Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2011, Blaðsíða 23
É
g var ekki hissa að sjá niður-
stöður nýlegrar könnunar
MMR um traust til Alþing-
is. Um 13% voru ánægð með
störf stjórnarmeirihlutans og
maður hélt að neðar væri vart hægt
að komast en jú, það er mögulegt,
því aðeins 7% segjast ánægð með
hvernig stjórnarandstaðan hagar
störfum sínum. Einnig hefur komið
fram að aðeins 12,4% segjast sam-
mála þeirri fullyrðingu að Alþingi
vinni að hagsmunum þjóðarinnar
og yfirgnæfandi meirihluti telur að
stjórnvöld taki hag bankanna fram
yfir hag heimilanna. Þessar niður-
stöður endurspegla nokkuð vel mín-
ar skoðanir.
Hafði trú
Fyrir þremur árum hrundi fjármála-
kerfið. Það hafði gífurlegar afleiðing-
ar fyrir allt samfélagið, enginn var
ósnortinn. Við vissum ekki hvaðan á
okkur stóð veðrið og ráðist var í víð-
tækar rannsóknir svo við gætum skil-
ið hvað hefði gerst og komið í veg fyrir
að svona nokkuð gæti nokkurn tím-
ann gerst aftur. Nýja Ísland átti að
rísa úr sæ og margir vildu leggja hönd
á plóg. Það var kosið og sjaldan eða
aldrei hefur verið meiri endurnýjun
á þingi. Nú skyldi bretta upp erm-
ar. Vandinn var mikill en það hlutu
allir að sjá að við yrðum að breytast,
þroskast og hjálpast að til að komast
út úr þessu. Ég er einn þeirra nýju
þingmanna sem tóku sæti á Alþingi
árið 2009 og það var hugur í mér. Ég
hafði trú á verkefninu.
Botninum náð?
En það breyttist ekki neitt. Á fyrstu
dögum þingsins varð ég vitni að því
er fjármálaráðherra laug að þingi og
þjóð úr ræðustól Alþingis um stöð-
una í Icesave-viðræðunum. Þetta
byrjaði hreint ekki vel og fljótlega
rann það upp fyrir manni að þing-
ið starfaði alveg eins og áður nema
fólk hafði skipt um sæti. Þeir sem
áður höfðu haft allt á hornum sér,
svokölluð stjórnarandstaða, voru
nú í stjórn og tóku við skítkastinu frá
þeim flokkum sem lengst af stjórn-
uðu landinu. Það var nokkuð ljóst
strax í upphafi að breytingar á þeim
samkvæmisleik voru ekki fyrirhug-
aðar. Botninum hélt ég að væri náð
þegar fyrrverandi ráðherrar í ríkis-
stjórn Geirs H. Haarde greiddu at-
kvæði um hvort ákæra bæri sam-
ráðherra þeirra. Vanhæfi þeirra var
algjört. Nýliðið septemberþing veitir
þó þeirri hneisu harða samkeppni og
ég verð að viðurkenna að ég var við
það að missa trú á mannkynið eftir
það.
En hvað svo?
Þótt einhverjir krakkakjánar séu
farnir að vísa til hrunsins sem gjald-
þrots þriggja fyrirtækja þá var það
miklu meira en efnahagslegt hrun.
Þetta var einnig siðferðislegt og
stjórnmálalegt hrun og það stend-
ur enn. Í auga stormsins er erfitt að
finna rétta leið en ljósin í myrkrinu
eru þarna. Eitt þeirra er stjórnlaga-
ráðið sem starfaði af einhug og hafði
hagsmuni þjóðarinnar að leiðar-
ljósi í öllum sínum störfum. Annað
er aukin lýðræðisvitund fólks og þær
þjóðaratkvæðagreiðslur sem flestir
viðurkenna nú að hafi reynst okkur
vel. Enn annað er ýmsir hópar sem
eru að taka sig saman og ræða fram-
boðsmál á landsvísu og ég vona að
einhverjir þeirra skapi grunn að nýju
flokkakerfi með aukinni áherslu á
lýðræði, réttlæti, heiðarleika og al-
mannahag. Og eitt það mikilvægasta
er skýrsla rannsóknarnefndar Al-
þingis. Hún sýnir okkur svart á hvítu
hvar við villtumst af leið og hvað þarf
að laga.
Síðasti séns
En af hverju er það þá ekki gert?
Núverandi flokkakerfi fæddist í
kringum hagsmunagæslu. Menn
skiptu með sér gæðum lands og
sjávar, hygluðu frændum og flokks-
bræðrum. Það kerfi er nú komið
í algjört þrot og sóar dýrmætum
tíma, að því er virðist að gamni
sínu, sem okkur ber að nota til upp-
byggingar á samfélaginu eins og við
viljum hafa það. Í kreppu eru nefni-
lega ótal tækifæri og við verðum að
nýta þau til að byggja upp nákvæm-
lega eins og við viljum hafa samfé-
lagið. En gömlu flokkarnir virð-
ast ófærir um að læra nýja siði og
endurmeta gildi sín, vinnubrögð og
hegðun. Við það verður ekki unað.
Ég lít svo á að nú séu þingmenn
á síðasta séns. Ef þau glórulausu
vinnubrögð sem viðgengust á sept-
emberþinginu halda áfram verður
að rjúfa þing og boða til kosninga
á ný. Við þurfum ekki bara nýtt fólk
heldur nýjan hugsunarhátt og það
hefur sýnt sig að fjórflokkurinn er
ófær um að skapa réttan jarðveg
fyrir hann.
