Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2011, Síða 14
14 | Fréttir 30. september–2. október 2011 Helgarblað
É
g vonaðist til að málinu yrði
vísað frá en það gerðist ekki.
Hann þarf því að mæta fyrir
kviðdóm 2. nóvember. Þann-
ig að óvissan heldur áfram,“
segir Hjördís Vilhjálms. móðir hins
25 ára Viktors Eyjólfssonar sem
handtekinn var 9. september síð-
astliðinn í St. Louis í Missouri í
Bandaríkjunum.
Viktor tók upp skammbyssu í
sjálfsvörn eftir að hafa verið hótað
lífláti, að eigin sögn, en maðurinn
sem hótaði honum kærði hann fyr-
ir vopnað rán. Viktor var í kjölfarið
handtekinn, færður í járnum inn
í lögreglubíl og haldið í tvo sólar-
hringa í fangelsi. Í fyrstu var krafist
sex milljóna króna í tryggingu svo
hægt væri að leysa hann úr haldi en
í ljós kom að nóg var að greiða 10
prósent af þeirri upphæð, eða sex
hundruð þúsund krónur í reiðufé.
Viðurlög við broti sem þessu geta
varðað allt að 10 til 30 ára fangels-
isvist í Missouri og er slíkt brot sett
undir sama hatt og nauðganir og
morð. Viktor fór fyrir dómara þann
23. september og bjuggust þau við
að málinu yrði vísað frá, enda var
lögfræðingurinn mjög bjartsýnn
á það. Það vantar hins vegar enn
gögn í málinu en vonast er til að
þau verði til staðar 2. nóvember.
Þá kemur að öllum líkindum í ljós
hvort gefin verði út ákæra í málinu
eða ekki.
„Ég get drepið þig“
„Þessi maður réðst á Viktor og henti
honum upp á bílhúdd og það voru
vitni að því. Ekki nóg með að hann
hótaði svo að drepa hann með hníf,
sem hann sýndi reyndar ekki, en
óttinn er til staðar, heldur sagði
hann: Ég get drepið þig á tuttugu
mismunandi vegu með hnífnum.“
Þannig lýsti Viktor málsatvikum
fyrir móður sinni. Viktor sem er
með byssuleyfi og á skammbyssu
sem hann var með í fórum sínum,
greip til hennar, beindi að mann-
inum og sagði: „Farðu frá!“ Hjördís
segir son sinn hafa verið hræddan
um líf sitt og því hafi hann gripið til
þessa örþrifaráðs.
Hjördís segir þó að Viktor sé
ekki í beint vandræðum vegna þess
að hafa tekið upp skammbyssuna.
Það hafi lögfræðingur tjáð honum.
Heldur gerir byssan það að verk-
um að kæran telst vera fyrir fyrstu
gráðu glæp.
Skipti við svikafyrirtæki
Forsaga málsins er sú að Viktor,
sem er nýfluttur til Missouri og
stundar rafmagnsverkfræði í Uni-
versity of Missouri í St. Louis, fékk
lásasmið að heimili sínu til að lag-
færa lás á útidyrahurð. Lásasmið-
urinn lagfærði lásinn, að því er
Viktor hélt, og greiddi hann fyrir
þjónustuna. Þegar betur var að gáð
sá Viktor hins vegar að ekki hafði
verið gert við lásinn. Hann reyndi
því að hafa samband við lásaþjón-
ustuna til að kvarta en það gekk
illa. Eftir að honum loksins tókst
að leggja fram kvörtun birtist um-
ræddur lásasmiður heima hjá hon-
um og krafði Viktor hann um end-
urgreiðslu. Lásasmiðurinn brást
hins vegar ókvæða við og heimtaði
rúmlega hundrað þúsund krónur
fyrir frekari lásaviðgerðir sem Vikt-
or kærði sig ekki um. Hjördís segir
að í kjölfarið hafi einhver orðaskipti
á milli sonar hennar og lásasmiðs-
ins en sá síðarnefndi hafi orðið „al-
veg trylltur“. Ástæðan fyrir því að
Viktor var með byssuna, að sögn
Hjördísar, var sú að honum leist
ekki á lásasmiðinn og var búinn að
heyra að fyrirtækið sem hann vann
hjá fyrir væri líklega svikafyrirtæki.
Hann tók því byssuna með sér út
þegar lásasmiðurinn mætti heim
til hans.
Fékk ekki að láta vita af sér
„Viktor bakkaði og þegar hann
kom inn á lóðina var eins og gaur-
inn kveikti á perunni og áttaði sig á
að þá væri Viktor í algjörum rétti.
