Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.2011, Síða 42
Þ
að má eflaust til sanns veg-
ar færa að saga bandaríska
raðmorðingjans Michaels
Bruce Ross sé sorgarsaga
í tvennum skilningi; ann-
ars vegar er það bakgrunnur Ross
og ofbeldið sem fylgdi bernsku hans
og, síðar meir, saga manns sem varð
heltekinn af ofbeldishugsunum og
nauðgaði og myrti átta ungar konur.
Michael Ross fæddist 26. júlí
1959, í Putnam í Connecticut. For-
eldrar hans giftust þegar í ljós kom
að Pat, móðir hans, var þunguð að
honum. Hjónabandið ku ekki hafa
verið hamingjuríkt, fjölskyldan bjó
á sveitabæ og Pat hugnaðist ekki sú
tilvera. Eftir að hafa eignast fjögur
börn og farið í tvígang í fóstureyð-
ingu yfirgaf hún börn og eiginmann
og fór til Norður-Karólínu til að vera
með öðrum karlmanni.
Síðar, þegar búið var að leggja
Pat inn á geðsjúkrahús, viðurkenndi
hún að hafa gengið í skrokk á börn-
um sínum.
Michael bar þungann
Systir Michaels sagði síðar að hann
hefði borið þungann af bræðisköst-
um móður þeirra, því þrátt fyrir að
þau sættu öll barsmíðum af hennar
hálfu fékk Michael versta og stærsta
skammtinn. Til að bæta gráu ofan á
svart eru taldar sterkar líkur á því að
Michael hafi sætt kynferðislegu of-
beldi af hálfu frænda síns sem átti að
passa hann þegar þess þurfti.
Reyndar sagði Michael að hann
myndi lítið eftir kynferðislegri mis-
notkun, en hann myndi hins vegar
vel eftir þeirri ánægju sem hann fékk
út úr því að hjálpa föður sínum við
búverkin.
Þegar áðurnefndur frændi framdi
sjálfsmorð féll það í hlut Michaels að
lóga sjúkum og afmynduðum kjúk-
lingum. Þegar þar var komið sögu
var hann átta ára. Þegar Michael elt-
ist þurfti hann að axla sífellt meiri
ábyrgð á búinu og það breyttist ekki
eftir að hann byrjaði í menntaskóla.
Michael fannst það ekki miður og
tókst með miklum ágætum að sam-
eina bústörf og nám, enda var hann
gæddur góðum gáfum og mældist
með greindarvísitöluna 122.
Syrtir í álinn
Árið 1977 hóf Michael nám í Cor-
nell-háskólanum og lagði stund á
landbúnaðarhagfræði. Hann byrj-
aði í sambandi með konu sem hann
dreymdi um að kvænast einn góðan
veðurdag. Þegar ástkona Michaels
varð þunguð og fór í fóstureyðingu
komu brestir í sambandið. Eftir því
sem samband þeirra versnaði, þeim
mun ofbeldisfyllri urðu hugarórar
Michaels.
Reyndar var það svo að félags-
hegðun Michaels hafði ávallt ver-
ið undarleg og hann hafði byrjað, af
einhverjum sjúklegum hvötum, að
fylgjast með ungum konum strax á
menntaskólaárunum. Síðari hluta
menntaskólaáranna, þegar hann
var enn í föstu sambandi, nauðgaði
hann í fyrsta skipti. Sama ár framdi
hann sitt fyrsta morð. Það gerði hann
þegar hann kyrkti stúlku eftir að hafa
nauðgað henni.
Síðar sagði Michael að hann hefði
fyllst hatri og sjálfsfyrirlitningu og
hefði reynt að svipta sig lífi en ekki
getað. Þess í stað strengdi hann þess
heit að skaða aldrei nokkra sál fram-
ar. Eins og síðar á eftir að koma í ljós
gekk Michael frekar brösuglega að
standa við það loforð.
