Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2011, Qupperneq 2
2 | Fréttir 30. september–2. október 2011 Helgarblað
Dagbjartur Heiðar
var ljúfur drengur
Ekkert mál
vakti jafn-
mikla athygli í
liðinni viku og
sjálfsvíg ellefu ára
drengs í Sand-
gerði, Dagbjarts
Heiðars Arnars-
sonar. Drengurinn
hafði verið lagður
í einelti frá sex ára aldri og glímdi
við þunglyndi og einhverfueinkenni.
Hann hafði áður reynt að svipta sig
lífi. Vinur fjölskyldu hans, Helgi Karl
Hafdal, sagði í viðtali við DV að Dag-
bjartur hefði verið „ljúfur drengur
og góður. Þetta var skemmtilegur
strákur sem átti það til að vera örlítið
stríðinn. Börn eru misgrimm, sum
gerðu ekkert, hjálpuðu hvorki honum
né gerendunum. Ég hugsa að það sé
erfiðast hjá þeim núna.“
Mun meira svigrúm
til afskrifta
DV greindi
frá því á
mánudaginn að
svigrúm til af-
skrifta hjá al-
menningi væri
mun meiri en
áður var talið.
Útlán íslensku
bankanna lækk-
uðu úr nærri 5.500 milljörðum
króna í september árið 2008 í 2.250
milljarða króna í október 2008 eða
um heil 60 prósent. Skuldir heimila
lækkuðu úr rúmlega 1.000 milljörð-
um króna í 585 milljarða króna eða
um 43 prósent. Í júlí á þessu ári voru
lán heimilanna síðan orðinn 53 pró-
sentum lægri en þau voru dagana
fyrir bankahrunið. Útlán til eignar-
haldsfélaga hafa lækkað um 85 pró-
sent frá september 2008.
„Ég má þetta – ég
á þig núna“
Mikla athygli
vakti saga
43 ára einstæðrar
móður sem leidd-
ist út í vændi eftir
að vinkona henn-
ar hvatti hana til
þess. Hún deildi
reynslu sinni af því
að stunda vændi
á Íslandi í ítarlegu viðtali við DV á
miðvikudag. Hún segist hafa slegið til
í þeirri von að hún gæti veitt börnum
sínum það sem þau þurftu. Konan
lýsti því hvernig hún hefði oft verið
óttaslegin og verið valdalaus. „Ef ég
ætlaði að kvarta eða stoppa eitthvað
af var mér sagt að halda kjafti, þeir
væru búnir að borga fyrir þetta og ég
væri drusla sem þeir mættu gera það
við sem þeir vildu. [...] Ég má þetta,“
sögðu þeir, „ég á þig núna“.“
Fréttir vikunnar í DV
2 | Fréttir
26. september 2011 Mánudagur
Mun Meira svigrúM til að
afskrifa hjá alMenningi
Ú
tlán íslensku bankanna
lækkuðu úr nærri 5.500
milljörðum króna í septem
ber árið 2008 í 2.250 millj
arða króna í október 2008
eða um heil 60 prósent. Skuldir
heimila lækkuðu úr rúmlega 1.000
milljörðum króna í 585 milljarða
króna eða um 43 prósent. Í júlí á
þessu ári voru lán heimilanna síð
an orðinn 53 prósentum lægri en
þau voru dagana fyrir bankahrun
ið. Líklega hafa þó fá íslensk heim
ili raunverulega fengið svo mikla
lækkun á lánum sínum. „Sláandi
upplýsingar,“ segir Vigdís Hauks
dóttir, þingmaður Framsóknar
flokksins, í samtali við DV. Óhætt
er að taka undir orð þingkonunnar
um að tölurnar séu sláandi. Um
ræddar tölur um útlán íslenskra
innlánsstofnana eru byggðar á
gögnum sem bönkum er skylt að
upplýsa Seðlabankann um mán
aðarlega.
