Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2011, Qupperneq 19
D
agbjartur Heiðar Arnars-
son stundaði nám í Grunn-
skólanum í Sandgerði. Hann
var ellefu ára gamall þegar
hann svipti sig lífi síðast-
liðinn föstudag en hann hafði verið
fórnar lamb eineltis frá sex ára aldri og
glímdi við geðraskanir og þunglyndi.
Í úttekt menntamálaráðuneytis-
ins á Grunnskólanum í Sandgerði frá
því í vetur kemur fram að faglegt starf
fari fram í skólanum en gildin vin-
átta, vöxtur, vilji og virðing eru leiðar-
ljós skólans. Engu að síður er ljóst að
ákveðnum nemendum líður ekki vel
og að félagsleg staða margra er slæm.
Þá hefur reynst erfitt að fá foreldra til
þess að vinna með skólanum.
Erfitt að virkja foreldra
Niðurstaðan er sú að skólinn hefur
skýra stefnu og uppeldislega sýn,
sterka faglega leiðtoga með mikinn
metnað. Í fyrsta sinn í áratugi hafi allir
kennarar réttindi og starfsandi í skól-
anum er góður.
Fleira þykir jákvætt. Foreldrar eru
almennt ánægðir með skólann og líð-
an barna sinna. En þar sem skilning-
ur þeirra á mikilvægi menntunar virð-
ist ekki nægilegur í samfélaginu hefur
gengið erfiðlega að virkja foreldra til
samstarfs við skólann.
Skólaráð starfar ekki sem skyldi í
samræmi við lög um grunnskóla og
nemendafélag er ekki virkt í skólan-
um. Þó virðist sem aðgerðir skólans,
sveitarfélags og foreldrafélags í þá
veru hafi meðal annars skilað meiri
áhuga foreldra á setu í stjórn foreldra-
félagsins og mætingu á viðburði inn-
an skólans.
Einelti jókst lítillega
Í úttektinni segir meðal annars að
frumábyrgð á uppeldi og menntun
hvíli á foreldrum en skólinn eigi í sam-
starfi við heimilin að veita börnum
og unglingum einstaklingsmiðaða
menntun til að takast á við líf og starf.
Hlutverk skólans sé einna helst að sjá
nemendum fyrir formlegri fræðslu og
taka þátt í félagslegri mótun þeirra.
Í úttektinni kemur einnig fram
að sérstök áhersla sé lögð á Uppeldi
til ábyrgðar – uppbyggingu sjálfsaga
og Olweusaráætlun, en skólinn hef-
ur unnið eftir þeirri áætlun að því að
fyrirbyggja einelti og andfélagslega
hegðun. Samkvæmt könnunum jókst
einelti árið 2010 í 13% miðað við 11%
árið áður. Skólastjórnendur og starfs-
menn skólans töldu að það mætti
skýra með því að mikil umræða hefði
verið um einelti þegar könnunin fór
fram og því mögulegt að hegðun sem
ekki væri einelti hefði verið skilgreind
sem slík. Engu að síður voru gerðar
aðgerðaráætlanir og eineltisáætlanir.
Yngri drengjum líður ekki vel
Í sjálfsmati skólans kemur einnig fram
að líðan meðal hóps yngri drengja sé
ekki góð og að stórum hluta þeirra
finnist ekki gaman í skólanum.
Félagsleg staða margra nemenda er
sögð slæm. Og þar sem sjálfsálit nem-
enda skólans og stjórn á eigin lífi, van-
líðan og fjarvistir, er heldur lakara en á
landsvísu, sérstaklega á unglingastigi,
hefur skólinn einnig leitað leiða til úr-
bóta. Ekki síst með það að marki að
gera börnum og unglingum kleift að
fá jákvæða þjálfun í samskiptum.
Bekkjarfundir eru til að mynda
haldnir vikulega, þar ræða nemend-
ur um hvernig gengur, líðan, hvað
hafi gerst í frímínútum og fleira. Hjá
þeim kom fram að Uppeldi til ábyrgð-
ar hefði breytt hegðun, „komum ekki
lengur illa fram við strák“. Sögðu þeir
að allir væru jafnir, lítið væri um ein-
elti, skólinn væri með Olweusaráætl-
un og mikið væri búið að vinna með
einelti og það hefði hjálpað þeim.
