Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2011, Blaðsíða 37
Menning | 37Helgarblað 30. september–2. október 2011
Hvað er
að gerast?
Föstudagur
Laugardagur
Sunnudagur
30
sep
01
okt
02
okt
Í minningu Sissu
Tónleikar til styrktar minningarsjóði
Sigrúnar Mjallar Jóhannesdóttur
sem lést í fyrra eftir ofneyslu
fíkniefna, aðeins 17 ára gömul.
Tónleikarnir fara fram í menningar-
húsinu Hofi á Akureyri og hefjast
klukkan 20. Aðgangseyrir á tón-
leikana er 2.900 krónur og rennur í
styrktarsjóðinn.
Bollywood strandpartý
RIFF stendur fyrir Bollywood
strandpartýi í Nauthólsvík í kvöld.
Nauthólsvík verður breytt í Bombay
norðursins þar sem magadans-
arar sýna listir sínar, kvikmyndin
Devdas verður sýnd og í boði verða
veisluföng fyrir augu, eyru og tungu.
Fjörið hefst klukkan 21 og miðaverð
er 1.900 krónur.
Charlie Murphy í Hörpu
Grínistinn Charlie Murphy úr MTV-
þættinum Chapelle’s Show kemur
fram í salnum Eldborg í Hörpu. Uppi-
standið ber nafnið Charlie Murphy’s
Acid Trip og fyrsti viðkomustaður
Charlies í ferðinni er Reykjavík.
Charlie, sem er bróðir leikarans Eddie
Murphy, þykir hafa einstaklega
skemmtilegan stíl. Einnig kemur
fram þetta kvöld Freez Luv, eða
Paul Farmer, frá Def Comedy Jam.
Uppistandið hefst klukkan 20 og
miðaverð er 4.500 og 6.500 krónur
eftir því hvar setið er.
Lögin hennar mömmu
Söngvararnir Raggi Bjarna, Hera
Björk og Bjarni Baldvins ætla að
syngja lög sem mæður rauluðu
við heimilisstörfin á 6. og 7. áratug
síðustu aldar. Gamlar og ljúfar perlur
eins og Heyr mitt ljúfasta lag, Lóa
litla á Brú, Fjórir kátir þrestir, Bjössi á
mjólkurbílnum og fleiri góð dægurlög
verða flutt við undirleik hljómsveitar
meistara Björns Thoroddsen. Hana
skipa auk Björns þeir Vignir Þór
Stefánsson, Jóhann Hjörleifsson
og Jón Rafnsson. Tónleikarnir fara
fram í Salnum í Kópavogi og hefjast
klukkan 20. Aðgangseyrir er 3.500
krónur.
Charlie Murphy í Hörpu
Grínistinn Charlie Murphy úr MTV-
þættinum Chapelle’s Show kemur
fram í salnum Eldborg í Hörpu. Uppi-
standið ber nafnið Charlie Murphy’s
Acid Trip og fyrsti viðkomustaður
Charlies í ferðinni er Reykjavík.
Charlie, sem er bróðir leikarans Eddie
Murphy, þykir hafa einstaklega
skemmtilegan stíl. Einnig kemur
fram þetta kvöld Freez Luv, eða
Paul Farmer, frá Def Comedy Jam.
Uppistandið hefst klukkan 20 og
miðaverð er 4.500 og 6.500 krónur
eftir því hvar setið er.
Maxímús í tónlistarskóla
Fjölskyldutónleikar þar sem
Maxímús Músikús veitir ungum
sem öldnum innsýn í töfraheim
tónanna. Maxímús hittir fyrir unga
hljóðfæraleikara sem og eldri úr
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
og lendir í hinum ýmsu ævintýrum.
Verkið er byggt á bókinni Maxímús
Músíkús trítlar í skólann eftir Hall-
fríði Ólafsdóttur, 1. flautuleikara
Sinfóníuhljómsveitar Íslands, og
Þórarin Má Baldursson víóluleikara
sem myndskreytti söguna.