Tölur um niðurfærslu bank
anna verða enn ótrúlegri þegar
skoðaðar eru tölur um íbúðalán
in. Íbúðalán bankanna lækkuðu úr
607 milljörðum króna í september
2008 í 311 milljarða króna í októ
ber 2008 og eru nú komin niður í
270 milljarða króna. Er það niður
færsla upp á heil 56 prósent. Því er
ljóst að þrátt fyrir að fleiri þúsund
viðskiptavinir hafi samið um svo
kallaða 110 prósenta leið eru lík
lega enn margir að borga miklu
hærri upphæð af lánum sínum en
bókfært virði þeirra hjá nýju bönk
unum segir til um.
Líkt og flestir þekkja voru nýju
bankarnir þrír, Arion banki, Ís
landsbanki og Landsbankinn
stofnaðir í október 2008 og því
sýna umræddar upphæðir fram á
hversu miklar niðurfærslur fóru
fram á milli gömlu og nýju bank
anna. Frá stofnun nýju bankanna
í október 2008 hafa þeir hagnast
um 163 milljarða króna. Er það
meira en fimm milljarðar króna í
hverjum einasta af þeim 32 mán
uðum sem þeir hafa verið starf
andi frá hruni. Heimildarmaður
sem DV ræddi við segir að fast
eignalán bankanna sem voru upp
á 607 milljarða króna í septem
ber 2008 hafi skipst nokkuð jafnt á
milli bankanna. Um fjórðungur hjá
Landsbankanum, fjórðungur hjá
Glitni, fjórðungur hjá sparisjóðun
um og síðan hafi Kaupþing verið
eitthvað stærri en hinir.
Þess skal getið að í lok árs 2008
færðust 105 milljarðar af lánum
sparisjóðanna til Íbúðalánasjóðs.
Því liggur skipting lánanna á milli
innlánsstofnana ekki fyllilega fyrir
í dag. Þá voru líka bréf frá Íbúða
lánasjóði í bókum bankanna upp
á 135 milljarða króna ofan á um
rædda 607 milljarða króna. Þar
sem um heildartölur fyrir innláns
stofnanir er að ræða sem ekki eru
útlistaðar niður á hvern og einn
banka og sparisjóð er erfitt að
greina ítarlega frá skiptingu þeirra
á milli.
Allar forsendur fyrir 20 pró-
senta niðurfærslu 2009
Vert er að rifja upp að þegar rætt
var um 20 prósenta niðurfærslu á
fasteignalánum landsmanna í að
draganda þingkosninganna vor
ið 2009 hafði íslenska ríkið yfirráð
yfir Arion banka, Íslandsbanka og
Landsbankanum. Á þeim tíma virð
ast bankarnir þegar hafa verið bún
ir af afskrifa íbúðalánin hjá sér um
50 prósent og því hefði þeim að
minnsta kosti átt að vera fært að
lækka fasteignalán til viðskiptavina
sinna um 20 prósent. Á þeim tíma
sögðu hins vegar bæði stjórnvöld
og stjórnendur bankanna að ekki
væri svigrúm til staðar til að fara í
svo umfangsmikla lækkun. Til þess
þyrfti þá að koma með aukið fé inn
í nýju bankana. Það að útlán vegna
fasteignalána hafi lækkað úr 607
milljörðum króna í september 2008
í 311 milljarða króna í október árið
2008, eða um 50 prósent, sýnir að
bankarnir voru vel aflögufærir til að
fara í umrædda 20 prósenta niður
færslu. Öðru máli gegnir hins veg
ar um Íbúðalánasjóð en nánar er
fjallað um hlutfallslega skiptingu
lántakenda á íslenska fasteigna
markaðinum í úttekt hér að neðan.
Mikil leynd ríkt um afskriftir
Háværar kröfur hafa verið um það í
n Útlán lækkuðu úr 5.500 milljörðum króna í september 2008 í 2.250 milljarða króna mánuði síðar n Útlán til eignarhaldsfélaga hafa lækkað um 85 prósent frá hruni
Annas Sigmundsson
as@dv.is
Úttekt
Vigdís Hauksdóttir, Framsóknarflokki:
Sláandi upplýsingar
um afskriftir
Þetta eru sláandi upplýsingar,“ segir Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknar
flokksins, um það að útlán
íslenskra banka til innlendra aðila
hafi lækkað um nærri 60 prósent
við bankahrunið. „Það er með ólík
indum að búið sé að afskrifa slík
ar upphæðir án þess að það komi
fram fyrr en nú og ég minni á ítrek
aðar fyrirspurnir og umræður af
hálfu okkar Framsóknarmanna um
þessi mál í þinginu,“ segir hún.
