Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2011, Blaðsíða 40
40 | Tækni 30. september–2. október 2011 Helgarblað
É
g hef alltaf haft ástríðu
fyrir skrifum og útgáfu.
Ég byrjaði sjálfur að
skrifa blogg en var pirr-
aður á hugbúnaðinum
sem var í boði,“ segir Matt-
hew Mullenweg, þróunarstjóri
WordPress-vefumsjónarkerfis-
ins. Matthew, sem iðulega er
kallaður Matt, hefur á undan-
förnum árum náð ótrúleg-
um árangri á sviði nethug-
búnaðar en WordPress-kerfið
er mest notaða vefumsjónar-
kerfið í heiminum í dag. Hann
byrjaði einn fyrir framan tölv-
una heima hjá sér en núna er
hann með tæplega 90 starfs-
menn í vinnu. Matt rekur fyrir-
tækið Automattic sem er með
höfuðstöðvar í San Francisco
en fyrirtækið sér um þróun
á Word Press-kerfinu, sem er
opið öllum til notkunar endur-
gjaldslaust.
Ungur áhrifamaður
á netinu
Matt fæddist árið 1984 í Texas
í Bandaríkjunum. Hann byrj-
aði að þróa WordPress þeg-
ar hann var 19 ára gamall og
ákvað að skrifa sitt eigið blogg-
kerfi sem seinna varð að vef-
umsjónarkerfinu WordPress,
sem um 12 prósent allra vef-
síðna á netinu í dag notast við.
„Ég skrifaði færslu á blogg-
ið mitt um hversu pirraður ég
væri á kerfinu. Þá hafði maður
að nafni Mike Little samband
við mig og sagði: Hey, ef þú ert
að meina þetta, þá væri ég til í
að vinna með þér,“ segir Matt
um upphafið að WordPress.
„Það var athyglisvert því við
höfðum aldrei unnið saman
áður. Hann var þrjátíu og eitt-
hvað ára gamall maður á Eng-
landi og ég var 19 ára strákur í
Bandaríkjunum.“ Matt áttaði
sig ekki á því hvað þetta sam-
starf átti eftir að hafa í för með
sér.
Þegar vinsældir Word Press
voru orðnar umtalsverðar
ákvað Matt að hætta í dagvinn-
unni sinni hjá CNET-samstæð-
unni. Það var svo árið 2005
sem hann ákvað að stofna fyr-
irtæki sitt, Automattic, sem
meðal annars heldur utan um
WordPress.com, sem er vef-
umsjónarþjónusta sem byggir
á WordPress, og Akismet, sem
er viðbót sem stöðvar ruslpóst
í ummælakerfi WordPress-
síðna.
Gaman að vinna
samkeppnina
Vefkerfið Typepad hafði kom-
ið út nokkrum árum áður en
Matt og Mike byrjuðu að þróa
Word Press. Síðan þá hefur
mikið breyst og WordPress
orðið talsvert meira notað en
Typepad. Matt segir að það sé
auðvitað gaman að hafa sigr-
að keppinautinn en hann seg-
ir engu að síður aðalmálið vera
að gefa fólki tækifæri til að tjá
sig á netinu. „Hugbúnaðurinn
var í fyrstu bara fyrir mig og
vini mína og það voru í raun
alls ekkert margir sem notuðu
hugbúnaðinn,“ segir hann.
„Fyrstu notendur Word Press
var fólk sem trúði á opinn hug-
búnað, fólk sem var umhugað
um opinn vef,“ segir hann um
fyrstu notendur WordPress.
Matt segir að erlendir mark-
aðir sem önnur fyrirtæki voru
ekki að stíla inn á hafi verið
kappsömustu notendurnir.
„Við vorum rödd þessa hóps.“
Þessi mikla velgengni Matts
hefur komið honum í sviðs-
ljósið, en árið 2007, þegar
hann var aðeins 23 ára gam-
all, var hann í sextánda sæti
á lista PC World-tímaritsins
yfir áhrifamesta fólkið á vefn-
um. Hann hefur einnig verið
settur á lista Inc.com-veftíma-
ritsins yfir 30 athyglisverðustu
frumkvöðlana undir þrítugu
og á lista Business Week yfir 25
áhrifamestu einstaklingana á
vefnum.
Hugbúnaðurinn var
hlægilega lélegur
Matt segir að fyrstu útgáfurn-
ar af kerfinu hafi verið „hlægi-
lega lélegar“. Allar breytingar
sem hafa verið gerðar á hug-
búnaðinum hafi verið gerðar
að óskum notenda. „Við hlust-
uðum bara á notendurna. Við
vorum ekki að reyna að græða
á þeim eða neitt svoleiðis. Við
reyndum bara að gera vefinn
betri,“ segir Matt um þróunina
á Word Press. „Allir þeir sem
eru að þróa hugbúnaðinn nota
hann sjálfir á eigin síðu,“ segir
hann um hvers vegna þeir sem
þróa hugbúnaðinn hafi jafn
mikla ástríðu fyrir því að gera
hann betri og raun ber vitni.
