Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2011, Qupperneq 6
6 | Fréttir 30. september–2. október 2011 Helgarblað
Skrúfuðu upp
viðskiptavildina
Ú
tgáfufélagið Vefpressan skil-
aði níu milljóna tapi árið
2010. Er það nokkuð betri
árangur en árið áður þeg-
ar félagið skilaði 30 millj-
ón króna tapi. Hefur félagið meira
en fjórfaldast að stærð á milli ára.
Fara eignir félagsins úr 25 milljón-
um króna árið 2009 í 110 milljónir
króna ári síðar.
Athyglisvert er að sjá að Vef-
pressan uppfærir viðskiptavild
sína úr engu árið 2009 í yfir 20
milljónir króna árið 2010. Líkt og
flestir þekkja voru slíkar aðferðir
notaðar til að fegra stöðu útrásar-
fyrirtækja við skuldsettar yfirtök-
ur fyrir bankahrunið. Þannig var
hægt að fela óhóflega mikla skuld-
setningu þeirra. Þó viðskiptavild
útgáfufélags Björns Inga Hrafns-
sonar nemi nú 20 prósentum af
eignum félagsins á Vefpressan þó
langt í land með að ná 365 miðlum
í þeim efnum þar sem viðskipta-
vildin nemur heilum 60 prósentum
af eignum.
DV sagði frá því fyrr í þessum
mánuði að Vefpressan hefði gripið
til þess ráðs að leita til fyrirtækja-
ráðgjafar Íslandsbanka í þeirri von
að bankinn geti aflað félaginu auk-
ið hlutafé. Vefpressan heldur sem
kunnugt er úti netmiðlunum Eyj-
unni, Pressunni, bleikt.is, menn.is,
auk þess að reka netverslanirnar
Mónu og Bútík.
VÍS og Salt Investments
stórminnka hlut sinn
Töluverð breyting hefur orðið í
hluthafahópi Vefpressunnar á
milli ára. Lengi vel var hluthafa-
hópur Vefpressunnar á huldu.
Síðar var upplýst að félög útrásar-
víkinga væru í hluthafahópnum.
Þannig átti VÍS 33 prósent í Vef-
pressunni en þegar VÍS lagði fram
hlutafé í Vefpressuna höfðu þeir
Ágúst og Lýður Guðmundssynir
en ítök hjá Exista, aðaleiganda VÍS.
Exista heitir víst Klakki ehf. í dag.
Hlutur VÍS í Vefpressunni hefur
nú minnkað úr 33 prósentum í 18
prósent. Salt Investments, fjárfest-
ingafélag Róberts Wessmann hef-
ur síðan minnkað hlut sinn í Vef-
pressunni úr 23 prósentum í ellefu
prósent. Ekki liggur ljóst fyrir hvers
vegna VÍS og félag Róberts Wess-
mann hafa minnkað hlut sinn í út-
gáfufélagi Björns Inga um meira en
helming.
Stofnuðu einkahlutafélög
Svo virðist sem tvö önnur félög
sem heita AB10 og AB11 hafi keypt
það hlutafé sem VÍS og félag Ró-
berts Wessmann losuðu sig við.
Björn Ingi Hrafnsson, útgefandi
Vefpressunnar, og Arnar Ægisson,
framkvæmdastjóri sama félags,
stofnuðu AB10 árið 2010. Er Arnar
titlaður framkvæmdastjóri þess og
eru Björn Ingi og fyrrverandi eigin-
kona hans skráð í stjórn þess. Þeir
eru báðir prókúruhafar félagsins en
Arnar er framkvæmdastjóri þess.
AB11 var síðan stofnað af Birni Inga
árið 2011 og er hann sjálfur skráður
framkvæmdastjóri þess og prókúru-
hafi. Saman eiga þeir Björn Ingi og
Arnar liðlega 57 prósenta hlut í Vef-
pressunni, ýmist í eigin nafni eða
félaganna tveggja. Ekki náðist í
Björn Inga við vinnslu fréttarinnar.
„DV sagði frá því
fyrr í þessum mán-
uði að Vefpressan hefði
gripið til þess ráðs að
leita til fyrirtækjaráðgjaf-
ar Íslandsbanka í þeirri
von að bankinn geti aflað
félaginu aukið hlutafé.
Eigendur Vefpressunnar
33% VÍS,
Vátryggingafélag Íslands
26% Björn Ingi Hrafnsson,
stjórnarformaður Vefpressunnar.
23% Róbert Wessmann
(Salt Investments)
18% Arnar Ægisson,
framkvæmdastjóri Vefpressunnar.
2009
18,4% VÍS,
Vátryggingafélag Íslands
18,3% Björn Ingi Hrafnsson,
stjórnarformaður Vefpressunnar.