Hann stoppaði því og elti hann ekki
inn á grasið. En hann hringdi lög-
regluna, af einhverri undarlegri
ástæðu sem enginn skilur, og kærði
Viktor fyrir vopnað rán. Ég veit ekki
hverju hann á að hafa rænt, því
hann rændi engu, ætlaði sér ekki
að ræna neinu og fékk ekki einu
sinni endurgreitt,“ segir Hjördís.
Nokkrum mínútum síðar hringdi
lásasmiðurinn þó aftur og afpant-
aði lögregluna en þá var það orðið
of seint. „Það var bara beint í „jail-
ið“, sími og belti tekið af honum og
hann gat ekki einu sinni látið kær-
ustuna sína vita. Hún hafði því ekki
hugmynd um hvar hann var þegar
hann kom ekki heim um nóttina.“
Viktor mátti svo dúsa í 48 klukku-
tíma í klefa með harðsvíruðum
glæpamönnum og var látinn sofa á
stálbekk.
Stolt af syninum
Hjördís segist þrátt fyrir þetta vera
þakklát fyrir að Viktor hafði byss-
una á sér innanklæða þegar hann
tók á móti lásasmiðnum. Hún seg-
ist þó ekki vita hvort lásasmiðurinn
var með hníf á sér eða ekki, en hót-
unin var alvarleg og hann í miklu
ójafnvægi. „Ef hann hefði verið með
hníf og Viktor ekki með byssu þá
væri ég kannski að flytja son minn
látinn heim. Maður veit það ekki,“
segir Hjördís sem vill ekki hugsa þá
hugsun til enda. „Mér finnst sonur
minn bara hafa staðið sig rosalega
vel og ég er mjög stolt af honum að
hafa brugðist svona við.“
Mikill kostnaður
Viktor fékk bandarískan lögfræð-
ing með aðstoð sendiherra Íslands
í Bandaríkjunum og ræðismanns
Íslands í Missouri og segir Hjör-
dís aðstoð þeirra hafa verið ómet-
anlega. Þá vill hún jafnframt taka
fram að íslenska utanríkisráðu-
neytið hafi reynst þeim vel. Viktor
þarf hins vegar að greiða allan lög-
fræðikostnað sjálfur og mun hann
nema að minnsta kosti sex hundr-
að þúsund krónum. Kostnaðurinn
getur þó hæglega aukist dragist
málið á langinn. Nú þegar er kostn-
aður vegna málsins kominn upp í
1,2 milljónir króna með tryggingu
og lögfræðikostnaði. „Það er hægt
að þvælast mjög lengi með svona
mál. Ég veit ekki hvort gögnin verða
tilbúin 2. nóvember,“ segir Hjördís,
en ef ekki mun kostnaðurinn strax
verða meiri.
Vantar björgunarsjóð
Utanríkisráðuneytið tjáði Hjördísi
að engir sjóðir væru til hér á landi
til að aðstoða Íslendinga í vand-
ræðum erlendis líkt og sonur henn-
ar er í. Hún sá því ekki annan kost í
stöðunni en að hrinda af stað söfn-
un og sendi nýlega út dreifbréf til
útvaldra aðila þar sem hún óskaði
eftir fjárhagsaðstoð. Hjördís seg-
ir söfnunina hafa farið ágætlega
af stað en enn sé langt í land með
að ná upp þann kostnað sem þeg-
ar hefur af hlotist. Hún óskar eftir
stuðningi bæði fyrirtækja og ein-
staklinga. Þeir sem kunna að vilja
leggja þeim lið geta haft samband
við Hjördísi í gegn um netfangið
h.vilhjalms@gmail.com.
„Það hafa margir Íslendingar
lent í svona í gegnum árin og marg-
ir eiga eftir að lenda í þessu og ég vil
biðja Alþingi um að að bæta réttar-
stöðu íslenskra ríkisborgara á ferð-
um sínum erlendis,“ segir Hjördís
sem vill að komið verði á fót björg-
unarsjóði fyrir Íslendinga í svip-
aðri stöðu og Viktor er í. „Það þarf
að vera hægt að hjálpa íslenskum
ríkisborgurum. Ríkið er að borga
til dæmis fyrir fangaflutninga fyrir
erlenda fanga til útlanda,“ bendir
Hjördís á og finnst óréttlátt að ekki
sé hægt að styrkja hana svo hún
komist til að vera hjá syni sínum 2.
nóvember næstkomandi. „Ég upp-
lifi þetta sem kviksyndi fjárkúgun-
ar. Það geta allir lent í svona,“ seg-
ir Hjördís. Hún skorar jafnframt á
kreditkortafyrirtæki og trygginga-
félög að hefja sölu á tryggingum
sem ná yfir aðstoð við fólk í aðstæð-
um líkt og Viktor er í.
