Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2011, Qupperneq 20
20 | Erlent 30. september–2. október 2011 Helgarblað
Frelsi til að
kaupa bíla
Stjórnvöld á Kúbu hafa nú gefið
grænt ljós á að allir íbúar landsins
geti keypt allar tegundir af bílum.
Áður voru frjáls viðskipti bundin við
bílategundir sem framleiddar voru
fyrir byltinguna árið 1959. Er það
ein af ástæðum þess að gríðarlegur
fjöldi klassískra amerískra bíla sést
jafnan á götum Havana, höfuðborg
ar Kúbu. Almenningur hefur kallað
eftir þessari breytingu í áraraðir og
draumurinn verður loks að veruleika
á laugardag þegar lögin öðlast gildi.
Bíleigendur sem flytja úr landi geta
nú selt bíla sína, en áður gátu yfir
völd lagt hald á bifreiðar hjá einstakl
ingum sem kusu að flytja frá Kúbu.
Best að búa
í Frakklandi
Samkvæmt nýrri rannsókn neyt
endafyrirtækisins uSwitch er best að
búa í Frakklandi af ríkjum Evrópu.
Hafa ber í huga að rannsókn fyrir
tækisins tók aðeins til tíu landa;
Bretlands, Ítalíu, Spánar, Frakklands,
Svíþjóðar, Danmerkur, Hollands, Ír
lands, Þýskalands og Póllands.
Í rannsókninni var tekið til
lit til ýmissa þátta sem snerta lífs
gæði fólks, svo sem fjölda vinnu
tíma, fjölda frídaga, sólskinsstunda
og á hvaða aldri vinnandi fólk sest í
helgan stein. Þá var einnig tekið til
lit til verðlags á ýmsum nauðsynja
vörum. Bretland kom verst út í rann
sókninni en þar þykir verðlag hátt
og fjöldi frídaga á hverju ári er að
meðaltali aðeins 28 dagar. Þá hætta
Bretar á vinnumarkaði tiltölulega
seint, eða að meðaltali þegar þeir
eru 63 ára.
V
ladimír Pútín verður að öll
um líkindum aftur forseti
Rússlands en kosningar fara
fram í landinu á næsta ári.
Dimitri Medvedev, núver
andi forseti, ætlar að gefa eftir emb
ættið fyrir Pútín. Árið 2000 var Pútín
fyrst kjörinn forseti Rússlands eftir að
hafa verið forsætisráðherra í eitt ár.
Hann var forseti í átta ár áður en hann
þurfti að hætta tímabundið sem for
seti þar sem lög í landinu komu í veg
fyrir að hann gæti boðið sig fram til
forseta aftur. Pútín tók því við sem
forsætisráðherra árið 2008 og eftir
lét Medvedev tímabundið embættið.
Öllum er hins vegar ljóst að Pútín hef
ur alla tíð verið maðurinn með völd
in. Hið óumflýjanlega var svo staðfest
á dögunum þegar Medvedev ákvað
að hann ætlaði að hleypa Pútín aft
ur í forsetastólinn. Það þýðir að Pút
ín getur orðið leiðtogi landsins til að
minnsta kosti ársins 2024 en þá verð
ur Pútín orðinn 72 ára. Eitt af fyrstu
verkum Medvedevs sem forseti var
nefnilega að lengja kjörtímabil forseta
í sex ár. Fari svo að Pútín muni stjórna
landinu svo lengi verður valdatíð hans
álíka löng og Josefs Stalín og Leonids
Brezhnev.
Hvaða forseti?
Fréttaskýrendur New York Times
spyrja sig nú hvers megi vænta af
Vlad imír Pútín í forsetastóli. Má búast
við að við sjáum fautann sem svaraði
spurningu fransks blaðamanns um
mannfall óbreyttra borgara í Tsjetsj
eníu með því að hóta að umskera
hann? Mun hann vera jafn afgerandi
og þegar hann lýsti því yfir á Rauða
torginu árið 2007 að utanríkisstefna
Bandaríkjanna minnti hann á þriðja
ríkið? Verður hann landsföðurlegi
leiðtoginn eins og sá sem kraup nið
ur í Katynskóginum til að minnast
20.000 pólskra lögreglumanna sem
sovéskir hermenn slátruðu í seinni
heimsstyrjöldinni? Pútín á sér margar
hliðar og þær hefur hann sýnt á sinni
12 ára valdatíð í Rússlandi, frá því
hann steig út úr skugganum sem hátt
settur embættismaður í leyniþjónust
unni og gerðist drottnari rússneskra
stjórnmála.
Nokkrar umbætur
Talið er að Pútín muni að mörgu
leyti halda áfram með stefnuna sem
Medvedev hefur markað frá því hann
varð forseti árið 2008. Hann hefur vilj
að efla viðskipti í landinu og byggja
upp traust erlendra fjárfesta auk þess
að vinna að lýðræðisumbótum. Ólík
legt er hins vegar talið að Pútín sé
spenntur fyrir því að greiða götuna
fyrir lagafrumvörpum sem snúa að
því að færa valdið frá Kreml. Má þar
nefna að aðskilja dómsvaldið frekar
frá framkvæmdavaldinu.
„Pútín hefur bara einn stjórnunar
stíl og það er lóðréttur stjórnunarstíll.
Hann ræður og fyrir neðan hann eru
undirmenn. Hann hefur aldrei lært
að stjórna öðruvísi. Hann hefur aldrei
haft mikinn áhuga á skoðunum ann
arra eða málamiðlun,“ segir fyrrver
andi bandamaður Pútíns.
