Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.2011, Qupperneq 6
6 | Fréttir 12.–14. ágúst 2011 Helgarblað
Aldrei of seint að læra skyndihjálp:
Bjargaði lífi
eiginmannsins
„Hann fer inn í eldhús, opnar ís-
skápinn og nær sér í flatköku. Svo
heyri ég bara dynk og fer fram í eld-
hús. Þar sé ég hann liggjandi á gólf-
inu,“ segir 79 ára kona sem bjargaði
lífi eiginmanns síns sem fékk hjarta-
áfall sunnudagskvöldið 26. júní síð-
astliðinn. Konan, sem vill ekki láta
nafns síns getið, vildi segja sögu sína
og varpa ljósi á mikilvægi þess að
kunna skyndihjálp.
Hjónin, sem eru búsett á höfuð-
borgarsvæðinu, höfðu verið að
horfa á sjónvarpið áður en ósköpin
dundu yfir. Þau stóðu upp, konan fór
inn í svefnherbergi en eiginmaður
hennar fór fram í eldhús að fá sér
flatköku. Skömmu síðar heyrði kon-
an dynk og kom hún að eiginmanni
sínum þar sem hann lá á eldhúsgólf-
inu í andarslitrunum.
„Ég legg hann eins og á að gera
og byrja svo að hnoða,“ segir konan.
Við fallið braut maðurinn, sem verð-
ur 85 ára síðar á árinu, bæði rófu-
bein og ristarbein í öðrum fætinum.
Og við hjartahnoðið brákaðist einnig
rifbein eins og oft vill gerast. Konan
segist hafa hringt strax í neyðarlín-
una og tók það sjúkraflutningamenn
aðeins nokkrar mínútur að koma á
staðinn. „Hann man ekki eftir neinu,
en hjartað fór fljótlega af stað eftir
að ég byrjaði að hnoða,“ segir konan
sem vill koma á framfæri þökkum
til hjartalæknisins Hjartar Odds-
sonar sem meðhöndlaði eiginmann
hennar.
„Hann þurfti að vera á spítala í
þrjá daga og það var ákveðið að láta
hann fá gangráð strax daginn eftir,“
segir konan sem tvisvar áður hefur
þurft að beita skyndihjálp. Hún
reyndi að bjarga lífi nágranna síns
fyrir margt löngu sem fékk hjarta-
áfall. Lífgunartilraunir báru hins
vegar ekki árangur. Eiginmaður
hennar fékk einnig hjartaáfall fyrir
um tíu árum og voru það snör við-
brögð eiginkonunnar sem björguðu
lífi hans.
„Ég hvet alla til að fara á skyndi-
hjálparnámskeið,“ segir konan sem
hefur haldið kunnáttu sinni við
síðan hún fór fyrst á skyndihjálpar-
námskeið. Hún verður áttræð síðar
á árinu og segir að það sé aldrei of
seint að læra skyndihjálp. „Ég held
að sérstaklega eldra fólk sé ekkert
endilega vel að sér um skyndihjálp.
En ef höfuðið er í lagi er aldrei of
seint að læra hana.“
Aðspurð hvernig manni hennar
líði í dag segir konan að hann sé all-
ur að koma til. „Hann gerir allt sem
gera þarf. Hann ryksugar en hann er
svolítið slappur. Við ætlum nú samt
upp á hálendið seinna í ágúst eins
og við höfum gert í áratugi og vera í
sumarbústað,“ segir konan en hjón-
in hafa verið gift í um 60 ár.
einar@dv.is
Var dæmdur fyrir nauðgun við tjaldstæði í Hornafjarðarbæ árið 2005:
Áfram í varðhaldi
Hæstiréttur staðfesti á fimmtudag
gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tutt-
ugu og fimm ára manni sem grun-
aður er um nauðgun á Þjóðhátíð í
Vestmannaeyjum síðastliðna versl-
unarmannahelgi. Hann verður í
gæsluvarðhaldi til 2. september
næstkomandi. Samkvæmt upplýs-
ingum frá lögreglunni í Árnessýslu
var krafist gæsluvarðhalds yfir
manninum vegna almannahags-
muna, þar sem maðurinn hefur
komið við sögu lögreglu áður vegna
kynferðisbrota og verið dæmdur fyr-
ir. Maðurinn var dæmdur fyrir kyn-
ferðisbrot árið 2006. Hann var þá
dæmdur í Héraðsdómi Reykjavík-
ur fyrir nauðgun. Málinu var áfrýj-
að til Hæstaréttar, sem staðfesti fyrri
niður stöðu, en mildaði refsinguna úr
24 mánuðum í 18. Refsiminnkunin
kom til vegna aldurs ákærða sem var
þá aðeins 20 ára. Einnig voru bætur
þolanda lækkaðar um 200.000 krón-
ur, úr einni milljón.
Framburður stúlkunnar var tal-
in mjög trúverðugur. Nauðgunin
átt sér stað 2. júlí 2005 við tjald-
stæði í Hrossabithaga í Hornafjarð-
arbæ.
Maðurinn hitti þar stúlku þar sem
hún hafði tjaldað ásamt vinum sínum
og beðið hana um að rölta aðeins með
sér. Hann beitti hana síðan ofbeldi og
nauðgaði í trjálundi, meðal annars
með því að halda um háls hennar og
rífa í hár hennar svo hún hlaut áverka.
Maðurinn er nú grunaður um að
hafa ráðist á konu við salerni í dalnum
á Þjóðhátíð. Þolandinn, sem er tvítug
kona, segir manninn hafa nauðgað sér
við salernin í Herjólfsdal á milli klukk-
an 4 og 5 aðfaranótt mánudags. Mað-
urinn var handtekinn síðar sömu nótt.
