Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2011, Síða 22
22 | Umræða 30. september–2. október 2011 Helgarblað
tryggvagötu 11, 101 reykjavík
Útgáfufélag: Dv ehf.
Stjórnarformaður:
Lilja Skaftadóttir
Ritstjórar:
jón trausti reynisson, jontrausti@dv.is
og reynir traustason, rt@dv.is
Fréttastjóri:
Ingi Freyr vilhjálmsson, ingi@dv.is
Umsjón helgarblaðs:
Ingibjörg Dögg kjartansdóttir, ingibjorg@dv.is
Umsjón innblaðs:
kristjana guðbrandsdóttir, kristjana@dv.is
DV á netinu: dv.is
Aðalnúmer: 512 7000, Ritstjórn: 512 7010,
Áskriftarsími: 512 7080, Auglýsingar: 512 7050.
Smáauglýsingar: 512 7004.
Umbrot: Dv. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins
á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
Lítill drengur
Leiðari Reynir Traustason ritstjóri skrifar
Bókstaflega
Sérstakur
bæjarfulltrúi
n Ómar Stefánsson, bæjarfulltrúi
Framsóknarflokksins í Kópavogi,
hefur vakið sérstaka athygli fyrir
baráttumál sín að undanförnu. Á
bæjarstjórnar-
fundi á dögun-
um lagði Ómar
fram bókun um
að Kópavogur
legði áherslu á að
sigra í spurninga-
þættinum Út-
svari. Vildi hann
að liðsmenn
yrðu valdir eftir sigurvilja fremur
en viljanum til að „vera með“. En
liðið hafði þegar verið valið. Síðasta
baráttumál sem hann vakti athygli
á var þegar hann reyndi að breyta
Kópavogsbæ í Kópavogsborg, og
þar með sjálfum sér í borgarfull-
trúa. Ómar er orðinn sérstakur
talsmaður bæjarstolts, eða Kópa-
vogshyggju. Aðrir hafa bent á að
hagkvæmasta og nærtækasta leiðin
til að breyta Kópavogi í borg sé að
sameina hann Reykjavíkurborg og
Garðabæ, sem umlykja hann.
Fékk viðtal við
sjálfan sig
n Ólafur Stephensen, ritstjóri Frétta-
blaðsins, stendur í ströngu við að
verja nuddauglýsingar í blaðinu,
sem fram hefur
komið að eru lítið
dulbúnar auglýs-
ingar á vændis-
þjónustu, eins
og yfirmaður
kynferðisbrota-
deildar lögregl-
unnar greindi
frá í samtali við
RÚV. Lögreglan metur nú hvort
Fréttablaðið sé sekt um að hagnast
á milligöngu um vændi. Í fimmtu-
dagsblaði Fréttablaðsins fer blaðið
sjálft í málið og fjallar um sjálft sig.
Af því tilefni er stuttlega greint frá
málsatvikum í fyrri hluta greinar og
er seinni hlutinn lagður undir viðtal
við Ólaf ritstjóra, sem hrekur mál-
ið. Niðurstaðan í fyrirsögn fréttar
Fréttablaðsins er Fréttablaðinu
mjög í hag.
Lögreglustjóri með
góð tengsl
n Ásakanir leiðarahöfundar
Morgunblaðsins um áróðursstríð
„Baugs miðla“ og Ríkisútvarps-
ins gegn Haraldi
Johannessen
ríkislögreglu-
stjóra hljómuðu
eins og ómur úr
glataðri fortíð.
Fjölmiðlar hafa
flestir fjallað um
ákúrur sem Har-
aldur og embætti
hans fengu frá ríkisendurskoðanda
fyrir að fylgja ekki lögum. Haraldur
naut velþóknunar hjá Davíð Odds-
syni, leiðarahöfundi Morgunblaðs-
ins, þegar Davíð var við völd, og
sat í hans skjóli þrátt fyrir að hafa
komist í hann krappann. Auk þess
hefur hefur Haraldur þau tengsl
við Morgunblaðið að faðir hans,
Matthías, var ritstjóri blaðsins í
áratugi.
