Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.2011, Síða 43
Skrýtið | 43Helgarblað 12.–14. ágúst 2011
n Stórlaxar sem voru frægir, valdamiklir og ríkir n Eiga það
allir sameiginlegt að hafa klúðrað málum sínum hrikalega
Höfðu allt en
klúðruðu því
Jerry Lee Lewis Tónlistarmaðurinn Jerry Lee Lewis
naut gríðarlegra vinsælda á sjötta áratug liðinnar aldar. Hann var
einn af konungum poppsins. Ferill hans tók hins vegar snarpa dýfu
árið 1958 þegar upp komst að hann hefði kvænst þrettán ára gamalli
frænku sinni. Lewis hélt því fram að stúlkan væri fimmtán ára en
sjálfur var hann að verða 23 ára á þeim tíma. Aðdáendur hans snéru
baki við honum og útvarpsstöðvar hættu að spila lög hans. Ferill
hans náði sér aldrei á strik aftur, en þrátt fyrir það var hann tekinn
inn í Heiðurshöll rokksins (Rock and roll Hall of Fame) árið 1986. Árið
1988 var Jerry Lee Lewis úrskurðaður gjaldþrota.
Richard Nixon
Þó að Richard Nixon hafi tapað
naumlega fyrir John F. Kennedy
í bandarísku forsetakosning-
unum árið 1960 gafst hann ekki
upp og var kjörinn Bandaríkja-
forseti árið 1968. Nixon var
vinsæll til að byrja með og
bætti samskiptin við Sovétríkin
og Kína til muna. En svo kom
áfallið, Watergate-hneykslið.
Blaðamenn Washington Post
komust á snoðir um innbrot í
höfuðstöðvar Demókrata-
flokksins árið 1972. Síðar kom í
ljós að starfsfólk forsetans var
viðriðið innbrotið. Richard
Nixon sagði af sér embætti í
kjölfarið og er enn sem komið
er eini forsetinn í sögu
Bandaríkjanna sem sagt hefur
af sér embætti.
Andrew Fastow Snemma árs 2001
var bandaríska fyrirtækið Enron það sjöunda stærsta í
Bandaríkjunum. Hjá fyrirtækinu störfuðu 21 þúsund
manns og var starfsemi þess í 40 löndum. Í desember
sama ár var fyrirtækið úrskurðað gjaldþrota. í ljós kom
að um risastóra svikamyllu var að ræða. Andrew Fastow
var fjármálastjóri fyrirtækisins og var aðalmaðurinn á
bak við stórlega fegrað bókhald Enron. Sjálfur græddi
Fastow milljónir dala en upp komast svik um síðir.
Fastow var dæmdur í sex ára fangelsi og til að greiða
aleigu sína, 24 milljónir dala, í sekt.
Gerard Ratner Gerard Ratner græddi fúlgur fjár á skartgripa-
keðju sinni, Ratners, á síðari hluta tuttugustu aldar. Fyrirtækið gekk vel og
mokaði inn seðlum. Árið 1991 hélt Ratner erindi á fundi Institute of Directors í
Bretlandi, en um er að ræða félagsskap forstjóra og framkvæmdastjóra
stórfyrirtækja í Bretlandi. Á fundinum lét Ratner þau orð falla að sumar vörur í
verslunum hans væru algjört drasl. Sumt af því sem væri til sölu á háu verði
væri ódýrara en rækjusamloka. Rækjusamlokan mundi þó endast lengur. Hann
áttaði sig ekki á því að í salnum var blaðamaður og komust orð hans fljótlega í
bresku pressuna. Þetta olli algjöru hruni á hlutabréfum fyrirtækisins og
neyddist Ratner til að láta af störfum árið 1992, til þess eins að bjarga
fyrirtækinu frá gjaldþroti.
OJ Simpson OJ
Simpson átti glæsilegan feril í
amerísku NFL-deildinni á
sjöunda og áttunda áratug
síðustu aldar þar sem hann
sló hvert metið á fætur öðru.
