Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2011, Síða 13
Fréttir | 13Helgarblað 30. september–2. október 2011
Þ
egar ég ætlaði í vinnuna á
þriðjudagsmorgun þá var
bíllinn horfinn,“ segir Fi-
lip Woolford sem varð fyr-
ir því aðfaranótt þriðjudags
að vörslusviptingarmenn á vegum
SP-Fjármögnunar hirtu bílinn hans í
skjóli nætur. Filip hringdi umsvifalaust
í lögregluna og þar fékk hann sláandi
upplýsingar. Vörslusviptingarmenn-
irnir höfðu tilkynnt til lögreglu að þeir
myndu taka bílinn og höfðu bersýni-
lega fengið til þess samþykki hjá lög-
reglunni. „Ég var í það miklu uppnámi
að ég áttaði mig ekki á því sem hann
var í raun að segja; að þeir hefðu vit-
að af þjófnaðinum,“ segir Filip í sam-
tali við DV. Hann kveðst hafa kært
þjófnaðinn til lögreglu, bæði á bílnum
og öllu því sem í honum var svo sem
bensíni og einkamunum.
Því næst fór hann á skrifstofur fjár-
mögnunarfyrirtækisins til að greina
þeim frá því að hann væri búinn að
kæra þjófnaðinn og gefa þeim færi á
að skila bifreiðinni, gegn því að hann
léti kæruna niður falla. Því tilboði var
hafnað og þurfti Filip því frá að hverfa
með þau skilaboð að bíllinn væri eign
SP-Fjármögnunar. Á fimmtudag barst
honum símtal frá lögreglunni þar sem
honum var tjáð að lögfræðideild emb-
ættisins hefði úrskurðað að þetta væri
einkamál milli hans og SP-Fjármögn-
unar sem lögreglan myndi ekki skipta
sér af. Filip hefur óskað eftir þessum
úrskurði skriflega, forviða vegna alls
þessa.
Keyrður í vanskil
Forsaga málsins er sú að Filip var
með bifreið á myntkörfuláni og stóð í
skilum varðandi greiðslur af því láni.
Ágreiningur hafi hins vegar komið
upp eftir endurútreikning SP í fyrra-
sumar. Filip gat ekki sætt sig við vaxta-
útreikning á eftirstöðvum lánsins þar
sem hann var allt í einu kominn í van-
skil. „Ég hef alltaf staðið í skilum með
þetta lán og aldrei lent í vanskilum.
Þar með er ég kominn í stríð við þá
því ég samþykkti ekki útreikningana.“
Filip kveðst í kjölfarið hafa sent SP til-
boð með nýjum útreikningi sem hann
lét gera fyrir sig. Því var hafnað. „Ég
hef aldrei viljað undirrita neitt sem
þeir hafa sent mér. Þeir bjuggu til nýtt
skuldabréf á eigin forsendum þeg-
ar þeir leiðréttu þetta lán. En ég var
aldrei látinn skrifa undir eða sam-
þykkja. Þetta var bara einhliða ákvörð-
un þeirra að rukka mig.“
Filip greindi SP strax frá því að hann
myndi ekki greiða en ákvað að leggja
rukkaða upphæð inn á vörslureikning
mánaðarlega. Það hefur hann að eigin
sögn staðið við. „Ég hef alltaf greitt af
þessu og látið bankann tilkynna þeim
að þessi upphæð hafi verið lögð inn,
en þeir fá hana ekki. Ég vil halda mig
innan laganna. Síðan fyrir hálfu ári
segjast þeir hafa rift þessu skuldabréfi
sem ég neitaði að borga en þeir halda
samt áfram að rukka mig. Um hver
mánaðamót kemur innheimtubréf
frá þeim um að ég eigi að borga þessa
mánaðarlegu upphæð sem ég og geri
á þennan hátt.“
Fara um líkt og þjófar
Filip segir vörslusviptinguna aðfara-
nótt þriðjudags svipa til sambæri-
legrar aðgerðar SP í Keflavík á dög-
unum sem stöðvuð var af þar sem
nauðsynlega pappíra skorti. „Þeir
þurfa að fá úrskurð frá sýslumanni til
að mega koma og taka bílinn af mér.