Unnið með agavandamál
Agi í skólanum þykir óásættanlegur
en átta prósent foreldra sögðust mjög
og frekar óánægð með agann. Verið er
að vinna með þessa þætti.
Skólaárið 2007–2008 var til dæmis
sett af stað verkefnið Riddaragarður
þar sem markvisst er unnið með nem-
endur í fyrsta til fjórða bekk sem þurfa
á sérstöku úrræði að halda vegna
hegðunarfrávika. Verkefnið gekk vel
og haustið 2010 var ákveðið að starf-
semin tæki yfir bæði yngra og miðstig.
Fjöldi nemenda með greiningu
Þá kemur fram að Grunnskólinn í
Sandgerði sé „þungur“ skóli, en um
20% nemenda eru með einhvers kon-
ar greiningar, sem er hærra hlutfall en
hjá öðrum skólum á Suðurnesjum. Að
mati kennara skólans tefst greiningin
hjá skólasálfræðingi, þeir eru ánægð-
ir með ráðgjöfina en telja að hún taki
of langan tíma og taka dæmi um að
mál hafi farið til skólasálfræðings að
hausti en niðurstaða hafi ekki kom-
ið fyrr en undir vor. Það hefur skapað
álag í bekkjum og óþægindi fyrir við-
komandi nemanda, kennara og for-
eldra.
Áhersla lögð á að stöðva einelti
Tillögur til umbóta felast meðal ann-
ars í því að auka ánægju nemenda
í skólanum, sérstaklega drengja, að
stöðva einelti, gera alla nemendur
ábyrga fyrir hegðun sinni og vinna
markvisst að því að auka jákvæða
hegðun og aga, samviskusemi og
metnað.
Til þess að uppfylla þær kröfur
sem úttekt þessi leggur áherslu á þarf
skólinn að mati úttektaraðila að gera
ráðstafanir varðandi nítján atriði. Þar
á meðal eru atriði eins og að virkja
skólaráð betur sem samráðsvett-
vang, efla nemendaráð, bæta árangur
nemenda á samræmdum könnunar-
prófum og PISA, rýna vel í kannanir
á líðan, fjarvistir, aga og einelti, auka
áhrif nemenda á skólastarfið, bæta
samstarf heimilis og skóla, tryggja að
greiningar nemenda með sérþarf-
ir taki ekki of langan tíma og efla að-
komu heilsugæslu að málum nem-
enda með geðrænan vanda.
Að lokum er bent á að í ljósi lágs
menntunarstigs í sveitarfélaginu,
sem virðist hafa einhver áhrif á skóla-
starfið, gæti sveitarfélagið kannað
leiðir í samstarfi við menntastofn-
anir, Fræðslumiðstöð atvinnulífsins
og Fræðslumiðstöð Suðurnesja til að
hækka menntunarstigið.
Fréttir | 19Helgarblað 30. september–2. október 2011
„Agi í skólanum
þykir óásættan-
legur en átta prósent
foreldra sögðust mjög
og frekar óánægð með
agann. Verið er að vinna
með þessa þætti.
Vanlíðan
skóladrengja
í Sandgerði
n Menntamálaráðuneytið gerði úttekt 2011 n Lægra sjálfsálit og stjórn á eigin lífi minni en á landsvísu
n Eineltisáætlun sögð skila árangri: „Komum ekki lengur illa fram við strák,“ segja nemendur
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir
ingibjorg@dv.is
Skýrsla
Grunnskólinn í Sandgerði Fær almennt góða einkunn í úttekt ráðuneytisins þó að þar þurfi
ýmislegt að bæta. Nemendur sögðu að allir væru jafnir, lítið væri um einelti og að þeir kæmu ekki
lengur „illa fram við strák“. Einelti jókst þó lítillega á milli ára, fór úr 11% árið 2009 í 13% 2010.