Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2011, Page 8
8 | Fréttir 30. september–2. október 2011 Helgarblað
Þ
að kostar þingið 100 þús-
und krónur að skrifa
upp, prófarkalesa og full-
vinna klukkutímaræðu í
þinginu. Allar þingræð-
ur eru birtar á vef Alþingis og á
prenti. Eins og fram kom í DV síð-
astliðinn föstudag tekur að jafn-
aði tólf klukkustundir að fullvinna
klukkutímaræðu þingmanns, svo
hægt sé að birta hana. Samkvæmt
þessu kostaði 20 mínútna endur-
tekning á ræðu Jóns Gunnarsson-
ar rúmar 33 þúsund krónur og tók
þrjár klukkustundir að vinna.
Meðaltalskostnaður
á klukkustund
Þessar tölur fengust úr gögnum
sem liggja fyrir á skrifstofu Alþing-
is. Þar kemur fram að kostnaður
við störf þingritara og lesara, sé
honum deilt á þær klukkustund-
ir sem þingið starfaði, er rúmlega
100 þúsund krónur á hvern klukku-
tíma. Ekki er sérstaklega tekið til-
lit til klukkustunda sem unnir
voru utan venjulegs vinnutíma
heldur er um að ræða meðaltal á
hvern klukkutíma af ræðuhöld-
um. „Fastakostnaður lækkar með
lengri fundatíma meðan breyti-
legur viðbótarkostnaður verður
hærri,“ segir í svari frá Karli Krist-
jánssyni, starfsmanns skrifstofu
Alþingis, við fyrirspurn DV.
Aldrei talað jafn mikið og
núna
Eins og fram kom í DV síðastlið-
inn föstudag hefur aldrei verið tal-
að jafn mikið í þingsal og nú. Alls
vörðu þingræður í 800 klukku-
stundir á nýafstöðnu þingi. Einn-
ig var metfjöldi þingskjala lagður
fram, eða um tæplega 2.000 skjöl.
Séu þessar tölur notaðar sem
grundvöllur að útreikningi á því
hvað ræður þingmanna er tengd-
ust umræðum um breytingar á
lögum um Stjórnarráð Íslands
fæst út að umræðurnar kostuðu
hið minnsta 5,9 milljónir króna.
Þingmenn stjórnarmeirihlutans
og nokkrir þingmenn stjórnarand-
stöðunnar lýstu yfir óánægju sinni
með umræðurnar og kölluðu sum-
ir umræðurnar málþóf. Er því ljóst
að málþófið kostaði skattgreið-
endur tæpar 6 milljónir króna.
Málþófsréttur mikilvægur
„Ég er nú kannski ekki endilega
með áhyggjur af kostnaðinum sem
slíkum. Mér finnst málþófsrétt-
urinn mikilvægur en mér finnst
mikilvægt að misnota hann ekki,“
segir Birgitta Jónsdóttir, þingkona
Hreyfingarinnar. Nefnir Birgitta
sem dæmi umræðuna um Icesave-
lögin og segir hún að þar hafi verið
mikilvægt að gefa þjóðinni tæki-
færi á að safna undirskriftum til að
skora á forsetann að senda lögin
í þjóðaratkvæðagreiðslu. „Það að
það hafi skapast hefð fyrir því að á
endaspretti þingsins til að hindra
það að mál ríkisstjórnarinnar nái
gegn finnst mér ekki gott.“
Birgitta segir að umræðuhefðin
þurfi að breytast en segir samt sem
áður að stjórnarandstaðan þurfi
að fá einhver tæki í hendurnar til
að stöðva mál sem meirihlutinn
reyni að þröngva í gegnum þingið
eigi málþófshefðin að hverfa. Hún
segir kostnaðinn þó engu að síð-
ur sláandi og að rétt sé að endur-
skoða störf þingsins. „Mér finnst
að við þurfum að endurskoða
þessa menningu hjá okkur. Þetta
er hvergi annars staðar svona,
nema hér.“
n Mikill kostnaður við fullvinnslu þingræðna fyrir birtingu á vef Alþingis
n Tvítekin ræða Jóns Gunnarssonar kostaði alls tæpar 70 þúsund krónur
Klukkutímaræða
kostar 100 þúsund
„Þetta er hvergi
annars staðar
svona, nema hér.
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
Kynntu þér lán og aðra
þjónustu Íbúðalánasjóðs
Borgartúni 21 | 105 Reykjavík | Sími : 569 6900, 800 6969
www.ils.is
Lán til íbúðakaupa
Lán til endurbóta og viðbygginga
Aukalán vegna sérþarfa (skert starfsorka)
Úrræði í greiðsluvanda
Þetta kostuðu
ræðurnar
DV tók saman nokkrar ræður eða
brot úr ræðum sem þingmenn
fluttu á nýafstöðnu þingi. Upp-
hæðirnar eru ekki nákvæmar
en þær gefa samt glögga mynd
af raunverulegum kostnaði við
ræðurnar. Kostnaðurinn miðast
við að hver klukkutími í ræðu-
stól kosti 100.000 krónur í eftir-
vinnslu.
n Jón Gunnarsson
Lengd ræðu: 20 mínútur
Kostnaður: 33.000 kr.
Efni ræðu: Annar flutningur
á sömu ræðu
n Bjarni Benediktsson
Lengd ræðu: 15 mínútur
Kostnaður: 25.000 kr.
Efni ræðu: Vantrauststil-
laga á ríkisstjórnina
n Gunnar Bragi
Sveinsson
Lengd ræðu: 1 mínúta
Kostnaður: 1.667 kr.
Efni ræðu: Svipbrigði
forseta Alþingis og andsvör
n Jón Bjarnason
Lengd ræðu: 12 mínútur
Kostnaður: 20.000 kr.
Efni ræðu: Frumvarp um
skeldýrarækt
n Ásmundur Einar
Daðason
Lengd ræðu: 5 mínútur
Kostnaður: 8.334 kr.
Efni ræðu: Upplestur úr
fréttaskýringu frá 1998 um
málþóf
Kallar eftir
breytingum
Birgitta Jónsdóttir
segir mikilvægt að
málþófsréttur
stjórnarandstöðunnar
sé ekki misnotaður.