Búist er við að rannsókninni ljúki í
þessum mánuði og málið fari þá til rík-
issaksóknara sem tekur ákvörðun um
hvort ákæra verður gefin út.
Grunaður um nauðgun Hæstiréttur
staðfesti áframhaldandi gæsuvarðhald
yfir manni sem grunaður er um nauðgun á
Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum.
É
g bara virkilega vona, og hef í
rauninni fulla trú, á að báðir
aðilar geti fundið sameiginleg-
an grundvöll og farsæla niður-
stöðu,“ segir Hilmar Oddsson,
rektor Kvikmyndaskóla Íslands. Nem-
endur og starfsmenn við skólann
bíða nú spenntir eftir niðurstöðu rík-
isstjórnarfundar í dag, föstudag, en
á þriðjudaginn afhentu nemendur
Jóhönnu Sigurðardóttur forsætis-
ráðherra áskorun um að finna lausn
á málefnum skólans hið fyrsta til
að tryggja rekstur hans áfram. Eins
og staðan er núna er þó óvíst hvort
kennsla geti hafist í skólanum í haust.
Jóhanna stóð ekki við sitt
Um 30 nemendur Kvikmyndaskól-
ans mættu fyrir framan Stjórnarráðið
á þriðjudagsmorgun. Hittu þeir fyrir
Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráð-
herra er hún var í þann mund að hefja
ríkisstjórnarfund. Nemendurnir af-
hentu Jóhönnu undirskriftalista
þar sem 3.600 manns höfðu lýst yfir
stuðningi sínum við nemendur Kvik-
myndaskólans. Haraldur Ari Karls-
son, stofnandi Kínemu – nemenda-
félags Kvikmyndaskólans, var sá sem
afhenti Jóhönnu listann. „Hún virtist
mjög jákvæð og sagði að þetta væri
mál sem væri henni hugleikið. Hún
sagði líka að þetta yrði fyrsta málið
sem tekið yrði fyrir á fundinum.“
Þráinn hótaði að fella fjárlögin
Athygli vakti þegar Þráinn Bertelsson,
þingmaður VG, sagðist ekki ætla að
styðja fjárlög komandi árs – verði ekki
fundin viðunandi lausn á málefnum
Kvikmyndaskólans. Þetta sagði Þrá-
inn í Síðdegisútvarpi Rásar 2 á þriðju-
dag. Blaðamaður spurði Þráin nánar
út í þessi ummæli. „Það er bara ekki
hægt að draga þetta mál lengur. Það
er fullt af fólki sem heldur að það sé
að byrja í skólanum og ef engin lausn
finnst þarf þetta fólk að fara í dýrara
nám, sem er dýrara fyrir ríkið, eða á
atvinnuleysisbætur, sem er enn dýr-
ara fyrir ríkið. Ódýrasta lausnin er að
gera skólanum kleift að starfa áfram.“
Menningarhatur í forheimsk-
unnar landi
„Það virðist vera svo mikið menning-
arhatur hér á Íslandi að sumir hafa
reynt að snúa ummælum mínum
þannig að ég sé að reyna að kúga út
fé handa sérstöku hugðarefni mínu,“
segir Þráinn og bætir við að hann-
hafi ekki meiri áhuga á kvikmynda-
gerð en öðrum kimum menningar
þótt hann hafi unnið við hana. „Mér
finnst menning, eða skapandi grein-
ar eins og hún heitir á hagfræðimáli,
vera undirstöðuatvinnugrein. Hún er
stærri atvinnugrein en til að mynda
landbúnaður en það ríkir einfaldlega
hatur í garð menningar í þessu for-
heimskunnar landi. Menn skilja ekki
að það er ekki verið að eyða pening-
um, heldur spara peninga og græða
peninga þegar hlúð er almennilega
að þessum skapandi greinum.“
Lausn hlýtur að vera í sjónmáli
Þráinn tekur þó fram að hann sé von-
góður um að lausn á málefnum Kvik-
myndaskólans sé í nánd. „Ég veit að
starfandi menntamálaráðherra, Svan-
dís Svavarsdóttir, er dugmikil kona og
ég hef orð hennar fyrir því að þetta
verði leyst. Og því er ég feginn.“
Hilmar Oddson tekur í sama
streng: „Ég hef ekki trú á öðru en að
þetta leysist. Eins og staðan er núna
ber ekki mikið í milli. Við fórum fram
á 70 milljónir til að geta tryggt rekstur
og miðast þær óskir við blóðug sárs-
aukamörk. Nú er verið að fara í saum-
ana á smæstu smáatriðum og verið
að vinna tæknilega vinnu. Við erum
ánægð með að það starf sé í gangi og
ég er bara bjartsýnn.“
„Hatur í garð
menningar“
„Það ríkir einfald-
lega hatur í garð
menningar í þessu for-
heimskunnar landi.
Björn Teitsson
blaðamaður skrifar bjorn@dv.is
n Nemendur Kvikmyndaskóla Íslands bíða enn eftir lausn á málefnum skólans
n Þráinn Bertelsson segir óskiljanlegt menningarhatur koma niður á skapandi greinum
Þráinn Bertelsson, þingmaður VG
Segir menningarhatur vera eina ástæðu
fyrir aðgerðarleysi gagnvart Kvikmynda-
skólanum.
Sofa fyrir framan Alþingi
Nemendur Kvikmyndaskólans
hafa mótmælt aðgerðarleysi
stjórnvalda á táknrænan
hátt með því að blunda fyrir
framan Alþingi.