Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.2011, Qupperneq 52
52 | Tækni 12.–14. ágúst 2011 Helgarblað
hiPhone 5
seldur í Kína
Nýjasta útgáfa iPhone-símans
vinsæla frá Apple er komin í
verslanir í Kína. Það er að segja
fölsuð útgáfa af honum. Síminn,
sem gengur nú undir nafninu
hiPhone 5, en ekki iPhone 5, er
seldur fyrir litlar 200 yuan, sem
jafngildir um 3.600 krónum.
Síminn er seldur í netversluninni
Taobao en í sömu verslun fæst
dýrari útgáfa af símanum sem
kostar 800 yuan, sem jafngildir
um 14.500 krónum. Sá sími er
sagður „meira alvöru“ að því er
Reuters hefur eftir kínverskum
farsímasala í Shanghai. Hönnun
símans byggir á sögusögnum af
því hvernig nýi iPhone 5 síminn
mun koma til með að líta út.
Það er að segja, hann er þynnri
og ekki með jafn bogadregnum
hornum og iPhone 4.
Ný spjaldtölva
fyrir dagblöð
Bandaríska útgáfufyrirtækið
Tribune Co. hefur hafið vinnu
við þróun á nýrri spjaldtölvu.
Ætlar útgáfufyrirtækið, sem er
eitt stærsta í útgáfubransanum
í Bandaríkjunum, að nota tölv-
una til að koma lesendum til
að lesa stafræna útgáfu af dag-
blöðum sem það gefur út. Með-
al þessara dagblaða eru Chi-
cago Tribune, The Baltimore
Sun og L.A. Times. Samkvæmt
frétt CNN af málinu ætlar fyrir-
tækið að bjóða tölvuna ókeypis
eða á mjög vægu verði fyrir þá
sem samþykkja að gerast áskrif-
endur að einhverju blaðanna
sem fyrirtækið gefur út.
Angry Birds-
matreiðslubók
Finnski tölvuleikjaframleiðand-
inn Rovio, sem stendur á bak við
snjallsímaleikinn Angry Birds,
hyggst gefa út matreiðslubók
undir merkjum Angry Birds. Ætl-
unin er að gera einnig fjöldann
allan af öðrum vörum undir
merki tölvuleiksins vinsæla sem
sló fyrst í gegn þegar hann kom
út fyrir iPhone-snjallsíma. Mat-
reiðslubókin sem Rovio hefur í
smíðum heitir Bad Piggies’ Egg
Recipes, en eins og nafnið gefur
til kynna munu þar vera að finna
uppskriftir að eggjaréttum. Verða
réttirnir í bókinni allt frá hefð-
bundnum hrærðum eggjum til
framandi rétta á borð við eggja-
kulambu og eggja-sushi.
Verðmætast
í einn dag
Banda-
ríska tölvu-
fyrirtækið
Apple varð
í vikunni
verðmæt-
asta fyrir-
tæki heims. Tók Apple þá fram
úr olíufélaginu Exxon sem hefur
vermt fyrsta sætið á listanum.
Það var þó ekki lengi sem Apple
hélt fyrsta sætinu því sama dag
og það náði þessum árangri
féllu hlutabréf í félaginu. Þar
með var Apple aftur komið nið-
ur fyrir Exxon á listanum. Það
þýðir þó ekki að það muni vera
þannig áfram en vöxtur Apple
hefur verið gríðarlegur á undan-
förnum mánuðum og árum.
Þ
ýskur dómari sam-
þykkti kröfu banda-
ríska fyrirtækis-
ins Apple um að
suðurkóreska fyrirtækið Sam-
sung ætti ekki rétt á að selja
Galaxy Tab-spjaldtölvur sínar
innan Evrópusambandsins. Í
síðustu viku samþykkti ástr-
alskur dómari sambærilega
kröfu Apple þar í landi. Þetta er
mikilvægur áfangi fyrir Apple
sem mun að öllum líkindum
styrkja stöðu sína á spjald-
tölvumarkaðnum verulega við
þetta. Samsung hefur verið
einn harðasti samkeppnisaðili
fyrirtækisins á þessum nýja
markaði.
Bannið gildir aðeins tíma-
bundið og verður Apple að
sýna fram á að Samsung hafi
brotið á þeim einkaleyfum
sem Apple á. Fyrirtækin hafa
staðið í langvarandi deilum
um nokkurt skeið og hafa mál-
sóknir verið höfðaðar víða um
heim á báða bóga. Meðal þess
sem deilt er um er hönnunin
á Galaxy Tab-tölvunni en hún
er sláandi lík hönnun á iPad-
spjaldtölvunni frá Apple. Vilja
stjórnendur Apple meina að
Samsung hafi stolið hönnun-
inni.
Nái Apple að sýna fram á að
hönnuninni hafi í raun verið
stolið og að Samsung hafi not-
að einkaleyfisvarðar lausnir
Apple í Galaxy Tab mun bann-
ið verða staðfest og öll sala á
Galaxy Tab verður stöðvuð til
frambúðar. Það myndi hafa
mikil áhrif á suðurkóreska
tæknirisann en spjaldtölvu-
markaðurinn hefur farið ört
vaxandi á undanförnum mán-
uðum. Komist dómari hins
vegar seinna að þeirri niður-
stöðu að Samsung brjóti ekki
á neinum einkaleyfum mun
Apple þurfa að borga Samsung
skaðabætur vegna tapaðra
viðskipta.