Sandkorn
Þ
egar Gunnar sat á skrifstof-
unni sinni um daginn kom
trylltur maður inn og lamdi
hann í höfuðið. Svo ruddist
ölvaður unglingahópur inn
og gerði aðsúg að honum. Gunnar
fékk það hlutverk að róa hópinn. Því
næst hljóp inn kona, sem hafði verið
lamin af manninum sínum. Inn kom
ofbeldismaður sem hótaði að myrða
fjölskyldu hans. Undir lok dags fann
hann mann, sem var alblóðugur og
nær dauða en lífi, inni á skrifstof-
unni, og þurfti að reyna að bjarga lífi
hans. Eftir að hann kom heim fékk
hann það verkefni að vera á bakvakt,
og vera tilbúinn að hlaupa til ef eitt-
hvað meira skyldi gerast á skrifstof-
unni. Hann vann 35 yfirvinnutíma
í mánuðinum og var 45 tíma á bak-
vakt. Launaseðillinn hljóðaði upp á
280 þúsund.
M
unurinn á hinum ímynd-
aði Gunnari og lögreglu-
manni er að lögreglu-
maðurinn hefur ekki
skrifstofu.
L
ögreglumenn hafa verið 300
daga án samnings. Þeir mega
ekki fara í verkfall og hafa
átt erfitt með að halda í við
launaþróun annarra. Það eru
ekki bara kjörin sem angra lögreglu-
menn, heldur viðhorfin. Þeim finnst
lítilsvirðing felast í framkomu ríkisins
við þá. Þeir upplifa sömu lítilsvirð-
ingu í störfum sínum.
G
eir Jón Þórisson yfirlögreglu-
þjónn, sem kveður bráð-
um lögregluna eftir 36 ára
starf, lýsti þessu í viðtali við
helgarblað DV síðustu helgi.
„Lögreglumenn mæta oft miklu
virðingarleysi,“ sagði Geir Jón. „Ég
segi það að oft eru börnin nestuð að
heiman. Þar sem er talað illa um lög-
regluna þar verður til sú skoðun að
það megi segja hvað sem er við lög-
regluna og að ekki þurfi að hlýða
henni ... Lögreglumenn verða vitni
að því á hverri vakt að verið sé að
hóta lögreglumönnum og fjölskyldu
þeirra lífláti. Það vill enginn vera í
vinnu þar sem hann heyrir á hverjum
degi að hann sé aumingi.“
R
annsóknir sýna, svo ekki
verður um villst, að streita
er ein af lykilorsökum styttra
og heilsutæpara lífs. Eitt
af því sem minnkar streitu
er stuðningur annarra og virðing.
Þetta orsakasamhengi er hluti af vel-
ferð fólks sem starfar í lögreglunni.
Erfitt er að borga lögreglumönnum
þau laun sem þeir eiga skilin, líkt og
mörgum öðrum stéttum. Almenn-
ingur getur lítið gert til að veita þeim
réttlát laun. Hins vegar geta allir gert
sitt til þess að veita þeim það sem
þeir biðja um að lágmarki.
M
ikill áróður er gegn lög-
reglumönnum í menn-
ingarefni og sums staðar í
samfélaginu. Líklega verð-
ur engin önnur lögleg stétt
fyrir viðlíka fordómum. Þeir eru kall-
aðir öllum illum nöfnum, eins og „lög-
gusvín“, líklega vegna áhrifa af banda-
rísku sjónvarpi og tónlist. Það blundar
uppreisnarseggur í mörgu fólki, sem
brýst aðeins fram í samskiptum við
lögregluna, sérstaklega þegar fólk er
undir stjórn áfengis. Þeim er reglulega
hótað. Venjulegur maður þarf að vera
haldinn töluverðum þroska til að þola
slíka framkomu og meðferð, en jafn-
vel þroskaðasti maður verður að finna
að hann hafi stuðning.
Þ
ótt við höfum ekki efni á
mannsæmandi launum er
engin afsökun fyrir því að
veita þeim ekki mannsæm-
andi virðingu. Það kemur
að því að raunverulegir óvinir sam-
félagsins fara á stjá. Þá hringjum við
ekki í draugabanana, heldur treyst-
um við á sömu lögreglumenn og
nú kvarta yfir virðingarleysi. Ef þeir
sætta sig við þetta áfram.
