Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2011, Síða 17
menn. „Við komum þarna að þegar
sjúkraflutningamennirnir voru flún-
ir,“ sagði hann. „Allur sjúkrabíll-
inn var útataður í blóði.“ Þegar lög-
reglumennirnir komu að manninum
þurftu þeir að ná stjórn á aðstæðun-
um og yfirbuga manninn. Bæði til að
koma í veg fyrir að hann skaðaði sjálf-
an sig og aðra.
Allir lögreglumennirnir og sjúkra-
liðarnir sem komu að þessu máli
þurftu strax og málinu var lokið að
fara á sterkan lyfjakúr við lifrarbólgu.
Þeir þurfa líka að bíða í sex mánuði
í óvissu áður en þeir fá úr því skorið
hvort eiturlyfjasjúklingurinn smit-
aði þá af lifrarbólgu. „Ég bara reikna
núna með því að allir sem ég á við
séu smitaðir af lifrarbólgu C eða HIV,“
sagði lögreglumaðurinn. „Ég kem
ekki við neinn nema í hönskum.“
Á vaktinni voru margir sem vildu
fá að taka í höndina á lögreglumönn-
unum sem óku með blaðamann og
ljósmyndara. „Nei, takk, ég veit ekk-
ert hvar höndin á þér hefur verið,“
var svarið sem allir lögreglumenn-
irnir þrír sem voru í bílnum gáfu
þegar þeim var boðið handaband. Í
framsæti lögreglubílsins var líka stór
brúsi af sótthreinsandi geli sem lög-
reglukonan í framsætinu sagði að
væri staðalbúnaður hjá lögreglunni.
„Við viljum ekki taka í höndina á ein-
hverjum og lesa svo á bloggi á net-
inu: Hey, vitið þið hvað ég gerði? Ég
stakk hendinni upp í rassgatið á mér
og heilsaði svo löggunni.“ „Það hefur
gerst,“ sagði lögreglumaðurinn við
stýrið. „Ojá, það hefur gerst.“
Hika ekki við að ráðast
á lögguna
Það eru margir sem ausa úr skál-
um reiði sinnar yfir lögreglumenn
á vakt í miðborginni. Blaðamaður
fylgdist með mörgum tilraunum
drukkinna einstaklinga til að sví-
virða lögreglumenn. „Það er eins og
fólk geri sér ekki grein fyrir því að
við erum líka fólk,“ sagði lögreglu-
maðurinn þegar hann stöðvaði bíl-
inn fyrir aftan annan lögreglubíl þar
sem tvær drukknar stelpur voru að
reyna að taka myndir af lögreglu-
mönnum að störfum sem handtek-
ið höfðu skemmdarvarg við Bæjar-
ins bestu.
Þegar ljósmyndari DV ætlaði út
úr bílnum að taka mynd af stúlk-
unum kom bersýnilega í ljós að fólk
setur lögreglumenn ekki á sama
stall og það setur sjálft sig. „Hvað
ertu að gera? Eyddu myndinni. Ég
er móðir,“ sagði ölvuð konan sem
veittist að ljósmyndaranum þegar
hann tók mynd af henni taka mynd
af lögreglumönnum við skyldu-
störf. Rúmlega tvítug lögreglukona
sem sat í aftursætinu stökk þá á fæt-
ur og kom í veg fyrir að ljósmyndar-
inn yrði fyrir líkamsárás.
„Sjáðu, eins og með þetta. Hún
hélt örugglega að þú værir lög-
reglumaður með myndavél en hik-
aði samt ekki við að ráðast á þig,“
benti lögreglumaðurinn sem leiddi
vaktina á.
Átján ára í fangaklefa
Tveir af þeim þremur lögreglu-
mönnum sem blaðamaður fylgdi
aðfaranótt sunnudags eru foreldrar.
Ökumaður lögreglubílsins á son
sem var að hefja nám í framhalds-
skóla og átta mánaða barn en lög-
reglukona, sem vann í banka til
ársins 2008 áður en hún gekk í lög-
regluna, á sextán ára dóttur. Á hverj-
um degi eiga þau við börn á aldur
við sín eigin. Það var ekki liðið langt
á vaktina þegar boð kom frá bráða-
móttökunni á Landspítalanum um
að flytja þurfti mann til gistingar í
fangageymslum lögreglunnar. Mað-
urinn er fæddur árið 1993 og sagð-
ist ekki hafa í önnur hús að venda
þar sem fjölskylda hans hefði hent
honum út fyrir tveimur árum vegna
fíkniefnaneyslu. Hann fékk gistingu
hjá lögreglunni þar sem hann átti
bókaðan tíma hjá geðlækni daginn
eftir. Hann sagðist sjálfur vera ónýt-
ur af fíkniefnaneyslu. „Þetta er alltaf
erfitt,“ sagði lögreglukonan aðspurð
hvort það tæki ekki á að flytja svona
ungan mann í fangageymslur.