Síðan þurfa fulltrúi sýslumanns og
bankans að koma til mín og tilkynna
aðgerðina. Ekkert af þessu var gert.
Þeir fara bara fram með sínum lögum
og reglum. Þannig haga þessi fyrirtæki
sér í dag. Ef þeir hefðu komið á þann
hátt sem lög og reglur kveða á um
hefði ég tekið þessu þegjandi.“
Hann bendir á að Ögmundur Jón-
asson hafi áður lýst því yfir að aðgerðir
sem þessar væru ólöglegar. „En þetta
slær allt út núna þegar þeir fara um
eins og þjófar að nóttu meðan fólk sef-
ur í sakleysi sínu og hirða af því eigur
þess. Þetta er aðför að friðhelgi einka-
lífs fólks og aðför að almenningi. Ég
hef hvergi fundið neitt sem segir mér
að þetta sér réttmætt.“
Nafnlaus hótun í síma
Annað sem Filip er afar ósáttur við er
þegar honum barst símhringing fyrir
nokkrum vikum. „Ég fékk ekki uppgef-
ið nafn þess sem hringdi, hann kynnti
sig bara sem fyrirtæki í vörslusvipt-
ingu. Þar var mér sagt að það myndi
kosta mig 150 þúsund krónur ef ég
borgaði ekki inn á í bankanum. Þetta
er nafnlaus hótun í síma sem er auðvi-
tað algerlega ólöglegt athæfi.“
Hann segir að hann hafi nú leit-
að til Hagsmunasamtaka heimilanna
auk þess sem hann hafi skrifað þing-
mönnum og innanríkisráðherra vegna
málsins. „Ég mun fara með þetta mál
til enda og fórna mér í það ef það verð-
ur til að bjarga einhverjum.“
n Vörslusviptingarmenn á vegum SP-Fjármögnunar hirtu bíl Filips Woolford í skjóli nætur
n Filip hefur kært „þjófnaðinn“ n Sagt að um einkamál milli hans og fyrirtækisins væri að ræða
n Samtök lánþega (SL)
sendu frá sér yfirlýsingu
í vikunni þar sem þau
fordæmdu tilburði
fjármögnunar- og
vörslusviptingarfyrir-
tækja vegna brottnáms
bifreiða í skjóli nætur.
„Felst í slíkum gjörðum
brot á almennum hegningarlögum,
friðhelgi einkalífs ásamt fullkomnu
virðingarleysi sem fyrirtækið sýnir
almennum borgurum þessa lands með
framferði sínu. Það að fyrirtækin kjósi
að iðka lögbrot sín í skjóli nætur sýnir
óumdeilanlega að gjörningurinn er fram-
kvæmdur í vondri trú,“ sagði í tilkynn-
ingu. Þá furða samtökin sig á þátttöku
lögreglu í aðgerðunum þar sem farið
væri fram án heimildar en með vitneskju
lögreglunnar. Nokkur mál sem þessi hafa
komið inn á borð samtakanna undanfarið.
Stundum sé vörslusvipting nauðsynleg.
„Ákveðnar reglur gilda þó um hvernig fara
á með slíkt. Fjármálafyrirtækjum ber að
sjálfsögðu að fara eftir þeim reglum og
það má aldrei gerast, að úrskurðarvald
dómstóla í ágreiningsefnum sé framselt
til þeirra sem í ágreiningnum eiga.“ SL
þykir þá fráleitt að úrskurðarvald sé sett
í hendur fjármálafyrirtækjanna sjálfra
þegar kemur að ágreiningi milli lánþega
og lánveitanda. Skoruðu samtökin á
yfirvöld og lögreglu að bregðast við og
tryggja að lögreglan verji eigur almenn-
ings með því að stöðva aðgerðir sem
brjóta „með jafn augljósum hætti á
grundvallarrétti borgaranna.“ Lögmenn
SL vinna nú að sögn Guðmundar Andra
Skúlasonar, talsmanns samtakanna, að
kæru til lögreglu vegna mála sem þessara.
