Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.2011, Page 46
46 | Lífsstíll 12.–14. ágúst 2011 Helgarblað
San Francisco: Borg
með blóm í hári
Kalifornía hefur lengi verið
nokkurs konar paradís í hugum
fólks, þangað fer fólk í von um
að draumarnir rætist, í þessu
landi sem byggt er á draumum.
Og sá draumur sem helst knýr
fólk áfram er ameríski draum-
urinn sjálfur, draumurinn um
að verða ríkur og helst á einni
nóttu.
San Francisco er borg sem
öðru framar er byggð á einmitt
þeim draumi. Áður en hér var
bær reistu Spánverjar klaustur á
mörkum yfirráðasvæðis síns og
Rússa, sem sóttu að úr norðri frá
lendum sínum í Alaska. Minjar
eftir þá hafa fundist á svæði sem
nú nefnist Russian Hill og er eitt
ríkasta svæði borgarinnar, með
stórskostlegu útsýni yfir flóann
og niður hinar bröttu götur sem
sést hafa í bílaeltingaleikjum í
ótal kvikmyndum.
Gullgrafarar og mafíósar
Þegar Mexíkómenn fengu sjálf-
stæði frá Spáni réðu þeir Kali-
forníu um stund, en Bandaríkja-
menn tóku við eftir stríð sem
lauk árið 1848. San Francisco
var þá smábær með um 1.000
íbúa og hefði ef til vill áfram ver-
ið slíkur ef ekki hefði fundist gull
í grenndinni. Þetta leiddi til hins
mikla gullæðis árið 1849, sem
fótboltalið borgarinnar (eða lið
í því sem Bandaríkjamenn kalla
fótbolta), San Francisco 49ers,
er kennt við.
Sumir fundu vissulega gull,
en þeir sem helst urðu sér úti um
auðæfi voru þeir sem sáu um að
ráðstafa tekjum gullgrafaranna
og opnuðu vændishús, bari eða
búðir sem seldu námu varning. Í
kringum æðið óx borgin, en það
voru fleiri sem sýndu svæðinu
áhuga. Bandaríkjaher sá sér hag
í að byggja virki á Alcatraz-eyju
sem síðar varð að víðfrægu fang-
elsi. Mafíósinn Al Capone er lík-
lega þekktasti gesturinn sem þar
hefur dvalið. Í dag er fangelsið
safn og hægt að taka ferju þang-
að frá höfninni í Fisherman‘s
Wharf, en slíkar ferðir eru þétt-
setnar og betra að bóka með fyr-
irvara.
Það voru fleiri en gullgraf-
arar sem komu til San Franc-
isco í von um bættan hag. Levi
Strauss framleiddi gallabux-
ur fyrir kúreka jafnt sem gull-
grafara og hafði ágætt upp úr
því. George nokkur Hearst gafst
upp á gullinu en tókst á endan-
um að finna silfur. Sonur hans
William Randolph Hearst varð
fjölmiðlakóngur og fyrirmynd
Orsons Welles í kvikmyndinni
Citizen Kane, sem oft er tal-
in besta mynd allra tíma. Hægt
er að heimsækja sumarbústað
hans, Hearst Castle, sem er
nokkuð sunnan við borgina og
jafnvel stórhýsi íslenskra útrás-
arvíkinga virðast kofar saman-
borið við hann.
Menningarborg vestur-
strandarinnar
Borgin fór illa út úr jarðskjálfta
árið 1906 og það ásamt vel-
gengni kvikmyndaiðnaðarins í
Hollywood gerði það að verk-
um að Los Angeles tók fram úr
og varð stærsta borg Kaliforníu,
sem hún er enn þann dag í dag.
San Francisco hefur í staðinn
lagt kapp á að vera menningar-
höfuðborg fylkisins, sem ef til
vill má skilja sem sneið gegn
lágmenningu stórborgarinnar
stjörnubjörtu.
Los Angeles svaraði þó fyr-
ir sig þegar J. Paul Getty lista-
safnið var stofnað árið 1954 og
er betur statt fjárhagslega en
nokkuð annað listasafn, enda
var stofnandinn olíukóngur og
á sínum tíma ríkasti maður í
heimi. San Francisco hefur þó
reynt að endurheimta titilinn
og lítur á sig sem nokkurs kon-
ar New York vesturstrandarinn-
ar. Nýlistasafnið hér, SFMOMA,
sækir fyrirmynd sína til MOMA
í New York og er stærsta nýlista-
safn vesturstrandarinnar með
verk eftir Picasso, Andy War-
hol og Jackson Pollock til sýnis.
