jaxlanna,“ ritaði dýralæknir Matvæla-
stofnunar meðal annars í skýrslu um
málið sem DV hefur undir höndum.
Veik hross
Fyrr í vetur sagðist Umhverfisstofnun
stefna á heildstæða úttekt og skoðun
á því hvort og þá við hvaða aðstæður
gætti skaðlegra áhrifa flúormengunar.
DV hefur fjallað um íbúa í Hvalfirði
sem sendi Umhverfisstofnun erindi
vegna óþekktra veikinda sem hrjáðu
hross hennar. Taldi konan að mikið
magn flúors í beinum hrossanna væri
ástæða þess að hrossin virtust finna
fyrir verkjum í fótum og vera með
hnúða og stirðleika í makka. Konan
hafði gert samanburð á flúormagni í
sínum hrossum og hrossum á Norð-
urlandi sem sýndi fram á að flúor-
magn í þeim fyrrnefndu mældist mun
meira.
„Hvort tímabundin flúorupptaka
sumarið 2006 getur hafa valdið mis-
þroska í jöxlum þessara kinda er ekki
útilokað vegna þess að fyrsti jaxl-
inn (M1) kemur fram þegar kindin
er þriggja mánaða, annar jaxl (M2)
kemur við 10–11 mánaða aldur og
sá þriðji (M3) þegar kindin er 12–18
mánaða. Tveir fyrstu jaxlarnir voru
því á viðkvæmu þroskastigi sum-
arið 2006,“ segir jafnframt í skýrslu
dýralæknis Matvælastofnunnar um
kindina veiku.
Treystir ekki rannsókn
Sigurbjörn hefur að eigin sögn lengi
haft horn í síðu álversins á Grundar-
tanga. „Ég get alveg sagt það að ég
er svekktur yfir hlutskipti mínu. Að
þurfa að búa við viðvarandi mengun,
ónýtt útsýni og hávaða á góðviðris-
dögum er eitthvað sem ég kaus mér
ekki. Landið mitt er eitt það kærasta
sem ég á og það er sárt að sjá á eftir
því verða stóriðjunni að bráð,“ seg-
ir Sigurbjörn sem sendi nýlega inn
kæru til umhverfisráðuneytisins fyrir
meinta ólöglega förgun úrgangs í
flæðigryfju við álverið.
Aðspurður hvort hann sé þreyttur
á baráttunni við álverið segir hann:
„Nei, það er ég ekki. Ég á eftir að eyða
mikilli orku og taka mikla áhættu til
að koma í veg fyrir að reistar verði
fleiri verksmiðjur sem merkir um-
hverfissinnar í Reykjavík eru að reyna
að troða hingað núna.“
Aðspurður um hvort hann telji að
rannsókn á hauskúpunni muni leiða
í ljós að flúormengun hafi grandað
kindinni segir Sigurbjörn: „Ég veit
það ekki, einhvern veginn treystir
maður ekki þeim rannsóknum sem
gerðar eru á vegum iðjuveranna
sjálfra. Betra væri að bíða þess að um-
hverfisvöktunin fari úr þeirra hönd-
um til óhlutdrægs aðila á vegum um-
hverfisráðuneytisins eins og ég held
að vilji umhverfisráðherra sé. Það er
auðvitað bara della að láta álverið sjá
um rannsókn á sjálfu sér.“
n Bónda grunar að álversmengun hafi valdið dauða kindar n Dýralæknir Matvæla-
stofnunar útilokar ekki að mengun sé orsökin n Hefur lengi barist við álverið
Vill að óháðir aðilar
rannsaki hauskúpu
Jón Bjarki Magnússon
blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is
Drapst úr hor Ærin veslaðist upp
en Sigurbjörn grunar að flúormeng-
un hafi valdið dauða hennar.
Mengunarslys Ærin sem drapst fæddist sama ár og gríðarlegt magn flúors slapp út í nær-
liggjandi umhverfi, en þá voru fyrstu jaxlar hennar á viðkvæmu þroskastigi.