Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2011, Side 21
Erlent | 21Helgarblað 30. september–2. október 2011
H
ann lítur ekki út eins og hann
hafi búið í skóginum í lengri
tíma,“ segir Thomas Neuen
dorf, talsmaður lögreglunnar
í Berlín í Þýskalandi, um dularfullt
mál sem kom upp í byrjun mánað
arins.
Þá gekk sautján ára drengur inn í
ráðhúsið í Berlín og tilkynnti að hann
hefði búið í skógi suður af Berlín und
anfarin fimm ár. Faðir hans hefði lát
ist fyrir tveimur vikum og hann grafið
hann einhvers staðar í skóglendinu.
Lögregla hefur unnið að rannsókn
málsins síðan en virðist vera engu
nær um forsögu drengsins.
Drengurinn segist heita Ray en
er ekki með eftirnafn sitt á hreinu.
Hann sagði við lögreglu að hann
og faðir hans hefðu flust út í skóg
í kjölfar dauða móður hans fyrir
fimm árum og hann ætti enga aðra
ættingja.
„Tjaldið sem hann var með með
ferðis var notað, já, en ekki jafn mik
ið notað og maður myndi búast við
eftir fimm ár í skóginum. Hann var
líka hreinn og fötin hans voru til
tölulega hrein. Neglurnar voru
vel hirtar og hendurnar hans voru
hreinar og mjúkar,“ hefur Telegraph
eftir Neuendorf. Þá hefur lík föður
hans ekki fundist.
Neuendorf segir að drengur
inn hafi ekki getað gefið upp nein
ar staðreyndir sem myndu hjálpa til
við rannsókn málsins. Hann geti ekki
bent á neitt kennileiti sem gæti vís
að á lík föður hans heldur endurtaki
sífellt sömu söguna. „Hann sagð
ist hafa gengið í tvær vikur en getur
ekki sagt okkur neitt um ferðina eða
af hverju hann kom í ráðhúsið,“ segir
hann.
Þá er ekki vitað frá hvaða landi
drengurinn er. Hann talar ágæta
ensku sem þó þykir ekki nógu góð til
að vera móðurmál hans og þá talar
hann nokkur orð í þýsku. Lögregla
útvegaði drengnum lögmann og
vonaði að með aðstoð almennings
væri hægt að varpa frekara ljósi á
sögu drengsins. Samkvæmt Neuen
dorf hefur drengurinn hins vegar
ekki viljað koma fram opinberlega og
segist vilja halda áfram með líf sitt.
einar@dv.is
Lögregla efast um sögu „skógarstráks“
n Segist hafa búið í skóglendi suður af Berlín í fimm ár, en lögregla er engu nær
Skógarstrákurinn Ray segist hafa
búið í skóginum í fimm ár og hann virðist
vita lítið sem ekkert um uppruna sinn.
Lítill áhugi
á Assange
Ævisaga uppljóstrarans Julians Ass
ange hjá Wikileaks seldist í einungis
644 eintökum fyrstu þrjá dagana eft
ir að hún kom út í Bretlandi. Vinnsl
an gekk ekki þrautalaust fyrir sig og
vildu Assange og rithöfundurinn
sem skrifaði bókina hætta við útgáfu
hennar. Það vildi forlagið sem gefur
út bókina, Canongate, hins vegar
ekki og fór svo að bókin kom út síð
asta föstudag. Nick Davies, útgáfu
stjóri Canongate, segist búast við því
að sala bókarinnar muni aukast jafnt
og þétt. „Við erum stoltir af þessu
verki þó að útgáfan hafi verið erfið
og óvenjuleg,“ segir Davies.
Pilla dregur
úr ölvun
Ölþyrstir geta brátt farið á pöbbarölt
og fengið sér nokkra bjóra án þess
að finna fyrir timburmönnum dag
inn eftir. Vísindamenn vinna nú að
þróun lyfs sem dregur úr áhrifum
áfengis á heilann og hafa tilraunir
gefið góða raun. Þannig var músum
gefið lyfið og svo áfengi í talsverðu
magni. Mýs sem fengu lyfið sýndu
ekki merki um ölvun á meðan mýs
sem ekki fengu lyfið stóðu varla í
lappirnar. Frekari rannsókna er þó
þörf en vísindamenn vonast til þess
að lyfið komi á markað fyrir almenn
ing innan fárra ára.
Eins og að
fá herpes
Miklar vonir eru bundnar við nýtt lyf
gegn HIVveirunni sem dregið hefur
milljónir manna til dauða undan
farna áratugi. Vísindamenn hafa nú
hafið prófanir á mönnum á lyfinu
sem gengur undir nafninu MVAB.
Fyrstu niðurstöður þykja gefa góða
raun því níu af hverjum tíu sem
fengu lyfið voru ónæmir fyrir veir
unni ári eftir að meðferð hófst. Það
eru vísindamenn CSICstofnunar
innar sem þróuðu lyfið og vonast
þeir til þess að það að fá HIVveiruna
verði eins og að fá herpes. Veiran
fari ekki úr líkamanum en líkaminn
verði ónæmur.
Kjúklingabollur í drekasósu
www.ora.is
... einfalt, fljótlegt og gott!
Smakkaðu
nýjung frá ORA
Kjúklingabollur í súrsætri sósu