Ekki síður glæsilegt er Museum
of Fine Arts, og hér er einn-
ig stærsta asíska listasafn utan
Asíu, enda Kínahverfið hér það
stærsta utan Kína.
Á kreppuárunum héldu
fólksflutningar áfram til Kali-
forníu, eins og segir frá í skáld-
sögunni Þrúgur reiðinnar eftir
Steinbeck, sem bjó í nágranna-
bænum Salinas. Í seinni heims-
styrjöldinni varð San Francisco
að miðstöð fyrir hernaðarflutn-
inga til Kyrrahafsins sem ýtti
enn undir vöxt borgarinnar. Á
uppgangsárum sjöunda ára-
tugarins voru aftur margir sem
fluttu til Kaliforníu í atvinnuleit.
Aðrir innflytjendur áttu þó eftir
að vekja meiri athygli.
Dauði hippanna
Á sjöunda áratugnum varð Ha-
ight-Ashbury hverfið að mið-
stöð hippahreyfingarinnar. Jan-
is Joplin og meðlimir Grateful
Dead bjuggu þar auk ótal ann-
arra sem báru blóm í síðu hári.
Þau slógu í gegn 1967 á tón-
leikahátíð í Monterey rétt fyrir
sunnan. Það sumar, sem stund-
um er nefnt „sumar ástarinnar,“
náði hippamenningin í Hash-
bury, eins og hverfið var stund-
um kallað, hápunkti sínum.
Ungt fólk streymdi þangað
víðs vegar að úr Bandaríkjun-
um. Þessu fylgdu ýmis vandræði
þar sem hverfið gat með engu
móti tekið á móti öllum þess-
um fjölda. Eiturlyf tóku sinn toll
og glæpir jukust í kjölfarið. Um
haustið héldu íbúarnir minn-
ingarathöfn sem kölluð var
„Dauði hippans,“ til marks um
að það besta væri búið og hvöttu
fólk til að halda sig heima og búa
til hippahverfi annars staðar.
Hass og ís
Ef Solvang er smávaxin útgáfa af
Kaupmannahöfn, þá er Haight-
Ashbury nokkurs konar Krist-
janía þeirra Kana, áhugaverður
en þó um leið örlítið sorglegur
minnisvarði um það sem var
og það sem kannski hefði get-
að orðið. Hipparnir búa enn á
svæðinu í kringum hin frægu
gatnamót, en húsnæðisverð er
orðið talsvert hærra en það var
á dýrðardögunum. Í búðunum
eru seldir munir sem minna á
hippatímann og í sumum eru
seld verkfæri til að reykja með,
en þó er skýrt tekið fram að þar
sé ekki selt neitt til að reykja.
Fyrir utan ísbúðina Ben and
Jerry‘s stendur hippaklætt fólk
á stultum og kemur í ljós að það
eru ferðamenn frá Bretlandi að
vinna fyrir sér í sumarfríinu. Ís-
búðin var stofnuð af hippunum
Ben og Jerry á áttunda áratugn-
um og létu þeir hluta af innkom-
unni renna til góðgerðarmála.
Ronald Reagan Bandaríkjafor-
seti veitti þeim síðar verðlaun
fyrir að vera viðskiptamenn árs-
ins, og segir það kannski sitt um
hvernig fór fyrir hippadraumn-
um.
Sumum markmiðum
kynslóðarinnar sem ætlaði sér
að breyta heiminum var þó náð.
Það var hér sem Harvey Milk
varð fyrsti samkynhneigði mað-
urinn til að komast í borgar-
stjórn í Bandaríkjunum, eins og
segir frá í Sean Penn-myndinni
Milk. Castro-hverfið sem hann
bjó í laðar enn til sín samkyn-
hneigða víðs vegar að.
James Bond og brúin
Þekktasta tákn San Francisco
hlýtur þó að vera Golden Gate-
brúin sem birst hefur í ótal
kvikmyndum, svo sem A View
to a Kill, síðustu James Bond-
myndinni með Roger Moore
í aðalhlutverki. Þegar fram-
kvæmdum var lokið árið 1937
var hún stærsta hengibrú í
heimi, og þótt hún sé það ekki
lengur eru fleiri sem koma til
að taka myndir af henni en af
nokkurri annarri brú í heim-
inum.
Brúin á fleiri heimsmet, því
fleiri hafa framið sjálfsmorð þar
en á nokkrum öðrum stað. Tal-
ið er að um 1.200 manns hafi
kastað sér í ána fyrir neðan og er
það líklega vanáætlað þar sem
mörgum skolar út í sjó án þess
að líkin finnist nokkurn tímann.