14,2% Arnar Ægisson
13,9% AB10 ehf. (Í eigu Björns og Arnars)
11% Salt Investments
10,4% AB11 ehf. (Í eigu Björns Inga)
2010
Viðskiptavild uppfærð úr engu Vefpressan uppfærir viðskiptavild sína úr engu árið
2009 í yfir 20 milljónir árið 2010. Slíkar aðferðir voru notaðar til að fegra stöðu útrásarfyrir-
tækja við skuldsettar yfirtökur.
n Skilaði níu milljóna króna tapi 2010
n Björn Ingi og Arnar keyptu út Robert Wessmann
Aðkoma Halldórs Valek Jóhanns-
sonar, lögreglumanns hjá embætti
ríkislögreglustjóra, virðist vera í mun
meiri viðskiptum við lögregluna en
fram kemur í skýrslu Ríkisendur-
skoðunar. Halldór er framkvæmda-
stjóri í félaginu Trademark ehf., sem
seldi lögreglunni ýmsan búnað frá
janúar 2008 til apríl 2011 fyrir rúmar
39 milljónir króna. Á sama tíma var
hann lögreglumaður hjá embættinu.
Í skýrslu Ríkisendurskoðunar kemur
einungis fram að félagið sé í eigu eig-
inkonu hans, en samkvæmt ársreikn-
ingi félagsins fyrir árið 2010, sem
sóttur var hjá Creditinfo, er hann,
auk þess að vera framkvæmdastjóri,
skráður helmingseigandi í félaginu
á móti eiginkonu sinni. Á tímabilinu
sem Ríkisendurskoðun skoðaði seldi
fyrirtækið ríkislögreglustjóra búnað
fyrir alls 26,3 milljónir króna á tíma-
bilinu sem um ræðir. Þá seldi fyrir-
tækið Lögregluskóla ríkisins, sem
óeirðalögreglan notar, búnað fyrir
12,7 milljónir króna á tímabilinu.
Halldór Valek gegnir ekki stjórn-
unarstöðu hjá embættinu, sam-
kvæmt starfsmannaskrá ríkis-
lögreglustjóra. Viðskiptum sem
embættið átti við félag lögreglu-
mannsins í desember 2009 var skipt
á þrjá reikninga, 4,9 milljónir, 5 millj-
ónir og 3,7 milljónir en Ríkisendur-
skoðun telur að það sé óheimilt að
skipta viðskiptunum upp í því skyni
að þau verði undir viðmiðunarmörk-
um útboðsskyldu. RLS féllst ekki á
þetta og benti á að félag lögreglu-
mannsins hefði keypt búnaðinn af
þremur ólíkum birgjum og því hafi
verið um þrenn kaup að ræða. Rík-
isendurskoðun vísar hins vegar í
flokkunarkerfi Evrópusambandsins,
en samkvæmt því falla allar lögreglu-
vörur í sama flokk og því hefði átt að
bjóða kaupin út, sem ekki var gert.
Lögreglumaður einnig framkvæmdastjóri félags sem seldi lögreglunni varning:
Hann stýrði félaginu
Vafasamt Lögreglumaðurinn segir um þrenn kaup að ræða.
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
Reykjavík - Reykjanesbæ
Akureyri - Húsavík
Vestmannaeyjum
Arges PROFESSIONAL
Einfasa rafstöð HD3800
Bensín m/rafstarti 3,2KW
87.900,-
Ryk/blautsuga
15 lítrar HKV 1000w
18.900,-
Slípirokkur
HDA 436 1050w
7.490,-
Rafhlöðuborvél, HDA2544
17.900,-
Rafmagnsborvél,
HDA 310
11.990,-
Garðsapótek
ódýrast
Garðsapótek við Sogaveg var oftast
með lægsta verðið á lausasölulyfjum
þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði
verð í apótekum landsins mánudag-
inn 26. september. Árbæjarapótek í
Hraunbæ var hins vegar oftast með
hæsta verðið í könnuninni. Þetta
kemur fram í tilkynningu frá ASÍ. Þar
kemur fram að verðmunur á lausa-
sölulyfjum hafi verið frá 23 prósent-
um upp í 93 prósent en í flestum til-
vikum var munur á hæsta og lægsta
verði 30 til 60 prósent. Kannað var
verð á 36 algengum lausasölulyfj-
um, sem eru seld án lyfseðils. Farið
var í apótek víðsvegar um landið en
Ólafsvíkurapótek neitaði þátttöku í
könnuninni.
Átta tíma seinkun
Farþegar sem bókað áttu flug með
vél Icelandair til Glasgow í Skotlandi
klukkan átta á fimmtudag máttu
bíða í tæplega átta klukkustundir
áður en vélin fór í loftið.
Það óvenjulega atvik átti sér stað
að vélin skemmdist þegar búið var
að koma farangri farþeganna fyrir
og allt var að verða klárt fyrir flugtak.
„Þegar verið var að taka töskufæri-
band úr lest vélarinnar fór það utan
í og olli lítilsháttar skemmdum sem
nauðsynlegt var að gera við og það
orsakaði þessa seinkun,“ segir Guð-
jón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi
Icelandair, í samtali við DV. Vélin átti
sem fyrr segir að leggja af stað klukk-
an átta um morguninn. Guðjón segir
að ákveðið hafi verið að fara með
vélina í flugskýli þar sem gert var við
skemmdirnar.