Samfélagið sem er að hrynja
S
einustu fimmtán árin
hefur verið gósentíð í
óhefðbundinni end-
urvinnslu landa þar
sem þeir sem eiga nóg eiga
meira en nóg. Við fylgjumst
með nokkrum söfnurum sem
ferðast um á alls konar furðu-
farartækjum í leit að málm-
um og öðru nothæfu í rusla-
kasti grísks almennings. Þeir
tína upp gormadýnur og
þvottavélar af stéttum stór-
borga og ferja í málmpressun
og bræðslu. Um ágætis þver-
skurð er að ræða. Við sjáum
safnara sem eiga rætur sínar
meðal sígauna, Indverja, Al-
bana, Araba sem og innfæddra
Grikkja meðal þeirra 80.000
safnara sem hafa fátæklegt lifi-
brauð sitt af þessari iðju. Safn-
ararnir eru á öllum aldri og
segja sínar sögur sem eru ólík-
ar þótt þær fylgi sama rauða
þræði. Einn kvartar yfir kjör-
um sínum síðan innflytjend-
ur létu til sín taka í geiranum,
annar talar um ítrekað svindl
þegar málmbræðslurnar vigta
fenginn. Albani nokkur orðar
það sem svo að í Grikklandi sé
réttlæti sitt ekkert enda á gamli
albanski einræðisherrann En-
ver Hoxha mörg hundruð sína
líka í því kerfi sem þar þrífst.
Sumir söngla fyrir munni sér á
vaktinni og frásagnir eru sum-
ar hverjar skáldlegar. Senurnar
eru langar og minna sumpart á
Koyaanisqatzi þótt hér sé engin
tónlist nema sú sem safnararn-
ir flytja af lifandi færni. Miðað
við hvaða drasl þeir gera verð-
mæti úr gæti maður alveg séð
fyrir sér að þessir hinu sömu
gætu orðið vel stæðir ef þeir
létu til sín taka í yfirgnægta-
samfélaginu sem Ísland er.
Við sjáum hvernig málmurinn
sem verður til er seldur í upp-
byggingu á húsum sem ísra-
elski herinn gerði að mauki í
árásum sínum á Líbanon fyrir
nokkrum árum. Óbeint er síð-
an skírskotað í allsherjarmót-
mæli sem hafa fylgt í kjölfar
hruns efnahagskerfis Grikk-
lands. Myndin er flott unnin og
skilar óréttlætinu og óhuggu-
legri misskiptingunni vel og
vandlega til áhorfandans. Hún
sýnir hvernig þeir sem vinna
hörðustu, erfiðustu, skítugustu
og ógeðslegustu vinnuna eru
svo sannarlega ekki þeir sem
bera mest úr býtum. Harð-
duglegt fólk sem þrælar sér út
fyrir fjölskyldu sína en situr
uppi með ekkert nema skjól
úr pappa, rottur sem sambýlis-
félaga og ónýta heilsu sem af
þrælkuninni hlýst. Vonleysið
er algjört og draumurinn um
að finna gull í ruslabing raun-
gerist í að draga heim gamlan
ryðgaðan ísskáp.
Erpur
Eyvindarson
RIFF
Raw Material / Proti yli
Leikstjóri: Hristos Karakepelis.
Leikstjórinn Hristos
Karakepelis Óbeint er síðan
skírskotað til allsherjarmótmæla
sem hafa fylgt í kjölfar hruns
efnahagskerfis Grikklands.
kvIkMyndaHátÍð
sér meira að mömmu sinni og
þessum kvenlegu gildum en
hann á í basli með það. Hann
á barn og er nýskilinn og þetta
leikur ekki beinlínis í hönd-
unum á honum. Ekki frekar en
hjá gamla,“ segir Þorsteinn.
„Nei, nákvæmlega. Við
erum kannski oft með mein-
ingar í lífinu um að við ætl-
um okkur ekki að verða eins
og pabbi eða mamma en svo
stendur maður sig að því að
vera að segja eða gera eitthvað
sem er eins,“ segir Elma og
bætir við: „Þau eru ólík systkin-
in en sameinast um vissa hluti
eins og til dæmis að tuða yfir
karlinum. Þar ná þau saman.“
Elma leikur Telmu sem
er mýkri týpa en Ari og líkist
meira móður þeirra. „Hún er
ólík Ara að því leyti að hún er
bankakona sem keyrir um á
jeppa. Henni er mikið í mun
að halda fjölskyldunni saman.
