Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.2011, Qupperneq 50
50 | Lífsstíll 12.–14. ágúst 2011 Helgarblað
Ný vefverslun
Reykjavík Fashion Journal er ný vef-
verslun. Þar verður til sölu tísku-
varningur á góðu verði – föt, skór
og skart. Konan á bak við síðuna er
Erna Hrund Hermannsdóttir sem
er að eigin sögn forfallinn eBay-
aðdáandi og kemur til með að
panta vörur í gegnum síðuna fyrir
tískuþyrsta Íslendinga. Hún leggur
áherslu á að bjóða upp á flottar
tískuvörur á viðráðanlegu verði.
Reykjavík Fashion Journal er ekki
einungis vefverslun því þar bloggar
Erna líka um tískutengda hluti og
lífið og tilveruna.
S
igurvegarinn fær hálfa millj-
ón í peningum og samning
við Reykjavík Runway í ár. Í
því felst að við þjónustum
fatahönnuði, þannig að þeir
geta úthýst verkefnum til okkar og
bjóðum við upp á sölu-, markaðs-
og rekstrarþjónustu, allt sem hönn-
uðir þurfa til að láta hjólin snúast,
allt fyrir utan hönnunarferlið sjálft,“
segir Ingibjörg Gréta Gísladóttir sem
stendur fyrir fatahönnunarkeppn-
inni Reykjavík Runway. Fjórir hönn-
uðir eða hönnunarteymi voru val-
in til úrslita en fjölmargir sóttu um.
Það er til mikils að vinna fyrir sigur-
vegarann því hann fær árssamning
við Reykjavík Runway sem kemur til
með að þjónusta hönnuðinn við að
koma hönnun sinni á markað.
Faglega valið
Hönnuðirnir sem komust áfram
úr undankeppninni voru valdir af
dómnefnd skipaðri af Fatahönnun-
arfélagi Íslands. „Við lögðum mikla
áherslu á að hafa þetta sem fagleg-
ast. Við vildum hafa þetta faglega
keppni á faglegum forsendum.“
Fjórir hönnuðir voru valdir. „Þeir
hönnuðir sem valdir voru eru Harpa
Einarsdóttir sem hannar undir nafn-
inu Ziska, Eygló Margrét Lárusdóttir
sem hannar undir nafninu Eygló,
Sólveig og Edda Guðmundsdætur
sem eru með Shadow Creatures og
svo er Rosa•Bryndis design en að
baki því eru þær Rosa Winther Den-
ison og Bryndís Þorsteinsdóttir.“
Hugmyndin kviknaði í
Hugmyndahúsinu
Ingibjörg segir hugmyndina að
keppninni hafa kviknað í Hug-
myndahúsi háskólanna. „Ég var
framkvæmdastjóri í Hugmyndahúsi
háskólanna og var í fyrra með vinnu-
smiðjur fyrir fatahönnuði og áttaði
mig þá á þeirri þörf fyrir þjónustu sem
þessari til uppbyggingar fyrir þann
geira. Það vantaði einnig viðskipta-
lega þekkingu og annað tengt því. Svo
fengum við styrk frá Vinnumálastofn-
un í sumarátaki hennar til að vinna
að uppbyggingu fatahönnunarfyrir-
tækja. Þá lokaði Hugmyndahúsið því
miður og fannst mér tækifærið alltof
dýrmætt fyrir bransann til að láta það
detta upp fyrir. Ég var komin með sex
manns í vinnu til þess að vinna að
uppbyggingunni og gat ekki hugs-
að mér að láta þetta detta upp fyrir.
Þannig að ég ákvað að fara sjálf áfram
með þetta, bara kýla á það.“
Unnið samkvæmt
hönnunardagatali
Hún fékk með sér stuðningsaðila sem
hjálpuðu til við fjármögnun keppn-
innar. „Ég fékk stuðningsaðila til liðs
við mig og bjó til keppni í kringum
þetta til að gera þetta meira spenn-
andi. Aðalstuðningsaðilinn okkar er
Mercedes Benz á Íslandi en Benz hef-
ur lengi vel tengt sig við tískubrans-
ann. Okkur var alls staðar vel tekið og
þetta hefur tekist vonum framar með
hjálp góðs fólks.“
Í allt sumar hefur hópurinn unn-
ið fyrir fatahönnuðina í húsnæði
Listaháskóla Íslands. „Listaháskólinn
skaut yfir okkur skjólshúsi því við vor-
um náttúrulega ekki með húsnæði.
