Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.2011, Side 30
30
S
túdentar eru eflaust spennt
ir fyrir því að hefja nám að
nýju nú í haust, en það á ekki
síst við um þann mikla fjölda
skiptinema sem nú herjar á ýmis lönd
í heiminum. Alþjóðaskrifstofa há
skólastigsins hjálpar stúdentum við að
finna sér skóla við hæfi þar sem lang
mesta úrvalið er í evrópskum skólum
en auk þess hefur Alþjóðaskrifstofan
gert fjölda tvíhliða skiptisamninga við
skóla frá öðrum heimsálfum. Blaða
maður DV spjallaði við Óskar Eggert
Óskarsson, en hann starfar fyrir land
skrifstofu menntaáætlunar ESB og
Nordplus. Þetta eru stærstu áætlanirn
ar fyrir skiptinám á háskólastigi.
Erasmus vinsælast
„Það er nokkuð ljóst að Erasmusáætl
unin er vinsælust þegar kemur að skipt
inámi,“ segir Óskar. Erasmusáætlunin
var sett á laggirnar árið 1987 og var ætl
að að efla skilning og tengsl stúdenta
innan Evrópu, en auk þess að eiga þess
kost að stunda nám í öðru landi og
læra nýtt tungumál er ekki óalgengt að
skiptinemar eignist vini og kunningja
frá fjölmörgum öðrum löndum. Ísland
hefur verið hluti af Erasmusáætlun
inni síðan 1992.
„Alveg síðan þá hefur verið stöð
ug fjölgun. Efnahagshrun og fall krón
unnar hafa ekki haft áhrif,“ segir Óskar.
Fjöldi stúdenta sem nýtir sér Erasmus
áætlunina í ár er um 260 til 270.
Fá myndarlegan styrk
Það sem útskýrir vinsældir Erasmus
verkefnisins að hluta er vafalaust
myndarlegur fjárstyrkur sem stúdent
ar eiga kost á. Hljóðar hann upp á 300
evrur á mánuði til almenns uppihalds,
eða tæpar 50 þúsund íslenskar krónur.
Þar að auki er ferðastyrkur sem nemur
650 evrum, sem ætti í raun að nægja til
að kaupa farmiða til gestgjafalandsins
og aftur til baka þegar námi lýkur.
Nordplus er önnur áætlun sem nýt
ur talsverðra vinsælda. Ár hvert eru
um 100 stúdentar sem nýta sér hana,
en eins og nafnið gefur til kynna er þar
um að ræða skiptinám á Norðurlönd
unum. Nordplus veitir einnig styrki til
skiptinámsins, en þeir eru þó ögn lægri
en Erasmusstyrkirnir.
Athyglisvert er að Danmörk er enn
vinsælasta landið meðal íslenskra
skiptinema og hefur verið frá upphafi
skiptináms á háskólastigi. Rétt eins og
fyrr á öldum, virðast Íslendingar því
kunna vel við sig meðal Dana, gömlu
herraþjóðarinnar.
Mikilvægt að undirbúa sig
Óskar segir miklu skipta að undirbúa
sig vel fyrir námsdvöl erlendis. Um
sóknarfrestur í Erasmus og Nordplus
er alltaf í mars, sem þýðir að næsta
námsár sem stúdentar geta sótt um í
skiptinámi er veturinn 2012 til 2013.
„En það er mikilvægt að byrja að
hugsa málið mun fyrr, jafnvel allt að ári
fyrir brottför. Það er mikilvægt að finna
skóla og námsleið við hæfi og einnig
að námskeiðin sem valin eru passi við
námið sem stundað er hér heima.“
Þegar kemur að skiptinámi utan
Evrópu þarf að undirbúa sig jafn
vel enn betur. „Umsóknarfrestur fyr
ir skóla utan Evrópu rennur yfirleitt
út fyrr. Kosturinn við að stunda nám í
Evrópu er auðvitað að þar þurfa stúd
entar enga vegabréfsáritun, en ann
að gildir um skóla annars staðar. Þeir
sem vilja ferðast annað fá heldur enga
styrki, en helsti kosturinn er að skóla
gjöld við gestgjafaskólann falla niður.
Skólagjöld í löndum eins og Bandaríkj
unum, Japan eða Ástralíu geta verið
mjög há – en skiptinemar þurfa aðeins
að greiða skráningargjöld sem er að
eins brot af því sem aðrir borga.“
Erlendir skiptinemar aldrei fleiri
Það er ekki aðeins stöðug fjölgun ís
lenskra stúdenta sem herja á önnur
mið, erlendir stúdentar við íslenska
háskóla hafa aldrei verið fleiri.
„Allt síðan við byrjuðum að taka
þátt í Erasmus árið 1992 hefur fjöldi
erlendra skiptinema aukist ár frá ári.
Það má segja að það hafi orðið algjör
sprenging en í ár eru um 700 erlendir
skiptinemar.“
Óskar bendir á að íslenskir nem
endur geti tekið þátt í tenglaverkefni og
„tekið að sér“ skiptinema, til að mynda
frá því landi sem stefnan er tekin á að
heimsækja. Kallast þetta „buddy“ verk
efnið og hefur gefið mjög góða raun.