Á yfirborðinu virkar allt full-
komið hjá henni en það er ekki
allt sem sýnist.“
Erfitt að leika með
dótturinni
Benedikt Erlingsson leikur eig-
inmann Telmu og dóttir Þor-
steins leikur dóttur þeirra í
myndinni. „Það var mjög fynd-
ið að vera í tökum með Steina
og henni,“ segir Elma hlæj-
andi og Þorsteinn skellir upp
úr og bætir við: „Ég átti svo
erfitt með að einbeita mér. Ég
held að þetta sé með því erfið-
ara sem ég hef gert. Við lékum í
einni senu í myndinni þar sem
við sitjum við matarborð og ég
þurfti að þykjast ekki þekkja
hana. Hún var eins og hálfs árs
þarna og eins og börn eru, fer
sínu fram,“ segir hann bros-
andi. „En hún stóð sig mjög
vel. Ertu ekki sammála að hún
hafi staðið sig vel?“ spyr hann
Elmu. „Jú, mjög vel. Hún er al-
gjör senuþjófur,“ segir Elma
brosandi. „Ég er auðvitað dá-
lítið hlutdrægur en mér fannst
hún alveg best,“ segir Þor-
steinn og skellir upp úr.
Persóna Þorsteins á í erfið-
leikum í einkalífinu. Er nýskil-
inn og á son sem hann nær
ekkert alltof vel til. „Sonur-
inn spilar töluvert hlutverk í
myndinni. Afinn fer að sækja
í strákinn og þá koma upp alls
konar tilfinningar í Ara gagn-
vart því, afbrýðisemi og ann-
að. Hann er jafnvel að ná bet-
ur til hans en Ari sjálfur,“ segir
hann og fær sér sopa af kaffinu
og Elma tekur við. „Þetta er
einmitt líka örugglega dálítið
algengt, að fólk fari að tengja
við barnabörnin og reyna að
vinna upp einhvern tíma sem
það átti ekki með börnunum
sínum.“
Fóru á trúnó um
fjölskyldumál
Leikstjóri myndarinnar er
Rúnar Rúnarsson og þau segja
bæði að samstarfið við hann
hafi verið gott. „Hann vildi að
við gerðum þetta eins nálægt
okkur og við gætum.
Undirbúningurinn var
þannig að við hittumst á fund-
um og töluðum um þetta fólk.
Maður býr sér alltaf til eitt-
hvert bakland. Hann vildi ekki
æfa mikið og er á móti því að
þaulæfa senurnar,“ segir Elma.
„Það voru margar skipulagð-
ar æfingar en hann vildi oft
tala meira um lífið, fólkið, fjöl-
skyldur og okkur sjálf. Hann
hitti okkur einslega fyrst og
þá töluðum við um feður okk-
ar,“ segir Þorsteinn og Elma og
bætir við: „Já, ég hitti hann ein-
mitt líka á fundi og við fórum á
trúnó um fjölskyldumál.“
„Hann er krefjandi og mjög
vandvirkur. Krefjandi á leikar-
ana og vill eitthvað alveg ná-
kvæmt,“ segir Þorsteinn og
Elma samsinnir því.
Þau segjast bæði hafa
heillast af handritinu þegar
þau lásu það. „Þegar ég las það
fór ég bara að gráta heima. Ég
hef sjaldan upplifað það að
lesa svona gott handrit,“ segir
Elma og Þorsteinn vill meina
að það sé vegna þess hversu
nálæg myndin sé fólki. „Þetta
er átakanlegt þegar fólk nær
ekki saman eins og er oft og
iðulega.“
„Maður sér hvað það er sem
skiptir mestu máli í lífinu. Fjöl-
skyldan og tenging milli þeirra
sem manni þykir vænt um.
Vonandi á hún bara eftir að
snerta fólk og að fólk eigi eftir
að sjá hvað það er sem skiptir
máli,“ segir Elma.
Hreyfir við fólki
Myndin hefur fengið frábæra
dóma víða um heim. Hún
var sýnd á kvikmyndahátíð-
inni í Cannes og hefur verið
valin sem framlag Íslendinga
til Óskarsverðlaunanna í ár.
Frumsýningarhelgi hennar á
Íslandi er nú um helgina og því
ekki komnir hérlendir dómar
um hana. „Það verður ótrúlega
gaman að sjá hvernig Íslend-
ingar taka henni. Hún hefur
fengið frábæra dóma í stórum
blöðum eins og Hollywood Re-
porter, Variety og Screen Daily
meðal annars. Allt alveg glimr-
andi dómar. Kannski sannar
hún það að til þess að verða
„global“ þá þarftu fyrst að vera
„local“.“
Þau segja myndina hræra
í fólki. „Hún var erfið og mjög
gefandi alveg eins og vinnan
við hana var. Hún einhvern
veginn hrærir í manni. Það er
eitthvert endurmat sem hún
kallar á. Vil ég hafa þetta svona
og vil ég skilja svona við eða get
ég byrjað að breyta því í dag?