S
andgerðingar glíma nú við
þann hræðilega veruleika
að 11 ára drengur, Dag-
bjartur Heiðar, svipti sig lífi.
Grimmari og ömurlegri ör-
lög er vart hægt að hugsa sér en þau
að barn glími við svo hrikalega van-
líðan að það sjá þá einu leið færa
að fremja sjálfsmorð. Atburður eins
og þessi kemur við hvern einasta
mann. Mesti sársaukinn er þó auð-
vitað í umhverfi hins látna. Fyrir
fjölskyldu drengsins er kvölin nær
óbærileg.
Upplýst hefur verið að litli
drengurinn glímdi við einelti frá því
hann var sex ára. Áleitin spurning
er í þeim efnum hvort fullorðið fólk
hafi brugðist þeim skyldum sínum
að fyrirbyggja að eineltið næði að
þrífast og skjóta rótum. Það verður
að vera krafan að samferðafólk
Dagbjarts heitins leggist í sjálfs-
skoðun og greini sinn eigin vanda
og veikleika með það fyrir augum
að lágmarka áhættuna af einelti.
Í uppgjörinu vegna fráfalls
drengsins má það ekki gerast
að gerendurnir í máli hans,
önnur börn, verði brennimerkt
og ábyrgðin sett á þau beint eða
óbeint. Í allri umfjöllun máls-
ins verður að gæta þess að þar
eru líka börn sem hafa orðið
fyrir áfalli sem þau munu lifa
með alla tíð. Fullorðna fólkið
verður að axla ábyrgð. Skóla-
stjórnendur í Sandgerði og
þeir sem áttu að standa vaktina
verða af einlægni að horfast í
augu við það sem fór úrskeiðis.
Einhverjir reyna að halda því á
lofti að drengurinn hafi átt við
að glíma veikindi sem kunni að
skýra örlög hans fremur en eineltið
sem enginn dregur þó í efa að hafi
verið til staðar. Öllum má vera ljóst
að þótt fleiri þættir hafi leitt til hins
hörmulega atburðar eru yfirgnæf-
andi líkur á því að ekki hefði orðið
dauðsfall ef eineltið hefði ekki átt
sér stað.
Í litlum samfélögum er
gjarnan tilhneiging til þess
að líta fram hjá orsökum
hræðilegra atburða og forð-
ast óþægilegar skýringar á
því sem gerðist. Þá er gjarnan
gripið til þöggunar. Ráðist er á
þá sem halda á lofti sársauka-
fullum skýringum og þeir
jafnvel úthrópaðir. Það má
ekki gerast í þessu máli. Frá-
fall litla drengsins í Sandgerði
verður í það minnsta að leiða
af sér betra samfélag. Sann-
leikurinn, með öllum sín-
um sársauka, verður að fá að
koma fram í dagsljósið. Allir
verða að læra af þeirri ömur-
legu reynslu sem við blasir.
Einelti má ekki líðast í neinni
mynd og það verður að stöðva
áður en til hræðilegra at-
burða kemur. Nú er tækifæri
til vakningar um að lágmarka þann
hrylling sem eineltið er fyrir þá sem
lenda í því. Börn eiga ekki að þurfa
að deyja af þessum ástæðum.
„Löggusvín!“ „Ég meina, ef þú mátt ekki orðið skamma barnið þitt, þá veit ég ekki hvað er í gangi.“
n Fjölskyldufaðir á Hólmavík segir
félagsmálastjórann á Ströndum hafa
komið fram með offorsi þegar fjarlægja
átti börn hans af heimilinu. – DV
„Það er til hérna
ákveðið fólk
sem er katta-
hatarar, ég er
búinn að komast
að því.“
n Kristinn Kristmundsson hefur orðið
fyrir þeirri erfiðu lífsreynslu að fjórir kettir
hans hafa verið drepnir. – DV
„Þetta var skemmtilegur
strákur sem átti það til að
vera örlítið stríðinn.“
n Helgi Karl Hafdal, náinn vinur foreldra
litla drengsins sem svipti sig lífi í
Sandgerði, hefur sett af stað söfnun fyrir
fjölskylduna. – DV
„Ég var
áhyggjufullt
barn og hafði
áhyggjur af
stríði og hung-
ursneyð.“
n Bryndís Björgvinsdóttir sem hlaut
íslensku barnabókaverðlaunin segir
bókina ákveðið uppgjör viðkvæmrar sálar
við flókinn og erfiðan heim. – DV
Svarthöfði
M
argt af því gáfulegasta sem
okkar ágæti borgarstjóri
hefur sagt, gæti allt eins
hafa verið sagt af svifþör-
ungi. Sá ungi maður mun þó vera
miklum gáfum gæddur, þ.e.a.s. ef
honum er stillt upp með sumu af
því fólki sem komist hefur áfram í
elítu menningargeirans, ég tala nú
ekki um, ef hann sést í námunda
við fólk sem tilheyrir utanríkisþjón-
ustunni og svo mætti nú stilla hon-
um upp við hlið ríkislögreglustjóra.