Staða Apple á þessum
markaði mun að öllu líkindum
styrkjast við brotthvarf Sam-
sung af mörkuðum í Evrópu
og Ástralíu þó hugsanlega snúi
Samsung aftur til baka. Apple
hefur þegar náð góðri fótfestu
á þessum nýja markaði en fyr-
irtækið setti á markað fyrstu
spjaldtölvuna sem náði ein-
hverjum vinsældum.
Dómari samþykkir kröfur Apple
n Samsung bannað að selja Galaxy Tab í Evrópu
Aðalsteinn Kjartansson
adalsteinn@dv.is
Tækni
Tækni tvö Galaxy Tab og iPad þykja ansi lík tæki.
Apple þvingaði Amazon til að
breyta þjónustunni sem veitt
er í gegnum iOS-viðbót bóka-
búðarinnar með því setja
strangari reglur. Amazon var
ekki lengi að svara fyrir sig og
hefur nú opnað viðbót fyrir
öll stýrikerfi sem aðgengileg
er á netinu. Viðbótin er í raun
bara vefsíða byggð upp með
HTML5-vefstöðlum og er hún
hönnuð og þróuð fyrir Saf-
ari- og Chrome-vafra og hef-
ur verið gerð sérstök útgáfa af
viðbótinni sem hentar iPad-
spjaldtölvum frá Apple vel.
Á yfirborðinu er nýja
Kindle Cloud Reader viðbótin
keimlík Kindle iOS og Andro-
id-viðbótinni. Til að nálgast
allar þær bækur sem þú hefur
keypt í gegnum Kindle-versl-
unina þarftu einungis að skrá
þig inn á Amazon í gegnum
vefviðbótina. Þú þarft auð-
vitað að vera með virka net-
tengingu til að samhæfa tölv-
una við verslunina. Viðbótin
býður hins vegar upp á vist-
unarmöguleika sem gerir þér
kleift að nálgast þær bækur
sem þú hefur þegar sótt með
tölvunni í gegnum viðbótina
þegar þú ert ekki tengdur við
netið.
Allir geta notað viðbótina
Viðbótin var opnuð á mið-
vikudagsmorgun en viðbót-
in gerir notendum Amazon
kleift að bæði lesa bækur sem
þegar hafa verið keyptar og að
kaupa nýjar bækur. Bækurnar
eru svo aðgengilegar þrátt fyr-
ir að nettenging rofni. Þannig
hefur Amazon komið því fyr-
ir að viðskiptavinir sínir geti
notað iPad-tölvur sínar sem
lestölvur án þess að hala nið-
ur þar til gerðri viðbót. Það
eina sem þeir þurfa að gera er
að opna vefsíðuna read.ama-
zon.com og þá er viðbótin til-
búin.
Það á eftir að koma í ljós
hvernig Apple mun bregð-
ast við þessum breytingum
en fyrirtækið gæti allt eins
ákveðið að gera HTML5-við-
bætur óvirkar í Safari-vafra
iPad-spjaldtölvunnar frá fyr-
irtækinu. Þannig gæti fyrir-
tækið aftur þvingað fyrirtæki
og útgáfur til að hlíta reglum
fyrirtækisins. Það myndu þó
að öllum líkindum hafa ein-
hver áhrif á stöðu Apple á
spjaldtölvumarkaðnum.
Reglubreyting ástæða
viðbótarinnar
Líklegast verður að telja að
reglubreytingar sem Apple
gerði í App Store-markaðnum
fyrir viðbætur fyrir iOS-tæki
hafi komið Amazon á skrið
með nýju vefviðbótina. Nýju
reglurnar fólu í sér að ekki
mátti tengja yfir á vefverslan-
ir utan App Store til að kaupa
efni fyrir viðbætur. Amazon,
Barnes&Noble, Google Bo-
oks og Kobo fóru öll eftir fyr-
irmælum Apple og tóku út
tengil í lesviðbótum sínum
á vefverslanir. Það hafði í för
með sér miklar takmarkir fyrir
notendur viðbótanna sem nú
hafa verið leystar.
Fleiri fyrirtæki hafa notað
HTML5-vefsíður til að fara
fram hjá reglum Apple um
þær viðbætur sem fá að fara
inn á App Store-markaðinn.
Apple fer yfir allar viðbæt-
ur sem boðnar eru til sölu á
markaðssvæðinu og hefur
fyrirtækið sett víðtækar regl-
ur um hvernig viðbæturnar
séu uppbyggðar. Bandaríska
dagblaðið Wall Street Journ-
al sem er samkvæmt nýleg-
um tölum mest lesna dag-
blað heims setti til að mynda
nýverið af stað heimasíðu
byggða á HTML5-vefstöðlum
til að leysa af hólmi iOS-við-
bót blaðsins. Talsmenn Kobo
hafa að sama skapi tilkynnt að
þeir hafi sambærilega síðu í
vinnslu hjá sér.
n Amazon hefur opnað HTML5-vefviðbót fyrir iOS og Android-tæki n Komast þannig
fram hjá reglum Apple og Google n Skýþjónusta sem gerir allar tölvur að lestölvum
Amazon með
nýja vefviðbót
Aðalsteinn Kjartansson
adalsteinn@dv.is
Tækni „Bækurnar eru
svo aðgengi-
legar þrátt fyrir að
nettenging rofni.
Allir geta notað viðbótina Viðbótin sem Amazon hefur opnað er opin öllum með Chrome- eða Safari-vafra. Þá
er viðbótin einnig sérstaklega hönnuð með iPad-spjaldtölvur í huga. Mynd EyþóR áRnASOn