Morð á morð ofan
Árin 1981 til 1984 myrti Michael Ross
átta konur, á aldrinum 14 til 28 ára,
í Connecticut og New York. Hinn 12.
maí 1981 myrti hann Dzung Ngoc
Tu, 25 ára háskólanema, og í janú-
ar 1982 banaði hann 17 ára stúlku,
Tammy Williams, í Connecticut.
Í byrjun mars 1982 féll Paula Per-
rera, 16 ára stúlka, fyrir hendi hans í
Walkill í Connecticut og þremur og
hálfum mánuði síðar hlaut 23 ára
kona, Debra Smith Taylor, sömu ör-
lög í Griswold.
Þann 19. nóvember 1983 myrti
Michael 19 ára stúlku, Robin Sta-
vinsky, í Griswold, en síðan virðist
sem hann hafi haldið að sér höndum
í tæpt hálft ár, en hann vann sér það
upp með því að myrða tvær stúlkur,
April Brunais, 16 ára, og Leslie Shel-
ley, 14 ára, 22. apríl 1984 í Griswold.
Síðasta morðið framdi Michael
13. júní sama ár þegar hann myrti 17
ára stúlku, Wendy Baribeault, í Gris-
wold.
Blá Toyota kom lögreglu
á sporið
Í kjölfar morðsins á Wendy Bari-
beault var rannsóknarlögreglumað-
urinn Michael Malchik settur yfir
rannsókn á morðunum. Vitni gátu
gefið bæði lýsingu á bifreið og öku-
manni sem þau töldu að hefði num-
ið Wendy á brott. Bifreiðin sem um
ræddi var blá Toyota og hófst Mal-
chik handa við að ræða við alla eig-
endur slíkra bifreiða á svæðinu. Sú
viðleitni leiddi hann að lokum til
nafna síns Ross, sem starfaði þá við
tryggingasölu.
Michael Ross var samvinnuþýð-
ur í þessu fyrsta óformlega viðtali og
segir sagan að hann hafi nánast hvatt
Malchik áfram með því að gefa óljós-
ar vísbendingar og upplýsti hann
meðal annars um fyrri brot sín.
Malchik ákvað að færa Micha-
el Ross niður á stöð til frekari yfir-
heyrslu og þegar þangað var komið
ræddu þeir saman líkt og gamlir vin-
ir um fjölskyldumál, vinkonur, kær-
ustur og lífið almennt.
Þegar upp var staðið játaði Micha-
el Bruce Ross brottnám, nauðgun og
morð á átta konum.
Gerist trúaður
Michael Ross var sakfelldur fyr-
ir að minnsta kosti fjögur morð og
var dæmdur til dauða 6. júlí 1987.
Hann eyddi næstu 18 árum á dauða-
deild og komst á þeim tíma í kynni
við konu að nafni Susan Powers, frá
Oklahoma. Susan trúlofaðist Micha-
el en sleit trúlofuninni árið 2003 en
heimsótti hann þó allt þar til hann
var tekinn af lífi.
Eftir að Michael var handtekinn
1984 gerðist hann einlægur kaþól-
ikki og hitti með reglulegu millibili
tvo presta þann tíma sem hann var
á dauðadeild. Hann studdi við bak-
ið á samföngum sínum og sá nauð-
stöddu barni í Dóminíska lýðveld-
inu farborða.
Michael Ross var andvígur
dauðarefsingu, sem enda átti ekki
samleið með trú hans. Engu að síður
mælti hann með sinni eigin aftöku
síðasta árið sem hann lifði. Sagði
hann að hann vildi hlífa aðstand-
endum fórnarlamba sinna við frek-
ari sársauka.
Um Ross var sagt að hann hefði
talið sig hafa hlotið fyrirgefningu
Guðs og að hann færi á betri stað
og enn fremur að aftöku hans yrði
ekki frestað án þess að aðstandend-
ur fórnarlamba hans þyrftu að þjást
enn frekar vegna málflutnings sem
slíkum fresti hugsanlega fylgdi.
