Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.2011, Page 13
Fréttir | 13Helgarblað 12.–14. ágúst 2011
Þreyttur á þögninni
reglustjóri hafði haft samband við
safnið þann 11. maí 2007 og óskað
eftir því að umrædd gögn yrðu stað-
sett á safninu. Það var gert og ríkis-
lögreglustjóri látinn vita þegar þau
voru tilbúin til afgreiðslu. Gögnin
voru hins vegar aldrei sótt og var
því gengið frá þeim aftur. Ríkislög-
reglustjóri virðist því hafa vitað af
tilvist skjalanna en vísvitandi sagt
ósatt.
Gamlar myndir komu í ljós
Eftir umfjöllun DV og Kompáss, á ár-
unum 2007 og 2008, um hin voveif-
legu andlát í Daníelsslipp komu upp
á yfirborðið gamlar ljósmyndir af vett-
vangi og Einari og Sturlu. Myndirnar
voru í vörslu lögreglunnar er rötuðu
aldrei inn í málsgögnin á sínum tíma.
Það var ekki fyrr en lögreglumaður-
inn sem tók myndirnar fór sjálfur
og sótti þær í gagnageymslu lögregl-
unnar að þær komu í ljós. Í kjölfarið
fór ríkissaksóknari þess á leit við lög-
reglustjórann á höfuðborgarsvæð-
inu að farið yrði yfir rannsóknargögn
málsins og settar fram athugasemdir
og ábendingar. Var það gert og í grein-
argerð frá lögreglustjóranum, undir-
ritaðri af Friðriki Smára Björgvinssyni
yfirlögregluþjóni koma fram alvarleg-
ar athugasemdir við rannsókn máls-
ins á sínum tíma.
Í greinargerðinni segir að ekkert
í gögnunum bendi þó til að dauða
mannanna hafi borið að með refsi-
verðum hætti en tekið er sérstak-
lega fram að gögnin séu af skornum
skammti. Þar stendur jafnframt að
nauðsynlegt
sé að mál sem
þetta, þar sem
tveir menn
finnast látn-
ir saman í bif-
reið á víðangi,
hljóti ítarlega
rannsókn.
Endurupp-
töku synjað
Í kjölfar greinar-
gerðar lögreglu-
stjórans á höfuð-
borgarsvæðinu
sem send var rík-
issaksóknara fór
embættið fram á
það við lögreglustjórann að einstaka
þættir málsins yrðu kannaðir. Í svari
embættisins við því erindi kom fram
að enn væri unnt að taka skýrslur,
bæði af tilkynnanda og eiganda bíls-
ins. Þá kom einnig fram að unnt væri
að hafa uppi á vitnum sem hugsan-
lega gætu hafa haft samskipti við Einar
og Sturlu skömmu fyrir andlát þeirra.
Ýmissa fleiri gagna var jafnframt unnt
að afla, að því er kom fram í greinar-
gerðinni. Þrátt fyrir að allar þessar
upplýsingar lægju fyrir tók ríkissak-
sóknari þá ákvörðun að synja ósk ætt-
ingja mannanna um endurupptöku
málsins.
„Hann gerði sig bara að fífli“
„Valtýr (Sigurðsson, þáverandi ríkis-
saksóknari, innsk. blm.) og Gísli Páls-
son eru miklir vinir. Valtýr var saka-
dómari og hann var allan tímann að
vinna með þessum sömu mönnum,“
segir Ragnar og vísar til þeirra lög-
reglumanna sem komu að málinu á
sínum tíma og enn starfa innan lög-
reglunnar. „Hvernig hann tók á þessu
máli sem saksóknari er bara eitt stórt
spurningarmerki. Hann gerði sig bara
að fífli í rauninni.“
Ragnar sætti sig ekki við vinnu-
brögð saksóknara og kærði synjunina
til innanríkisráðuneytisins. Hann er
nú orðinn langþreyttur á að bíða úr-
skurðar í málinu sem flakkað hefur á
milli ráðuneytisins og umboðsmanns
Alþingis í rúmt ár.
„Þetta er í annað skipti, í raun-
inni, núna að umboðsmaður Alþing-
is lokar málinu á þeim forsendum að
ráðuneytið ætli að úrskurða efnislega
og láta þann úr-
skurð uppi á
ákveðnum degi.
Núna liggur
fyrir hjá mér
að fara aftur í
umboðsmann
og þá er það
þriðja kvörtun-
in. Þetta bara
heitir þöggun
að þeir svari
ekki,“ segir
Ragnar. Síðast
gaf ráðuneyt-
ið umboðs-
manni þau
svör að mál-
inu yrði lokið eigi síðar
en 7. júní síðastliðinn. Áður hafði úr-
skurði verið lofað í október 2010. Nú
um miðjan ágúst árið 2011 hafa enn
engin svör borist frá ráðuneytinu.
