Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.2011, Qupperneq 64
Hleypur fyrir
UNICEF
n Verðlaunaleikkonan Unnur Ösp
Stefánsdóttir er dyggur stuðningsaðili
UNICEF, barnahjálpar Sameinuðu
þjóðanna, og ætlar hún að hlaupa
fyrir samtökin í Reykjavíkurmara-
þoninu sem fram fer um helgina.
Unnur Ösp hvetur fólk til að heita á
sig og styrkja þannig börnin í Austur-
Afríku. „Ég hleyp að sjálfsögðu fyrir
UNICEF, barnahjálp
Sameinuðu þjóð-
anna, stöndum
saman, heitið á
mig og styrkið
börnin í Aust-
ur-Afríku! Allir
saman nú!!!!“
skrifaði hún
á Facebook-
síðuna sína á
fimmtudag.
Verða þeir
ekki rukk-
aðir fyrir
klefana?
Leitar að íslenskri
Christinu Ricci
n Það er sannarlega líf og fjör í
kringum rithöfundinn og sjón-
varpskonuna Tobbu Marinósdóttur.
Í vikunni komst hún í fréttirnar
vegna heldur óskemmtilegrar lífs-
reynslu. Þegar hún kom að bílnum
sínum við Kringluna hafði óprútt-
inn aðili atað bílinn út í mannskít. Í
gær, fimmtudag, sendi hún svo frá
sér bloggfærslu þar sem hún segist
vera að leita að íslenskri stelpu sem
líkist leikkonunni Christinu Ricci. Sú
þarf að hafa ríka þjónustulund og
bjart bros. Það er engin lognmolla í
kringum Tobbu því nú styttist óðum
í að ný bók eftir hana komi út, en
bókin hennar
Makalaus sló í
gegn fyrir síð-
ustu jól.
Kántrí í borginni
n Selma Björnsdóttir, leik- og söng-
kona og leikstjóri, hefur getið sér gott
orð sem kántrísöngkona á undan-
förnum mánuðum.
Kántríplatan Alla
leið til Texas kom
út á síðasta ári
en Selma hefur
aldrei spilað
með kántrí-
bandinu sínu í
Reykjavík. Það
mun þó breyt-
ast 21. ágúst
næstkom-
andi þegar
hún hyggst
mæta
með
kántrí-
bandið
sitt á Rós-
enberg.
Þar ætlar
bandið að
flytja klassískar
kántríperlur.
T
ekið hefur verið á mismunun
sem viðgekkst lengi vel í Sund-
höll Reykjavíkur og DV greindi
fyrst frá. Þar virtist gilda óskrif-
uð regla um að láta útlendinga ekki fá
læsta klefa. Ástæða þess var sögð sú að
þeir ættu erfitt með að skilja hvernig
ætti að læsa þeim. Var þeim í staðinn
beint í læsta skápa.
Í kjölfar umfjöllunar DV tók Reykja-
víkurborg á málinu og er útlendingum
nú boðið upp á að velja á milli læstra
klefa og/eða skápa. Þetta hefur ekki
skapað eins mikinn glundroða og
forsvarsmenn Sundhallarinnar töldu.
Starfsfólkið segir erlendum gestum
einfaldlega frá því hvernig eigi að bera
sig að og samkvæmt heimildum DV
hefur allt gengið eins og í sögu.
Steinþór Einarsson, skrifstofustjóri
Íþróttasviðs ÍTR, staðfestir að starfs-
mannastjóri ÍTR hafi farið í Sundhöll
Reykjavíkur til þess að kanna málið.
Segir hann að ekkert athugavert hafi
verið við fyrirkomulagið í Sundhöll-
inni og þvertekur fyrir að kerfislæg
mismunun hafi viðgengist. DV greindi
frá málinu í síðasta mánuði og hringdi
meðal annars í Sundhöllina og ræddi
við óbreyttan starfsmann um málið.
Sagði starfsmaðurinn frá því að út-
lendingar ættu oft erfitt með að skilja
hvernig hurðirnar á klefunum virkuðu
og því væri mælst til þess að þeim væri
beint í venjulega skápa.
Fyrrverandi starfsmaður sem
DV ræddi við blöskraði mismun-
unin. „Þarna voru kannski fínar frúr
frá Bandaríkjunum að spyrja hvers
vegna þær gætu ekki fengið klefa
eins og Íslendingarnir og maður vissi
ekkert hvað maður ætti að segja.“
Starfsmaðurinn sagði það hafa verið
óskrifaða reglu að útlendingar fengju
ekki klefa. Í Sundhöllinni hefur lengi
verið haldið í íhaldssamar hefðir en
svo lengi sem menn muna hafa ein-
ungis konur starfað í afgreiðslunni og
karlar í sundvörslu. jonbjarki@dv.is
Útlendingar fá klefa
n Útlendingum boðið upp á að fá klefa í Sundhöllinni eins og innfæddum
Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HELGARBLAÐ 12.–14. ágÚST 2011 91. tbl. 101. árg. leiðb. verð 659 kr.
Mannréttindi virt Reykjavíkurborg hefur
tekið á því misrétti sem útlendingar voru
beittir í Sundhöll Reykjavíkur.