Vivian Dobson, kona sem hann
var talinn hafa nauðgað, gerðist öt-
ull talsmaður gegn dauðarefsingum
með það fyrir augum að koma í veg
fyrir aftöku Michaels Ross.
Allt kom fyrir ekki og Michael
Ross var tekinn af lífi með banvænni
sprautu 13. maí 2005.
42 | Sakamál 12.–14. ágúst 2011 Helgarblað
„Reyndar sagði
Michael að hann
myndi lítið eftir kynferðis-
legri misnotkun, en hann
myndi hins vegar vel eftir
þeirri ánægju sem hann
fékk út úr því að hjálpa
föður sínum við búverkin.
Vel gefna Varmennið
n Michael Bruce Ross átti slæma bernsku n Elstur systkina sætti hann mesta ofbeldinu
af hálfu móður sinnar n Michael var bráðgáfaður en hugrenningar hans voru ofbeldisfullar
n Kvörtun norsks fjölskyldumanns vegna hávaða nágranna hafði örlagaríkar afleiðingar
Kostaði fjölskylduföður lífið
Þ
rjátíu og tveggja ára fjölskyldu-
faðir í Askim í Noregi hefði bet-
ur látið það vera að rölta yfir
götuna til að biðja nágranna
sína að draga aðeins úr hávaða og
látum aðfaranótt síðastliðins sunnu-
dags.
Óhætt er að segja að hann hafi ekki
mætt skilningi því áður en hann vissi
af höfðu tveir karlmenn á tvítugsaldri
gengi þannig í skrokk á honum að
flytja þurfti hann á sjúkrahús í Ósló.
Þar lést maðurinn af völdum áverka
sinna aðfaranótt mánudagsins.
Ofbeldismennirnir hafa verið
ákærðir fyrir banvænt ofbeldi auk
þess sem horft verður til strangara
refsiákvæðis vegna þeirrar staðreynd-
ar að tveir menn stóðu saman að bar-
smíðunum sem einnig teljast hafa
verið tilefnislausar.
Refsirammi fyrir sakfellingu í slík-
um málum heimilar fangelsisvist frá
sex árum allt að 21 ári.
Þegar lögreglan hafði yfirheyrt
mennina tvo var krafist fjögurra vikna
gæsluvarðhalds og þar af tveggja
vikna í algjörri einangrun.
Talsmaður norsku lögreglunnar
hefur verið varkár í yfirlýsingum enda
rannsóknarhagsmunir í húfi, eftir er
að yfirheyra fleiri og ekki útilokað að
fleiri kunni að verða ákærðir.
Á mánudaginn hafði norski vef-
miðillinn eftir Eirin Susan Simonsen,
lögfræðingi annars mannanna, að
skjólstæðingur hennar hefði veitt svör
við öllum spurningum lögreglunn-
ar hvað varðaði hans þátt í atvikinu.
Simonsen vildi ekki gefa upp hvern-
ig skjólstæðingurinn svaraði ákær-
unni, en sagði þó að hann væri sleg-
inn vegna málalykta þessa örlagaríku
nótt.
Thor Anders Smith Hoen, lögfræð-
ingur hins tvímenninganna, hefur
svipaða sögu að segja af sínum skjól-
stæðingi.
Atvikið átti sér stað í götu sem íbú-
ar bæjarins segja rólega, en þar býr að
stærstum hluta eldra fólk. Hin síðari
ár hefur færst í vöxt að ungt fólk flytji
til Askim, samkvæmt norska vefmiðl-
inum dagbladet.no.
Bæjarstjóri Askim er ómyrkur í
máli á Facebook-síðu sinni þar sem
hann tjáir sig um málið: „Hefur ekki
átt sér stað næg illska upp á síðkastið?
Og svo gerast svona atvik, eins og átti
sér stað í Askim í nótt. Óhugnanlegt.“
Michael Bruce Ross Var andvígur dauðarefsingu en vildi verða tekinn af lífi.
Vettvangur hins mannlega harmleiks í Askim í Noregi
Skjámynd af vef Verdens gang, vg.no.