Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.2011, Síða 19
Erlent | 19Helgarblað 12.–14. ágúst 2011
Lán til endurbóta
og viðbygginga
Íbúðalánasjóður veitir lán til endurbóta á húsnæði að innan og utan.
Meðal annars eru veitt lán til lóðarframkvæmda og viðbóta við húsnæði.
Lán geta numið allt að 80% af framkvæmdakostnaði. Hámarkslán eru
20 milljónir og lánstími 5 til 40 ár. Sömu vextir eru á þessum lánum og
almennum lánum Íbúðalánasjóðs.
Borgartúni 21 | 105 Reykjavík | Sími : 569 6900, 800 6969
www.ils.is
Ó
eirðirnar í London og
víðar um Bretland, virð-
ast nú fara minnkandi.
Yfir 1.500 manns hafa
verið handtekin síðan á
sunnudaginn og undirskrifta-
listi gengur á netinu þar sem
krafist er harðra refsinga yfir
óeirðarseggjum. Fólk og yfirvöld
eru þó enn á varðbergi og hefur
Scotland Yard gefið út þá yfirlýs-
ingu að fólk megi beita vopnum
á óeirðarseggi telji það sér vera
ógnað. Þannig getur fólk var-
ið sig fyrir rétti jafnvel þó hinn
meinti óeirðarseggur hafi ekkert
haft í hyggju.
David Cameron, forsætis-
ráðherra Bretlands, sagði í
ræðu á þinginu á fimmtudag
að lögreglan hefði ekki tekið
nógu vel á óeirðunum, meðal
annars hafi lögreglumenn ver-
ið of fáir. Hann sagði þó að
vel gengi að koma böndum á
óeirðarseggi, meðal annars
fyrir tilstilli eftirlitsmyndavéla
sem hafi náð mörgum andlit-
um á mynd. Réttlætið myndi
ná fram að ganga. Hann sagði
óeirðirnar ekki snúast um póli-
tík eða fátækt, heldur einfald-
lega um þjófnaði.
Snýst um hatur á kerfinu
„Þeir kalla þetta glæpaöldu og
ránsfarald. Þetta snýst samt ekki
um það. Þetta snýst um innilegt
hatur á kerfinu,“ sagði atvinnu-
laus íbúi í Hackney-hverfinu í
London. Hann sagði fordóma
lögreglunnar og skort á tæki-
færum ástæðu fyrir því að hann
og félagar hans tækju þátt í að
ræna. Hann segir hverfið sitt
skiptast í tvo heima og kvartaði
yfir því að fleira millistéttarfólk
kæmi í hverfið til að ýta þeim til
hliðar, að búðir hækkuðu verðin
í kjölfarið og að fólk hefði ekki
efni á leigunni. „Við erum út-
lagar, enginn vill okkur lengur.“
Hann segir menntun vera
einu leiðina til að koma sér úr
því ástandi sem hann búi við.
Hins vegar geri niðurskurður
þeim ekki kleift að afla sér
menntunar.
Mismunandi ástæður að
baki
Hugarfar hans er lýsandi fyrir
marga sem hafa tekið þátt í
óeirðunum. Þeim finnst samfé-
lagið ekkert gera fyrir sig og mik-
inn skort vera á tækifærum.
Margir velta fyrir sér hvað
valdi því að svo margir taki upp á
því að ræna og rupla. Bent hefur
verið á að hópeðli fólks sé mjög
sterkt í svona óeirðum, þegar
einn byrjar fylgja fleiri í kjölfar-
ið. Sálfræðingar segja fólk missa
alla siðferðiskennd í stórum
hópum. Dæmi er um að ellefu
ára stúlka hafi brotist inn í fata-
verslun og stolið fötum en hún
sagðist hafa gert það að áeggjan
hóps 30 drengja á hennar aldri.
Faðir hennar sagði hana auð-
veldlega láta undan þrýstingi og
brýndi fyrir henni að biðjast af-
sökunar fyrir rétti.