Telur málið stranda á vinnu-
teymi
„Þeim ber að vinna eftir stjórnsýslu-
lögum í dag. Það voru engin stjórn-
sýslulög fyrir tuttugu árum. Það voru
engin upplýsingalög og við höfðum
engan umboðsmann Alþingis. Þá af-
greiddu þeir málin þannig að það var
bara þögn. Það var bara haldið kjafti
og fólki var hreinlega bara ekki svarað.
Miðað við nýtt lagaumhverfi þá eiga
þeir ekki að geta það,“ segir Ragnar og
það er þungt í honum hljóðið. Hann
segist vita til þess að Ögmundur Jón-
asson innanríkisráðherra hafi mælt
fyrir um að málið skyldi klárað og tel-
ur Ragnar því að það strandi hjá ein-
hverju vinnuteymi innan ráðuneytis-
ins. „Þetta er orðið dálítið mikið,“ segir
Ragnar sem vill að andlátsmál bróður
síns fái viðeigandi meðferð og að ljósi
verði varpað á hvað gerðist í raun og
veru í Daníelsslipp þann 1. mars árið
1985.
Athugasemdir
lögreglustjórans
á höfuðborgar-
svæðinu
n Eiginleg rannsókn virðist ekki hafa
farið fram á vettvangi og fatnaði hinna
látnu.
n Samkvæmt lögregluskýrslu var
bifreiðin flutt með dráttarbifreið á
athafnasvæði ríkislögreglustjóra til
frekari rannsóknar. Ekki er að finna í
gögnum málsins að frekari rannsókn á
bifreiðinni, til dæmis leit að fingraförum
eða ummerkjum um innbrot í hana, hafi
farið fram.
n Ekki var kannað hvaða kveikjuláslykill
var notaður við gangsetningu bifreiðar-
innar en eigandi hennar hélt því fram
að hann hafi skilið við hana læsta og án
kveikjuláslykils. Eigandi bifreiðarinnar
var ekki yfirheyrður vegna þessa.
n Ekki var kannað hvort tengsl væru á
milli eiganda bifreiðarinnar og piltanna.
n Ekki var tekin sérstök skýrsla af
tilkynnanda, einungis var látið nægja
að hafa eftir honum framburð hans í
lögregluskýrslu.
n Engin tilraun var gerð til að leita að
vitnum eða einhverjum þeim sem hefðu
haft samskipti við hina látnu skömmu
fyrir andlát þeirra.
n Ekki var reynt að kortleggja ferðir
piltanna síðustu klukkustundirnar fyrir
lát þeirra.
n Ekki virðist hafa verið rætt við
aðstandendur um hvaða ástæður lægju
að baki ef um sjálfsvíg var að ræða
eða reynt með öðrum hætti að finna
ástæður fyrir hugsanlegu tvöföldu
sjálfsvígi.
n Ekki var kannað með hvaða hætti
Einar þór hlaut þá marbletti sem til-
greindir eru í krufningarskýrslu. (Mar í
nára og á kynfærasvæði).
„Núna liggur fyrir hjá mér að fara aftur í um-
boðsmann og þá er það þriðja kvörtunin. Þetta
bara heitir þöggun að þeir svari ekki
Lík Einars Hér sést hvar sl
angan liggur inn um
hliðarrúðu bílsins. Hvítt l
ak hefur verið breitt yfir
lík Einars.
Fullviss um morð Björn Helgason er fyrrverandi rannsóknarlögreglumaður sem
hefur mikinn áhuga á andlátsmálinu í Daníelsslipp. Hann segir málið aldrei hafa verið
rannsakað.
Segir málið ekki hafa verið rannsakað:
Alveg ljóst að þetta var morð
„Það er alveg ljóst í mínum huga að
þetta var morð og allra sem hafa vit á
þessum málum,“ segir Björn Helgason,
fyrrverandi rannsóknarlögreglumaður
á eftirlaunum, um voveiflegt fráfall
Einars og Sturlu. Björn kom sjálfur ekki
að málinu á sínum tíma en hefur alltaf
haft áhuga á því og þekkir öll máls-
gögnin í bak og fyrir. „Þegar maður fer
að skoða þessi gögn þá stangast hvað á
annað. Fyrir utan það að þessi eiginlega
vettvangsrannsókn byrjaði ekki fyrr en
tæpum fimm tímum eftir að fyrst var
komið að þannig að það hefði alveg
verið hægt að spilla vettvangi,“ segir
Björn. „Ég hef 35 ára reynslu og veit
alveg um hvað ég er að tala,“ bætir hann
við. Ástæða þess að hann fékk áhuga
á málinu er sú að hann telur það aldrei
hafa verið rannsakað.