Munurinn á Pútínog Medvedev er
sagður sá að Pútín stendur fyrir stöð
ugleika á meðan Medvedev hefur lagt
meiri áherslu á nútímavæðingu. Eitt
hvað virðist Pútín þó vera að þokast
í átt að nútímanum. Það vakti nefni
lega nokkra athygli þegar hann skip
aði opinberum stofnunum að nota
frekar rafræn gögn í stað útprent
aðra skjala. Þessi yfirlýsing kemur frá
manni sem er sagður varla nota inter
netið.
Opinn fyrir vestrænu samstarfi
Pútín er einnig talinn vera að mildast
eitthvað í afstöðu sinni til mannrétt
indamála. Þannig sagði hann á fundi
í síðustu viku að leiðtogar þyrftu að
hlusta á gagnrýni mannréttinda
samtaka. Hann tók þó fram að bar
áttumenn fyrir mannréttindamálum
hefðu „áhyggjur af vandamálum sem
hafa ekki áhrif á daglegt líf fólks.“ Þessi
yfirlýsing kemur frá manni sem árið
2007 sagði að mannréttindafrömuðir
héngu utan í erlendum sendiráðum
eins og villihundar.
Þá virðist hann vera opinn fyrir
auknu samstarfi við Vesturlönd.
Þannig undirritaði hann samning
í ágúst síðastliðnum sem heimilar
olíu fyrirtækinu Exxon að leita að olíu
á rússnesku yfirráðasvæði í Norður
Íshafi. Hann er einnig sagður fylgj
andi áformum Medvedevs um að
styrkja tengslin við Breta, en sam
skipti þjóðanna hafa verið köld und
anfarin ár.
Í ræðu sem hann hélt á dögunum
sagði Pútín: „Við verðum að tala heið
arlega um að hagkerfi okkar er algjör
lega undir hráefni komið. Við verðum
að tala um að félagslegur ójöfnuð
ur er orðinn hættulegur, um ofbeld
ið, spillinguna og óréttlætið sem fólk
upplifir þegar það á í samskiptum við
opinberar stofnanir og dómstóla.“
Einræði Pútíns
Ein af stærstu ósvöruðu spurn
ingunum er hvort og þá hvernig Pútín
kemur til með að þola margræði í
Rússlandi. Á sínu fyrsta kjörtímabili
sölsaði hann undir sig yfirstjórn á
sjónvarpsstöðvum sem höfðu gagn
rýnt stefnu hans. Hann útrýmdi einn
ig beinum kosningum á fylkisstjór
um og öldungadeildarþingmönnum í
Rússlandi. Þannig styrkti hann tök sín
á landinu.
Rússneskt samfélag hefur hins
vegar breyst mikið á síðustu árum.
Það hefur opnast og Rússar geta nú
skoðað erlendar fréttir á netinu og
mótað sér þannig skoðanir á málum
án handstýrðra fjölmiðla í Kreml. Lífs
kjör hafa versnað og sömuleiðis hafa
vinsældir Sameinaðs Rússlands, sem
er flokkur Pútíns, dvínað.
Aleksei Mukhin, forstöðumaður
rannsóknarstofnunar um rússnesk
stjórnmál í Moskvu, segir að Pútín
sé frjálslyndur alveg þar til honum
er ógnað. „Um leið og honum finnst
staða sín vera orðin hættuleg þá breyt
ist hann umsvifalaust í einræðisherra.
Þetta er einhver sjálfsvararnarhamur.“
Þessi undarlega blanda af endur
bótum og einræði – eða öllu heldur
sterku miðstýrðu valdi í Kreml – er
nokkuð sérstök. Hann minni á Pyotr
Stolypin, sem var forsætisráðherra í
rússneska keisaradæminu á 19. öld.
Sá stóð fyrir umfangsmiklum umbót
um fyrir bændur en lét svo hengja alla
andstæðinga sína.
Mukhin segir að Pútín sé maður
sem gerir það sem hann telur nauð
synlegt að gera en uppgötvar síðan
að það er ekki nóg til að tryggja völd
hans. Þá gengur hann lengra.
„Hann er umkringdur jámönnum
sem hrósa honum, sem fylgja honum
og gera allt sem hann segir. Þeir græða
líka ríkulega á því sjálfir,“ segir annar
heimildarmaður.
n Vladimír Pútín verður aftur forseti n Getur nú stjórnað til
2024 n Frjálslyndur en líka einræðissinni n Búist við umbótum„Mun hann vera
jafn afgerandi og
þegar hann lýsti því yfir á
Rauða torginu árið 2007
að utanríkismálastefna
Bandaríkjanna minnti
hann á þriðja ríkið.
Valgeir Örn Ragnarsson
valgeir@dv.is
Rússland
Pútín eflist
Vladimir Putin Verður
forseti aftur og getur
ráðið ríkjum til 2024.
Dæmdur til
dauða vegna
trúar
Yusuf Naderkhani var dæmdur
til dauða í Íran fyrir að hafa tekið
kristna trú og afneitað íslam. Lög
fræðingur hans segist vera bjartsýnn
á að hann verði sýknaður í hæstarétti
landsins. Yusuf tók kristna trú þegar
hann var 19 ára og hefur starfað sem
prestur við kristinn söfnuð í Íran.
Hann var handtekinn árið 2009 fyrir
að hafa afneitað íslam. Hann var þá
þrítugur. Í fyrra var hann dæmdur
til dauða. Hann áfrýjaði málinu en
hann hefur fengið þau skilaboð frá
yfirvöldum að ef hann afneiti kristni
og taki upp íslam að nýju verði hann
sýknaður, en lögfræðingur hans segir
að það séu litlar líkur á því að Yusuf
samþykki það. Stjórnvöld í Íran eru
undir miklum þrýstingi þess efnis að
Yusuf verði sýknaður og látinn laus.