Kennararnir sýna skilning
„Ég er mamma hans og ég vil auð-
vitað fara til hans,“ segir Hjördís, en
óvissan er henni erfiðust. Hún veit
ekki hvað verður en er þó vongóð
og telur miklar líkur á því að málið
verði að lokum fellt niður. Hjördís
segir Viktor allan að koma til eftir
atvikið og að hann reyni að mæta
skólann. Í fyrstu reyndist það hon-
um erfitt en hún hvatti hann til að
mæta svo hann myndi ekki falla á
önninni. Viktor ákvað jafnframt að
upplýsa kennarana sína um stöð-
una og segir Hjördís að þeir sýni
honum mikinn skilning vegna
málsins sem og allir aðrir sem til
málsins þekkja.
Hjördís vill að lokum koma á
framfæri þökkum til allra þeirra
sem hafa stutt hana og son hennar
á þessum erfiðu tímum.
Íslendingur
kærður fyrir
vopnað rán
„Ef hann hefði verið
með hníf og Viktor
ekki með byssu þá væri
ég kannski að flytja son
minn látinn heim. Maður
veit það ekki.
n Viktor Eyjólfsson tók upp skammbyssu í sjálfsvörn og var kærður n Var hótað lífláti
n Mátti dúsa í klefa með harðsvíruðum glæpamönnum n Móðir hans hrindir af stað söfnun
Sjálfsvörn Viktor tók upp skamm-
byssu í sjálfsvörn eftir að hafa verð
hótað lífláti. Hann var í kjölfarið
handtekinn og sat í fangelsi í tvo daga
þangað til hann var leystur út.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
blaðamaður skrifar solrun@dv.is
Safnar fyrir soninn Hjördís hefur
hrundið af stað söfnun fyrir son sinn en
kostnaður vegna málsins er þegar orðin 1,2
milljónir króna.
Dómstóll í St. Louis í Missouri Viktor
bíður þess að réttað verði yfir honum. Hann
er borinn þungum sökum en segist hafa
verið að verjast árás.
Vill vinna
Útsvar
Ómar Stefánsson, bæjarfulltrúi
Framsóknarflokksins í Kópavogi,
virðist hafa mikinn metnað fyrir
spurningaþættinum Útsvari í Sjón-
varpinu.
Á fundi bæjarstjórnar í síðustu
viku lagði Ómar fram eftirfarandi
bókun: „Það er mikilvægt að í Út-
svarslið Kópavogs verði valið fólk
sem vill sigra en ekki bara taka
þátt. Legg því til að auglýst verði
eftir ábendingum frá Kópavogsbú-
um í tilvonandi sigurlið bæjarins.“
Raunar féll bókunin um sig sjálfa
því Útsvars lið Kópavogsbæjar hefur
þegar verið valið.
Mynda
vinnuhóp
Fulltrúar Landssambands lögreglu-
manna, ásamt fjármálaráðherra,
ráðuneytisstjórum forsætis-, fjár-
mála- og innanríkisráðuneytisins,
meðlimum samninganefndarinn-
ar og aðstoðarmanni fjármálaráð-
herra, funduðu á fimmtudag til þess
að reyna að finna lausn á málefn-
um lögreglumanna. Fundurinn var
haldinn að ósk lögreglumanna og
brást ráðuneytið fljótt við umleitan
þeirra. Á fundinum munu báðir að-
ilar hafa reifað sjónarmið sín opin-
skátt og deilt áhyggjum sínum af
stöðu mála. Niðurstaða fundarins
var sú að mynda vinnuhóp sem
hefur störf í dag, föstudag, með það
að markmiði að þoka málum áfram í
réttan farveg.
Fangi grunað-
ur um nauðgun
Fangi á Litla-Hrauni er grunaður
um að hafa byrlað samfanga sínum
ólyfjan og nauðgað honum. Maður-
inn var fluttur í fangelsið á Akureyri
í vor. Hann afplánar 14 ára fangels-
isdóm og hefur tvisvar áður verið
grunaður um að hafa misnotað
samfanga sína. Reynt var að leysa
úr málinu á Litla-Hrauni, en það
gekk ekki og var maðurinn því flutt-
ur til. Páll Winkel fangelsismála-
stjóri segir úrræði og aðstöðu vanta
til þess að takast á við kynferðisbrot
í fangelsum landsins. Hægt sé að
veita fórnarlömbunum sálfræðiað-
stoð og málin eru kærð til lögreglu.
Erfitt er hins vegar að skilja gerend-
ur frá fórnarlömbum þar sem lítið
pláss er í fangelsum landsins. RÚV
greindi frá.