Nýliði fékk málið í hendurnar
Björn segist vita til þess að mjög færir
lögreglumenn hafi farið á vettvang þegar
málið kom upp en hins vegar sé sá háttur
viðhafður í lögreglunni að mönnum er
úthlutað málum. Það er því ekki sjálfgefið
að þeir sem fari á vettvang haldi áfram við
rannsóknina. „Sá sem fékk málið í hendur
til rannsóknar, hann var algjör nýliði í
rannsóknarlögreglunni þá og hann gaf sér
bara forsendur. Hann rannsakaði þetta
mál ekki neitt,“ fullyrðir Björn. „Hann var
blautur á bak við eyrun og þetta fór bara
ofan í skúffu. Ég get ekki ímyndað mér að
hann hafi verið maður til að ráða við þetta
einn. Menn öðlast ekkert reynslu í svona
málum fyrr en eftir mörg ár.“
Sá mikla annmarka á málinu
Þegar Björn fékk gögn málsins í hendurnar
sá hann strax að ekki var allt með felldu.
„Ég sá þarna mikla annmarka á rann-
sókninni. Það eru ákveðin atriði sem
maður lítur alltaf til þegar maður fær
svona mál til rannsóknar.“ Björn hefur
sjálfur rannsakað fjölmörg dauðsföll og
segir það klárt mál í sínum huga að Einar
og Sturla hafi ekki framið sjálfsvíg, heldur
hafi þeir verið myrtir.
„Finnst þetta bara ljótt“
Björn segir fulla ástæðu til að taka
andlátsmál Einars og Sturlu upp aftur,
enda séu nægar forsendur fyrir því að
það verði gert. Hann skilur ekki af hverju
þetta er svona erfitt fyrir ríkissaksókn-
ara. „Mér finnst þetta bara einhvern
veginn þannig að tvær fjölskyldur hafa
verið í spennu allt sitt líf. Auðvitað hvílir
þetta afskaplega þungt á fólki. Það segir
sig alveg sjálft. Mér finnst bara ljótt að
saksóknari vilji ekki leyfa endurupptöku
á þessu.“
Einar Þór Agnarsson Fannst látinn í Daníelsslipp ásamt félaga sínum Sturlu Stein-
dóri Steinssyni þann 1. mars árið 1985.
Eftir að Valtýr Sigurðsson, fyrrverandi
ríkissaksóknari, hafði synjað endur-
upptöku málsins birti hann yfirlit yfir
málið og ástæður synjunar á heimasíðu
embættisins. Þar komu fram við-
kvæmar persónuupplýsingar úr málinu,
meðal annars upplýsingar úr krufningar-
skýrslum og gömlum sjúkraskýrslum.
Aðstandendur voru ósáttir við birtingu
þessara upplýsinga og kærðu málið til
Persónuverndar. Þegar Persónuvernd
óskaði skýringa á birtingu upplýsinganna
fengust þau svör að ríkissaksóknari teldi
ásakanir Ragnars, sem hann hefði sett
fram opinberlega um slæleg vinnubrögð
og samsæri lögreglunar til að koma í
veg fyrir rannsókn á glæp, væru til þess
fallnar að auka vantrú og tortryggni í garð
yfirvalda. Slíkt væri alvarlegt eftir hrun
bankakerfisins því reiði almennings gæti
brotist út af minnsta tilefni. Ríkissaksókn-
ari taldi það því skyldu sína að upplýsa
almenning um staðreyndir málsins. Þann
22. júní 2010 úrskurðaði Persónvernd að
ríkissaksóknara hefði verið óheimlt að
birta umræddar upplýsingar á heimasíðu
sinni og var embættinu gert að afmá þær
tafarlaust af heimasíðu sinni. Nú rúmu
ári síðar hefur það ekki enn verið
gert.
Ríkissaksóknari birti persónuupplýsingar:
Virti ekki úrskurð Persónuverndar
Fyrrverandi ríkissak-
sóknari Valtýr Sigurðs-
son birti viðkvæmar
persónuupplýs-
ingar á heimasíðu
embættisins. Þær
hafa ekki verið
fjarlægðar þrátt
fyrir úrskurð
Persónu-
verndar.
„Sá sem fékk málið
í hendur til rann-
sóknar, hann var algjör
nýliði í rannsóknarlög-
reglunni þá og hann gaf
sér bara forsendur.