Upplýsingar um að fasteigna
lán bankanna til heimila hafi lækk
að úr 607 milljörðum króna í sept
ember 2008 í 310 milljarða króna
mánuði síðar við stofnun nýju
bankanna sanni það endanlega
að tillaga Framsóknarflokksins um
20 prósenta afskriftarleið hafi ver
ið raunhæf og rúmlega það. „Það
er þyngra en tárum taki að ríkis
stjórnin hafnaði þeirri leið alfar
ið. Ábyrgð þeirra er mikil, sér í lagi
þegar litið er til þess að á þessum
tíma voru bankarnir allir í ríkis
eigu. Hefði verið ráðist strax í 20
prósenta niðurfærslu allra lána
væri öðruvísi umhorfs hér á landi
nú bæði hjá heimilum og fyrirtækj
um,“ segir Vigdís.
Að hennar mati er það víta
vert ábyrgðarleysi að stjórnvöld
hafi ekki upplýst um umræddar
ábyrgðir. Vísar Vigdís þar til laga
um ráðherraábyrgð. „Blekkingin
og spillingin hjá þessari ríkisstjórn
hefur náð nýjum hæðum við þess
ar upplýsingar,“ segir Vigdís að lok
um.
Haraldur Líndal hagfræðingur:
Lög sett um að upp-
lýsa um afskriftir
Haraldur Líndal Haraldsson hagfræðingur er einn þeirra sem hefur gagnrýnt hversu hægt hafi gengið að
leiðrétta stöðu lána hjá almenningi
og að koma hjólum atvinnulífsins
í gang. Í samtali við DV segir hann
það mjög alvarlegt að ekki hafi ver
ið upplýst um það að útlán til inn
lendra aðila hafi lækkað úr nærri
5.500 milljörðum króna í septem
ber 2008 í um 2.000 milljarða króna
mánuði síðar. „Það er alvarlegt og
ætti að setja í lög að afskriftir yfir
ákveðnu hámarki ættu að vera
gerðar opinberar,“ segir hann.
Að mati Haraldar sýna
þessar
tölur að vel hefði mátt veita ís
lenskum heimilum meiri afskriftir
og hið sama eigi við um meðalstór
fyrirtæki. „Ég tel það öruggt enda
eru bankarnir núna að sýna mik
inn hagnað. Sá hagnaður er ekki af
reglulegri starfsemi heldur vegna
þess að þeir eru að uppfæra þessi
lán á hærra virði en þeir tóku þau
yfir á,“ segir hann. Það sé líka alvar
legt að umræddur hagnaður hafi
að mestu runnið til erlendra kröfu
hafa sem eigi meirihlutann í Arion
banka og Íslandsbanka. „Þetta hef
ur þar af leiðandi hamlandi áhrif á
hagvöxt, þar sem sparnaður heilla
kynslóða verður tekinn út úr hag
kerfinu,“ segir Haraldur. Hann ít
rekar að það ætti að setja í lög að
afskriftir bankanna verði gerðar
opinberar. „Það er ekki eðlilegt í því
ástandi sem við erum í núna að tala
um bankaleynd þegar sumir eru að
fá jafnvel milljarða króna afskrifaða
og aðrir þurfa að greiða allt upp í
topp,“ segir hann að lokum.
1 2 3
Þ
að var vægast sagt hörmuleg
aðkoma í sumarhúsi Hildar
Guðbrandsdóttur og eigin-
manns hennar í Skorradal
á þriðjudaginn eftir að inn-
brotsþjófar gengu berserksgang í
sumarhúsinu og ollu stórskemmdum
á húsinu með exi. „Það voru höggvin
göt á veggi og innréttingar með exi.