Á lögreglustöðinni við Hverfis-
götu eru nokkrir fangaklefar. Tveir
fangaverðir standa þar vaktina auk
lögreglumanns. Það er alltaf hægt
að sjá hversu margir fangar eru í
klefunum á því hversu mörg skópör
eru fyrir framan þá. Þegar blaða-
maður og ljósmyndari mættu á
vaktina var aðeins eitt skópar fyrir
utan klefa. Þegar vaktinni lauk voru
þau orðin fimm. Hljóðið sem heyr-
ist þegar klefunum er lokað er þungt
og í raun yfirþyrmandi. „Þetta er
hljóð sem enginn vill heyra,“ sagði
varðstjórinn.
Fréttir | 17Helgarblað 30. september–2. október 2011
í meira en eitt ár hafi á einhverjum
tímapunkti þurft að finna lykt af
rotnandi líki.
„Svo allt í einu finnur maður
þessa lykt heima þegar maður er
að elda,“ sagði svo lögreglumaður-
inn allt í einu. „Það er bara einhver
lykt af kjötinu sem maður er að elda
og þá bregður fyrir augun á manni
einhverjum aðstæðum sem mað-
ur upplifði í vinnunni. Þá er maður
ekkert að fara að borða matinn.“
Lifrarbólgusmit daglegt brauð
„Við förum inn í aðstæður sem aðrir
flýja,“ sagði lögreglumaðurinn. Nefn-
ir hann sem dæmi nýlegar aðstæð-
ur þar sem eiturlyfjasjúklingur sem
smitaður er af lifrarbólgu C, sem er
ólæknandi smitsjúkdómur, var með
opið sár og slóst við sjúkraflutninga-
Leggja Líf sitt að
veði á hverri vakt Launin hafa hækkað lítið:Yfirvinna togar launin uppLaun lögreglumanna hafa hækkað minna en laun annarra starfstétta. Útborguð laun til lögreglumanna eru þó að meðaltali hærri en hjá mörgum
öðrum starfstéttum. Útskýrist það af
ýmsum álagsgreiðslum, yfirvinnu og
vaktagreiðslum sem margir lögreglu-
menn fá. Til að fá raunverulega mynd af
launum lögreglumanna er best að skoða
hvað er á bak við þær álagsgreiðslur sem
lögreglumenn fá.
DV hefur undir höndum nokkra
launaseðla lögreglumanna. Einn þeirra
er launaseðill rannsóknarlögreglu-
manns sem hefur starfað í lögreglunni
um nokkurra ára skeið. Sá fær greiddar
að jafnaði um 335 þúsund krónur í laun.
Inni í þeirri greiðslu eru föst laun upp á
rúmlega 295 þúsund krónur. Þrekálag
upp á 18 þúsund krónur bætist svo ofan
á það standist lögreglumaðurinn þrek-
próf. Til viðbótar eru greiddar 15 þúsund
krónur í sérstaka álagsgreiðslu.
Í nýföllnum gerðardómi hækkuðu
þessar greiðslur til lögreglumanna um
nokkur þúsund krónur. Álagsgreiðslan
var hækkuð um 13 þúsund krónur sem
og föst laun lögreglumanna. Fengu
lögreglumenn sambærilega hækkun
á sínum launum og aðrar stéttir í þeim
kjarasamningum sem gerðir voru í
sumar. Lögreglumenn eru hins vegar
afar ósáttir þar sem laun þeirra hafa
ekki hækkað til jafns við laun annarra
stétta. Í niðurstöðu kjaradóms kom
meðal annars fram að dagvinnulaun
starfsmanna innan BSRB hafi hækkað
um 5,75 prósent á árunum 2001–2010 en
laun innan Landssambands lögreglu-
manna um 4,58 prósent.
Föst mánaðarlaun 297.240 kr.
Yfirvinna 8.952 kr.
Orlof á yfirvinnu 1.167 kr.
Þrekálag 18.000 kr.
Sérstök álagsgreiðsla 15.000 kr.
Dæmi um launaseðil
lögreglumanns í ár:
„Þú manst alltaf eftir
því þegar þú finnur
fyrst lykt af vikugömlu líki
„Við förum inn í að-
stæður sem aðrir flýja
Þungt yfir lögreglu-
mönnum Niðurstaða
gerðardóms situr þungt í
lögreglumönnum.
Mynd EyÞór Árnason
Ekkert óviðkomandi Lögreglan
þarf að sinna ýmsum verkefnum.
Allt frá því að sekta fólk sem pissar
á hús til þess að skakka leikinn í
hörðum slagsmálum. Þessi var að
pissa utan í hús. Mynd EyÞór Árnason
óljós viðbrögð Lögreglan hefur í nógu að
snúast og þarf oft að eiga við fólk sem hún
veit ekki hvernig bregst við afskiptunum.
Mynd EyÞór Árnason
Hika ekki við að gera árás
Þessi kona réðst á ljósmyndarann
um leið og hún áttaði sig á því að
hann hafði stigið út úr lögreglubíl.
Mynd EyÞór Árnason