Þar sem þróun WordPress-
kerfisins er unnin eftir reglum
um opinn hugbúnað eru nær
engin takmörk á því hversu
margir koma að þróuninni.
Starfsmenn Automattic hafa
þó mest um það að segja hve-
nær nýjar útgáfur kerfisins eru
gefnar út en allt samfélagið á
bak við WordPress – sem tel-
ur tugi þúsunda einstaklinga –
tekur þátt í að gera hugbúnað-
inn að því sem hann er í dag.
Þetta segir Matt vera helstu
ástæðuna fyrir vinsældum
WordPress. Allir geti fengið að
hafa áhrif á þróun kerfisins.
Hefur ákveðna heimssýn
Það má með sanni segja að Matt
hafi ákveðnar og sterkar skoð-
anir á hvernig heimurinn eigi
að virka. Hann hefur mikla trú
á tjáningarfrelsinu, sem hann
segir að sé stór partur af því að
hann skuli hafa farið af stað
með WordPress-verkefnið. „Þú
getur ekki búið til frjálst sam-
félag með leyfisskyldum hug-
búnaði,“ segir Matt um fram-
tíðarsýn sína. Hann segist ekki
sjá annan möguleika en að allar
tæknilausnir verði á einhverj-
um tímapunkti hluti af opnum
lausnum sem eru í grunnatrið-
um boðnar endurgjaldslaust.
„Ég er samt kapítalisti,“ bætir
hann við og segir að auðvitað
verði tækniiðnaðurinn að hald-
ast arðbær svo að þróunin haldi
áfram.
Matt segir að hægt sé að
fara sömu leið og hann hefur
farið með rekstur síns fyrir-
tækis. Automattic býður Word-
Press frítt fyrir alla notendur
en býður svo upp á þjónustu
við hugbúnaðinn sem fæst
gegn gjaldi. Fyrirtækið hefur
á undanförnum árum safnað
miklu hlutafé og hefur Matt
verið boðið jafnvirði 23,6 millj-
arða króna fyrir fyrirtækið.
Leiða má að því líkur að fjár-
festar líti í auknum mæli til op-
ins hugbúnaðar sem grunn að
arðbærum viðskiptum.
Starfsmannastefna Matts er
einnig nokkuð athyglisverð. Til
að mynda eru engin mörk sett
á hversu mikið frí starfsmenn
mega taka sér. Starfsmenn fyr-
irtækisins eru einnig sérstak-
lega hvattir til að taka sér frí
þegar þeim hentar. „Við þurf-
um í alvöru að senda fólk í frí,“
segir Matt aðspurður hvern-
ig gangi að hafa svona opna
sumarleyfisstefnu. Fyrirtækið
styrkir einnig starfsmenn til
að komast í frí og til að sækja
sér endurmenntun. Matt segir
að allt sé þetta liður í að búa til
draumafyrirtæki til að vinna
fyrir.
Aðalsteinn Kjartansson
adalsteinn@dv.is
Viðtal
Varð pirraður og
sigraði heiminn
Matthew Mullenweg hefur á síðustu níu
árum komið sér í hóp áhrifamestu ein
staklinganna á veraldarvefnum. Hann er
maðurinn á bak við WordPress, vinsælasta
vefumsjónarkerfið í dag. Velgengni hans
hefur vakið athygli víðs vegar um heim en
hann hafnaði tilboði um að selja fyrirtækið
fyrir jafnvirði 23,6 milljarða króna. Matthew
var staddur á Íslandi fyrr í mánuðinum og
gaf sér tíma til að setjast niður með Aðal-
steini Kjartanssyni og ræða um Word
Press, velgengnina og þá sýn sem hann
hefur á heiminn.
„Þú getur ekki
búið til frjálst
samfélag með leyfis
skyldum hugbúnaði.
„Hugbúnaðurinn
var í fyrstu bara
fyrir mig og vini mína
Hvað er
WordPress?
n WordPress er vefumsjónar
kerfi sem fyrst var gefið út árið
2003. Kerfið er opið og er notkun
hugbúnaðarins gjaldfrjáls. Um
12 prósent af þeim vefsíðum
sem aðgengilegar eru á netinu
styðjast við WordPresskerfið.
Nýleg könnun sem gerð var á
meðal 18 þúsund WordPress
notenda leiddi í ljós að
iðnaðurinn í kringum WordPress
veltir meira en 3,4 milljörðum
króna á ári.
n WordPress er enn í stöðugri
þróun og hefur kerfið tekið
miklum breytingum í nýjustu
útgáfunum. Enn er nokkuð í
land að kerfið verði hnökralaust
en af notkun þess að dæma
er það með notendavænni
vefumsjónarkerfum sem eru á
boðstólum í dag.
Byrjaði 19 ára Matt Mullenweg
byrjaði að þróa WordPressvefum
sjónarkerfið fyrir tvítugt.
Mynd new MediA MK