Það eru göt á veggjum, innrétting-
unni og borðplötunni. Hugsaðu þér,
hvert er þetta samfélag að fara?“ segir
Hildur í samtali við DV. Hún segir það
vera fjölskyldunni þungbært að koma
að griðastað sínum í rúst eftir inn-
brotsþjófa. Hún hætti nýlega að vinna
enda að verða sjötug í haust og eign-
maður hennar orðinn 75 ára. „Þetta
er ekki alveg það sem gamalmennin
og þeir sem eru búnir að sinna skyldu
sinni og hafa alltaf verið heiðarlegir,
eiga skilið. Við eigum þetta bara ekki
skilið. En þeir eru ekki að velta því fyr-
ir sér, þessir pörupiltar eru bara sturl-
aðir af dópi.“
Beint í afplánun
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni í Borgarnesi brutust þrjót-
arnir inn í nokkur sumarhús og ollu
skemmdum og höfðu á brott með
sér ýmsa hluti. Þeir voru báðir und-
ir áhrifum lyfja og voru með exi í
farteskinu þegar lögreglan náði að
handsama þá uppi á Draghálsi sem
liggur á milli Svínadals og Skorradals.
Þeir eru báðir liðlega tvítugir og voru
á skilorði. Lögreglan segir að annar
mannanna hafi verið samvinnufús
þegar þeir voru handteknir en „hinn
var ekki sáttur“, eins og lögreglumað-
ur orðaði það. Mennirnir höfðu brot-
ist inn í að minnsta kosti þrjá bústaði
og eftir að þeir voru handteknir voru
þeir færðir beint í afplánun enda báð-
ir á skilorði. Mennirnir munu vera
svokallaðir góðkunningjar lögregl-
unnar – síbrotamenn.
Hildur segist vera virkilega ánægð
með störf lögreglunnar í Borgarnesi
sem hún segir eiga hrós skilið.
Fimm klukkutíma að taka til
Hildi er illilega brugðið að svona
skuli geta gerst í sumarhúsinu henn-
ar. „Þeir voru búnir að brjótast inn
í Hvalfirði og síðan fóru þeir inn í
Skorradalinn og voru að þvælast þar
í tvo tíma. Ég er með tímasetningu
á þjófavarnarmyndavél og þeir fóru
inn 1 mínútu í 10 um kvöldið. Þeir
voru örugglega að leita að víni eða
pillum en það var ekki neitt svoleið-
is í mínu húsi. Þeir hafa þá orðið svo
reiðir að þeir möskuðu sjónvarpið,
veggina og húsgögnin með exinni.
Þetta er fleiri hundruð þúsund króna
tjón. Svona lýð þarf maður að ala
fyrir skattpeningana sína því þetta
nennir ekki að vinna.“
Myndavélin sem Hildur vísar til
er öryggismyndavél með símakorti
frá Símanum. Hún á að senda boð ef
hreyfing er í húsinu, ef hitastig lækk-
ar og ef vatn byrjar að flæða. Þau
fengu hins vegar engin boð fyrr en
um 15 klukkustundum síðar eða um
hádegisbil á þriðjudag þegar húsið
hafði staðið opið yfir heila nótt.
Hildur segir að aðkoman hafi
hreinlega verið skelfileg og hún hafi
verið í fimm klukkutíma að taka til
ruslið og skemmdirnar. Þau hjónin
eru ekki með flatskjá heldur aðeins
með gamalt lampasjónvarp og tel-
ur Hildur að þjófunum hafi fundist
það svo ómerkilegt að þeir ákváðu
að mölva það. „Þeir létu hins vegar
önnur verðmæti vera, eins og græjur
og stóran stjörnukíki. Þeir snertu það
ekki en létu húsið sjálft ekki í friði.“
Ótryggð
Það er grátlegt að hjónin voru
ótryggð fyrir þessum skemmdar-
verkum. „Ég var búin að tala við
tryggingasölumann fjórum dögum
áður en ég var ekki búin að ganga
frá því. Ég var bara með brunatrygg-
ingu og átti eftir að kaupa innbús- og
vatnstryggingu. Ég er hins vegar búin
að ganga frá því núna.“
Þau sitja því uppi með tjón sem
Hildur telur að nemi um hálfri millj-
ón króna. Sumarhúsið er mjög vand-
að heilsárshús á steyptum grunni og
er griðastaður fjölskyldunnar. „Þetta
er tilfinningalegt. Maður er ekki vel í
stakk búinn fyrir svona lagað. Dauða
hluti er hægt að bæta og allt það en
þetta hefur áhrif á mann andlega og
maður er ekkert unglamb lengur.