Og að þessu leyti fer hún mjög
djúpt inn í sálina hjá manni,“
segir Þorsteinn. „Maður fer í
einhverja svona sjálfsskoðun
sem er góð,“ segir Elma.
„Ég held hann heppnist,
galdurinn sem Grikkir lögðu
upp með, sálhreinsunin, sem
var alltaf markmið harmleikj-
anna. Að sýna fólki hversu
heimskulegt það væri að
standa í þessu drama og arga-
þrasi í stað sátta,“ segir Þor-
steinn. „Já, bara fyrirgefa og
sleppa takinu sem er svo mik-
ilvægt. Maður er svo oft fast-
ur í einhverju rugli og það að
fá fólk til að sjá það er dálítið
boðskapurinn held ég,“ segir
Elma og heldur áfram: „Þetta
er mynd um Íslendinga og
þess vegna verður gaman að
sjá hvernig þeir taka henni.
Kannski er þetta of nálægt okk-
ur. Maður veit það ekki, þetta
gæti verið óþægilegt.“ Þor-
steinn er sama sinnis og segir
hana hreyfa við fólki. „Hún sit-
ur lengi í fólki og grefur sig ein-
hvern veginn inn í sálina. Allir
sem ég hef heyrt í sem hafa séð
myndina tala um að hún hafi
hreyft við þeim og það er tak-
markið hjá okkur í leiklistinni
allavega. Við erum að reyna
að spegla eitthvað fyrir fólk
þannig að það geti svo aftur
speglað sig í því. Þetta er virki-
lega vönduð kvikmynd í alla
staði, vel tekin, flott leikmynd,
vandað hljóð og raunsannar
persónur. Þroskuð mynd um
venjulegt fólk fyrir venjulegt
fólk.“
Leika með foreldrunum
Næg verkefni eru fram und-
an hjá bæði Elmu og Þorsteini.
Elma er að leika í Fólkinu í kjall-
aranum og Nei, ráðherra! og
auk þess æfa Kirsuberjagarðinn
sem verður frumsýndur í lok
október og Hilmir Snær Guðna-
son leikstýrir. Þorsteinn er að
æfa Hreinsun eftir Sofi Oksanen
í leikstjórn Stefáns Jónssonar
sem frumsýnt verður í Þjóðleik-
húsinu í lok október. Skemmti-
leg tilviljun ræður því að nú eru
Þorsteinn og Elma að leika með
foreldrum sínum úr myndinni.
„Já, það er dálítið magnað“ segir
Elma en hún leikur með Theó-
dóri Júlíussyni í Kirsuberjagarð-
inum og Þorsteinn leikur með
Margréti Helgu Jóhannsdóttur
í Hreinsun.
Þau hafa bæði leikið tölu-
vert á sviði, í sjónvarpi og
kvikmyndum og segja það
skemmtilegt á sinn hátt þó ólíkt
sé. „Þegar maður leikur í bíó-
mynd þá gerir maður það vana-
lega bara einu sinni og sér svo
afraksturinn ekki fyrr en löngu
seinna. Senan er skjalfest og
óbreytanleg sem slík. Í leik-
húsinu ertu oftast að leika það
sama aftur og aftur þó engin
sýning sé samt eins og minn-
ingin um leikinn oftar en ekki
aðeins til í minni þeirra sem
sáu sýninguna á einhverju
gefnu augnabliki,“ segir Þor-
steinn og Elma tekur undir orð
hans: „Þetta er hvort tveggja
skemmtilegt á sinn hátt. Þetta er
allt öðruvísi vinna en samt nátt-
úrulega í grunninn er maður að
gera það sama. Í kvikmyndum
beitir maður sér öðruvísi en í
leikhúsi, raddnotkun og annað
er ekki eins. Þetta hefur hvort
tveggja sína töfra.“
átakanlegt þegar
fólk nær ekki saman
Grákaldur raunveru-
leiki Elma og Þorsteinn
segja myndina vera
fjölskyldusögu sem spegli
grákaldan íslenskan
raunveruleika.
mynd Gunnar Gunnarsson
Telma og ari Hér eru þau í hlutverkum sínum í myndinni sem systkinin Telma og Ari. Þau segja
það hafa hjálpað
þeim í hlutverkum sínum að það sé viss systkina-fílingur á milli þeirra. „Ég hef sjaldan
upplifað það
að lesa svona gott
handrit.