Umræða | 23Helgarblað 30. september–2. október 2011
Styður þú mótmælaaðgerðir lögreglumanna?
„Já, að sjálfsögðu geri ég það.“
Erna Júlíusdóttir
63 ára starfsmaður á Sólvangi
„Já, ég styð þær. Það er alveg á hreinu.“
Viktoría Steindórsdóttir
61 árs starfsmaður á Sólvangi
„Ég hef eiginlega enga skoðun á því. Ég hef
ekki kynnt mér málið.“
Arnaldur Bjarnason
20 ára nemi
„Já, þeir hafa fullan rétt á því að berjast fyrir
sínum kjörum líkt og aðrir.“
Arnaldur Björnsson
20 ára nemi
„Já, það geri ég.“
Jóhanna Sandra Norris
21 árs nemi
Maður dagsins
Vill alltaf
standa sig vel
Ágústa Ýr Sveinsdóttir rafvirki
hlaut verðlaun fyrir frábæran árangur á
sveinsprófinu. Hún slysaðist í námið en
heillaðist og er nú staðráðin í að starfa sem
rafvirki.
Hvar ertu alin upp? „Ég er Vestfirðingur.
Ólst upp á Skálanesi í Reykhólahreppi. Gekk
samt í grunnskóla á Laugarbakka í Miðfirði.“
Hvað drífur þig áfram? „Mig langar
alltaf að gera það besta sem ég get. Einnig á
ég ótrúlega duglega foreldra. Þegar maður
á foreldra sem eru bændur áttar maður sig
á því að maður þarf að vinna og að lífið er
ekki gefins. Mitt markmið er að sjá aldrei
eftir neinu sem ég geri. Ég vil að þegar ég
hugsa til baka viti ég að ég gerði það besta
sem ég gat.“
Áhugamál? „Hef mikinn áhuga á
kvikmyndum. Ég er fjölmiðlatæknir og
hef gaman af því að búa til myndbönd og
taka myndir. Er einnig með mikinn áhuga á
tónlist og spila á klarinett í lúðrasveitum og
líka á gítar og úkúlele.“
Hvað finnst þér best að borða?
„Mömmumaturinn er alltaf bestur. Ég lagði
einmitt af stað í bakpokaferðalag í gær og
þegar mamma bauðst til að elda handa mér
áður en ég fór vildi ég ekta mömmumat,
lambahrygg með nýjum kartöflum og öllu
mömmumeðlæti. Það er alltaf best!“
Áttu þér fyrirmynd? „Foreldrar mínir
eru stærstu fyrirmyndirnar mínar.“
Af hverju ákvaðstu að læra raf-
virkjun? „Það var óvart. Ég var að vinna
sem sýningarstjóri á RIFF og langaði að
fá réttindi en til þess þarftu að vera búinn
með grunndeild í rafiðnum. Ég komst að því
að rafvirkjun er ótrúlega heillandi og svo
kynntist ég líka einni minni bestu vinkonu í
náminu. Eftir það var ekki aftur snúið.“
Hefur þér alltaf gengið vel í skóla?
„Mér hefur alltaf gengið ágætlega og hef
viljað standa mig. En ég á rosalega erfitt
með að læra ef ég hef ekki áhuga á náms-
efninu.“
Draumastarfið? „Þegar ég verð í starfi
sem mér líður vel í þá veit ég að ég er komin í
draumastarfið.“
Hvað er fram undan? „Ég lagði af stað
í gær í bakpokaferðalag með bestu vinkonu
minni. Við ætlum að ferðast í sex mánuði.
Núna erum við á Octoberfest í München og
svo er ferðinni heitið til Asíu í þrjá mánuði,
svo til Ástralíu, Nýja-Sjálands, Cook-eyja og
Bandaríkjanna.“
Alþingi er lasið – Getur því batnað?
Dómstóll götunnar
Margrét
Tryggvadóttir
Kjallari
myND pétur SNælAND
1 Nístandi sorg vegna fráfalls 11 ára drengs Síðastliðinn laugardag
bárust fyrstu fréttir af harmleiknum í
Sandgerði.
2 Harmleikur í Sandgerði: Dreng-urinn svipti sig lífi Drengurinn sem
svipti sig lífi hafði sætt einelti í mörg
ár.
3 Sorgin í Sandgerði: „Hann var ljúfur drengur“ Fjölskylduvinur
setti í gang söfnun fyrir fjölskylduna
sem á um sárt að binda.
4 Gunnar Rúnar réðst á hjúkrunar-fræðing Greinargerð yfirlæknis
á Sogni ber ofbeldisfullri hegðun
Gunnars Rúnars vitni.
5 Átök á Hólmavík: Reynt að taka fjögur börn frá foreldrum Félags-
málayfirvöld gerðu tilraun til að
fjarlægja fjögur börn af heimili sínu.
6 14 ára stúlka fékk áfengt Mix í 10-11 Stúlku í Reykjanesbæ brá
heldur beturí brún þegar hún dreypti
á áfengum Mix gosdrykk.
7 Ég er ekki þunn! Tobba Marinós svaraði gagnrýnanda Fréttatímans,
Páli Baldvini, fullum hálsi.
Mest lesið á dv.is
Myndin