„Það er góður undirbúningur að kynn
ast nemanda frá því landi sem stendur
til að heimsækja. Bæði til að fá góð ráð
varðandi námið og ekki síst til að æfa
sig í viðkomandi tungumáli.“
En frá hvaða landi koma flestir er
lendu skiptinemanna? „Frá Þýska
landi, ekki spurning. Það er auðvitað
stórt land en svo virðist Ísland einnig
vera í tísku þar,“ segir Óskar að lokum.
bjorn@dv.is
n Íslenskir skiptinemar hafa aldrei verið fleiri n Flestir nýta sér Erasmus-áætlunina og
fara til Evrópu n Mikilvægt að undirbúa sig vel, segir verkefnisstjóri á Alþjóðaskrifstofu
Sífellt fleiri í skiptinám
Fjör á Alþjóðaskrifstofu
Starfsfólk tekur vel á móti stúd-
entum sem stefna á skiptinám.
Er barnið tilbúið
fyrir fyrsta bekk?
Kenndu stafina
Barnið þarf ekki að vera fluglæst
en það er ágætis undirbúningur að
kunna að skrifa nafnið sitt. Litlir
stafir eru algengastir en ekki gleyma
hástöfunum! Skapaðu skemmtilegan
leik með barninu á meðan þið lærið
stafina. Færið ykkur svo yfir í tölu
stafi og kenndu barninu að skrifa
símanúmerið ykkar.
Hvettu til sjálfstæðis
Kann barnið að klæða sig sjálft? Get
ur það farið á klósettið hjálparlaust?
Vertu viss um að barnið viti hvar
útifötin eru geymd. Það er ekkert
skemmtilegt að týna eigunum sínum
fyrsta daginn. Verðlaunaðu góða
umgengni með límmiðum. Passaðu
samt að setja ekki of mikinn þrýst
ing. Lítil skref eru best.
Lífsleikni
Bjóddu barninu með þér næst
þegar þú þarft að sinna erindum og
ræddu við það um lífið og tilveruna
á leiðinni. Útskýrðu af hverju þú ferð
með póstkortið á pósthúsið og hvað
deildirnar í kjörbúðinni heita. Al
mennur skilningur á lífinu og tilver
unni er góður undirbúningur fyrir
fyrsta skóladaginn. Hvettu barnið til
að ræða um söguna sem þið lesið á
kvöldin. Hvaða kafli var skemmtileg
astur? Stöðvaðu lesturinn og spurðu
barnið hvað það haldi að muni næst
gerast í sögunni.
Vektu áhuga
Mundu hvað þú varst spennt/ur
þinn fyrsta skóladag í nýju skóla
fötunum og troðfulla skólatösku af
spennandi hlutum. Vektu upp áhuga
hjá barninu með því að bjóða því
með í verslunarferð fyrir skólann.
www.tskoli.is
Auktu möguleika þína
Rekstur og stjórnun í
atvinnulífinu
Flugrekstrarfræði 46 einingar.
• Námið er sniðið að þörfum starfsmanna í flug-
tengdum rekstri og tekur tvö ár í dreifnámi með
staðlotum.
Útvegsrekstrarfræði 46 einingar.
• Námið er sniðið að þörfum sjávarútvegarins og
tekur tvö ár í dreifnámi með staðlotum. Útvegs-
rekstrarfræði hentar þeim sem hafa starfsmenntun
og reynslu úr sjávarútvegi.
Rekstur og stjórnun, almenn lína 46 einingar.
• Námið hentar starfsfólki af öllum sviðum atvinnu-
lífsins sem hefur lokið starfsmenntun eða sam-
bærilegri menntun. Námið tekur tvö ár í dreifnámi
með staðlotum.
Nám í rekstri og stjórnun í atvinnulífinu er þróað af
Tækniskólanum í samstarfi við Háskólann í Reykjavík
og er til viðurkenndra háskólaeininga. Inntökuskilyrði
eru starfsmenntun, stúdentspróf eða sambærilegt
nám.
Innritun er til 14. ágúst á www.tskoli.is.
Lýsingarfræði
Námið er 60 framhaldsskólaeiningar (fein) og tekur
tvö ár. Námið er skipulagt í samvinnu við PLDA,
Professional Lighting Design Association. Námið
tekur tvö ár í dreifnámi með staðlotum. Námsmat
byggir á raunhæfum verkefnum.
Innritun er til 25. ágúst á www.tskoli.is. Kennsla
hefst 5. september.
Meistaraskólinn
Nám til iðnmeistara í öllum iðngreinum.
Námið er dreifnám, þ.e. fjarnám með staðlotum.
Kennsla hefst 5. september. Ath! Haustið 2012
tekur ný námskrá gildi fyrir iðnmeistaranám.
Innritun lýkur 22. ágúst og þann dag verður aðstoð
við innritun í matsal nemenda á Skólavörðuholti
kl. 16:00 – 18:00. Innritun á www.tskoli.is
Nánari upplýsingar fást í Endurmenntunarskólanum,
s. 514 9601 eða á amp@tskoli.is og á vef skólans
www.tskoli.is