Virðingarleysi Sigurður Mikael Jónsson
blaðamaður skrifar mikael@dv.is
Sviptur bílnum
í Skjóli nætur
Málið frá sjónarhóli SP-Fjármögnunar
Forstöðumaður innheimtusviðs SP-Fjármögnunar, Regína Sigurgeirsdóttir, segir fyrirtækið
ósammála því að framvísa þurfi dómsúrskurði við vörslusviptingu. Hún segir að aðeins í 2
til 3 skipti hafi upp komið að fyrirtækið hafi þurft að sækja bíla í skjóli nætur. „Það hefur
verið gert vegna þess að viðkomandi aðili hefur ekki svarað símtölum eða búið er að leita
að viðkomandi bifreið í langan tíma. Þá höfum við brugðið á þetta ráð að fara í skjóli
nætur til að finna bíl. Varðandi framvísun dómsúrskurðar þá erum við ekki sammála því. Í
okkar samningsskilmálum er kveðið skýrt á um það að ef komi til riftunar á samningi – ef
viðkomandi stendur ekki við skilmála eða greiðir ekki af samningi – þá er okkur heimilt að
vörslusvipta bílinn án atbeina sýslumanns. Við teljum að þarna sé um bíl að ræða sem er í
okkar eigu enda fjármögnunarfyrirtæki skráð eigandi tækisins. Það er oft vitnað í dóma sem
fjallað hefur verið um vegna vörslusviptinga. Í þeim tilvikum sem mér er kunnugt um hefur
það verið þannig að vörslusviptingin hefur verið talin ólögmæt fyrir það að fyrirtækið hefur
ekki uppfyllt þau skilyrði sem þarf að uppfylla til að hægt sé að vörslusvipta. Við þurfum að
senda ákveðnar tilkynningar áður en til þess kemur. Það er áminningu, ítrekun, lokaítrekun
og í okkar tilvikum er síðan sent skeyti. Í framhaldi þess er send riftun og vísað á næstu inn-
heimtuleið ef ekkert er gert. Loks fer málið til vörslusviptingar ef viðkomandi skilar ekki bíl
innan tiltekins tíma.“
Almennt séð segir Regína að ef viðkomandi hafi staðið í skilum fram að endurútreikningi
lána sé ekki um að ræða vanskil heldur nokkuð sem SP-Fjármögnun kýs að kalla van-
greiðslu. „Eftir endurreikning samnings kemur í ljós að viðkomandi hefur greitt of lága
fjárhæð miðað við endurreiknað greiðsluflæði. Það tekur mið af Seðlabankavöxtunum
alveg frá upphafi samningsins og ljóst er að þeir voru umtalsvert hærri en erlendu vextirnir í
flestum tilvikum. Fólk hefur því verið að greiða of lága fjárhæð í hverjum mánuði sem fært er
inn á veltureikning hjá okkur. Og við kusum að kalla þetta vangreiðslur, sumir misskilja þetta
og telja að þarna sé um að ræða vanskil en svo er ekki. Í þeim tilvikum þar sem fólk hafði
vangreitt fór sú vangreiðsla inn í höfuðstólinn og viðkomandi byrjaði aftur í skilum með sinn
samning.“ Sama sé gert þegar um vanskil er að ræða.
„Við teljum okkur hafa gert þetta á sem bestan hátt fyrir alla okkar viðskiptavini. En auð-
vitað er endurútreikningurinn ekki að koma vel út fyrir alla. Það er alveg ljóst.“
Bíllinn hvarf
Filip Woolford
vaknaði á þriðju-
dagsmorgun til þess
eins að uppgötva
að vörslusviptingar-
menn á vegum SP-
Fjármögnunar höfðu
hirt bílinn hans um
nóttina.
MyNd GuNNar GuNNarSSoN