Þeir sem ekki látast við fallið
frjósa í hel í vatninu fyrir neðan.
Það er nefnilega merki-
lega kalt í San Francisco. Sjáv-
arstraumarnir koma beint
frá Alaska og eru ein ástæða
þess að engum hefur tekist að
synda í land frá Alcatraz-eyju,
sem annars er glettilega stutt
frá landi. Sérstaklega er kalt á
brúnni sjálfri, sem oftast er hul-
in sjávarmóðu, en það hlýnar
snarlega eftir því sem lengra er
komið inn í land. Það er auð-
velt að sjá hverjir hér eru ferða-
menn. Flestir ferðalangar koma
hingað klæddir í lítið annað en
stuttermaboli og stuttbuxur, en
eru fljótir að kaupa sér túrista-
peysur merktar borginni sem
eru ódýrar og seldar víða.
Star Wars og San Quentin
Sé haldið yfir brúna kemur
maður yfir í Marin County, þar
sem höfuðstöðvar Star Wars-
leikstjórans George Lucas eru.
Búgarðurinn er þó ekki opinn
almenningi og ekki heldur hið
víðfræga San Quentin-fangelsi,
sem ólíkt Alcatraz er enn í fullri
notkun. Kannski segir það sitt
að fyrirtæki sem sérhæfir sig í að
gera hið óraunverulega raun-
verulegt er staðsett í grennd við
aftökudeildina í San Quentin,
þar sem raunveruleikinn blasir
við í sinni bitrustu mynd.
Lengra skal þó ekki haldið
í bili. Nóg hefur verið reynt og
dreymt í þessu landi þar sem
stutt er til stjarnanna og enn
styttra ofan í ískalt sundið fyr-
ir neðan. Ég held aftur á hót-
elið með pítsu í hönd. Það er
staðsett rétt við fátækrahverf-
ið, og þarf ekki nema að fara
yfir götuna til að vera kominn
inn í heim sem ber Bandaríkj-
unum miður fallegt vitni. San
Francisco er sú af stórborg-
um Bandaríkjanna þar sem er
hæst hlutfall heimilislausra og
hefur ástandið ekki batnað við
að sumum geðsjúkrahúsum
hefur verið lokað.
„Gefðu mér pítsu,“ seg-
ir maður þegar ég geng fram
hjá. Ég lít niður á vömbina
sem gægist út úr peysu minni
og ákveð að hann þurfi meira
á matnum að halda heldur en
ég. Bandaríski heimspeking-
urinn Emerson var þekktur
fyrir samúð sína með fátæk-
um og sagði að hending ein
réði því að hann væri sjálfur
ekki einn af þeim. Ef til vill er
ég heppinn að búa í landi sem
enn hefur starfandi velferðar-
kerfi. Bandaríkin eru stórkost-
legt land að sækja heim, en ég
er feginn að hafa ekki fæðst
þar.
Valur Gunnarsson
Ferðasaga Borgin þar sem
allt er bannað
San Francisco var höfuðborg hippanna,
borgin þar sem allt var leyfilegt, eins
og kemur fram í ótal sönglögum eins
og If You‘re Going to San Francisco (Be
Sure to Wear Flowers in Your Hair). Ekki
voru þó allir jafnhrifnir og íhaldsmenn
tóku til í borginni, að minnsta kosti á
táknrænan hátt, með kvikmyndunum
um Dirty Harry sem hikaði ekki við að
beita ofbeldi gegn hippum og öðrum
óþjóðalýð.
Í dag er borgin þó stundum nefnd „Ban
Francisco,“ vegna ýmissa banna sem
eru í gildi. Meðal þess sem hefur verið
bannað eru plastpokar, sykurdrykkir (á
opinberum stöðum), að sitja eða liggja
á gangstéttum og það að selja leikföng
með óhollum mat ætluðum börnum
eða gsm-síma án þess að tilgreina
geislavirkni þeirra. Einnig er bannað að
eiga viðskipti við fylkið Arizona, sem
þykir hafa brotið gegn mannréttindum
með innflytjendalögum sínum.
Sitt sýnist hverjum og misvel er farið
eftir reglunum, eins og gefur að skilja.
Einhver áhrif hefur þetta þó haft, og
skyndibitarisinn McDonalds hefur
nýlega tilkynnt að hann muni brátt
bjóða upp á hollari mat með leik-
föngum sínum.