Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2011, Side 4
4 | Fréttir 30. september–2. október 2011 Helgarblað
n Reknir fyrirvaralaust úr starfi hjá Borgarahreyfingunni
n Áttu að gera myndbönd upp úr skýrslu rannsóknarnefndar
K
vikmyndagerðarmennirnir
Gunnar Sigurðsson og Her-
bert Sveinbjörnsson ætla að
höfða launamál á hendur
Borgarahreyfingunni eftir
að þeir voru fyrirvaralaust reknir úr
starfi fyrir flokkinn um miðjan júlí.
Gunnar og Herbert voru ráðnir til
fimm mánaða í maí síðastliðnum til
þess að framleiða myndbönd byggð
á skýrslu rannsóknarnefndar Alþing-
is. Fyrir vinnuna fengu þeir 350 þús-
und krónur á mánuði. Þeir náðu hins
vegar ekki að klára verkefnið áður en
þeir voru reknir og segir Gunnar að
þeir hafi aldrei orðið varir við neina
óánægju innan stjórnarinnar með
störf sín eða beðnir sérstaklega um
útskýringar. Hann hafi hins veg-
ar fundað með stjórninni um mán-
uði áður en þeir voru reknir og út-
listað verkefnið fyrir henni. Þar hafi
stjórnin lýst yfir áhuga á verkefninu.
Ekki fengið borgað
„Ég hef ekki fengið borgað fyrir júlí,
ágúst og september. Það var tekin sú
ákvörðun, þar sem við borguðum til
VR, að fara með þetta þangað og þeir
tóku þetta að sér. Mér skilst að þeim
sem að þessu standa verði bara stefnt
til að greiða þetta,“ segir Gunnar leik-
stjóri við DV. Hann tekur þó fram
að hann hafi engan áhuga á að vera
með illindi við stjórn Borgarahreyf-
ingarinnar. „Það eru engin leiðindi
af minni hendi. Ég ætla ekki að dvelja
við þetta, ef þau hafa rétt fyrir sér þá
þurfa þau ekki að borga, en ef við
höfum rétt fyrir okkur þá þurfa þau
að borga okkur,“ segir hann.
„Okkur var sagt upp fyrirvara-
laust. Ég var í einn mánuð að búa til
efnið áður en Herbert kom til starfa.
Í maí var ég að lesa skýrsluna og sér-
staklega 8. bindið og merkja við það
sem okkur datt í hug að gæti tengst
við það sem við höfum verið að vinna
undanfarin ár. Það er mikið mál að
lesa þetta og það er ekki gert á einum
degi.“
„Ég veit ekki hvað gerðist“
Aðspurður hvort stjórnendur Borg-
arahreyfingarinnar hafi lýst yfir
óánægju með vinnu tvímenning-
anna við myndböndin áður en þeir
voru reknir, segir Gunnar svo ekki
vera. „Ég veit ekki hvað gerðist. Okkur
var bara sagt upp og það fór allt í háa-
loft. Það er svo sem sjálfsagt að segja
okkur upp en við gerðum undirrit-
aðan samning um vinnu og menn
hættu við önnur verkefni á meðan.
Við vorum að reyna að gera þetta af
ástríðu. Við gerðum þrjú myndbönd
og síðan vorum við að skipuleggja
okkur og ákváðum að gefa ekki út
nein myndbönd í sumar heldur bara
vinna þau.“
Herbert er fastráðinn starfsmaður
hjá RÚV og tók sér launalaust leyfi til
þess að vinna við myndböndin fyrir
Borgarahreyfinguna. RÚV réð annan
mann í staðinn fyrir hann á meðan.
Hann situr hins vegar eftir launalaus
í fjóra mánuði því ekki var hægt að
rifta samningum við þann sem leysti
hann af.
Rekinn og feR í mál
„Ég ætla ekki að
dvelja við þetta, ef
þau hafa rétt fyrir sér þá
þurfa þau ekki að borga,
en ef við höfum rétt fyrir
okkur þá þurfa þau að
borga okkur.
Valgeir Örn Ragnarsson
blaðamaður skrifar valgeir@dv.is
Gunnar Sigurðsson
Hefur ásamt Herbert
Sveinbjörnssyni starfað
fyrir Borgarahreyfinguna.
Þeir voru reknir og fengu
ekki greidd laun. Þeir ætla
nú í mál.„Okkur var
sagt upp
fyrirvaralaust
Borgarahreyfingin Hefur logað í illdeilum að undanförnu.
