Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2011, Page 39
Lífstíll | 39Helgarblað 30. september–2. október 2011
Opið mán. - fim. 12-18, fös. 12-16 • lau. lokað
Sími 694 7911 • Eikjuvogur 29, 104 Rvk.
Stokkið
kynlífið
upp á nýtt
52 tromp
sem kveikja hugmyndir
og auka lostann
M
inn stíll er svolít
ið rokk og pönk í
bland við blúndur
og þessa dagana
er ég hrifin af öllu
sem er með fjaðrir,“ segir Krista
Hall nemi í grafískri hönnun
og starfsmaður í versluninni
Spútnik. Krista segir sinn stíl
hafa þróast mikið með árun
um. „Já, alveg helling. Á tíma
bili var eins og regnbogi hefði
ælt á mig – ég var svo litaglöð. Í
dag er ég meira í svörtu leðri og
rauðu. Ég er því orðin aðeins
hógværari í litunum og skreyti
mig frekar með skarti en föt
unum sjálfum,“ segir Krista
sem verslar aðallega í Spútn
ik og Nostalgíu. „Þær búð
ir eru í uppáhaldi hjá mér en
svo versla ég líka mikið í Top
shop. Ég bjó í London um tíma
og alltaf þegar ég fer þang
að heimsæki ég þessar ódýru
búðir eins og Primark og kíki
líka á „vintage“markaðina.“
Krista segist einnig hrifin
af íslenskri hönnun. „Það er
ótrúlega margt skemmtilegt
að gerast og margir ungir og
upprennandi hönnuðir sem
eru að gera góða hluti. Ég er
mjög hrifin af Kalda og á of
boðslega flottan kjól þaðan
sem er í miklu uppáhaldi hjá
mér,“ segir hún og bætir við
að á erlendri grund horfi hún
mest upp til Vivienne West
wood. „Vivienne Westwood
hefur verið í uppáhaldi hjá
mér í gegnum tíðina en svo
er margt annað sem ég er að
fíla eins og Stine Goya. Málið
er bara að ég hef ekkert efni
á að kaupa mér dýr hönnun
armerki en er meira í því að
skoða og láta mig dreyma. Ég
fæ líka miklu frekar innblást
ur frá fólkinu í kringum mig
og sérstaklega vinkonunum
en er ekkert endilega að eltast
við að eignast rándýrar flíkur,“
segir hún og bætir við að hún
hafi alltaf haft gaman af því
að fylgjast með tísku. „Vinn
unnar vegna fylgist ég með
því sem er að gerast hverju
sinni en ég reyni frekar að
klæða mig í það sem fer mér
og mínu vaxtarlagi betur en
að elta það sem er í gangi.
Annars hef ég ofsalega gam
an af því að eiga huggulega
kvöldstund á kaffihúsi með
tískublöðunum.“
Krista viðurkennir að
hafa gert fjölda tísku
mistaka í gegnum tíð
ina. „Ég hef oft keypt eitt
hvað sem ég svo nota
ekki en í seinni tíð er ég
farin að vita betur hvað ég
vil. Ég er líka búin að læra
að mamma veit alltaf best.
Ég lærði það sem unglingur
því þau föt sem voru mistök
og héngu ónotuð inn í skáp
voru þau sem mamma hafði
sagt mér að ég ætti aldrei eft
ir að nota.“
indiana@dv.is
Krista Hall vekur alltaf athygli fyrir flottan
stíl en Krista velur föt sem henta hennar
vaxtarlagi í stað þess að elta tískuna.
Skoða og læt
mig dreyma
Rokk, pönk og
blúndur „Ég fékk
skyrtuna í Spútnik
en gallabuxurnar
keypti ég af vinkonu
minni. Hælaskórnir
eru úr Maníu en
skartið úr Spútnik.“
Uppáhalds Krista
gerði pilsið úr kjól
sem hún fékk í
Spútnik en leður-
jakkann fékk hún í
London. „Svo er það
uppáhaldshluturinn
minn, silfurrefurinn.
Hann er nánast
límdur við mig og
það er mikið gert
grín að mér – að ég
sé alltaf með hann.“
Uppáhalds-
jakkinn
Þessi jakki
er í miklu
uppáhaldi hjá
Kristu.
Fjaðrir „Ég
held mikið
upp á stóra
fjaðraeyrna-
lokka sem
ég spenni
í hárið og
nota sem
hárskraut.“
Diskó „Ég ætla að vera í þessum kjól í afmæli
hjá Óla Hirti vini mínum á laugardaginn.“
„Á tímabili
var eins
og regnbogi hefði
ælt á mig – ég
var svo litaglöð.