Frægðarsól hans reis enn
hærra þegar hann lék í
vinsælum bíómyndum í lok
níunda áratugarins og í
upphafi þess tíunda, Naked
Gun-myndirnar má nefna í því
samhengi. Hann hafði allt;
peninga, útlit og frægð.
Árið 1994 var hann ákærður
fyrir að myrða eiginkonu sína,
Nicole Brown, og vin hennar,
Ronald Goldman, en var síðar
sýknaður. En svo kom áfallið.
Árið 2008 var hann ákærður
og sakfelldur fyrir mannrán,
árás og vopnað rán. Svo fór
að hann var dæmdur í 33 ára
fangelsi og getur hann sótt
um reynslulausn í fyrsta lagi
árið 2016.
Michael Carroll
Þetta var í raun dæmt til að fara til
fjandans. Árið 2002 vann Michael
Carroll, sem þá var 19 ára, 9,7 milljónir
punda, tæplega tvo milljarða króna á
núverandi gengi, í breska lottóinu. Í
stað þess að fara skynsamlega með
peningana sólundaði Carroll þeim í
alls konar vitleysu. Hann eyddi fúlgum
í fíkniefni og vændiskonur handa sér
og vinum sínum, lagði háar fjárhæðir
undir í fjárhættuspilum sem hann tap-
aði og keypti sér rándýra sportbíla og
skartgripi úr gulli. Carroll tókst að
eyða vinningsfénu á mettíma. Árið
2010, átta árum síðar, var hann
úrskurðaður gjaldþrota og er nú á
atvinnuleysisbótum.
Ben Johnson Kanadíski
spretthlauparinn Ben Johnson var á
hátindi ferils síns árin 1987 og 1988. Þá
setti hann tvö heimsmet í hundrað
metra spretthlaupi og vann til
gullverðlauna á Ólympíuleikunum í Seúl
árið 1988.
Aðeins þremur dögum síðar var hann
sviptur verðlaununum þegar niðurstaða
lyfjaprófs sem hann gekkst undir eftir
hlaupið lá fyrir. Í blóði hans fannst efnið
stanozolol sem er anabólískur steri.
Lewis var dæmdur í þriggja ára keppnis-
bann í kjölfarið en þrátt fyrir heiðarlegar
tilraunir hans til að keppa meðal þeirra
bestu tókst Johnson það ekki. Hann er
líklega einhver þekktasti frjálsíþrótta-
maður sögunnar til að falla á lyfjaprófi.
George Best George
Best er af mörgum talinn vera einn
besti knattspyrnumaður sögunnar, en
áfengið fór illa með þennan frábæra
leikmann sem lengst af lék með
Manchester United. Best var rekinn
frá United árið 1974, þegar hann var
einungis 27 ára. Best tilkynnti í
kjölfarið að hann væri hættur í
fótbolta, en hann snéri að vísu aftur á
völlinn og lék um tíma í Bandaríkjun-
um. Allan sinn feril glímdi Best við
spilafíkn, sótti stíft í vændiskonur og
var langt leiddur alkóhólisti. Heilsu
hans hrakaði og árið 2005 lést George
Best, 59 ára að aldri. Eftir situr
minning um frábæran knattspyrnu-
mann sem hefði náð miklu lengra ef
ekki hefði verið fyrir áfengið.
Jonathan Aitken Í apríl
1995 greindi breska blaðið The Guardian frá
því að Jonathan Aitken, þáverandi
aðstoðarfjármálaráðherra Bretlands, hefði
gerst sekur um brot í starfi þegar hann hafði
milligöngu um ólöglega vopnasölu til
Mið-Austurlanda. Aitken þvertók fyrir að
frétt blaðsins væri rétt og hélt blaða-
mannafund þar sem hann hótaði málsókn.
Fréttin fór í loftið og Aitken fór í mál.
Blaðamenn The Guardian höfðu hins vegar
unnið vinnuna sína því sönnunargögn sem
lögð voru fyrir dómstóla sýndu fram á sekt
Aitkens. Svo fór að hann var dæmdur í átján
mánaða fangelsi. Málsókn hans kostaði það
mikið að hann var nauðbeygður til að lýsa
sig gjaldþrota.