Úr fundargerð stjórnar Borgarahreyfingarinnar 19. september 2011:
„Ekki staðið við sinn hluta“
„Þórdís leggur fram skýrslu um
málavexti varðandi uppsögn og störf
kynningarstjóranna Gunnars og Her-
berts, sem og samskipti við þá. Þór-
dís segir að miðað við þau gögn sem
Gunnar og Herbert hafa skilað vegna
vinnu sinnar hafa þeir ekki staðið
við sinn hluta samningsins. Ítrekað
hefur verið reynt að ná fundi með
þeim en án árangurs. Stjórn ítrek-
ar að uppsagnarbréf það sem Guð-
mundur Andri Skúlason, fyrrverandi
talsmanður BH, afhenti Gunnari
og Herberti, dagsett 15. júlí 2011, er
skrifað í heimildarleysi og án vitund-
ar stjórnar. Þá virðist bréfið hafa verið
skrifað 21. júlí sl., sbr. skáarkerfi tölvu
sem GAS hafði til umráða, en GAS
hafði verið leystur frá störfum dag-
inn áður á stjórnarfundi eða þann 20.
júlí sl.
Lögð fram tillaga um sátt við
Gunnar Sigurðsson og Herbert
Sveinbjörnsson, skv. hugmynd Guð-
mundar Karls Þorleifssonar, að
Gunnari verði greidd laun fyrir júlí-
mánuð og ½ ágústmánuð en Her-
berti verði greidd laun vegna júlí- og
ágústmánaðar. BH mun einnig greiða
innheimtuþóknun til Guðmundar B.
Ólafssonar lögmanns þeirra en ekki
verður greitt orlof né dráttarvextir á
kröfuna. Verði þessi sáttatillaga sam-
þykkt af þeirra hálfu verða áðurnefnd
laun greidd innan sólarhrings frá
undirritun samkomulags.“
Þórdís Sigurþórsdóttir Í fundar-
gerð Borgarahreyfingarinnar segir að
ekki hafi tekist að koma á fundi með
þeim Gunnari og Herberti.
Hæstiréttur snýr við dómi héraðsdóms:
Sýknaður af árás
í Laugardal
Hæstiréttur hefur sýknað Óðin Frey
Valgeirsson af ákæru fyrir árás á 16
ára stúlku í Laugardal í Reykjavík síð-
astliðið haust. Maðurinn var sakfelld-
ur í héraðsdómi í mars á þessu ári og
gert að sæta 3 ára fangelsi fyrir sér-
staklega hættulega líkamsárás.
Hæstiréttur gerði alvarlegar at-
hugasemdir við rannsókn lögreglu
og fann meðal annars að því að ekki
fór fram rannsókn á erfðaefni á blóð-
sýnum. Eins hafi myndir af áverkum
stúlkunnar ekki verið í gögnum máls-
ins. Skýrsla Óðins þótti einnig vera
ruglingsleg og óljós og ekki nema að
hluta í samræmi við annað sem lá
fyrir í málinu. Því hafi ekki verið hægt
að byggja sakfellingu á skýrslu hans
og játningu einni. Þá segir einnig í
dómi Hæstaréttar, að þrátt fyrir að
framburður vitna kynni að styðja að
maðurinn hefði ráðist á stúlkuna
væri hann ekki nægilegur til sakfella
gegn neitun mannsins fyrir dómi.
Þá bæri einnig að líta til þess að við
rannsókn á vettvangi og á fatnaði
Óðins hefði ekkert komið fram sem
styðji að hann hefði framið brotið.
Særði blygð-
unarkennd
Hæstiréttur Íslands hefur staðfest
4 mánaða skilorðsbundinn dóm
Héraðsdóms Reykjavíkur yfir 67 ára
gömlum karlmanni sem dæmdur
var fyrir að hafa sært blygðunar-
kennd nágrannahjóna sinna með
því að hafa átt við kynfæri sín þar
sem hann stóð fáklæddur fyrir fram-
an glugga á heimili sínu, andspænis
leikvelli.
Maðurinn var fundinn sekur í
febrúar síðastliðnum og staðfesti
Hæstiréttur dóminn á miðviku-
dag. Maðurinn hafði ekki áður gerst
sekur um refsiverðan verknað og var
því hæfileg refsing talin 4 mánaða
skilorðsbundið fangelsi. Í skýrslu
lögreglunnar kemur fram að ellefu
tilkynningar hafi borist um viðlíka
háttsemi ákærða allt frá árinu 2005.
Ferðamálaskóli Íslands www.menntun.is Sími 567 1466
Meðal námsefnis:
Mannleg samskipti.
Helstu áfangastaðir
erlendis í máli og
myndum.
Mismunandi
trúarbrögð.
Saga landsins,
menning og listir.
Frumbyggjar og saga
staðarins.
Þjóðlegir siðir og hefðir.
Leiðsögutækni og ræðumennska.
Ferðalandafræði: Evrópa, Asía, Africa, Ameríka og Eyjaálfan.
Námið fer fram í formi fyrirlestra og reynslu fararstjóra
í leiðsögn á erlendri grund.
Leiðbeinendur eru: Kjartan Trausti Sigurðsson, Pétur Björnsson,
Jóhanna Kristjónsdóttir, Höskuldur Frímannsson, Magnús Björnsson,
Pétur Óli Pétursson, Bjarni Randver Sigurvinsson, Sr. Bragi Skúlason.
Fararstjórn erlendis