Þá er einnig bent á að valda-
lausu fólki finnist það allt í einu
valdamikið og jaðri það við fíkn.
Í raun er ómögulegt að finna
eina einfalda skýringu á því
hvers vegna fólk rænir búðir.
Hópurinn er fjölbreyttur og má
nefna að námsmenn í fjölmiðla-
fræði, endurskoðun og verk-
fræði eru á meðal þeirra sem
taka þátt í óeirðunum. Því má
ætla að margar mismunandi
ástæður séu fyrir ránum og grip-
deildum.
Kenna ýmist niðurskurði
eða velferðarkefri um
Menn hafa ýmist viljað kenna
niðurskurði, sem bitnað hafi
verst á fátækustu íbúum lands-
ins, um ástandið eða þá velferð-
arsamfélaginu, sem ali af sér
kynslóð sem hafi engan skiln-
ing á samfélaginu sem hún búi í
og sé alveg sama um það. Lang-
flestir eru þó sammála um órétt-
mæti óeirðanna, sama hverju
þeir vilja kenna ástandinu um
og hversu mikla samúð menn
hafa með fólkinu.
Samkvæmt tölfræði frá hag-
stofu Bretlands átti eitt prósent
íbúa Bretlands fimmtung af
auðinum þar í landi árið 2003.
Þá skipti auðugri helmingur
Bretlands með sér 93 prósent-
um af auðinum. Niðurskurð-
ur hafi ef til vill ekki verið til að
bæta úr misskiptingunni.
Mike Hardy prófessor seg-
ir vandann ekki einugis fólg-
inn í því að bilið á milli ríkra
og fátækra sé svo mikið held-
ur líka nálægðin á milli. „Mis-
skiptingin er miklu sýnilegri,“
segir Hardy. Þar sem ríkt fólk
og fátækt fólk býr í svo mikilli
nálægð ýtir það undir löng-
unn hinna fátæku í að lifa sam-
kvæmt lífsstíl sem það hefur
ekki efni á.
Áhrif á ímynd Bretlands
„Nei, Bretland er ekki fullt af
konunglegum brúðkaupum, te-
drykkju og fólki sem talar eins
og Mary Poppins. Bretland
hefur, líkt og aðrir staðir, sínar
myrku hliðar vonbrigða, græðgi
og tortryggni, sem takast þarf
á við,“ skrifar rithöfundurinn
Caroline Jaine á pakistanska
fréttavefinn Dawn.
Ásýnd Bretlands hefur tölu-
vert breyst í augum umheims-
ins í kjölfar óeirðanna og hler-
anahneykslisins sem skók
Bretland fyrir stuttu. Úr Mið-
Austurlöndum heyrast nú gagn-
rýnisraddir sem ásaka Breta fyr-
ir hræsni þar sem margir hinir
sömu og hafa gagnrýnt ofbeldi
gegn mótmælendum í Mið-
Austurlöndum kalli nú eftir því
að hernum verði beitt. Þá leggur
sýrlenska ríkisfréttastofan Sana
aðgerðir lögreglu í Bretlandi að
jöfnu við aðgerðir hersins í Sýr-
landi. Þá hafa margir Egyptar
lýst yfir reiði sinni þar sem þeir
hafi barist gegn einræðisherra
en óeirðarseggir hafi engan
málstað.
„Þetta snýst um
hatur á kerfinu“
n Óeirðir virðast fara minnkandi n Cameron sagði lögreglu
ekki hafa brugðist rétt við n Breytt ímynd Bretlands
Björn Reynir Halldórsson
bjornreynir@dv.is
Bretland
Cameron kannar ástandið David Cameron sagði að lögreglan hefði ekki
brugðist við á réttan hátt, en varði þó niðurskurð til lögreglunnar.
Brennandi hús Mörg
hús hafa verið brennd í
óeirðunum.
Mynd reuterS