Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2011, Síða 10
10 | Fréttir 30. september–2. október 2011 Helgarblað
G
erð er krafa um að ákærði
verði dæmdur til refs-
ingar,“ sagði Sigríður Elsa
Kjartansdóttir, aðstoð-
arríkissaksóknari, þegar
hún ávarpaði Hæstarétt þar sem
réttað er yfir Gunnari Rúnari Sig-
urþórssyni. Gunnar Rúnar játaði á
sig morðið á Hannesi Þór Helga-
syni á heimili hans í Hafnarfirði
fyrr á þessu ári. Gunnar Rúnar var
metinn ósakhæfur í héraðsdómi.
Salurinn var fullur en Gunnar
Rúnar mætti ekki fyrir dóminn.
Fjölskylda og vinir Hannesar fylltu
tvo fremstu bekki salarins.
Ekki í lyfjameðferð á Sogni
Ákæruvaldið lagði fram greinar-
gerð sem Sigurður Páll Pálsson,
yfirlæknir á Sogni, gerði um stöðu
Gunnars Rúnars. Gunnar hefur
verið vistaður á Sogni um nokk-
urra mánaða skeið. Í greinargerð-
inni segir að ekkert bendi til þess
að Gunnar Rúnar sé ástsjúkur, líkt
og var niðurstaða geðmats á hon-
um sem lagt var fyrir héraðsdóm
sem úrskurðaði hann ósakhæfan.
Jón Egilsson héraðsdómslögmað-
ur, sem kom fyrir dóminn fyrir
hönd foreldra Hannesar Þórs og
Matthildar Rögnvaldsdóttur, benti
á þá staðreynd að Gunnar Rúnar
er sem stendur ekki í neinni lyfja-
meðferð á Sogni. Sagði hann það
gefa til kynna að enginn sjúkdóm-
ur væri til staðar til að lækna.
Ekki ástsjúkur í dag
Þegar um ástsýki er að ræða held-
ur hinn sjúki að einhver annar,
yfirleitt sem hann þekkir, sé ást-
fanginn af sér. Telur hann viðkom-
andi gefa leynda ást sína til kynna
með augngotum, ákveðnu hátta-
lagi eða jafnvel með skilaboðum
í fjölmiðlum. Svarar hann með
heimsóknum, bréfum eða símtöl-
um. Bæði saksóknari og lögmaður
fjölskyldu Hannesar, sem fer fram
á skaðabætur, telja þessa lýsingu
ekki eiga við Gunnar Rúnar.
Sigurður Páll segir margt í fari
Gunnars Rúnars stangast á við
það að hann hafi verið haldinn
ástsýki. „Ef ástsýki hefur verið til
staðar hefur hún læknast án sér-
stakrar meðferðar eftir að hann
hafði framið brotið,“ segir Sigríður
Elsa.
Árásargjarn að eðlisfari
Gunnar Rúnar hefur reiðst starfs-
mönnum á Sogni, en Sigðurðar
Páll vísar til þess í greinargerð
sinni. Hann réðst á fanga á Litla-
Hrauni eftir að hafa lent í átökum
við hann í fótboltaleik. Á Sogni
hefur reiði hans beinst að hjúkr-
unarfræðingi. Ætlaði hann með-
al annars að fótbrjóta hjúkrunar-
fræðinginn fyrir að vilja ekki láta
hann hafa tölvuleiki.Sigurður Páll
segir að Gunnar Rúnar skipuleggi
stundum hefndaraðgerðir gagn-
vart þessu fólki, meðal annars
með því að koma með vopn þegar
hann ætlar að hefna sín.
Aðstandendur enn í sárum
Í máli Jóns, lögfræðings aðstand-
enda Hannesar Þórs, kemur fram
að fjölskylda Hannesar sé enn í
sárum eftir atburðinn. „Þau læsa
öllu ef þau heyra þrusk,“ segir Jón
um líðan aðstandenda Hannesar.
„Máltækið tíminn læknar öll sár
á ekki við í þessu tilfelli.“ Jón segir
einnig að Matthildur sé hætt í skóla
vegna þunglyndis sem hafi gert vart
við sig eftir morðið. Segir að hún sé
aðeins „skugginn af sjálfri sér“.
Verjandi Gunnars Rúnars hefur
farið fram á að bótakrafa Matthild-
ar verði felld niður en tekist er á um
hvort Matthildur og Hannes hafi
verið í sambúð. Óumdeilt er að þau
hafi átt í ástarsambandi en hún var
ekki með skráð lögheimili heima
hjá Hannesi.