En til elítunnar virðist vera gerð sú
krafa um gáfnafar og greind, að fólk
nái meðalgreind sykurpúða.
Eitt sinn mætti sá fingralangi
maður, Árni Johnsen, í viðtal í sjón-
varpssal. Og á meðan hann sann-
aði sakleysi sitt var hann afhjúp-
aður, bæði sem lygari og þjófur;
berháttaður og rassskelltur í beinni
útsendingu. En svo fyrirgáfu sjálf-
stæðismenn á Suðurlandi hon-
um glæpina, rétt einsog þeir fyrir-
gefa öllum sjálfstæðismönnum það
hrun sem berháttaði þjóðina og
rændi hana nær öllum eigum. Og
núna ætla sjálfstæðismenn að mót-
mæla seinagangi ríkisstjórnar Jó-
hönnu. Auðvitað er það eðlilegt að
fólk mótmæli því að bankar hafa af-
skrifað allt sem hægt er að afskrifa
hjá stórum fyrirtækjum, á meðan
fólkið í landinu sér ekki þá skjald-
borg sem í eina tíð stóð til að reisa.
En núna er enn einn sjálfstæð-
ismaðurinn að láta nappa sig við
vítaverða hagsmunagæslu. Í þetta
skiptið er það reyndar sá sem fer
með eitt æðsta hlutverk í löggæslu-
málum. Hann kemur að vísu alltaf
fram einsog hann hafi fengið emb-
ættið í gengum klíku. Og gáfurnar
virðast ekki beint ætla að flækjast
mikið fyrir honum. En ríkislög-
reglustjórinn okkar er semsagt að
stunda þau misferli, að láta emb-
ætti lögreglunnar kaupa ýmiskon-
ar varning af fólki sem tengist fjöl-
skyldum lögreglumanna, traustum
böndum. Og gáfnaljósið Haraldur,
viðurkennir að hafa ekki farið full-
komlega að lögum. En segir, að
jafnvel þó að Búsáhaldabylting-
unni hefði verið löngu lokið þegar
hann keypti góssið, hafi þetta verið
keypt til að verja þingmenn í þeirri
ágætu byltingu. Já, hann er gáfað-
ur hann Haraldur. En hann féll þó
á eigin bragði. Og svo sleppur hann
með áminningu ef hann viður-
kennir á sig væga stelsýki eða eitt-
hvað slíkt.
En þegar einkavinavæðing er
látin ráða för og sneitt er hjá lög-
bundinni útboðsleið, þá er það
víst kallað brot í starfi. Enda er
það sú greining sem Ríkisendur-
skoðun heldur fram. Ef maður not-
ar sér skáldaleyfi, er svosem hægt
að kalla þetta gáleysi að yfirlögðu
ráði. Sumir kalla þetta glæp, aðrir
fara fínna í sakir og tala um vítavert
kæruleysi í opinberu starfi. En við,
sem stundum nám í siðfræði, höf-
um lært að kalla svona nokkuð: sið-
leysi eða siðlausa hegðun.
Og núna eru þeir einsog síams-
tvíburar, flokksbræðurnir Árni og
Haraldur.
Haraldur á hausinn flaug
í hruni illa sjúkur,
með Árna hann í lygalaug
nú liggur einsog kúkur.
Misferli og mótmæli
Kristján
Hreinsson
Skáldið skrifar
„Fullorðna fólkið
verður að axla
ábyrgð.