Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.2011, Qupperneq 36
36
H
áskóli Íslands heldur upp
á hundrað ára afmæli sitt í
ár. Skólinn var settur í fyrsta
sinn 17. júní 1911, á aldar-
afmæli Jóns Sigurðssonar. Presta-
skólinn, Læknaskólinn og Lög-
fræðiskólinn voru þá sameinaðir og
heimspekideild bætt við. Langþráð-
ur draumur um íslenskan háskóla
hafði ræst.
Löng barátta fyrir háskóla
Hugmyndir um íslenskan háskóla
má rekja allt til 1828. Baldvin Ein-
arsson viðraði hugmyndina í ritgerð
sinni það ár og Tómas Sæmundsson
og Jón Sigurðsson héldu þeim hug-
myndum sömuleiðis á lofti í kjöl-
farið. Jón lagði fram bænarskrá á
Alþingi árið 1845 sem fól í sér stofn-
un þjóðskóla sem veitti embættis-
mannspróf í lögfræði, læknisfræði og
guðfræði. Prestaskóli var stofnaður
tveimur árum síðar og var þá vísir að
háskóladeild. Læknaskóli var stofn-
aður 1876, en Jón Hjaltalín land-
læknir hafði þá um árabil barist fyr-
ir stofnun skóla til að mennta lækna,
Lagaskóli komst hins vegar ekki á fót
fyrr en 1908.
Það var árið 1881 sem fyrsta laga-
frumvarp um stofnun Háskólans var
lagt fram. Benedikt Sveinsson lagði
fram frumvarpið sem var samþykkt í
neðri deild Alþingis en óafgreitt í efri
deild. Fleiri frumvörp fylgdu í kjölfar-
ið en án árangurs. Árið 1907 skoraði
Guðmundur Björnsson landlæknir á
landsstjórn að semja nýtt frumvarp
um stofnun Háskólans. Frumvarpið
var svo lagt fram á Alþingi 1909 en
það var að norskri fyrirmynd. Það
var samþykkt á alþingi sama ár en
það var hins vegar ekki fyrr en tveim-
ur árum síðar að Háskólinn var sett-
ur í fyrsta sinn.
Enginn í heimspeki-
deild í upphafi
Það var hátíðleg stemning á Alþingi
þegar Háskólinn var settur. Athöfnin
byrjaði á kórsöng undir stjórn Sig-
fúsar Einarssonar og þá las Klem-
ens Jónsson landritari upp ham-
ingjuóskir frá Friðriki VIII konungi.
Þá hélt Björn M. Olsen, fyrsti rektor
Háskólans, ræðu eftir að hafa látið
hrópa nífalt húrra fyrir konungi og
gerði hann meðal annars hlutverk
Háskólans að umtalsefni.
45 nemendur hófu nám í Háskól-
anum fyrsta starfsárið. Fimm í guð-
fræði, 23 í læknisfræði og 17 í lög-
fræði. Enginn nam hins vegar við
heimspekideild en hún var eina
deildin sem ekki veitti embættis-
mannapróf en undir deildina féllu
meðal annars íslensk fræði. Meðal
nemenda Háskólans var ein kona,
Kristín Ólafsdóttir, og var hún bæði
fyrst kvenna til að nema við Háskól-
ann og fyrst kvenna til að ljúka prófi
þaðan. Í dag eru konur hins vegar í
meirihluta nemenda í Háskólanum.
Þá lauk Tryggvi Þórhallsson, seinna
forsætisráðherra, embættismanna-
prófi í guðfræði eftir fyrsta starfsárið,
með hæstu einkunn þeirra þriggja er
luku því.
Fyrstu árin fór starfsemi Háskól-
ans fram í Alþingishúsinu. Það var
ekki fyrr en 1940 sem Háskólinn
flutti starfsemi sína í aðalbygginguna
en hornsteinn var lagður að bygging-
unni 1. desember 1936 en fyrsti des-
ember er enn í dag haldinn hátíð-
legur í Háskólanum. Fjárveitingar til
Háskólans voru af skornum skammti
og því var samþykkt á Alþingi 1933
að gefa Háskólanum leyfi til að reka
happdrætti sem starfar enn í dag.
Þannig var aðalbyggingin reist fyrir
fé frá Happdrætti Háskólans og síðan
þá hafa allar byggingar verið reistar
fyrir fé frá happdrættinu.
Vegleg afmælisdagskrá
allt árið
Háskólinn hefur nú þegar staðið fyr-
ir veglegri afmælisdagskrá það sem
af er ári og mun áfram standa að
ýmsum viðburðum í tilefni afmælis-
ins. Hvert svið innan Háskólans fær
sinn mánuð. Til dæmis fékk hugvís-
indasvið marsmánuð og stóð fyrir
veglegri dagskrá þar sem boðið var
meðal annars upp á fyrirlestrahlað-
borð, örnámskeið, kvikmyndasýn-
ingar og skemmtanadagskrá með
fræðilegu ívafi.
Þá var hátíðardagskrá 17. júní þar
sem minnismerki var afhjúpað í Al-
þingishúsinu og sýning um sögu Há-
skólans var opin almenningi sama
dag í húsinu.
Afmælisdagskrá HÍ mun halda
áfram og skipuleggur stúdentaráð
nú listahátíð þar sem nemendum er
gefinn kostur á að koma fram.
Háskólinn 100 ára Háskóli Íslands
fagnar aldarafmæli í ár. Aðalbygg-
ingin var reist fyrir happdrættisfé og
tekin í notkun 1940.
Alþingishúsið Háskólinn var til húsa í Alþingishúsinu fyrstu 29 árin.
Aldarafmæli HÍ fagnað
ÚTSÖLULOK
laugardag 11-16
25-60%
afsláttur
Lín Design Laugavegi 176, gamla sjónvarpshúsið Sími 533 2220 www.lindesign.is