Þetta er bara svo ógeðslegt að koma
að þessu. Það voru milljón gler-
brot og þeir höfðu höggvið með ex-
inni í gegnum mynd sem hékk uppi
á veggnum. Exin fór í gegnum vegg-
inn og inn í rafmagnsrör. Ofbeldið og
reiðin eru svo mikil.“ Henni er mik-
ið niðri fyrir þegar hún lýsir aðkom-
unni. „Þvílíkir aumingjar sem mað-
ur er að ala sér við brjóst hérna. Svo
eiga þessir vesalingar mæður, hugs-
aðu þér!“
„Svo eiga þessir
vesalingar mæður“
n Innbrotsþjófar gengu berserksgang í sumarbústað roskinna hjóna
n Hjuggu göt á veggi með exi n Handteknir undir áhrifum lyfja
„Þetta er fleiri
hundruð þúsund
króna tjón. Svona lýð þarf
maður að ala fyrir skatt-
peningana sína því þetta
nennir ekki að vinna.
Valgeir Örn Ragnarsson
blaðamaður skrifar valgeir@dv.is
Skemmdir Lampasjónvarpinu var rústað og
þrjótarnir höfðu höggvið með exi í veggi hússins.
Hildur Guðbrandsdóttir Hörmuleg aðkoma blasti við Hildi þegar hún kom að sumarhúsi
sínu í Skorradal.
Segja upp fólki
Skipti kynntu fyrir starfsfólki sam-
stæðunnar á fimmtudag uppsagn-
ir og hagræðingu sem ráðist hefur
verið í sem lið í stefnumörkun til
framtíðar og undirbúnings endur-
fjármögnunar fyrirtækisins. Ákveðið
var að segja 45 manns upp störfum
en frá áætlun 2011 hefur stöðugild-
um hjá Skiptum og dótturfélögum
nú fækkað um 68. Stefnumörkunin
felur í sér að horfið verði frá þeirri
útrás á erlenda markaði sem ein-
kenndi reksturinn áður. Einblínt
verði á íslenska fjarskiptamarkað-
inn, hagræðingu í rekstrinum og
fjárfestingar í frekari uppbyggingu á
fjarskiptakerfum.
Fannst kaldur
og þrekaður
Erlendur ferðamaður sem varð við-
skila við ferðafélaga sína í Reykja-
dal ofan Hveragerðis á miðvikudag
fannst á tólfta tímanum um kvöldið.
Gekk hann sjálfur fram á björgunar-
sveitarbíl sem staðsettur hafði verið
með blikkandi ljósum á Ölkeldu-
hálsi, við enda stígsins sem liggur
niður í Drottningarholu við Hvera-
gerði. Var hann afar þrekaður og
kaldur og var fenginn sjúkrabíll til að
koma honum undir læknishendur.
Um 60 björgunarsveitamenn og átta
hundateymi tóku þátt í leitinni.
Hættir í skila-
nefnd Glitnis
Árni Tómasson, formaður skila-
nefndar Glitnis, hefur ákveðið að
segja sig úr skilanefndinni frá og
með 1. október næstkomandi. Sam-
kvæmt tilkynningu frá Steinunni
Guðbjartsdóttur, formanni slit-
astjórnar Glitnis, hefur Árni fallist á
þá ósk slitastjórnar að sitja áfram í
stjórn Íslandsbanka og aðstoða við
söluferli á eignarhlut í bankanum
auk þess að gegna tilfallandi störfum
sem slitastjórn kann að óska eftir
vegna fyrri starfa hans fyrir Glitni. Er
þetta gert, að sögn Steinunnar, til að
tryggja sem mesta samfellu í starf-
semi Glitnis.
Sérverslun veiðimannsins - Laugarveg 178 - Sími: 551 6770 - www.vesturrost.is
Byssuskápar
Vesturröst
8 til10 byssu skápur, raflæsing
og lykill, læst hólf og fóðraður kr. 49.900
5 til 7 byssu skápur, raflæsing
og lykill, læst hólf og fóðraður kr. 38.900
3ja byssu skápur á
kr. 19.900
Tilboð Tilboð Tilboð Tilboð