Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.2011, Síða 45
Fókus | 45Helgarblað 12.–14. ágúst 2011
Hvað er að gerast?
n Gæran á Sauðárkróki
Tónlistarhátíð Gæran á Sauðárkróki fer
fram dagana 12. - 13. ágúst. Tónleikarnir eru
haldni í sútunarverksmiðjunni, Loðskinni.
Meðal tónlistarmanna sem koma fram á há-
tíðinni eru: Múgsefjun, Blaz Roca, Morðingj-
arnir, Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar,
Valdimar, Sverrir Bergmann ásamt fjölda
annarra. Fimm heimildamyndir um íslenska
tónlist verða sýndar á hátíðinni í Sauðár-
króksbíói. Aðgangseyrir á hátíðina er 4.000
krónur fyrir báða dagana og innifalinn er
aðgöngumiði í bíó.
n Tosca í Keflavík
Óperan Tosca eftir Giacomo Puccini, ein
frægasta ópera allra tíma, verður flutt í
Keflavíkurkirkju á föstudagskvöldið. Fyrsti
hluti óperunnar verður fluttur í kirkjunni,
annar hluti í safnaðarheimili kirkjunnar og
sá þriðji í garðinum þar á milli. Áhorfendur
flytja sig á milli og taka þannig virkan þátt í
sýningunni. Tónlistarstjóri er Antonia Hevesi
og leikstjóri er Jóhann Smári Sævarsson.
Í aðalhlutverkum eru Bylgja Dís Gunn-
arsdóttir, Jóhann Friðgeir Valdimarsson,
Jóhann Smári Sævarsson, Bragi Jónsson,
Magnús Guðmundsson, Rósalind Gísladóttir
og Kristján Þorgils Guðjónsson.
n Clapton „tribute“- tónleikar
Tónleikar til heiðurs tónlistarmanninum
Eric Clapton verða á skemmtistaðnum
Sódómu á föstudagskvöldið. Flutt verða
mörg af hans bestu lögum, meðal annars
Layla, White Room, Sunshine of Your Love
og Cocaine. Tónleikarnir hafa tvisvar verið
haldnir á Akureyri en þetta er í fyrsta skipti
sem þeir eru í bænum. Húsið verður opnað
klukkan 22 og miðaverð er 1.500 krónur.
n Djasstónleikar í Hörpu
Aðrir tónleikar í tónleikaröð Munnhörpunnar
í Hörpu verða haldnir á laugardaginn. Þá
kemur fram kvartett gítarleikarans Ómars
Guðjónssonar. Aðrir meðlimir sveitarinnar
eru Ingi Björn Ingason, Helgi Svavar Helga-
son og Matthías Hemstock. Tónleikarnir
hefjast klukkan 15 og standa til 17. Tón-
leikarnir verða utandyra ef veður leyfir en
annars inni í Munnhörpunni í anddyri Hörpu.
Aðgangur er ókeypis.
n Góðir landsmenn með ball
Ballhljómsveitin Góðir landsmenn ætla
að skemmta landsmönnum á Spot bæði
föstudags- og laugardagskvöld. Hljóm-
sveitin leggur upp með að spila hress og
dansvæn lög sem koma öllum í stuð.
n Chopin á Gljúfrasteini
Kristján Karl Bragason kemur fram á
sunnudag á stofutónleikum á Gljúfra-
steini. Hann flytur Sónötu númer 3 eftir
Chopin. Tónleikarnir hefjast klukkan 16 og
aðgangseyrir er 1.000 krónur.
12
ágú
Föstudagur
13
ágú
Laugardagur
14
ágú
Sunnudagur
„Ég get bara sagt það að við vorum
að panta þriðja upplagið því hin tvö
hafa selst upp.“
En bjóst Ragnar við svona við-
tökum? „Já, við gerðum það eigin-
lega. Þegar við byrjuðum að spila
saman þrír voru viðbrögðin þann-
ig að þetta var eitthvað sem hitti í
mark. Svo tókum við túr heima árið
2009 þar sem við spiluðum nánast
í hverjum bæ í meira en tvær vikur.
Hvarvetna sem við spiluðum var
fólk alveg rosalega ánægt með okk-
ur. Svo er þetta fólk á öllum aldri
sem fílar Árstíðir. Allt frá ungum
stelpum upp í gamla kalla. Þannig
að við höfum mjög stóran mark-
hóp,“ segir Ragnar.
Komnir með „stúdíó tan“
Önnur plata Árstíða er væntan-
lega seinna á árinu en sveitin hefur
unnið ásamt Ólafi Arnalds að sinni
annarri breiðskífu. „Við höfum eitt
öllu sumrinu í upptökur. Þess vegna
erum við komnir með þetta fína
„stúdíó tan“. En veðrið hér í Prag er
mjög gott þannig að kannski fáum
við smá alvöru „tan“ núna. Við tók-
um upp þrettán lög og líklega rata
tólf þeirra á plötuna. Hún er á loka-
stigum hljóðblöndunar og verður
gefin út í október,“ segir Ragnar.