Treystir á geðmatið
„Læknarnir telja allir að ákærði sé
haldinn sjúkdómi sínum til lang-
frama,“ segir Guðrún Sesselja. „Þeir
telja að erfitt verði að meðhöndla
hann.“ Vísar Guðrún Sesselja þar til
álits geðlæknanna sem mátu sak-
hæfi Gunnar Rúnars fyrir Héraðs-
dómi Reykjaness að Gunnar Rúnar
væri haldinn ástarsýki, eða eroto-
maníu. „Af hálfu ákæruvaldsins
hefur hins vegar ekkert verið lagt
fram til að réttlæta það að horft
sé fram hjá þessum niðurstöðum
matsmanna,“ segir Guðrún Sess-
elja um þá niðurstöðu ákæruvalds-
ins að mat geðlæknanna sem mátu
sakhæfi Gunnars Rúnars fái ekki
staðist. „Ákæruvaldið telur sig vita
betur en þrír af okkar reyndustu
réttargeðlæknum.“ Guðrún Sess-
elja Arnardóttir gagnrýnir gögn
sem ákæruvaldið hefur lagt fram
í Hæstarétti en sum gagnanna eru
útprent af vefsíðunum Wikipedia
og Vísindavefnum. Segir Guðrún
Sesselja það vera „reginfirru“ að
ætla að styðjast við þessi gögn en
ekki mat þriggja hæfustu réttargeð-
lækna landsins.
„Ef ástsýki hefur
verið til staðar
hefur hún læknast án
sérstakrar meðferðar.
n Réttað yfir Gunnari Rúnari Sigurþórssyni í Hæstarétti n Tekist á um
geðmat þriggja réttargeðlækna n Ætlaði að fótbrjóta hjúkrunarfræðing
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
Gunnar rúnar
ekki ástsjúkur
Mætti ekki Gunnar
Rúnar var fjarverandi
þegar mál hans var
tekið fyrir í Hæstarétti.
Mynd SiGTRyGGuR ARi
Fjölskyldan sat fremst Fjölskylda og vinir Hannesar fylltu tvo fremstu bekki salarins.
M
y
n
d
G
u
n
n
A
R
Gu
n
n
A
R
SS
o
n
St. 41-46
Grensásvegur 8 &
Nýbýlavegur 12
Sími 517 2040
Opið
mánud-föstud. 11-18
laugard. 11-16
SKÓMARKAÐUR
St. 40-46
St. 41-50
St. 40-46
Verð: 8.415
Verð: 6.995
Verð: 7.295
Verð: 4.995
neytendasamtökin:
Hafna rökum
seljenda
Neytendasamtökin segja á heimasíðu
sinni að vöruverð þurfi ekki að hækka
í kjölfar reglugerðar um merkingar á
erfðabreyttum mat.
Í miðvikudagsblaði DV var rætt
við nokkra af stærstu innflytjendum
bandarískra matvæla á Íslandi sem
sögðust hafa áhyggjur af fyrirhugaðri
reglugerð. Þar kom meðal annars fram
að þeir teldu að í reglugerðinni fæl-
ust aukin útgjöld sem myndu leiða til
hærra vöruverðs, þar sem ráða þyrfti
starfsfólk til að merkja erfðabreytt-
ar vörur. Eins halda þeir því fram að
samhliða henni þurfi þeir að hætta
innflutningi á tilteknum vörum eða
hækka vöruverð.
Neytendasamtökin gefa lítið fyrir
þau rök og segja að ef reglugerðin leiði
til hærra vöruverðs virki samkeppnin
ekki sem skyldi. Þar segir að einfaldast
sé að framleiðendur sem noti erfða-
breytt hráefni í vörur sínar sjái sjálfir
um að merkja þær. Einnig að margar
vörur komi sérpakkaðar fyrir íslenskan
markað og því væri einfalt að bæta við
upplýsingum ef vörurnar innihalda
erfðabreytt hráefni. Þá þurfi iðulega
að bæta við upplýsingum á vörur sem
koma frá Bandaríkjunum til að þær
uppfylli þær reglur sem gilda hér.
Markmið reglugerðarinnar er að
neytendur fái réttar og greinargóðar
upplýsingar um þau erfðabreyttu mat-
væli sem boðin eru til sölu, auglýst eða
kynnt með öðrum hætti. Neytenda-
samtökin eru á meðal þeirra sem hafa
barist fyrir því að erfðabreytt matvæli
verði merkt. gunnhildur@dv.is