Þar voru nemendur í sumarfríi og við
fengum að nota eina stofuna.“
Hönnuðirnir og aðstoðarmenn
þeirra hafa unnið samkvæmt hönn-
unardagatali sem sérstaklega var búið
til af Reykjavík Runway. „Við vinnum
samkvæmt hönnunardagatali sem við
bjuggum til. Þar er öll vinnan sett upp
á ársgrundvelli og við skipuleggjum
okkur út frá því. Við komum líka til
með að vinna áfram samkvæmt þessu
dagatali með vinningshafanum.“
Í spor Karls Lagerfeld
Úrslit keppninnar verða kunngerð
18. ágúst næstkomandi í Listasafni
Reykjavíkur. Þar verður afrakst-
ur sumarsins sýndur og einn vinn-
ingshafi krýndur. Einnig verður á
Menningarnótt sýnt frá afrakstri
sumarvinnunnar í Listasafninu. „Á
Menningarnótt sýnum við hönnuð-
ina á annan máta. Þá verður hægt að
skoða þetta frá hugmynd að veru-
leika. Það er svo margt þarna á bak
við sem þarf til að hlutirnir gangi
upp.“
Gífurlega góð verðlaun eru í boði
fyrir sigurvegarann eins og áður hef-
ur komið fram, og er þar helst að
nefna hálfa milljón ásamt árssamn-
ingi við Reykjavík Runway. Auk þess
ætlar Coke light að bjóða einum
hönnuði samning.
„Coke light ætlar að verðlauna
einn hönnuðinn með hönnunar-
samningi sem felst í því að hanna
útlit á Coke light flösku. Margir stór-
ir hönnuðir hafa gert það erlendis.
Til dæmis Karl Lagerfeld, Manolo
Blahnik og nú verður í fyrsta skipti
valinn íslenskur hönnuður til þess.“
viktoria@dv.is
n Fá hálfa milljón og árshjálp frá Reykjavík Runway n Einn Coke light sigurvegari
valinn sem fær að hanna utan á flösku n Vinna samkvæmt hönnunardagatali
Fjögur
merki
keppa
til úrslita Uppbygging innan bransans Ingibjörg Gréta segist hafa orðið vör við þörf fyrir uppbyggingu innan fatahönnunarbransans.
myndiR: GUnnaR GUnnaRsson
Hönnuðirnir Hér eru hönnuðirnir sem keppa til úrslita samankomnir. Frá vinstri Edda
Guðmundsdóttir, annar hönnuðurinn að baki Shadow Creatures, Rosa Winther Denison
og Bryndís Þorsteinsdóttir, að baki Rosa•Bryndis, Harpa Einarsdóttir, hönnuðurinn að baki
Zisku og Eygló Margrét Lárusdóttir, sem hannar undir nafninu Eygló. Á myndina vantar Sól-
veigu Guðmundsdóttur, annan hönnuð Shadow Creatures.
Á fullu við undirbúning Keppnin er
haldin í næstu viku og þegar ljósmyndara
bar að garði var allt á fullu í undirbúningi. Hér
sést hönnuðurinn Eygló Margrét Gísladóttir
fylgjast með förðuninni.
Tískusystur
halda markað
Tískusysturnar Elma Lísa og Nína
Björk Gunnarsdætur ætla að halda
fatamarkað á laugardaginn. Markað-
urinn verður haldinn að Lindargötu
6 í Reykjavík, í hvítu húsi bak við
Þjóðleikhúsið. Systurnar eru miklir
tískuspekúlantar og því má búast við
miklum gersemum á markaðnum.
Nína hefur verið búsett í Lúxemborg
undanfarið þar sem hún starfar sem
ljósmyndari en ákvað að rýma til í
fataskápnum í fríinu. Hægt verður
að gera góð kaup á kjólum, kápum,
pelsum, jökkum, höttum og ýmsu
fleira. Það verður heitt á könnunni
fyrir gesti markaðarins og lofa þær
góðum móttökum og mikilli stemn-
ingu.
Heltekin af sígaunum
n myndir frá tískubrúðkaupi ársins í Vogue
T
ískugyðjan Kate Moss er á for-
síðu septemberútgáfu banda-
ríska Vogue. Myndirnar úr
viðtalinu þykja einstaklega
fallegar en það var vinur Kate, ljós-
myndarinn Mario Testino, sem
myndaði hana á brúðkaupsdaginn.
Hann hefur myndað hana frá því
hún var 16 ára gömul og ferillinn ný-
byrjaður. Það er afar gott samband
milli Kate og Mario og þykja mynd-
irnar sanna það því sjaldan hafa sést
fallegri myndir af henni.
Kate giftist Jamie Hince þann 1.
júlí síðastliðinn. Hún segir í viðtal-
inu í Vogue að hún sé yfir sig hrif-
in af sígaunum og þeirra menningu
og tísku og það hafi haft áhrif á það
að þau ákváðu að gifta sig. Hún seg-
ir sígauna stelpur þurfa að gifta sig
snemma því þær mega ekki gera
neitt fyrr en þær eru orðnar gift-
ar konur. Hún segir það hafa verið
ástæðu þess að hún ákvað að giftast
James. „Ég horfði á hann og hugsaði:
því ekki. Þær giftast 16 ára, við ætt-
um að vera gift,“ segir Kate í viðtal-
inu. Hún er yfir sig ástfangin að eigin
sögn og myndirnar þykja sanna það
því Kate virkar afar hamingjusöm og
ástfangin að sjá á myndunum.
náið samband Kate
og Lila Grace dóttir
hennar eru afar nánar.
Þessi fallega mynd
birtist af þeim í Vogue,
Ástfangin Jamie og Kate
eru yfir sig ástfangin og þykja
myndirnar sýna það glöggt.
Falleg Ljósmyndarinn Mario Testino er náinn vinur Kate og tók þessar myndir af brúðhjónunum. Þær þykja einstaklega fallegar.