Árstíðir fara nýjar leiðir á sinni
annarri plötu. „Það verða fetaðar
nýjar brautir. Tónlistin vill fara í
allar áttir og ekkert alltaf endilega
þangað sem var gert ráð fyrir. Það
eru náttúrulega sex lagahöfundar
í bandinu sem allir hafa mismun-
andi bakgrunn en hafa allir rödd.
Það skilar sér líka inn í lögin því þau
fara hingað og þangað. Bara eins og
Árstíðirnar. Platan mun koma fólki
svolítið á óvart og fara leiðir sem
fólk býst ekki við,“ segir Ragnar en
hvernig er að tækla sex mismun-
andi skoðanir á öllu?
„Við köllum bandið litla lýð-
ræðið. Það eru sex lagahöfundar
og hver og einn þeirra hefur sterk-
ar skoðanir. Við höfum gert í því
að hafa lýðræði í bandinu og það
þýðir að allir verða að vera um-
burðarlyndir. Það þarf að ræða all-
ar ákvarðanir í þaula en það þýðir
líka að þegar ákvörðun er tekin er
hún vel hugsuð. Annars eru allir
í hljómsveitinni bestu vinir og að
túra saman er bara eitt gott partí.
Eins og í gær í Prag. Að vera með
vinum sínum á sumarnóttu. Það
var ekkert leiðinlegt skal ég segja
þér,“ segir Ragnar.
Risatúr í Rússlandi
„Það er erfitt að segja að við horfum
til einhverrar einnar hljómsveitar,“
segir Ragnar aðspurður um hvort
Árstíðir sæki innblástur út á við.
Hann segir marga vilja meina að
Árstíðir líkist Seattle-hljómsveit-
inni Fleet Foxes sem einnig spil-
ar indí-popp með þjóðlagaívafi og
raddar sönginn.
„Við virðum það band alveg og
það er alls ekkert leiðinleg samlík-
ing. En ég held það sé meira að þeir
radda sönginn og það gerum við
líka. Þess vegna vilja margir meina
að við séum líkir þeim. Leyndar-
málið okkar er líka þessi raddaði
söngur. Fólki finnst alltaf gaman að
heyra fallegan, raddaðan söng.“
En hvað er svo á döfinni hjá sveit-
inni á næstu vikum? „Eftir að við
komum heim frá Tékklandi göng-
um við frá plötunni og förum svo til
Rússlands. Þar spilum við í tíu borg-
um að ótöldum öllum útvarpsvið-
tölunum og fleiru sem við munum
gera. Ég get ekki staðfest það en ég
held að þetta sé stærsti túr sem ís-
lensk hljómsveit hefur farið í Rúss-
landi. Málið er að við förum svo vítt
og breitt um landið. Umboðsmaður
okkar sem þekkir auðvitað vel til vill
meina að ekkert íslenskt band hafi
spilað svona vítt og breitt um Rúss-
land,“ segir Ragnar Ólafsson.
Á leið til Rússlands
Árstíðum er vel tekið í
Austur-Evrópu. aðSenD mynD
Hætti að spila FM og gaf út tímarit
Þ
etta kemur til með að koma
út annan hvern mánuð til
að byrja með,“ segir Heimir
Berg Vilhjálmsson, ritstjóri
veftímaritsins Kavalér, kavaler.is, en
fyrsta eintakið má nú sjá á vefsíð-
unni. Í Kavalér er fjallað um menn-
ingartengda viðburði, íþróttir og
almennt það sem er að gerast í þjóð-
félaginu en þó á léttan máta.
„Við erum ekkert að skrifa um það
sem er að gerast á Alþingi. Ekki nema
það sé með einhverjum skemmtileg-
um vinkli. Þetta á bara að vera létt af-
þreyingarblað,“ segir Heimir Berg.
Enn sem er vinna allir þeir sem
koma að blaðinu frítt en stefnan er
að fá auglýsingar og gera það stærra.
„Við vorum svona fimm til sex sem
komum að fyrsta eintakinu en ég
gerði svona 95 prósent af öllu. Stefn-
an er að búa til smá batterí í kringum
þetta en næsta blað kemur út eftir tvo
mánuði. Svo fer bara eftir því hversu
margir skoða þetta hvernig fer,“ segir
Heimir Berg en hver var kveikjan að
því að hann skellti sér í útgáfu?
„Ég var búinn að pæla í þessu
lengi. Mig hafði alltaf langað til að
skrifa eitthvað. Síðustu tvö ár hef ég
verið að vinna í hvalnum og ætlaði
að fara í það aftur þegar fæðingar-
orlofinu sem ég er í átti að ljúka. Svo
var hvalurinn blásinn af með frekar
stuttum fyrirvara þannig að þá setti
ég bara í fimmta gír. Ég hætti bara að
spila FM [Football Manager tölvu-
leikinn] og kýldi á þetta,“ segir Heim-
ir Berg Vilhjálmsson.
tomas@dv.is
Hætti í tölvunni og gaf út tímarit
Heimir Berg ritstýrir Kavalér. Blaðið má lesa
á kavaler.is.
n Fyrsta eintak vefritsins Kavalér komið út n Létt afþreyingarblað, segir ritstjórinn