Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2011, Page 38
38 | Lífstíll 30. september–2. október 2011 Helgarblað
Vildi líkjast ljónunum sem allra mest
n Jocelyn Wildenstein er gott dæmi um misheppnaðar lýtaaðgerðir
J
ocelyn Wildenstein er
líklega eitt þekktasta
og mest nefnda dæm
ið um misheppnað
ar lýtaaðgerðir. Hún er yfir
leitt kölluð kattarkonan
með tilvísun í útlit henn
ar sem þykir á furðulegan
hátt minna á einhvern hátt
á einhvers konar kattardýr.
Jocelyn hefur ekki alltaf lit
ið svona út og ef saga henn
ar er skoðuð þá má sjá að
hún er nokkuð sorgleg. Hún
var gift milljónamæringn
um og listaverkasalanum
Alec Wildenstein og bjó með
honum á stórum búgarði þar
sem meðal annars voru ljón.
Hún varð mjög hrifin af ljón
unum sem voru einnig auga
steinar mannsins hennar.
Jocelyn elskaði mann sinn
afar heitt en hann var ekki
einnar konu maður, henni til
mikillar armæðu. Þegar hún
frétti að hann væri farin að
leita undir sængur annarra
kvenna ákvað hún að gera
eitthvað í málunum til að
vinna ást síns heittelskaða á
ný. Hún fór þess vegna í eina
litla lýtaaðgerð til að heilla
eiginmanninn og var ánægð
með árangurinn og það var
Alec líka. Það leið þó ekki á
löngu þar til augu hans fóru
að leita annað á ný og það var
þá sem Jocelyn ákvað að gera
eitthvað róttækt í málunum.
Hún ákvað að hún vildi líkj
ast sínum heittelskuðu ljón
um sem bæði hjónin höfðu
svo mikið dálæti á og fór með
það í huga á fund lýtalæknis
á ný. Þar gaf hún þau fyrir
mæli að hún vildi líkjast ljón
unum sem mest og útkom
an er sú sem við þekkjum í
dag. Sagt er að þegar eigin
maðurinn hafi séð hana þá
hafi hann öskrað og það olli
henni töluverðum vonbrigð
um. Hún fór þess vegna aft
ur til lýtalæknisins í frekari
aðgerðir og hefur í dag ekki
tölu á öllum aðgerðunum
sem hún hefur farið í. Þegar
hún er spurð út í fjölda að
gerðanna sem hún hefur far
ið í þá svarar hún ávallt með
bros á vör: „Ekki fleiri en aðr
ar konur hafa farið í.“ Ung og falleg Wildenstein þótti falleg fyrir aðgerðirnar.
Misheppnaðar aðgerðir Wildenstein hefur ekki
tölu á öllum þeim aðgerðum sem hún hefur farið í.
S
igrún Eva Ármanns
dóttir var nýlega krýnd
fegurðardrottning Ís
lands og leggur hún
áherslu á að borða
hollan og góðan mat. Hún
nefnir sérstaklega staðgóð
an morgunverð og bendir á
að margir haldi að það sé gott
að sleppa morgunmatnum en
segir að það sé rangt að gera
það. „Ég legg til dæmis áherslu
á að borða mikið í morgunmat
en þá borða ég oftast hafra
graut með banana.“
Fiskur og kjúklingur eru
í uppáhaldi og hún borðar
mikið grænmeti. „Ég hef alltaf
grænmeti með hádegismatn
um. Ég gæti verið duglegri að
borða ávexti en annars er ég
mikið fyrir mangó og ber – svo
sem jarðarber.“
Það er ekki nóg að hugsa
um hollustuna hvað matinn
varðar heldur líka það sem er
drukkið. Fegurðardrottningin
segist drekka mikið ávaxtasafa,
vatn og mjólk.
Hvað varðar þá sem eru
í megrun er nauðsynlegt að
benda á að borða nóg og rétta
fæðu. „Stelpur þurfa að passa
sig á að borða. Húðin verður til
dæmis ekki góð ef fólk sleppir
morgunmat. Morgunmaturinn
gerir það að verkum að fólk
kemst í gang. Það er hollara að
borða en að borða ekki. Það er
miklu betra. Það er best að fá
sér ávöxt á milli mála eða skera
niður grænmeti og vera með
ídýfu. Ég fæ mér til dæmis oft
hafrakex með osti og sultu. Ég
er á því að það þurfi að borða
að minnsta kosti þrisvar á dag
og þá mest í morgunmat.“
Sigrún Eva býr í foreldra
húsum og segir hún að móð
ir sín eldi bestu rétti sem hún
hefur smakkað. Hún nefnir
sérstaklega kjöt í karríi og kjöt
súpu og bætir við að sér finn
ist japanskir og kínverskir réttir
oft góðir. Hún gefur hins vegar
uppskrift að kjúklingarétti þar
sem nóg er af hollu grænmeti.
Uppáhaldskjúklingaréttur
Sigrúnar Evu að hætti
mömmu
n 4 kjúklingabringur
n 1 hvítlaukur
n 1–2 pokar gulrætur
n 1 bakki sveppir
n 2 dósir rjómaostur með sólþurrk-
uðum tómötum
n 2 kjúklingateningar
n Matreiðslurjómi
n 600 gr. heilhveitipasta – hreiður
Aðferð:
Kjúklingurinn er skorinn í bita
og steiktur upp úr olíu á pönnu
og síðan kryddaður með kjúkl
ingakryddi og síðan tekinn af
pönnunni og settur til hliðar.
Gulrætur skornar í mjóar
lengjur og steiktar á pönnu.
Sveppirnir eru síðan skorn
ir niður og settir út í gulræt
urnar.
Hvítlaukurinn skorinn
smátt og steiktur með.
Þetta er látið vera á pönn
unni í smástund. Þá er rjóma
osturinn settur út í ½ lítra af
vatni og kjúklingatengingarnir
settir út í. Matreiðslurjóma er
bætt út í og látið krauma smá
stund. Kjúklingabitunum bætt
út í. Pastað soðið samkvæmt
leiðbeiningum. Borið fram
með fersku salati og hvítlauks
brauði.
n Fegurðardrottning Íslands mælir með staðgóðum morgunverði og leggur áherslu á hollan og góðan mat
Borða
nóg
og
hollt
Stelpur þurfa að passa
sig á að borða Sigrún Eva
segir húðina verða slæma ef
fólk sleppir því að borða.